Þjóðviljinn - 17.06.1986, Side 3
Rannsóknarlögreglcm
Röng og
villandi
ummæli
Eftirfarandi yfirlýsingu sendi
Hallvarður Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri ríkisins frá
sér í gær í tilefni af frétt sjón-
varpsins í fyrrakvöld um meintar
greiðslur frá Hafskip til eins af
þingmönnum Alþýðubandalags-
ins.
„Vegna fréttaflutnings í sjón-
varpi í gærkvöldi um rannsókn í
svonefndu Hafskipsmáli skal
eftirfarandi tekið fram:
Frásagnir í þessum fréttatíma
frá rannsókn málsins eru eigi
byggðar á heimildum frá RLR og
eru tilgreind atriði frá rannsókn
málsins bæði röng og villandi.
Harma ég mjög hin meiðandi
ummæli sem samfara þeim komu
fram í fréttaflutningi sjónvarps-
ins.“
Hallvarður Einvarðsson
Frá ritstjórn
Þjóðviljans
Viss misskilningur og mistök
áttu sér stað varðandi meðferð á
fréttatilkynningu frá starfsfólki á
fjórum deildum Þjóðviljans sem
birtist hér í blaðinu á laugardag-
inn og laut að þeim ritstjórnar-
málum sem þá voru í deiglunni.
Ritstjórn Þjóðviljans harmar
sinn þátt í þessum fréttaflutningi
og viðurkennir að í honum hafi
ekki verið gætt nauðsynlegrar
hlutlægni.
Hreppsnefndakosningar
Hlutur
kvenna jókst
í hreppsnefndakosningunum á
laugardag voru alls 715 fulltrúar
kosnir í 163 hreppum. í 21 hreppi
voru listakosningar en annars
staðar voru óhlutbundnar kosn-
ingar. Sjálfkjörið var í tvær
hreppsnefndir, Akrahreppi og
Rípurhreppi.
Hlutur kvenna í hreppsnefnd-
um jókst eftir þessar kosningar
um rúm 2% en einungis á einum
stað, í Jökuldalshreppi, var sér-
framboð kvenna, H-listi hús-
mæðra. Þær hlutu enga konu
kjörna. -K.ÓI.
Líkfundur
Lík í net
við Gróttu
Síðdegis á sunnudag kom lík í
net hjá trillu út af Gróttu. Var
björgunarsveit Ingólfs kölluð á
vettvang og sótti hún líkið.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar var líkið mjög illa farið og
hafði auðsjáanlega legið lengi í
sjó. Gat lögreglan ekki neitt full-
yrt um hvern þarna er um að ræða
en sagðist vinna að því að afla
frekari gagna um þá sem komið
geta til greina.
—Sáf
FRÉTTIR
Það er ekkert smámál að sveifla sér á bak þegar maður er ekki nema níu ára, en þetta gekk allt að
óskum. Dóra Bragadóttir var í hópi 15 barna sem voru að byrja á reiðnámskeiði í Saltvík á Kjalarnesi
þegar Þjóðviljamenn áttu leið þar hjá í gær. Margir voru þama að fara á hestbak í fyrstasinn og það þurfti að
huga að mörgu, en þau eiga eflaust eftir að læra margt á næstu tveimur vikum. Þaö er Sólveig
Ásgeirsdóttir sem þarna hjálpar Dóru við að stíga fyrsta skrefið í hestamennskunni. _gg/Sig
Guðmundur J.
Guðmundsson
Yfirlýsing
I gærkvöldi var í ríkisfjöhniðl-
um frétt af svokölluðu Haf-
skipsmáli.Þar var látið að því
liggja að þekktur Alþýðubanda-
lagsmaður og verkalýðsforingi
hafi þegið mútur frá Hafskip hf.
Ekki láðist neinum sem á hcyrðu
að þar var átt við undirritaðan,
Guðmund J. Guðmundsson.
Það sem ég er staddur erlendis
hef ég beðið um að eftirfarandi
yfirlýsing verði birt.
Ég hef aldrei, hvorki fyrr né
síðar þegið fé frá Hafskip né
nokkru öðru skipafélagi, fyrir-
tæki eða forsvarsmönnum þeirra.
Allar aðdróttanir í þá veru eru úr'
lausu lofti gripnar.
Ég mun fara fram á að yfir-
standandi opinberu rannsókn
verði hraðað sem mest og málið
skýrt opinberlega. Það er ákaf-
lega vítavert að ríkisfjölmiðill
skuli birta frétta í þessum búningi
þar sem m.a. er vitnað í vitnis-
burð manns sem situr í gæslu-
varðhaldi. Það er ný aðferð til að
gera óhróður trúverðugan. Ég
hef gert ráðstafanir til að hraða
för minni heim hið fyrsta.
15.06.1985.
Guðmundur J. Guðmundsson
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
-alltaf skammt undan
Öllum er augljóst gildi þeí
vinna með öðrum - taka sameic
lega á þeim verkefnum sem eru
hverjum og einum ofviða.
Án samvinnu og samstöðu lands-
manna allra hefði íslensku þjóðinni
seint tekist að brjóta á bak aftur
áþján erlends valds og öðlast sjálf-
stæði 17. júní 1944.
Samvinnufélögin eru frjáls og
óháð félagasamtök meira en 45.000
einstaklinga. Samvinnuhreyfingin
vill vera öflugur þátttakandi í fram-
fararsókn íslensku þjóðarinnar. Hún
vill vinna með öðrum þjóðhollum
öflum við að byggja upp traust efn-
ahagslíf og taka á þann hátt virkan
þátt í ævarandi sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA