Þjóðviljinn - 17.06.1986, Side 6
„Nú flýg
eg a
svörtum
vœngjum
hefndar
Fjórir menn standa í hrauninu
og sverja eiö. Raddirnar berast
hátt yfir: „Ég sver,“ segir einn.
„Ég sver“, segir annar. Sá þriöji
segir:
„Nú þekki ég ykkur bræöur.
Takið þiö nú eftir. Ef þiö eruð
sama sinnis og ég þá verðum við
allir aö heiman þegar í nótt. Við
mætumst í láginni utan við
Vorsabæjartúnið. Það er dirfska
að veita Höskuldi aðför svo ná-
lægt heimili hans. En hingað til
hefur ykkur ekki skort áræði. Þar
getum við leynst og séð þá sem
um veginn fara. Komum."
f hrauninu nálægt Kaldárseli er
lagt á ráð um víg Höskuldar
Hvítanesgoða og er þar að verki
Mörður Valgarðsson.
Það er rigningarsuddi þegar
gengið er að hraunbollanum, sem
hýsir „Söguleikana" - leikhópinn
sem í sumar ætlar að flytja nýja
leikgerð af Njálu úti undir beru
lofti. Helga Bachmann og Helgi
Skúlason hafa samið leikgerðina
og byggja á leikriti Jóhanns
Sigurjónssonar, Merði Valgarðs-
syni og Njálu sjálfri, en alls tekur
sýningin rúman klukkutíma.
„Að leika fornsögurnar úti í
náttúrunni er gamall draumur,
sem nú er að verða að veruleika.
Ég var beðin um að gera leikgerð
og stjórna henni og tók þetta að
mér ásamt Helga, enda verki
ekki á eins manns færi. Draumur-
inn var að leika í Hvannagjá á
Þingvöllum, en svo einkennilega
sem það hljómar, meinaði Þing-
vallanefnd okkur það. En við
vorum ákveðin að gefast ekki
upp og fundum þessa ágætu laut
hér í hrauninu, þar sem hljóm-
burður er ótrúlega góður og öll
aðstaða. Það verður tjaldað yfir
áhorfendur, en leikararnir standa
í gustinum," sagði Helga, þegar
Kári (Skúli Gautason), Grímur (Þröstur Leó Gunnarsson) og Skarphéöinn (Valdimar Orn Flygerin g)
Allur hópurinn ásamt leikstjórunum Helgu og Helga
fremst á myndinni.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. júní 1986