Þjóðviljinn - 15.07.1986, Blaðsíða 13
Spánn/Bílspréngingin
Alvarlegasta árásin
í tólf ár
Lundúnum — Þrýstingur á vest-
rænar þjóðir um að grípa til
efnahagslegra refsiaðgerða
gegn S-Afríkustjórn, jókst um
helgina og í gær þegar fleiri
Afríkuþjóðir bættust í hóp
þeirra sem hætta þáttöku í
Samveldisleikunum sem hefj-
ast bráðlega í Skotlandi.
Fimm Afríkuríki hafa þegar
lýst því yfir að þau muni ekki taka
þátt í leikunum vegna stefnu
bresku stjórnarinnar gagnvart S-
Afríku og ríkisstjórn Ghana til-
kynnti í gær að hún væri að íhuga
slíkt hið sama. Sömuleiðis kom
tilkynning frá ríkisstjórn Ind-
lands þar sem keppnislið landsins
var beðið um að fresta för sinni til
Skotlands meðan stjórnin í Nýju
Delhí íhugaði aðgerðir.
í fyrradag var tilkynnt í Eng-
landi að langhlauparinn Zola
Budd og sundkonan Annette
Cowley myndu ekki keppa fyrir
hönd Englands á leikunum þar
sem þær væru ekki löglegar í lið-
ið. Þær eru báðar fæddar í S-
Afríku og talið er víst að þetta
hafi verið gert til að koma til móts
við Nígeríumenn m.a. sem hafa
mótmælt veru Zolu Budd á
leikunum. Talsmaður Nígeríu-
stjórnar sagði hins vegar í gær að
það skipti litlu varðandi þáttöku
Nígeríu hvort Budd og Cowley
yrði með eður ei, það væri fleira
sem skipti máli. Talsmaðurinn
átti þar við þá ákvörðun breskra
stjórnvalda að beita S-Afríku
ekki efnahagslegum refsiaðgerð-
um.
Þær þjóðir sem þegar hafa af-
boðað þáttöku eru, auk Nígeríu,
Ghana, Kenya, Tanzanía og Ug-
anda. Talið er að fleiri þjóðir eigi
eftir að fylgja í kjölfarið.
Sam veldisleikarnir/S-Afríka
Fimm þjóðir hætta þátttöku
Fimm Afríkuþjóðir hafa afboðað komu sína á Samveldisleikana
Madrid — Átta spænskir þjóð-
varðliðar létust í sprengingu
sem varð í bíl í íbúðarhverfi í
Madrid í gærmorgun og leikur
grunur á að aðskilnaðar-
hreyfing Baska, ETA, hafi
staðið fyrir sprengingunni.
Þetta mun vera alvarlegasta
sprengjutilræðið á Spáni í 12 ár.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar á
Spáni sagði að 56 þjóðvarðliðar
hefðu verið í fólksflutningavagn-
inum þegar sprengja sprakk í
nærliggjandi bíl sem lögreglan
sagði að hefði staðið þar í rúman
mánuð. 40 manns slösuðust í ár-
ásinni og þrjú sjúkrahús auglýstu
eftir fólki til blóðgjafar. Farþegar
í tveimur bílum sem fylgdu
sluppu ómeiddir en að minnsta
kosti þrír vegfarendur særðust.
í Portúgal sprungu fimm
sprengjur í þremur borgum, tveir
létust í Lissabon og einn særðist.
Sprengjuárásin í Madrid er hin
alvarlegasta frá því 1974 þegar 11
manns létust í sprengingu á kaffi-
húsi í Madrid. ETA lýsti ábyrgð á
hendur sér fyrir þá árás. Hún var
mjög lík þeirri sem átti sér stað í
apríl í ár þegar fimm þjóðvarðlið-
ar létust. ETA lýsti einnig ábyrgð
á hendur sér fyrir þá árás. Lög-
regluforingi sagði við fréttamann
Reuter að hann teldi ekki ólíklegt
að ETA væri að hefna fyrir þá
ákvörðun Frakka að flytja einn
helsta leiðtoga ETA hreyfingar-
innar, Domingo „Txomin“ Itur-
be Abasolo, til Afríkuríkisins
Gabon í á sunnudaginn.
IsraellShin Bet
Ný
lögreglurannsókn
Spánn
Dali með
gangráð
Barcelona - Spaenski malarinn
Salvador Dali sem nú er oröinn 82
ára fór um helgina í hjartaaögerö
og mun hún hafa gengið vel.
Læknar sem framkvæmdu aðgerð-
ina sögðu í gær að þeir hefðu sett
gangráð í meistarann og heilsaðist
honum ótrúlega vel miðað við aldur.
Astrid Lindgren. Hún segir „345.
prakkarastrik Emils“ sína síðustu
bók.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR y_ _.,.,rn
hjörleifsson'R ELHER
Jerúsalem — Ríkisstjórn ísra-
els tilkynnti í gær að hún hefði
skipað saksóknara ríkisins,
Yosef Harish, að láta fara fram
lögreglurannsókn á hinu svo-
nefnda Shin Bet máli.
Petta var ákveðið á ríkisstjórn-
arfudni í gær með 14 atkvæðum
gegn 11 og þykir þessi niðurstaða
mikið áfall fyrir forsætisráðherr-
ann Shimon Peres sem er einnig
Stokkhólmi — Sænski barna-
bókahöfundurinn Astrid Lind-
gren, lýsti því yfir um helgina
að hún væri hætt að skrifa.
Lindgren lýsti þessu yfir í við-
tali við lítið sænskt dagblað, Dag-
en. „Ég er búin að skrifa mig upp
til agna“, sagði Lindgren, „ég hef
ekki lengur þörf til að skrifa".
Lindgren er nú orðin 78 ára
gömul, hún sagðist hafa byrjað
að skrifa þegar hún meiddi sig á
fæti árið 1944 og varð að liggja í
rúminu í nokkurn tíma. Það var
þá sem ærslabelgurinn Lína lang-
sokkur varð til, nú hafa frásagnir
af Línu selst í 15 milljónum ein-
forsætisráðherra landsins. Hann
hefur lýst því yfir að lögreglu-
rannsókn á morði Shin Bet ör-
yggisþjónustunnar á tveimur ar-
öbum sem rændu strætisvagni í
landinu árið 1984 verði mjög
slæm fyrir Shin Bet þar sem þá
verði birt ýmis mikilvæg
leyndarmál sem ekki þyki rétt að
komi fyrir almannasjónir. Sjá
nánar um þetta mál á bls. 18.
taka um víða veröld. Síðast kom
bók frá Lindgren í fyrra fjallaði
um Emil í Kattholti og prakkara-
strik hans. Hún nefnist „345.
prakkarastrik Emils“.
Bækur Lindgren hafa nú verið
þyddar á 50 tungumál. Svíar hafa
lengi barist fyrir því að Lindgren
fái bókmenntaverðlaun Nóbels
en Lindgren hefur ekki áhuga á
þeim verðlaunum. „Ég vil alls
ekki fá Nóbelsverðlaun", segir
hún. „Ég hef fengið nóg af verð-
launum og peningum í gegnum
tíðina, þeir geta því veitt þau ein-
hverjum öðrum sem þarf frekar á
þeim að halda."
Astrid Lindgren
Hættaðskrifa
Þriðjudagur 15. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Francois Mitterrand, Frakklandsforseti. Hann þykir nokkuð útsmoginn
stjórnmálamaður og gerir nú Chirac forsætisráðherra og stjórn hans gramt í
geði.
Frakkland
Mittenand
hamlar sölu
ríkisfyrirtækja
París — Francois Mitterrand,
forseti Frakklands, sagði í gær
að hann myndi neita að skrifa
undir lög hægristjórnarinnar í
landinu um sölu 65 ríkisfyrir-
tækja og er nú samvinna
stjórnarinnar og Mitterrand
talin í hættu.
Ástæðuna fyrir ákvörðun sinni
segir Mitterrand vera þá að hann
geti ekki samþykkt að stjórnin
fari fram hjá þinginu með því að
gefa út tilskipun um sölu ríkis-
fyrirtækjanna. „Nú er það þings-
ins að rækja skyldur sínar", sagði
Mitterrand í sjónvarpsviðtali í
gær þegar hann tilkynnti þessa
ákvörðun sína.
Ráðherrar hægristjórnarinnar
eru æfir yfir þessari ákvörðun
forsetans og segja að þetta muni
stofna viðkvæmu samstarfi sósí-
alistans Mitterrand og hægri-
stjórnarinnar í mikla hættu.
Mitterrand segir hins vegar að
það sé skylda hans sem forseta að
verja franska arfleifð og þann
iðnað sem sé mikilvægur grunnur
að sjálfstæði landsins. „Ég hef
enn sem komið er ekki þá trygg-
ingu sem ég þarf varðandi þetta
mál“, sagði Mitterrand í sjón-
varpsviðtalinu. Með þessum orð-
um átti Mitterrand við að hann
hefði ekki tryggingu fyrir að fyrir-
tækin, sem stjórnin vill selja, falli
ekki í hendur erlendra aðila.
Stjórnin hefur tilkynnt að hún
muni ekki leyfa meiri eign er-
lendra aðila í fyrirtækjunum en
sem nemur 15%. Mitterrand vill
hins vegar að slíkt verði bundið í
lög sem fari í gegnum þingið.
„Hin þingræðislega leið er fyrir
hendi og ég er viss um að þing-
menn rnunu afgreiða þetta mál
með bestu samvisku í ljósi þjóð-
arhagsmuna", sagði Mitterrand í
gær.
Chirac, forsætisráherra, hefur
þegar lýst því yfir að hann muni
leggja þessi lög fyrir þingið ef
Mitterrand leggst gegn sölu ríkis-
fyrirtækjanna. Reuter fréttastof-
an hefur hins vegar eftir heimild-
um að slík leið gæti reynst torfar-
in fyrir Gaullistann Chirac, m.a.
vegna þess að mörg þessara fyrir-
tækja voru yfirtekin af ríkinu í tíð
De Gaulle. Heimildarmennirnir
segja að þingræðisleiðin geti tafið
lagafrumvarpið um að minnsta
kosti mánuð. Upphaflega ætlaði
stjórnin sér að selja að minnsta
kosti tvær fyrirtækjasamsteypur
fyrir lok þessa árs. Hægri stjórnin
hefur nú þriggja manna meiri-
hluta á þingi en hingað til hefur
hann reynst öruggur. Nú er hins
vegar ekki víst að hann standist.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
stjórnin vill selja eru þrír stærstu
bankar landsins. Einnig trygg-
ingafyrirtæki sem ríkið yfirtók
strax eftir stríð. Einnig má nefna
ríkisolíufyrirtækið Elf Aquitane
og fjölmiðlasamsteypuna Havas.
Lions hreyfingin
Konur fá ekki aðgang
New Orleans — Á heimsþingi
Lions hreyfingarinnar sem
haldið var um helgina i New
Orleans í Bandaríkjunum var
samþykkt með naumum meiri-
hluta að leyfa konum ekki að-
gang að hreyfingunni.
Æðsta ráð Lions hreyfingar-
innar hafði samþykkt tillöguna
einróma en hana verður að bera
undir aðalfund þar sem 2/3
fundarmanna þurfa að sam-
þykkja hana. 59% fundarmanna
voru samþykkir tillögunni.
„Við munum bera þessa tillögu
upp aftur á næsta fundi sarntak-
anna að ári, úrslit atkvæða-
greiðslunnar um þessar bylting-
arkenndu breytingar hvetja okk-
ur til þess“, sagði nýr forseti sam-
takanna, Sten Akestam frá Sví-
þjóð. Hann spáði því að tillagan
yrði samþykkt á endanum.