Þjóðviljinn - 15.07.1986, Side 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
ÍÞRÓTTIR
FISKIMÁl
HEIMURINN
Mjólk
120 Flóabændur yfir mörkin
Fjöldi bœnda sunnan og vestan búinn með kvótann. Mjólkurframleiðslan fer yfir fullvirðismörkin
Fjöldi bænda á Suður- og Vest-
urlandi er búinn með mjólkur-
kvótann sinn, komnir yfir
fullvirðismarkið, og fá nú aðeins
greitt fjórðungsverð fyrir mjólk-
ina þartil nýtt verðlagsár hefst í
september.
120 af um 720 mjólkurbændum
á svæði Mjólkurbús Flóamanna
voru komnir yfir fullvirðismarkið
nú um helgina, að sögn Birgis
Guðmundssonar framleiðslu-
stjóra búsins. 19 bændur hjá
Mjólkursamlagi Borgfirðinga
voru um síðustu mánaðamót
komnir yfir mörkin, og er búist
við að þeir fylli fjórða tuginn áður
en mánuðurinn er úti. Á því
svæði eru um 300 mjólkurbænd-
ur.
f júnflok var samkvæmt Fram-
leiðsluráðstölum búið að fram-
leiða rúmar 90 milljónir mjólkur-
lítra af þeim 107 sem fullvirðis-
mörk yfir landið allt sögðu til um
á verðlagsárinu, frá september-
byrjun til ágústloka. Talan fyrir
júní er 10,6 milljónir lítra og má
því gera ráð fyrir talsverðum
mjólkurbirgðum frammyfir
mörkin. Til Mjólkurbús Flóa-
manna hafa borist 35,5 milljónir
lítra, og aðeins 2,8 milljónir eftir
af fullvirðistölunni. Þar er talið
ljóst að mælirinn fyllist þegar
vika er af ágúst.
Samkvæmt nýju framleiðslu-
ráðslögunum frá í fyrra er mjólk-
urframleiðslu skipt milli héraða,
og milli búa innan héraða, með
því að miða við meðalframleiðslu
síðustu þriggja ára. Bændur sem
fara yfir fullvirðismörkin fá
greiddan fjórðung mjólkurverðs-
ins þetta árið, en ekkert ef þeir
framleiða meira en gamla bú-
markið segir til um.
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
segir ljóst að bændur á Suður- og
Vesturlandi hafi farið verr útúr
þessum reglum en á Norður- og
Austurlandi. Slæm tíð sunnan og
vestan viðmiðunarsumrin hafi
dregið úr nyt, en á sama tíma hafi
verið góðæri norðan og austan.
Þetta breyttist hinsvegar í fyrra-
sumar og eykst þá mjólkurfram-
leiðsla sunnan og vestan.
Sala nýmjólkur hefur staðið í
stað undanfarið en aðrar mjólk-
urvörur seljast betur en áður, og
giskaði Gunnar á að söluaukning
í heild næmi um hálfu þriðja pró-
sent á verðlagsárinu.
Ljóst er að bændur hafa brugð-
ist við nýrri stöðu í mjólkurfram-
leiðslu með því að slátra kúm. Á
tímabilinu september til maí voru
sláturtonn í kýrflokkum 1190 en
veturinn áður 790.
- m.
Miðstjórnarfundur Abl.
Miklar
umræður
Fullmætt var á miðstjórnar-
fund Alþýðubandalagsins sem
hófst kl. 20.00 í gærkveldi.
Þegar kaffihlé var gefið kl.
23.00 höfðu 4 félagar talað og var
umræðuefnið aðallega þau mál
sem efst hafa verið á baugi kring-
um Alþýðubandalagið síðustu
vikur.
Þegar Þjóðviljinn fór í prentun
var ekki ljóst hvort miðstjórnin
myndi gera samþykkt, eða hvers
eðlis, en búist var við að fundur-
inn stæði talsvert fram á nótt.
Þess má geta að Guðmundur J.
Guðmundsson alþingismaður
mætti ekki á fundinn.
-m
Hundadagar
Rignir næstu
40 daga?
Hundadagar hófust
með rigningu. Adda
Bára: Trúum ekki á
hundadagana hér á
Veðurstofunni
Hundadagarnir hófust síðasta
sunnudag og þá rigndi. Sam-
kvæmt gömlum spádómum á því
að rigna samfellt í 40 daga á eftir.
En hvað segja nútímaveðurfræð-
ingar við þessu?
„Við höfum enga trú á einstök-
um veðurdögum yfirleitt hér á
veðurstofunni", sagði Adda Bára
Sigfúsdóttir veðurfræðingur.
„Þetta er eitthvað sem þjóðin
hefur fundið upp sér til gamans.
Margir aðrir gamlir spádómar og
siðir sem fólk hefur tekið upp eru
góðir, en við trúum ekkert á
hundadagana hér.“
Veðurstofan spáir því að rign-
ingin hætti snemma í dag, víðast
hvar á landinu. Það verður
meinleysisveður næstu 2-3 sólar-
hringa og hann mun hanga þurr,
en ekki verður samt góður
heyþurrkur. - SA.
Tjaldið risið
Á myndinni sést hið mikla tjald
sem nú hefur verið sett upp á
Síðastliðinn laugardag fór 30
manna hópur úr Samtökum
herstöðvaandstæðinga í
skoðunarferð á Miðnesheiði og
suður með ströndum í þeim til-
gangi að athuga hvað liði þeirri
hernaðaruppbyggingu sem þarna
á sér stað og jafnframt til að láta
reyna á umgengnisrétt almenn-
ings á þessu svæði.
„Þegar við vorum á leið að
gamla Háskólavellinum. í tjald-
inu munu ýmsir menningarvið-
burðir fara fram á vegum Nor-
rænu menningarhátiðarinnar,
N’ART. Svo einungis eitt atriði sé
Sosus-stöðinni sem er við vík sem
kölluð er Þórshöfn urðum við vör
við bíl með hermönnum úr fjar-
lægð og svo virðist sem þeir hafi
kallað út vallarlögreglu, því þeg-
ar við vorum að virða fyrir okkur
stöðina úr fjarlægð komu þrír
lögreglumenn til okkar, einn ís-
lenskur og tveir Kanar", sagði
Árni Hjartarson í samtali við
blaðið. „Þeir vildu halda því fram
að við værum á bannsvæði þarna,
nefnt þá mun Niels-Henning Ör-
sted Pedersen spila þarna djass
með tríói sínu sunnudaginn 27.
júlí við lok hátíðarinnar.
Norræna menningarhátíðin
en við bentum þeim á móti á þá
staðreynd að þarna væru hvorki
bannskilti né girðingar og þeim
þar af leiðandi ekki stætt á að
meina okkur umferð þarna um.
Kanarnir vildu kalla út meira lið
en okkur virtist að sá íslenski
kæmi í veg fyrir það og á endan-
um létu þeir duga að fylgjast van-
dlega með okkur á meðan við lit-
uðurnst þarna um.“
- vd.
hefst formlega á föstudaginn 18.
júlí og verður þá leikið rokk í
tjaldinu, en hópur frá hinu fræga
Odinleikhúsi í Danmörku leikur í
Iðnó og tvær myndlistasýningar
verða opnaðar í Hlaðvarpanum.
Önnur þeirra samanstendur af
verkum sem norrænir listamenn
hafa gert í ferð sinni um ísland
síðastliðnar tvær vikur.
Annars er dagskrá hátíðarinn-
ar mjög fjölbreytt og miðuð við
að flestar listgreinar fái að njóta
sín. Dagskráin verður ítarlega
kynnt í Þjóðviljanum á morgun.
- pv.
Vinnuvernd
Loftkældur
öryggishjálmur
Kuwait — Nokkrir félagar í vís-
indaklúbbi einum í Kuwait hafa
nú fundið vörn fyrir þá sem þurfa
að vinna í mikilli sól og hita, sér-
staklega þar sem hitinn fer upp í
50 gráður á celsíus.
Þessi uppgötvun er öryggis-
hjálmur sem er rneð loftkælingu.
Loftkælingin er að sjálfsögðu
drifin áfram með sólarorku.
- IH/Reuter.
Herstöðvaandstœðingar
Meinuð umferð
við Sosus-stöðina
Árni Hjartarson: Lögreglan ætlaði að reka okkur burt