Þjóðviljinn - 18.07.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Hegningarhúsið
Fangi
kveikti í
Um klukkan 3 í fyrrinótt bað
lögreglan í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg slökkviliðið
um aðstoð. Eldur kom upp þegar
fangi kveikti í rúmfötunum sín-
um. Búið var að slökkva eldinn
þegar slökkviliðið kom á staðinn.
Maðurinn brenndist og var flutt-
ur á slysadeildina. Ekki reyndist
hann vera alvarlega slasaður og
er kominn aftur í Hegningarhúsið
að sögn lögreglunnar.
SA.
Gaulverjabæjarvegur
Kona lést
í bílslysi
Síðdegis í fyrradag var lögregl-
unni á Selfossi tilkynnt um
bflslys á Gaulverjabæjarvegi.
Hafði vegfarandi komið að jeppa
sem hafði oltið út af veginum með
þeim afleiðingum að 28 ára gömul
kona lést.
Lögreglan telur að bíllinn hafi
lent í lausamöl og konan ekki
ráðið við bflinn. Hún kastaðist út
og varð undir bílnum. Börn
hennar tvö, eins og þriggja ára
gömul, voru með í bílnum og
sluppu þau nær ómeidd.
SA
Suðurgata
Eldur
í verslun
Allir slökkviliðsmennirnir sem
voru á vakt í fyrrinótt og var-
alið að auki voru kallaðir út þeg-
ar eldur kom upp í verslun á
Suðurgötunni í Reykjavík.
Mikill eldur var og brutust 3
reykkafarar inn í húsið. Húsið er
á einni hæð og var gert gat á þak-
ið. Fljótlega gekk að slökkva
eldinn. Enginn maður var í hús-
inu. Mesti eldurinn var á lager og
skemmdist hann mjög mikið.
Einnig varð talsvert tjón frammi í
versluninni sjálfri af völdum hita
og reyks.
SA.
Innbrot
Matar-
þjófnum
sleppt
Aðfararnótt miðvikudags var
brotist inn í hús við Nýlendu-
götu í Reykjavík. Innbrotsþjófur-
inn ráfaði um báðar íbúðir húss-
ins og stal sér svo mat í annarri
íbúðinni.
Eftir að hafa matast hvarf hann
á braut. íbúar í húsinu vöknuðu
og veittu honum eftirför. Lög-
reglan fann svo manninn í næsta
nágrenni, en innbrotsþjófurinn
var þá kominn inn í hús hjá kunn-
ingja sínum. Ekki var maðurinn
handtekinn heldur fékk hann að
fara frjáls ferða sinna. Á svipuð-
um tíma fyrir ári var líka brotist
inn í þetta hús við Nýlendugötu
og kveikti þjófurinn í svo mikið
tjón hlaust af.
SA.
„Það er gott að búa í þessu hverfi sem ýmist er kallað Hverfi hinna kynlegu kvista eða Milli lífs og dauða,“ sagði Kristín Traustadóttir sem var á gangi í
Suðurhlíðum með Helgu Völu 1/2 árs, þegar Ara Ijósmyndara bar að garði.
Hámarkshraði
30 km milli lífs og dauða
Suðurhlíðar þriðja 30 km-hverfið
Eg er mjög ánægð með að búið
er að samþykkja 30 km há-
markshraða hér í hverfinu, því
hér eru engar gangstéttir. Og það
er ætlast til þess að hér sé hæg
umferð, göturnar eru svo þröng-
ar, en ég bý neðst í hverfinu og sé
stundum bfla koma á miklum
hraða niður brekkuna. Það er
bara heppni að enginn hefur slas-
ast, því í þessu hverfi eru mörg
börn,“ sagði Kristín Traustadótt-
ir íbúi í Suðurhlíðum þegar Þjóð-
viljinn hitti hana á götu.
Nýlega var samþykkt í Um-
ferðarnefnd og borgarráði að há-
markshraðinn í Suðurhlíðum yrði
30 km. fbúar hverfisins höfðu
lengi óskað eftir þessu. Þórarinn
Hjartarson hjá gatnamálastjóra
sagði að nú ætti aðeins eftir að
leggja samþykktina fyrir borgar-
stjórn og síðan fá staðfestingu hjá
ráðuneytinu. „En það er alveg
pottþétt að af þessu verður."
Kristín sagði Suðurhlíðar væru
líka kallaðar „Hverfið milli lífs og
dauða“ vegna legunnar milli
Borgarspítalans og Fossvogs-
kirkjugarðsins, eða „Hverfi
hinna kynlegu kvista". „Það er
mjög gott að búa hér en þetta
hverfi er hálfgert olnbogabarn
hjá borginni. Til dæmis er búið að
taka strætóinn frá okkur, eða svo
gott sem. Því vagninn stoppar
hérna við kirkjuna en hann fer
núna bara aðra leiðina. Þetta er
vont þegar maður ætlar niður í bæ
eða þegar krakkarnir fara í
skólann. Krakkarnir í hverfinu
ganga í Hlíðarskóla og þangað er
nokkuð langt að labba. Því tóku
þau alltaf strætó í vondu veðri.
En nú er það ekki hægt lengur,“
sagði Krisíín að lokum.
Suðurhlíðar eru þriðja hverfið
í Reykjavík með 30 km hámarks-
hraða, hin fyrri eru Vesturbærinn
og Þingholtin. SA.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sjávarréttagerðin
Krabbi er tískumaturinn
Nýjung á neytendamarkaði. Krabbi ískel til að hita upp í
örbylgjuofni. Beitukóngur með brauði
Við erum að vinna að nýjung-
um fyrir innanlandsmarkað.
Það eru t.d. tilbúnir réttir úr
trjónukrabba sem hægt er að hita
upp í örbylgjuofni og á að bera
fram í skelinni. Svo eru það réttir
til djúpsteikingar og réttir til að
bera fram með ídýfu. Einnig
verðum við með létta rétti úr
beitukóngi. Maríneraða og
niðursneidda til að hafa með rist-
uðu brauði, sagði Kristján Einars-
son framkvæmdastjóri Sjávar-
réttagerðarinnar á Akranesi.
Kristján sagði að stutt yrði í að
þessar vörur yrðu settar í fram-
leiðslu.
„Ég er sannfærður um að það
er góður markaður fyrir þessa
framleiðslu, því þetta er mjög svo
í tísku um þessar mundir," sagði
Kristján.
Sjávarréttagerðin hefur selt
mikið til veitingahúsa t.d.
krabbakjöt, krabbaklær og kraft.
Veitingahúsið Stillholt á Akra-
nesi hefur sérhæft sig í að mat-
reiða krabbarétti.
Aðspurður sagði Kristján að
þeir hyggðust ekki stefna á er-
lendan markað, allavega ekki
fyrr en reynsla væri fengin á fram-
leiðsluna hérlendis. Hinsvegar er
fyrirhugað að selja krabbakraft
til útlanda því það er fínn mark-
aður fyrir það. Kristján sagði að
þetta yrðu ekki dýrar vörur.
„Krabbakjöt er dýrt kjöt en við
leitumst við að hafa þetta sem
ódýrast fyrir innanlandsmark-
að.“ Krabbinn er veiddur í Fax-
aflóa og á Breiðafirði. SA.
Kindakjöt
Rafmagn á skrokkana
Verið er að gera tilraunir með að hleypa rafmagni á kindaskrokka strax eftir
slátrun til að koma í vegfyrir að kjötið kœliherpist og verði seigt
Þegar kindakjöt er sett í frysti
fljótlega eftir slátrun, á sér
stað það sem kallað er kæliherp-
ing, sem veldur því að kjötið
verður seigara en ella. I fyrra-
haust hófust tilraunir með að
hleypa rafmagnsstraumi á
skrokkana strax eftir slátrun,
sem menn kalla rafmagnsörvun
og kemur þetta í veg fyrir seigju-
myndun í kjötinu. Tilraunirnar í
fyrra gáfu mjög góða raun og nú
hefur Rannsóknastofnun land-
búnaðarins fengið styrk úr rann-
sóknasjóði til að halda þessum til-
raunum áfram og verður það gert
í haust.
Guðjón Þorkelsson matvæla-
fræðingur hjá RL sagði í gær, að
til að koma í veg fyrir kæliherp-
ingu væri hægt að hækka hitastigi
í kjötgeymslunum en það þykir
vond lausn vegna gerlaaukningar
við það og svo virtist sem raf-
magnsörvunin gæti leyst þennan
vanda. Allavega væru menn
mjög bjartsýnir eftir tilraunir
norður á Akureyri í fyrra. Að
sjálfsögðu er þetta liður í að gera
dilkakjöt enn betra en það er nú
og eru menn bjartsýnir á að það
takist. -S.dór