Þjóðviljinn - 15.07.1986, Side 2
*
FRETTIR
Rannsóknaráð
Fiskeldið í fyrinrúmi
Rannsóknaráð ríkisins veitir 60,6 miljónir króna ístyrki til33ja verkefna
Nýlega staðfesti menntamála-
ráðherra tillögur Rannsókna-
ráðs ríkisins um úthlutun styrkja
úr rannsóknasjóði.
Rannsóknaráð úthlutaði nú 60,6
miljónum króna til 33ja verkefna
á sviði byggingar og mannvirkja-
gerðar, fiskeldis og skyldra verk-
efna, gæða- og framleiðslutækni,
líf- og lífefnatækni, matvæla-
tækni, orku- og efnistækni,
upplýsinga- og tölvutækjahug-
búnaðar, og þess sem flokkast
undir ýmislegt.
Athyglisvert er að 20% þess
fjár sem úthlutað var eða rúmum
12 miljónum króna er veitt til ým-
issa rannsókna og tilrauna á sviði
fiskeldis. Má þar nefna tilraun til
laxeldis í fersku vatni úr 30 g í
4000 g. Notkun súrefnisauðgaðs
vatns í laxeldi. Vetrarfóðrun á
laxi í sjókvíum við náttúrulegar
aðstæður í Hvalfirði. Söfnun og
eldi á smálúðu. Samanblöndun á
fimm laxastofnum og blendinga
milli þeirra. Þróun aðferðar til að
greina nýrnaveikismið í laxfisk-
um. Floteldi allt árið. Endur-
heimtur laxa úr sjó norðanlands
og flokkun eldisseiða með ljós-
og örtölvutækni.
Fyrirtækið Traust hf. sem hef-
ur komið fram með mjög athygli-
sverðar nýjungar á sviði fisk-
vinnslu fær tvo styrki að þessu
sinni, annan til að þróa nýja að-
ferð við opnun á hörpuskel og
hinn til að hanna og þróa búnað
til söfnunar og vinnslu á rækju-
hrognum.
Samkvæmt skýrslu RR um
styrkveitinguna er unnið að fjöl-
mörgum athyglisverðum rann-
sóknum á ýmsum sviðum hér á
landi um þessar mundir.
- S.dór.
•TORGIÐi
Örforritaður örgjörvi! Hva,
skiljiði þetta ekki?
Trilluútgerðin
Tíu daga
veiðibann
Veiðibann verðursett
á allar trillur
10 lestir eða minni
frál. tillO. ágúst
Samkvæmt kvótalögunum er
sett veiðibann á allar trillur 10
lestir eða minni í tíu daga í ágúst
mánuði. Sjávarútvegsráðherra
hefur ákveðið að þetta veiðibann
verði frá 1. til 10. ágúst nk.
Á þessum tíma er trillukörlum
þó heimilt að stunda grásleppu-
veiðar.
- S.dór
Leiðrétting
Þorsteins,
ekki þorsksins
Prentvillupúkinn komst í Inn-
sýnargrein í laugardagsblaðinu
þarsem rætt var um Kjaradóm.
Millifyrirsögn á undan kafla þar-
sem rætt var um þátt fjármálaráð-
herra í kjaramálum og -dómum
BHMR-manna hljóðaði svo:
Ábyrgðin er þorsksins. Þarna átti
að standa: Ábyrgðin er Þor-
steins. Og eru aðilar málsins
beðnir velvirðingar.
Nú kann mönnum að vísu að
þykja ýmislegt líkt með þorskin-
um og Þorsteini, en þar er þó á sá
grundvallarmunur að þorskinn
seljum við dýru verði á erlendum
mörkuðum en sitjum sjálf uppi
með Þorstein. - m
"Við höfum áður spilað á þjóðhátíðinni í Eyjum og það var ein eftirminnilegasta
útihátíð sem við höfum farið á“. Stuðmenn í Herjólfsdal þar sem Þjóðhátíðin
verður haldin. Stuðmenn lofuðu að flytja nokkuð af gömlu góðu lögunum. "Útí
Eyjum var Einar kaldi, er hann þar enn?" Tímamynd.-Gísli Egill.
Pjóðhátíð Vestmannaeyja
Stuömenn sjá um stuðið
Þjóðhátíðin haldin um verslunarmannahelgina
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
var fyrst haldin árið 1874 og
hefur verið haldin á næstum
hverju ári síðan og verður að
sjálfsögðu haldin I ár. Þrátt fyrir
böl og alheimsstríð verður aíltaf
haldin þjóðhátíð, sagði Árni
Johnsen sem verður þjóðhátíðar-
kynnir. Hátíðin verður haldin í
Herjólfsdal um verslunarmanna-
helgina dagana l.-3.ágúst. Stuð-
menn munu leika fyrir dansi auk
flestra annarra helstu skemmti-
krafta landsins.
íþróttafélagið Þór sér um þjóð-
hátíðina að þessu sinni og er þeg-
ar hafinn mikill undirbúningur.
M.a. er þjóðhátíðarbrennan á
Fjósakletti að verða all myndar-
leg og verið er að stækka brekku-
sviðið og danspallinn. Þeir sem
ætla að skella sér á þjóðhátíðina
geta farið að hlakka til því mikið
er lagt í þjóðhátíðina í ár og vand-
að til dagskrár. Stuðmenn leika
öll kvöldin á nýja pallinum og
frumflytja m.a. Þjóðhátíðarlagið
1986, Dalbúann. Á gamla pallin-
um munu Seðlar úr Borgarnesi
leika. Á föstudeginum verður
m.a. setning, helgistund og reip-
tog milli bæjarstjórnar
Vestmannaeyja og Þjóðhátíðar-
nefndar Þórs yfir tjörnina. Þá
verður fimleikasýning og hlaup
barna. Kvartett MÍ og hljómsveit
frá ísafirði Ieika, brúðuleikhúsið
sýnir fyrir yngstu börnin. Þá
verður bjargsig og barnadans-
leikur, um kvöldið mun Ómar
Ragnarsson skemmta og leikkon-
urnar Skotturnar láta sig ekki
vanta. Einnig skemmtir leikfélag
Vestmannaeyja og Eyjahljóm-
sveit. Þjóðhátíðarbrennan verð-
ur tendruð á miðnætti en dans-
leikirnir verða frá kl. 23-4. Á
laugardeginum skemmta m.a.
Edda Björgvinsdóttir og Júlíus
Brjánsson, Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma og leikararnir Sig-
urður Sigurjónsson, Jörundur,
Örn og Pálmi, Stuðmenn og
margt fleira. Á sunnudeginum
verður fremur óbundin dagskrá
nema að um kvöldið verður varð-
eldur og brekkusöngur undir
stjórn Árna Johnsen , og ekki má
gleyma dansleikjunum. Herjólf-
ur og Flugleiðir munu hafa tíðar
ferðir milli lands og Eyja og að
lokum ber að geta þess að á þjóð-
hátíðina kostar krónur 2000.
Ferðahappdrætti Alþyðubandalagsins 1986
Vinningaskrá
Dregið var í kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins hjá borgarfógeta 14. júní sl.. Vinningar féllu á
eftirtalda happdrættismiða:
1. Sólarlandaferð í leiguflugi með Útsýn að verðmæti kr. 35.000, nr. 15078. 2. Sólarlandaferð í leiguflugi
með Útsýn að verðmæti kr. 35.000, nr. 1983. 3. Sólarlandaferð í leiguflugi með Útsýn að verðmæti kr.
35.000, nr. 9405. 4. Sólarlandaferð í leiguflugi með Útsýn að verðmæti kr. 35.000, nr. 3091. 5. Ferð í
leiguflugi til Rhódos með Samvinnuferðum-Landsýn kr. 30.000, 14164. 6. Ferð í leiguflugi til Rimini með
Samvinnuferðum-Landsýn kr. 30.000, nr. 2286. 7. Flugferð til Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr.
41.000, nr. 2994. 8. Flugferð til Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr. 41.000, nr. 2971. 9. Flugferð til
Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr. 41.000, nr. 5913. 10. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að
verðmæti kr. 30.000, nr. 6763.11. Flugferð til Evrópumeð Flugleiðum að verðmæti kr. 30.000, nr. 7001.12.
Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr. 30.000, nr. 14227. 13. Flugferð til Evrópu með
Flugleiðum að verðmæti kr. 30.000, nr. 2154. 14. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr.
30.000, nr. 4215. 15. Flug og bfll til Salzburg með Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæti kr. 20.000, nr.
4922. 16. Flug og bfll til Kaupmannahafnar með Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæti kr. 20.000, nr.
15214. 17. Flugferð innanlands með Arnarflugi að verðmæti kr. 5.000, nr. 14801. 18. Flugferð innanlands
með Arnarflugi að verðmæti kr. 5.000, nr. 8344. 19. Flugferð innanlands með Arnarflugi að verðmæti kr
5.000, nr. 8039.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. júlí 1986
Verðkönnunin
Eigum heimtingu á skýringum
Vegna nýlegrar verðkönnunar
Verðlagsstofnunar á nokkr-
um tegundum matvöru í Reykja-
vík og í Glasgow hafa Neytenda-
samtökin sent frá sér fréttatil-
kynningu þar sem meðal annars
segir:
„Neytendasamtökin telja, að
þessi könnun leiði í ljós svo gífur-
legan verðmun, í mörgum tilfell-
um, að það sé réttmæt krafa al-
mennings, að henni verði fylgt
eftir af hálfu stjórnvalda.
Neytendur eiga heimtingu á því,
að verðmunurinn verði skýrður
og gerðar ráðstafanir til þess að
draga úr honum, eins og kostur
er.
Fram hefur komið, í viðtali við
fulltrúa innflutningsverslunar, að
heildsalar tíðki það enn, að skilja
eftir erlendis umboðslaun eða
afslætti. Neytendasamtökin for-
dæma slíkt harðlega, enda var
það ein af grundvallarforsendum
þess að verðlagning var gefin
frjáls, að lágt innkaupsverð
skilaði sér að fullu til neytenda.
Fulltrúi stórkaupmanna skýrði
verðmuninn m.a. með dæmum
um álögur á vöruna, eftir að hún
er keypt erlendis. Þar kom fram
að flutningskostnaður var
reiknaður 50% á innkaupsverð-
ið. Sé þetta rétt telja Neytendas-
amtökin fyllstu ástæðu til þess að
þáttur farmflytjenda í vöruverð-
inu sé rannsakaður sérstaklega.
Hagur þjóðarbúsins, og ein-
stakra neytenda, af hagstæðum
innkaupum innfluttra vara er svo
ótvíræður, að stjórnvöld geta
ekki setið aðgerðarlaus, að feng-
num þeim upplýsingum, sem
fram koma í könnun Verðlagss-
tofnunar."