Þjóðviljinn - 17.06.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Þriðjudagur 17. júnf 1986
134. tölublað 51. órgangur
------------ 1
Sakadómur
Aðför að ritfrelsinu
Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur, dœmdur í undirrétti
vegna ummœla um lögregluna
Ef þessi dómur fær að standa,
þá er ekkert ritfrelsi í landinu,
sagði Þorgeir Þorgeirsson, rithöf-
undur, en undirréttur dæmdi
hann í gær til að greiða 10.000 kr.
til ríkissjóðs, auk málskostnaðar,
vegna ákveðinna ummæla um
lögregluna ■ tveim greinum eftir
Þorgeir, sem birtust í desember
1983.
Greinar þessar birtust í kjölfar
Skaftamálsins svokallaða, og
fjölluðu um ofbeldi lögreglunnar
gegn borgurum landsins.
Þorgeir sagði í gær að hann
hefði áfrýjað þessum dómi tii
Hæstaréttar þó hann búist ekki
við því að Hæstiréttur komist að
annarri niðurstöðu. „Þar sitja
sömu fasistarnir og í undirrétti,“
sagði Þorgeir. „Hér hefur verið
gerð aðför að starfandi rithöfundi
eftir nákvæmlega sömu formúlu
og í Hitlers-Þýskalandi eða í So-
vétríkjunum í dag. Hér hefur rit-
höfundur verið dreginn fyrir
sakadóm og dæmdur fyrir ritstörf
sín og aðferðin sem beitt var við
það er mikið alvörumál og ég er
hræddur um að ekki yrði liðið ef
rafvirki yrði dreginn fyrir dóm-
stóla vegna rafvirkjastarfa sinna.
Þorgeir sagði að lokum, að
hann ætlaði sér að fara með þetta
fyrir mannréttindadómstólinn í
Strassburg. „Ég lít ekki til þess þó
sektin sé smáaurar því hér er um
prinsipmái að ræða, hvort hér sé
ritfrelsi eða ekki.“
—Sáf
Jorge Luis Borges.
Bókmenntir
Borges
Krossá í Þórsmörk hefur löngum verið illfær og ferðamönnum þung í skauti. Um
helgina var vígð ný göngubrú yfir ána undir Valahnjúk. Brúin er sú lengsta sinnar
gerðar á landinu, 45 metrar. Það voru félagar í Ferðafélagi íslands sem byggðu
brúna í sjálfboðavinnu en hönnun og efni var þegið að gjöf frá ýmsum aðilum.
Ljósm. - sibl.
látinn
Argentínska stórskáldið Jorge
Luis Borges lést þann 14. júní í
hárri elli, 86 ára að aldri, í Genf
þar sem hann hafði verið búsettur
undanfarin ár.
Jorge Luis Borges er einn
þeirra rithöfunda sem hæst ber í
bókmenntum aldarinnar. Hann
var ljóðskáld sem sagnahöfundur
og mikilhæfur túlkandi bók-
mennta alla tíð, því skrif hans um
bókmenntir þóttu alltaf sæta
miklum tíðindum. Á íslensku
hefur komið út eftir hann smá-
sagnasafnið Suðrið í þýðingu
Guðbergs Bergssonar. Ljóð-
skáldinu Jorge Luis Borges geta
menn kynnst lítillega í nýjasta
Teningi, þar sem birt eru nokkur
Ijóð hans í snilldarþýðingu Sig-
fúsar Bjartmarssonar skálds.
Borges var mikill unnandi ís-
lenskra fornbókmennta og
hreifst þar einkum af íslendinga-
sögum og Eddukvæðum og gerði
sér eitt sinn ferð hingað til þess að
kynnast af eigin raun heimkynn-
um þessarar stórkostlegu bók-
mennta, eins og hann mun hafa
sagt. Jorge Luis Borges var
blindur mikinn hluta ævinnar, en
sagði það í engu hindra sig í bók-
menntasköpun, - miklu heldur
hið gagnstæða því fyrir vikið væri
hugurinn frjálsari til þess að
kanna óhindrað þaö ímyndunar-
afl og hugmyndaauðgi sem býr
með mönnum. Þessi ummæli
Borgesar segja meira en mörg
orð um hið látna skáld. -pv
Háskóli íslands
75 ára í dag
Hátíðarhöld afmœlisins fara fram í október
Háskóli íslands er 75 ára í dag
en Háskólinn tók til starfa í
Aiþingishúsinu þann 17. júní
1911. Hátíðarhöld í tilefni afmæl-
isins verða haldin í október nk. og
munu þau standa yfir í nokkra
daga.
Hátíðin verður sett laugardag-
inn 4. október með samkomu í
Háskólabíói en á henni mun
háskólarektor flytja hátíðarræðu
og forseti íslands og mennta-
málaráðherra flytja ávörp. Þá
mun Háskóli íslands útnefna 20
innlenda og erlenda heiðursdokt-
ora. Gert er ráð fyrir því að
nokkrir þessara einstaklinga
flytji erindi í tengslum við hátíð-
arhöldin.
Helgina eftir setninguna mun
Háskólinn gangast fyrir „opnu
húsi“ en þá hefur almenningur
kost á að skoða allar háskóla-
byggingarnar undir leiðsögn
kennara og stúdenta.
Sérstök rit verða gefin út í til-
efni af afmælinu. Má þar nefna
sérstakt afmælisrit með safni
greina um starfsemi stofnunar-
innar, en þetta mun vera fyrsta
tölublað nýs tímarits sem Há-
skólinn setur á stofn og verður
Sigurjón Björnsson sálfræðingur
ritstjóri tímaritsins. Auk tíma-
ritsins verður gefin út bók um
húsnæðis- og byggingarsögu Há-
skólans hina fyrstu áratugi starf-
semi hans. Höfundur bókarinnar
er Páll Sigurðsson en Páll sér um
allan undirbúning hátíðarhald-
anna. í Háskóla Islands eru nú
alls 4564 nemendur sem skiptast í
9 deildir, en fastir kennarar við
Háskólann eru nú 268.
-K.ÓI.
Kópavogur
Meirihluti A-flokkanna
Málefnasamningur Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
samþykktur á fundi félaganna ígœrkvöldi.
Heimir Pálsson:
í samrœmi við kosningaúrslit að A-flokkarnir myndi meiri-
hluta.
Náðst hefur samstaða um
myndun meirihluta Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks í bæj-
arstjórn Kópavogs. Á fundum í
félögunum í gærkvöldi var ítar-
legur málefnasamningur flokk-
anna samþykktur. Tekur hin'
nýja bæjarstjórn til starfa á auka-
fundi sem haldinn verður nk.
föstudag.
Heimir Pálsson efsti maður á G
lista Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi og einn 3ja bæjarfulltrúa
flokksins sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hann væri ánægð-
ur með þennan nýja málefna-
samning flokkanna. Kosningaúr-
slitin hefðu ótvírætt gefið til
kynna að A-flokkarnir í Kópa-
vogi ættu að vinna saman í meiri-
hluta og nú hefði tekist að koma
þeim meirihluta á.
Flokkarnir hafa ekki skipað
menn í nefndir en ákveðið hefur
verið að Alþýðubandalagsmaður
gegni starfi formanns bæjarráðs
1. og 4. ár kjörtímabilsins. Hin ár
kjörtímabilsins skiptist flokkarn-
ir á þessum æðstu embættum.
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi nú eru Heimir
Pálsson, Heiðrún Sverrisdóttir
og Valþór Hlöðversson. Bæjar-
fulltrúar Alþýðuflokksins eru
Guðmundur Oddsson, Rannveig
Guðmundsdóttir og Hulda Finn-
bogadóttir. Sjálfstæðisflokkur
með 4 bæjarfulitrúa og Fram-
sóknarflokkur með 1 fulltrúa
sitja í minnihluta bæjarstjórnar
næstu 4 árin. Bæjarstjóri verður
Kristján Guðmundsson.
-v.