Þjóðviljinn - 15.07.1986, Blaðsíða 16
NtOVIUINN I If fJriirtJlr/lR*
Aðalsímh 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Þriðjudagur 15. júlí 1986
156. tölublað 51. örgangur
Hámarksaldur starfsmanna
Mannréttindi líklega brotin
Ólafur Ólafsson landlœknir: Mannréttindasáttmáli SÞ kvedur skýrtáum réttallra til vinnu. Fólk á að fá
að vinna áfram. Hœttulegt að setjast í helgan stein
Eg tel líklegt að það brjóti gegn
mannréttindaskrá Sameinuðu
þjóðanna að setja fólk á eftirlaun
þegar það vill halda áfram að
vinna. Eg er nú að láta lögfraeð-
inga kanna það mál.
Þetta sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær. í skýrslu sem Ólafur
hefur nýlega tekið saman kemur
m.a. fram að 69% íslendinga á
aldrinum 65-74 ára taka virkan
þátt í atvinnulífinu. Sambærilegt
hlutfall er 35% í Noregi og síðan
mun lægra á öðrum Norður-
löndum eða allt niður í4% í Finn-
landi. Ólafur þakkaði þetta háa
hlutfall hjá okkur betra atvinnu-
ástandi en hjá frændþjóðunum
og þeim sveigjanlegu reglum sem
hér gerðu mörgum kleift að fresta
sínum lífeyrisgreiðslum um
nokkur ár.
Landlæknir sagði að hér áður
fyrr hefði eldra fólki verið ráðlagt
að hvíla sig og setjast í helgan
stein þegar það kvartaði undan
sliti og þreytu. Nú væru aðrir
tímar. Læknisfræðin hefði nú
ótvírætt sýnt fram á að sækist
menn eftir lífi og heilsu þá sé
langbesta ráðið að rífa sig upp úr
aðgerðaleysinu. Brautin til betra
lífs væri aukin virkni, jafnt andleg
sem líkamleg.
Ólafur sagði að alls ekki mætti
skilja orð sín svo að hann væri á
móti ellilaunum sem auðvitað
væru hið mikilvægasta
mannréttindamál. Hins vegar
væri hann eindregið á móti því að
skikka fólk til að setjast í helgan
stein, ekki síst þar sem ljóst væri
nú að slíkt bryti menn beinlínis
niður. Væru menn slappir ættu
þeir umfram allt að reyna að við-
halda virkni sinni til líkama og
sálar, annað væri andstætt
heilsunni. Þessi staðreynd lífsins
gilti jafnt um elda fólk sem yngra.
Það er mannréttindamál, sagði
Ólafur, að fólk eigi þess kost að
halda áfram að vinna á efri árum.
Lög sem koma í veg fyrir það eru
andstæð læknisfræðilegum stað-
reyndum og brjóta trúlega gegn
mannréttindaskrá Sameinuðu
þjóðanna sem kveður skýrt á um
rétt allra til vinnu. Kvaðst land-
læknir vita til þess að hæstiréttur
Kanada hefði fellt dóm í þessa
veru með tilvísun til
mannréttindasáttmálans.
G.Sv.
Hver getur
hjálpað?
Það gerist ekki oft að maður
skilji ekki íslenskt mál, en fer þó í
vöxt með ýmsum skrítnum ný-
yrðum. í skýrslu Rannsóknaráðs
ríkisins um styrki til ýmissa
rannsókna er greint frá því að
Artek hf. fái 1,7 miljónir króna til
að vinna að - Örforritaður ör-
gjörvi fyrir forritunarmálið Ada
—. Nú er spurningin: Hvað er -
Örforritaður örgjörvi?
Við óskum eftir svari. - S.dór.
Bílslys
Útafakstur
Bílslys varð á Grundartanga-
vegi við bæinn Fellsenda á sunnu-
dagsmorguninn. Ökumaður
missti stjórn á bílnum með þeim
afleiðingum að bíllinn valt marg-
ar veltur og er gjörónýtur. 4 ungir
menn voru í bílnum og tveir
þeirra voru fluttir með þyrlu
suður til Reykjavíkur á sjúkra-
hús. SA
Úk út af við Kópavogsbrú
Seinni part laugardags ók bíll útaf sunnan við Kópavogsbrú. Bifreiðin ók út af dist mikið. Tvö mótorhjól voru í kerru aftín í bílnum og skemmdust þau einnig
veginum og lenti á Ijósastaur. Ökumaður missti vald á bifreiðinni sem skemm- talsvert. Fjórir voru í bílnum en enginn slasaðist alvarlega. Ljósm. Ari.
Aflahrota
Enn hefst undan
Hœtta á að magnið komi niður á gœðunum. Guðrún Hallgrímsdóttir
hjá ríkismatinu: Höfum áhyggjur. Unnið á kvöldin og um helgarí
mörgumfiskvinnslustöðvum
Mjög góður afli hefur verið hjá
togurum og bátum fyrir
norðan og austan undanfarið og
er nú svo komið víða að unnið er
flest kvöld vikunnar og um helgar
til að hafa undan. Þeir, sem Þjóð-
viljinn ræddi við í gær sögðu að
enn hefðist undan en það væri al-
veg á mörkunum.
Guðrún Hallgrímsdóttir mat-
væiafræðingur hjá Ríkismati
sjávarafurða sagðist ekki hafa
fengið matsskýrslur fyrir síðustu
daga og gæti hún því ekki sagt
nákvæmlega til um hvernig út-
koman hefur verið. Aftur á móti
sagðist hún hafa áhyggjur af því
að magnið kæmi niður á gæðun-
um, en þó væri bót í máli að tog-
ararnir væru ekki nema 6-7 daga
að veiðum þegar svona vel aflað-
ist. Hún sagðist vita til þess að
fiskur hefði verið settur óísaður
ofan á kassa í togara á síðasta
veiðidegi og hefði hann því ekki
verið nema 4 til 5 tíma gamall
þegar hann kom til mats, en samt
verið á mörkunum vegna hitans.
Jóhann K. Sigurðsson í Nes-
kaupstað sagði að þar hefðist vel
undan þótt afli væri mikill og
starfsfóik Sfldarvinnslunnar ætti
frí um helgar. Hann sagði það
bjarga miklu þegar toppar kæmu
í aflanum, að nótaskipið Börkur
væri látinn sigla með afla til að
lækka kúfinn. Eins væri mikið
saltað þegar ekki hefðist undan í
frystihúsinu.
Róbert Guðfinnsson forstjóri
Þormóðs ramma á Siglufirði
sagði að þar hefðist enn vel
undan þótt mikið bærist að, en
bæði togarar og bátar frá Sigluf-
irði hefðu aflað mjög vel að und-
anförnu. Annars sagði Róbert að
reynt væri að haga veiðum togar-
anna þannig að ekki bærist svo
mikið að landi að ekki hefðist
undan. -S.dór
Bruni
Kviknaði í
á Barónsstíg
Á sunnudagskvöldið kom upp
eldur í húsi við Barónsstíg 24 í
Reykjavík. Mikill eldur var í eld-
húsi og stofu á annarri hæð húss-
ins. í öllu húsinu var mikill reyk-
ur þegar slökkviliðið var kallað á
staðinn. Kona sem var í húsinu
komst út og gat gert viðvart um
eldsupptök. Ekki voru fleiri í
húsinu. Reykkafarar fóru inn og
gátu slökkt eldinn á skammri
stundu. Húsið er illa farið. Timb-
urgólf er í húsinu milli hæða og
því lak mikið vatn á milli. Risið er
líka illa farið af völdum reyks.
Eldsupptök eru ókunn. SA
Keflavík-Peking
Esperantistar
til Kína
19 manna hópur sœkir alþjóðaþing
esperantista í Peking
Alaugardaginn leggur 19
manna hópur íslenskra esper-
antista upp í þriggja vikna ferð til
Kína og ertilefnið alþjóðaþing
esperantista sem nú er haldið í
Peking.
- Þetta þing er árlegur viðburð-
ur og hin stærsta af samkomum
esperantista, sagði Hallgrímur
Sæmundsson yfirkennari, for-
maður íslenska esperantósam-
bandsins og einn ferðalanganna,
- það hefur einu sinni verið hald-
ið hér á landi, árið 1977. Þingið í
Peking verður ekki sérlega fjöl-
mennt, sagði Hallgrímur, -
eitthvað á þriðja þúsund manns;
til dæmis voru um fimm þúsund á
þinginu í Búdapest 1983, en það
sótti einnig fjölmennur hópur ís-
lendinga.
- Á þinginu eru tekin fyrir mál
hreyfingarinnar, stjórnir funda,
haldin eru alþjóðleg menningar-
kvöld og rekinn háskóli um fræði-
leg efni, og í tengslum við þingið í
Peking núna verður ráðstefna um
hvernig esperantó hentar þjóð-
um sem ekki eiga sér indóevróp-
ska móðurtungu, þjóðum einsog
Kínverjum og Japönum. Og allt
fer fram á esperantó.
- Esperantistar í Kína eru í
mikilli sókn, margir að læra málið
og þeir halda uppi öflugu útgáfu-
starfi.
- Við höfum notið fyrirgreiðslu
Kínversk-íslenska menningarfé-
lagsins og Ferðaskrifstofu stúd-
enta við undirbúninginn, og kost-
ar fargjaldið tæplega 50 þúsund
krónur á manninn, farið fyrst til
London og síðan til Peking með
viðkomu í Sviss, Rúmeníu og
Pakistan. Þingið sjálft stendur í
viku, og síðan er farið í tvær ferð-
ir, fimm og átta daga, önnur
þeirra til Guilin í Suður-Kína þar
sem náttúrufegurð þykir með
eindæmum.
- Þetta er einn af fjölmennari
ferðahópum esperantista, fólk af
höfuðborgarsvæðinu, frá
Laugarvatni, Akureyri og Nes-
kaupstað, sagði væntanlegur
Kínafari að lokum. - m.
■mnmiini' bmw—■