Þjóðviljinn - 17.06.1986, Page 15

Þjóðviljinn - 17.06.1986, Page 15
Vinstri sósíalistar Athugasemd um „handritafund“ á Landsbókasafni Einfaldir nicnn geta lent í ýmiss konar hrellingum. í helgarblaði Þjóðviljans dag dundu yfir mig slíkar hrellingar að óhjákvæmi- legt reynist að koma á framfæri athugasemd og leiðréttingum. Fyrir nokkru fréttist að ég væri á förum til Sevilla á Spáni, þar sem ég ætlaði að vinna að sagn- fræðilegu verkefni næsta vetur. Verkefnið er athugun á ritunar- ferli tveggja íslenskra handrita í vörslu Landsbókasafns. Annað er handrit Halldórs Jakobssonar frá 1806: „Conqvetten af Mex- ico“ (Lbs. 955 8vo) og hitt hand- rit Gísla Konráðssonar: „Saga Ferdinands Kortes og Mexinga“ (Lbs. 1155 4to) frá um 1850. Þegar blaðamaður Þjóðviljans fór þess á leit að eiga við mig stutt spjall um væntanlega för mína tii Sevilla og vinnu við þetta verk- efni brást ég að sjálfsögðu vel við. Síðastliðinn miðvikudag kom blaðamaðurinn SÁF á minn fund og við ræddum um Spánarförina og verkefnið. Afraksturinn birt- ist svo í helgarblaðinu, ekki að- eins sem spjall og frásögn inni í blaðinu, heldur einnig sem „stór- frétt" á baksíðu blaðsins. Sitthvað hefur skolaðst illilega til í meðförum blaðamannsins, því ljóst má vera að ég „fann" ekki handrit, sem löngu eru skráð í handritaskrám Landsbóka- safns. Ég gat þess hins vegar við blaðamann að handrit þessi hafi lítt eða ekki verið rannsökuð, rit- unarferill þeirra og forsaga, en það væri einmitt markmið mitt að rannsaka hvernig sögur Bernal Díaz og Antonio de Solís hefðu borist í hendur Halldóri Jakobs- syni. Af iestri viðtalsins í helgar- blaðinu mætti ætla að hér væri um merkilegan „handritafund" að ræða, sem vissulega er fjarri öllum sanni. Blaðamaður getur þess einnig að ég sé á „leið til Spánar til að búa handritið til prentunar". Þetta er auðvitað ekki rétt, slíkt er ekki unnt að fullyrða á þessari stundu. Ég gat þess hins vegar að af útgáfu gæti orðið síðar og reyndar bæði æskilegt og afar freistandi. Ýmsar smávillur slæddust auk þess í viðtal þetta, sem ég elti ekki ólar við. Af mistökum þessum í helgar- blaðinu geti bæða blaðamenn og viðmælendur þeirra dregið nokk- urn lærdóm. í fyrsta lagi ættu blaðamenn ekki að vinna svona viðtöl með þeim hraða sem hér var við hafður. I öðru lagi ættu viðmælendur blaðarnanna að lesa framleiðsluna áður en hún er á þrykk sett. Séu slík vinnubrögð við höfð ætti að vera unnt að forðast mistök sem þessi. Þá yrðu einfeldningar ekki hrelldir á sama hátt og ég nú. f þeirri von að Þjóðviljinn og blaðamaðurinn SÁF hafi ekki vísvitandi ætlað að rýja mig ærunni sendi ég blaðinu barátt- ukveðjur með von urn betri tíð og blóm í haga. 14. júní 1986 Sigurður Hjartarson Sýning Foreldrar og afkvæmi Sýning á náttúrufrœðidegi í dag Sveinbjörn I. Baldvinsson. Leiðrétting Eins og lesendur helgarblaðs tóku eftir urðu þau leiðinlegu mistök við vinnslu blaðsins að í umsögn um verðlaunasmásögur Listahátíðar birtist mynd af Stef- áni Baldurssyni formanni dóm- nefndar í stað verðlaunahafans Sveinbjarnar Ingvars Baldvins- sonar. Hér er myndin af Sveinbirni komin og beðist er vel- virðingar á þessum glöpum._pV Næsti náttúrufræðidagur áhugahóps um byggingu náttúru- fræðisafns er í dag, sjálfan þjóð- hátíðardaginn 17. júní, hann verður haldinn í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur í suðurhluta Hljóm- skálagarðsins frá kl. 13.30 til 18.00. Þarna verður hægt að skoða foreldri og afkvæmi íslensku húsdýranna, þó ekki svín. Þau dýr sem sýnd verða eru: Ær með lömb, hryssa með folöld, kýr og kálfar, geitur og kiðlingar, tík og hvolpar, læður og kettlingar, kanínur með unga, hani, hænur og ungar og kalkúnar. Reynt verður að hafa endur og gæsir. Karlkynsforeldri verður því mið- ur að sleppa í flestum tilfellum vegna þrengsla. „Safnverðir" verða á staðnum til að sýna og svara spurningum. Lögð verður áhersla á að börn fái að komast í snertingu við dýrin og kynnast þeim. Afhent yerður sýningar- skrá að venju. Á Skrauthólum á Kjalarnesi verður opið „fjós“ frá 13.30 til 18.00. Þangað eru allir velkomnir og þá sérstaklega börnin. Safnverðirsýna „heimili" nautgripanna og svara spurning- um. Foreldri og afkvæmi, seinni hlutinn, verður á dagskrá nátt- úrufræðidaginn 29. júní. Þá verða tekin fyrir fjölmörg önnur dýr stór og smá. Seinni dagurinn verður haldinn í nágrenni við lóð náttúrufræðisafnsins fyrirhugaða í Vatnsmýrinni. Báðar þessar sýningar eru aðeins lítill hluti þess sem þjóðarnáttúrufræðisafn myndi kynna í sambandi við for- eldri og afkvæmi. T.d. yrði haft samstarf við ýmsa aðila til að hafa „Opið hús“ fyrir hverja tegund húsdýranna okkar og að sjálf- sögðu yrði fyrirhugaður dýra- garður Reykjavíkurborgar nýttur líka. Húsnœðismál Athugasemd Sigurður E. Guðmundsson skrifar í gær birtist í Þjóðviljanum grein eftir Guðna Jóhannesson, verkfræðing, undir heitinu „Leigjendakönnun klúðrað“. í henni greinir frá því að Húsnæð- isstofnun ríkisins hafi sent sveitarstjórnum í landinu dreifi- bréf hinn 21. apríl sl. „þar sem þeim tilmælum er beint til sveitarstjórnarmanna að þær gangist fyrir slíkri könnun í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Lögð er áhersla á að samráð séu höfð við félagsmálastofnanir, húsaleigunefndir og stjórnir verkamannabústaða og að upp- lýsingar séu ítarlegar og vel unn- ar“. Allt er þetta rétt hermt hjá Guðna. Hins vegar er hann óá- nægður með það, að stofnunin skuli ekki, að öðru leyti hafa gef- ið „upplýsingar eða fyrirmæli um það hvernig könnunin skuli unn- in“. Telur hann því augljóst, að það sé „frá upphafi séð að útkom- an úr þessari könnun verður hrein markleysa". í framhaldi af því bendir hann á, að „í Reykja- vík“ hefur samband enn ekki ver- ið haft við þýðingarmikla aðila eins og leigjendasamtökin, Or- yrkjabandalagið, Búseta og Framkvæmdasjóð fatlaðra, sem samtals hafa þúsundir húsnæðis- lausra skjólstæðinga innan sinna vébanda. Þegar ofangreind leigjenda- könnun var í undirbúningi þótti bæði sjálfsagt og rétt að hefja verkið með því að leita til sveitar- stjórnarmanna í landinu eftir upplýsingum um mat þeirra á því hver þörf væri fyrir leiguhúsnæði í hverju byggðarlagi fyrir sig. í bréfi stofnunarinnar til sveitarfé- lagannahinn21. apríl sl. ergreint frá útlínum verkefnisins. Með þeim hætti eru megin línur könnunarinnar lagðar og telja má víst, að það dugi til þess að unnt sé að gera sér grein fyrir niður- stöðum málsins í aðalatriðum. Auk þess er á það að líta, að væntanlega verður nauðsynlegt að kanna málið mikiu nánar, m.a. með því að leita eftir frekari upplýsingum hjá sveitarstjórnun- um og einnig íyjá ýmsum félags- legum aðilum, sem þessum mál- um sinna. Það mál verður tekið til athugunar næstu daga og þá tekin ákvörðun um framhaldið. Með dreifibréfi stofnunarinnar hinn 21. apríl sl. og svarbréfum sveitarfélaganna hefur aðeins fyrsta skrefið í þessari könnun verið stigið. Fullyrðingar Guðna um markleysi könnunarinnar eru út í hött og fá ekki staðist, þó ekki væri nema vegna þess, að niður- stöður hennar liggja enn ekki fyrir. Þess skal að lokum getið, að opinberum aðilum, þ. á m. milli- þinganefnd um húsnæðismál, sem Guðni Jóhannesson situr í, hafa verið gefnar allar upplýsing- ar um gang þessa máls, hvenær sem eftir því hefur verið leitað. Engar ábendingar hafa borist annars staðar frá um annað fyrir- komulag á könnuninni en það, sem viðhaft hefur verið. Lögð hefur verið áhersla á, að könnun- in tækist sem best, m.a. með því að fylgja málum mjög fast eftir við sveitarfélögin. Ér því vonast til að hún gefi góða og raunsæja mynd af stöðu mála. Þriðjudagur 17. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 Ný regnhlífarsamtök Istefnuyfirlýsingunni eráhersla lögð á um- bótastefnu innan ríkjandiþjóðfélagsskipulags samhliða mótun sósíalískrar heildarstefnu Laugardaginn 14. júní voru stofnuð í Reykjavík samtök sem nefnast Vinstri sósíalistar. I stefnuyfirlýsingu Vinstri sósía- lista segir að markmiðið með stofnun samtakanna sé virkari barátta fvrir málstað alþýðu og sósíalista og að eitt mikilvægasta verkefni samtakanna sé mótun alhliða stefnuskrár sósíalískrar umbyltingar þjóðfélagsins sam- fara því að taka þátt í umbótabar- áttu þar sem hagsmunir alþýðu er settir ofar hagsmunum ríkjandi þjóðfélagsstéttar. í stefnuyfirlýsingunni segir: „Verkefni sósíalista er að byggja þá brú yfir til sósíalisma sem get- ur öðlast traust meirihluta þjóð- félagsþegnanna.... I stéttaátök- unum berjumst við fyrir fjölda- virkni og lýðræði hvað varðar baráttuleiðina. Með slíku styr- kjum við baráttuna í þeim átökum um leið og við eflum sjálfsvitund og sjálfstraust stétt- arinnar til enn stærri verkefna." I skipulagi og starfsaðferðum samtakanna er lögð rík áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð og jafnrétti. Grunneiningar sarntak- anna eru starfshópar sem mynd- aðir eru um ákveðin málefni og eru þeir, þó þeir lúti ákveðinni grundvallarstefnuskrá, allsjálf- ráðir um starfsaðferðir sínar. Stjórninni er því ekki ætlað að miðstýra stefnu og starfsaðferð- um hópanna, en stuðla að því að koma upplýsingum frá þeim á framfæri og gagnrýni á þá til skila. Félag vinstri sósíalista eru samtímis regnhlífarsamtök þareð félögum leyfist að vera í öðrurn stjórnmálasamtökum og fjölda- hreyfingum. í stefnuyfirlýsingunni segir að helstu verkefni samtakanna séu m.a. baráttan fyrir nýrri forystu í verkalýðshreyfingunni og meiri virkni og lýðræði innan hennar. Jafnframt segir að samtökin muni beita sér fyrir kröfugerð í kjara- málurn sem taki ekki mið af hags- munum atvinnuveganna heldur einvörðungu af hagsmunum launafólksins sjálfs. Þá er í stefnuyfirlýsingunni lögð rík áhersla á að samtökin hafi mótandi áhrif í utanríkismál- um og að efla þurfi virkari þátt- töku Islendinga í baráttunni fyrir friði, jafnrétti og sósíalisma um allan heim og að efla þurfi barátt- una gegn herstöðvum Bandaríkj- anna á íslandi og úrsögn íslands úr NATO. -K.ÓI. Hluthafafundur Félagsútgáfunnar hf. veröur haldinn fimmtudaginn 19. júní nk. kl. 20.30 í húsakynnum útgáfunnar aö Lauga- vegi 18A, 5. hæö, í Reykjavík. DAGSKRÁ: 1) Tillögur um breytingar á samþykktum fé- lagsins. 2) Önnur mál. Stjórnin ^ Bæjarstjóri Laus er til umsóknar staöa bæjarstjóra hjá Njarðvíkurbæ. Umsóknir er greini frá aldri, menntun og starfsreynslu, berist bæjarritara Njarðvíkur, skrifstofu Njarövíkurbæjar, eigi síöar en 25. júní nk. Bæjarritarinn í Njarðvík Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsiö Patreksfiröi vantar hjúkrunar- fræöinga til sumarafleysinga. Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma 94-1110 eöa 94-1386. Viðgerða- og ráðgjafarþjónusta leysir öll vandamál húseigenda. Sér- hæfðtr á sviði þéttinga og fl. Almenn verktaka. Greiðslukjör. Fljót og góð þjónusta. Sími 50439 eftir kl. 7 á kvöldin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.