Þjóðviljinn - 17.06.1986, Page 9

Þjóðviljinn - 17.06.1986, Page 9
Framhald af bls. 8 isstaðurinn forni, sem er hluti úr Sögu Alþingis og eitt viðamesta rit um Þingvelli sem hefur verið skráð, segir Matthías Þórðarson, fyrrverandi þjóðminjavörður, að elsta búðaskrá Þingvalla sé rituð árið 1700. Það er svo álitamál hversu örugg sú búðaskrá er. í fornsögunum eru nokkrar búðir nefndar og seinni tíma menn hafa viljað staðsetja þær, t.d. reyndi Sigurður Guðmundsson málari að ákveða hvar þessar búðir höfðu verið staðsettar, gerði hann uppdrátt af svæðinu og markaði búðirnar inn á. Sigurður Vigfússon, fornleifafræðingur, gróf hér á Þingvöllum 1880, og telur hann að hægt sé að staðsetja með öruggri vissu nokkrar búðir m.a. Snorrabúð, Hlaðbúð, Njáls- búð og Byrgisbúð. Ég held að flestir séu sammála um staðsetn- ingu þessara búða.“ Nú hefur Heimir fundið það sem hann leitaði að í Þorgilssögu og Hafliða, en kafla þennan segir hann að hægt sé að nota sem leiðarvísi að Byrgisbúð. - Og þá færðu þeir dóminn austur í hraunið hjá Byrgisbúð. Þar gæta gjár þrem megin en virkisgarður einum megin. Þessi lýsing getur ekki átt við neinn annan stað en þann á spönginni þar sem enn má sjá tóttir Byrgisbúðar og sannfærðist undirritaður um það seinna er Heimir sýndi staðhætti á Spöng- inni, en sumir fyrri tíma manna stóðu í þeirri trú að þar hafi Lög- berg verið en ekki þar sem nú er álitið. T.d. er það álit sumra að Jónas Hallgrímsson hafi álitið að Lögberg væri á Spönginni er hann orti: Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á Lögbergi helga blánar af berjum hvert ár börnum og hröfnum að leik. „Reyndar er ekkert lyng á Spönginni en það er heldur ekki að finna á Lögbergi, en þarna hefur skáldið orðið sterkara nátt- úrufræðingnum í Jónasi." Ðúð á búð ofan Þó gaman sé að ígrunda hvern- ig hér var um að litast á þjóð- veldisöld, segist Heimir hafa sér- staklega gaman af að lesa síðari tíma heimildir um þinghald á staðnum, en alþingi var haldið á þingvöllum í 868 ár samfleytt. „Þó almenn fátækt hafi ríkt í landinu á 18. öld, þá gáfu menn sér samt tíma frá lífsbaráttunni til að mæta á Þingvöllum á meðan þing var háð, í þeim tilgangi að fylgjast með, sýna sig og sjá aðra. Af lýsingum frá þessum tíma að dæma var höfðingjabragur á mörgum þá, þannig að við getum rétt ímyndað okkur hvernig hér var á þjóðveldisöld, er höfðingjar þess tíma mættu hér til að sýna reisn sína, jafnt í klæðaburði sem og í búðasmíð.“ Heimir telur að menn verði að hafa það í huga þegar búðatótt- irnar eru skoðaðar, að í aldanna rás hefur búð risið á búð ofan, þannig að þegar farið verður að grafa í búðirnar munu menn grafa sig í gegnum söguna. Sagðist hann vonast til að uppgröfturinn í sumar yrði bara byrjunin á viðamikilli fornleifa- rannsókn á Þingvöllum, enda væru verkefnin næstum ótæm- andi á svæðinu. „Það er æskilegt að hér fari fram einhver rannsókn á hverju sumri og að almenningur fái að fylgjast með hvernig miðar í gegnum fjölmiðla, jafnvel að heimsækja rannsóknarsvæðið, þó ég þykist vita að fornleifafræð- ingarnir séu ekkert yfir sig hrifnir af því að Pétur og Páll séu að spígspora þar sem uppgröftur er í gangi.“ Afturhvarf til arfleifðarinnar Nú er Heimir kominn að mál- efni sem honum er hugleikið, en það er hvernig halda megi arf- leifð þjóðarinnar að almenningi og rækta upp áhuga á henni. „Það má tvímælalaust greina afturhvarf til þessarar arfleifðar okkar, en það tengist almennri tilhneigingu í samtíðinni að leita róta sinna. Áhuginn á fortíðinni hefur vaknað aftur og hann tekur einnig til íslendingasagnanna, enda eru þær uppistaðan í okkar arfleifð. Það eitt að ungir menn réðust í það stórvirki að kynna þjóðinni Islendingasögurnar, bendir til þess að þeir sem að útgáfunni standa hafi trú á því að fólk sé móttækilegt fyrir þessu. Það er til fyrirmyndar hvernig Svart á hvítu hefur staðið að þessari útgáfu og vakið upp áhuga sem var fyrir hendi með því að gera sögurnar aðgengilegar fyrir nútímafólk. Hingað til hefur of rnikið verið gert af því að íhuga það hvernig arfleifðin stendur. Ég tel að það þurfi ekki að eyða miklum tíma í slíkar hugleiðingar. Miklu mik- ilvægara er að ákveða hvað við viljum gera til að halda arf- leifðinni á lofti og móta ákveðna stefnu í því. Við lifum á öld hins sjónræna og því miður hefur alltof lítið verið gert af því að nota þá möguleika sem sjónvarp- ið t.d. býður upp á til að kynna sögurnar. Það þarf ekki endilega að gera það með því að framleiða leiknar myndir einsog Snorra Sturluson, heldur gætum við tekið breta okkur til fyrirmyndar og framleitt skemmtilega og lif- andi fræðsluþætti um þetta tíma- bil. Við eigurn nrarga ágætlega hæfa ntenn sem gætu tekið slíkt að sér. Hér er í raun og veru um að ræða stefnu í uppeidi barna og fullorðinna. Málið snýst um það hvort við viljurn halda þessunt arfi að fólkinu eða ekki. Þetta er því fyrst og fremst spurning um vilja." Og peninga, bætti undirritaður við, og Heimir samþykkti það. Menning á þrem stöðum Heintir heldur áfram að ræða hvernig best sé að halda arf- leifðinni á lofti. „Það þykir kannski undarlegt að maður í mínu embætti skuli segja urn nýju íslendingasagna- útgáfuna, að hér sé komin bók, sem eigi að vera til á hverju heirn- ili einsog Biblían, þannig að fólk geti gengið að sögunum hvenær sem hugurinn girnist einsog guðs- orðinu. Sigurður Nordal sagði eitt sinn, að ntenningokkar hvíldi á þrem stoðum, hinni norrænu, hinni grísk klassísku og hinni he- bresku. Engin þessara stoða get- ur án hinna verið. Við verðum einsog álfar út úr hól ef við berum ekki skynbragð á þessar þrjár rætur eða förunt að rækta eina á kostnað hinna." -Sáf Þjóðhátíð í Reykjavík DAGSKRA Hátíðardagskrá: ■ ;Á17. JÚNÍ1986 Dagskráin hefst: 9:55 Samhljómurkirkjuklukkna í Reykjavík. I. 10:00 Forseti borgarstjórnar leggur blóm- sveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Lúðrasveitin Svanur leikur: Sjá roðann á hnjúkunum háu. Stjórnandi: Kjartan Óskarsson. Við Austurvöll: Lúðrasveitin Svanur leikur ætt- jarðarlögá Austurvelli. Kl. 10:40 Hátíðin sett: Kolbeinn H. Pálsson, formaðurÆskulýðsráðs Reykjavíkur flytur ávarp. Karlakórinn Fóstbræður syngur: Yfir voru ættarlandi. Stjórnandi: Ragnar Björnsson. Forseti íslands, Vigdis Finnboga- dóttir, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurössonar á Austurvelli. Karlakórinn Fóstbræður syngur þjóðsönginn. Ávarp forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar Karlakórinn Fóstbræðursyngur: ísland ögrum skorið. Ávarp fjallkonunnar. Lúðrasveitin Svanur leikur: Ég vil elskamittland. Kynnir: Bjarni Sigtryggsson. Kl. 11:15 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Ólafur Skúlason dóm- prófastur. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Einsöngvari: Ingibjörg Marteinsdóttir Sjúkrastofnanir: Feguröardrottning Reykjavikur og Lobbi heimsækja barnadeildir Landsspitala og Landakotsspitala um morguninn. Blönduð dagskrá: Skrúðgöngur - íþróttir - Sýningar Skrúögöngur frá Hlemmi og Hagatorgi: Kl. 13:30 Safnast saman við Hlemmtorg. Kl. 13:45 Skrúðganga niður Laugaveg aö Lækjartorgi. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen. Kl. 13:30 Safnast saman við Hagatorg. Kl. 13:45 Skrúðganga frá Hagatorgi i Hljóm- skálagarð. Lúðrasveit verkalýðsins leikur undir stjórn Ellerts Karlssonar. Skátar ganga undir fánum og stjórna báðum göngunum. Hallargarður og Tjörnin: Kl. 13:00-19:00 ÍHallargarðiverðurminigoll. Á suðurhluta Tjarnarinnar verða róðrabátar frá Siglingaklúbbi íþrótta- og tómstundaráðs. Sýning á fjarstýrðum bátamódel- um á syðri hluta Tjarnarinnar. Barnaskemmtidagskrá i Hallargarði. Útitafl. Kl. 13:30 Unglingarúrtveimurskólumteflaá útitafli. lifandi taflmenn. Hljómskálagarður: Kl. 14:00-18:00 Skátadagskrá, tjaldbúðirog útileikir. Kl. 14:00-16:00 Glímusýning. Kl. 14:00-16:00 Fimleikahópursýnirá fjaðurbretti (trambólin). Kl. 14:00-18:00 Mini-tivolt, leikir og þrautir. Skemmtidagskrá í Hljómskálagarði. íþróttir: Kl. 14:00 Reýkjavíkurmótið i sundi i Laugardalslaug, Akstur og sýning gamalla bifreiða. Kl. 13:30 Hópakstur Fombilaklúbbs Islands vestur Miklubraut og Hringbraut, umhverfis Tjörnina og að Kolaporti. Kl. 14:30-17:00 Sýning ábifreiðum Fornbíla- klubbs fslands I Kolaporti. Frostaskjól: Kl. 16:30-19:00 Blönduð dagskrá fyrir eldri borgara i Frostaskjóll. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. SKEMMTIDAGSKRA I MIÐBÆNUM: Hljómskálagarður 13:55 Skrúöganga kemur frá Hagatorgi 14:00— 18:00 Litli dýragaröurinn 14:00 Túnfiskarnir 14:25 TótitrúÖur 14:35 lcy flokkurinn 15:00 Skemmtiatriði úrfól.m. 15:20 Danssýning 15:30 HalliogLaddi 15:50 „GOR"-flokkurinn 16:00 Lokaatriði götuleikhúss á Tjarnarbrú 16:00 Hljómsveitin Fyrirbæri 16:15 Kjarnivaldansleikur Kynnir: Auöunn Atlason Kl. 16:15-17:30 Dagskránnl lýkur með Karnlvaldanslelk í Hljómskálagarði fyrirkrakka. Skringifólk ogfurðuverur stjórna dansleiknum. Á. leikir. þrautir, Hallargarður Torgið 14:00 Brúðubillinn 14:20 Harmonikkuunnendur leika 14:45 Tótitrúður 15:10 Skemmtiatr. úr grunnsk. 15:30 Túnfiskarnir Kynnir: Ellen Freydis 16:00 Lókaatriöi götuleikhúss á Tjarnarbrú 16:15 Karnivaldansleikur í Hljómskálagaröi 13:55 Skrúöganga kemurfrá Hlemmi 14:00 lcy flokkurinn 14:20 Leikhópur, Siggi, Karl.örn 14:40 Skemmtiatr. úrgrunnsk. 15:00 Danssýning 15:10 Harmonikkuunnendur leika Kynnir: Magnús Kjartansson 16:00 Lokaatriöi götuleikhúss á Tjarnarbrú 16:15 Karnivaldansleikur i Hljómskálagaröi 14:00-16:00 Götulalkhús 1 mlðbanum, leikhópurinn „Velt mamma hvað ég vll" sýnir Reyk|av(kuravlntýrl. Gamli og nýí tlmlnn berjast á Lækjartorgi, I Hljómskálagarði og umhverfis Tjörnlna. Hús og kirkjur lifna við og berjast við fornynjur, tlminn tekur heljarstökk, tröll og papar mæta til leiks. 16:00-16:15 Samt standa alllr saman, jafnt gamlir sem ungir, stórir sem sméir gegn skrímslinu vonda sem sigrað skal að lokum á Tjarnarbrúnni —• afliðsmönnumhins góöaúrháloftunum. LEIKSVIÐ Lækjargata GÖtulóikhÚS ^ÚTITAFL j leiksvið ATHI Bflastæðl á Háskólavelll og Melavelli. Týnd börn verða (umsjón gæslufólks á Fríklrkjuvegi 11. SKRÚÐGANGA ’ FRÁHLEMMI 1 f KVÖLDDAGSKRÁ: Kvöldskemmtun í miðbænum: Kl. 20:30-24:00 Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar. Félag harmonikkuunnenda. Halli og Laddi. Bítlavinafélagið. Possibiilies. Kynnir: Magnús Kjartansson. Gerðuberg Kl. 20:30-23:00 Blönduð dagskrá fyrir eldri borgara í Gerðubergi. Dansað, farið í leiki og ýmis skemmtiatriði. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. $77) ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ Listapopp í Laugardalshöll (samvinnu Listahátíðarog íþrótta- og tómstundaráðs: Kl. 19:30-01:00 Fram koma hljómsveitirnar: Greifarnir. Rikshaw. Fine Young Cannibals. Madness. Verð aðgöngumiða kr. 800.-. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.