Þjóðviljinn - 15.07.1986, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Hrossakaup
360 hross seld á árinu
Pantanir á umlOO til viðbótar. Sr. Halldór Gunnarsson hrossabóndi: Menn ósáttir við gjöldin af
sölunni. Einar Gíslason formaður Félags hrossabænda: Möguleiki á að menn versli undir borðið
Skólahúsið lagað til
Húsinu lokaðfyrir veturinn ogþað kynt.
Krakkarnir í Vinnuskólanum i
Kópavogi söfnuðu 45 þúsund
krónum með hlutaveltu á dögun-
um sem þau afhentu forráða-
mönnum Krísuvíkursamtakanna
til að styðja við bakið á samtök-
unum vegna endurbóta á Krísu-
víkurskólanum sem á að beyta í
endurhæfingarstöð fyrir vímu-
efnasjúklinga.
Að sögn Ragnars Inga Aðal-
steinssonar eins af forvígis-
mönnum Krísuvíkursamtakanna
hafa sjálfboðaliðar unnið í sumar
við að hreinsa til í skólahúsinu en
stefnt er að því að loka húsinu
fyrir veturinn og kynda það í vet-
ur. Hann sagði að það yrði dýrt
að koma húsinu í viðunandi stand
en ætlunin er að taka það form-
lega í notkun haustið 1987. Til að
standa straum af kostnaði við
endurbæturnar á húsnæðinu og
uppbyggingu endurhæfingar-
stöðvarinnar ætla Krísuvíkur-
samtökin að fara út í viðamikla
fjáröflun í haust að sögn Ragn-
ars. - Ig.
Sveitaböll
Miðinn á 700 krónur
Eftir Landsmót hestamanna
scm haldið var nýlega á
Gaddastaðaflötum hefur orð-
rómur verið á kreiki um að stórar
upphæðir fáist fyrir verðlauna-
hross sem seld eru til útlanda.
Ymis gjöld eru lögð á slíka sölu en
það sem af er árinu hafa 360 hross
þegar verið seld og komnar pant-
anir á um 100 til viðbótar.
„Menn eru mjög ósáttir við
þau gjöld sem eru lögð á verslun
með hross og það kallar á að
menn leiti annarra leiða“, sagði
sr. Halldór Gunnarsson prestur
og hrossabóndi undir Eyjafjöll-
um í samtali við blaðamann. ís-
lensku hrossaræktarsamböndin
hafa forkaupsrétt á kynbóta-
hrossum og menn eru skyldugir
til þess að gefa þeim upp sama
verð og boðið er í þau erlendis
frá. Að sögn Einars Gíslasonar
formanns Félags hrossabænda er
hæpið að menn taki þá áhættu að
gefa hrossaræktarsamböndunum
upp lægra verð en boðið er í þau
erlendis frá, til þess að stinga mis-
Krísuvíkursamtökin
muninum skattlaust í vasann, en
möguleiki er þó á að slíkt sé gert
án þess að hægt sé að staðfesta
það.
„Við höfum hér ákveðin gögn
sem menn verða að fylla út til
þess að fá útflutningsleyfi, en það
geta auðvitað verið til óprúttnir
menn sem fara aðrar leiðir í þess-
um viðskiptum", sagði Sigurður
Ragnarsson sem sér um sölu- og
útflutningsmál hrossabænda fyrir
hönd sambandsins. „Menn verða
þó að fara eftir ákveðnu lág-
marksverði sem er sett á hrossin
og það er reiknað út frá því hvaða
einkunn þau hafa áunnið sér í
ættarbókum, hvort þau hafa
fengið verðlaun á mótum og svo
framvegis. Meðalverðið á þeim
hrossum sem hafa farið úr
landinu á þessu ári er í kringum
40-50.000 og við höfum þegar
fnengið pantanir á um 100 hross-
um til viðbótar. Ég er vongóður
um að sú tala tvöfaldist svo að við
getum haldið flutningskostnaði
niðri, en á árinu hafa verið flutt út
um 360 hestar. Það eru aðallega
Norðurlönd sem kaupa þessi
hross og áhugi er líka í Þýskalandi
fyrir þessum viðskiptum. Hvort
einhver stór viðskipti hafa átt sér
stað um og eftir Landsmótið get
ég ekki sagt á þessu stigi, menn
eru enn að skila inn pappírum og
það kann vel að vera að einhver
verðlaunahross fari úr landinu í
haust.“
- vd.
inum. Þar á mcðal má nefna Bítl-
avinafélagið, Sumargleðina,
Upplyftingu og Stuðmenn.
Blaðamaður hafði samband
við forstöðumann Félagsheimil-
isins í Hnífsdal, Þorgeir Jónsson,
og spurðist fyrir um miðaverð hjá
þessum sveitum en heyrst hefur
að það geti verið ansi hátt. Hann
sagði okkur að Upplyfting hefði
skemmt nýlega fyrir vestan og
selt miðann á 650 krónur. „Það er
alveg hántarkið, en þegar húsið
heldur ballið reynum við að selja
miðann á um 500 kr.“, sagði
Þorgeir. „Fólk hringir gjarnan og
spyr um verð og unglingarnir
virðast vera farnir að spá meira í
miðaverð en áður. Þessar hljóm-
sveitir taka misjafnlega mikið
fyrir kvöldið, en séu þær eitthvað
þekktar þá reyna þær að sprengja
verðið upp. Nýlega var mér boð-
in hljómsveit fyrir 80.000 krónur
auk uppihalds og ferðakostnaðar
en þá sagði ég nei takk.“ Að sögn
annarra húsvarða hjá Félags-
heimilunum um landið mun þetta
verð, 650-700 krónur, vera al-
gengt ef sveitirnar eru þekktar.
Ballmiðinn í Miðgarði kostaði til
dæmis 700 krónur þegar Kínafar-
arnir Stuðmenn skemmtu þar ný-
lega. - vd.
Gísli Þorvaldsson og Bjarni Jóhannsson voru að veiðum við Arnarvatn um helgina, og báru sig vel. Hér standa kapparnir
við hluta aflans, sem þeir og ferðafélagrnir lönduðu á laugardag, áður en illviðri hamlaði frekari afrekum. Mynd ÖS.
Útivist
Greiðfært á Amarvatnsheiði
Fiskur. smár og horaður í Arnarvatni stóra. Góður urriði í Austurá
Treg veiði hefur verið á Arnar-
vatnsheiði upp á síðkastið og
reyndum veiðimönnum af
heiðinni ber saman um að fískur-
inn sé smærri og horaðri en oft
áður. Tíðindamaður Þjóðviljans
var á ferð við Arnarvatn stóra
yfír helgina, og viðmælendur
hans voru flestir á því að veiði
hefði ekki verið jafn treg um
langan tíma. Ur vötnunum á
heiðinni veiðast mest bleikjur, en
sæmilega vaxnir urriðar slæðast í
bland. Bleikjurnar eru hins vegar
flestar smáar.
Góðir urriðar nást hins vegar í
Austuránni, sem rennur úr Arn-
arvatni stóra, og veiðimenn sem
þar voru áferli yfir helgina fengu
þónokkuð feita urriða, um og yfir
tvö pund.
Töluverð umferð hefur verið á
Arnarvatnsheiði það sem af er
sumri, enda sjaldan verið jafn
greiðfært og nú. Auðvelt er að
komast á jeppabifreiðum alla leið
inn að Arnarvatni stóra.
Greinilegt er að menn nota
fleiri veiðarfæri en bara stöng og
girni, því um helgina bar ekki ó-
sjaldan við að úsendarar Þjóð-
viljans rækjust á net sem góðvilj-
aðir veiðiþjófar höfðu lagt yfir
blánóttina, væntanlega í því skyni
að grisja fiskinn til að hann yrði
ekki jafn smár í framtíðinni!
-ÖS
Þessa dagana eru margar af
hljómsveitum landsins,
þekktar og óþekktar, á hringveg-
Hveravellir
Hey selt
eftir hendinni
AHveravöllum verður í sumar
selt hey eftir vigt til ferða-
manna sem eiga þar leið um. Það
er Landssamband hestamanna
sem gengst fyrir þessari heysölu í
samvinnu við bændur í Svína-
vatnshreppi og Upprekstrarfélag
Auðkúluheiðar.
„Þetta er fyrsta tilraunin til
þess að selja hey á þennan hátt og
ef vel tekst til þá er hugmyndin sú
að koma upp sölustöðvum víðar
og þá í grennd við sæiuhús“, sagði
Guðmundur Ó. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Landssam-
bands hestamanna í samtali við
blaðið. „Það er veðurathugunar-
fólkið á Hveravöllum sem ætlar
að sjá um þetta fyrir okkur í sum-
ar og heyið verður selt eftir hend-
inni.
Gróðurinn er viðkvæmur og með
þessu móti er hægt að hlífa hon-
um fyrir beit. Hugsanlega verð-
um við með köggla í framtíðinni,
en það kemur í ljós þegar við
sjáum hvernig þessi tilraun
gengur.“ - vd.
2
I Bindindismótið Caltalækjarskógi ; ^^s