Þjóðviljinn - 26.07.1986, Blaðsíða 6
IÞROTTIR
Reykjavík
Mikil barátta
Víkingur-Selfoss 1-1 (0-0) ★ *
Húsavík
Geysileg barátta einkenndi leik
tveggja af efstu liðum 2. deildarinnar
á Valbjarnarvellinum í gærkvöldi.
Selfyssingar komust með stiginu að
hlið KA á toppnum en Víkingar duttu
niður í Ijórða sætið.
Selfyssingar komu ákveðnir til
ieiks, í miklum baráttuham og vel
studdir af fjölmörgum áhorfendum
sem fylgdu þeim. Markalaus fyrri hálf-
leikurinn segir þó allt um gang mála
þá, mest siagur um knöttinn. Leik-
menn nýttu illa breidd vallarins og
skiptingar milli kanta sáust varla.
Andri Marteinsson átti laglegan
skaiia á 20. mín. sem Anton Hart-
mannsson markvörður Selfoss varði.
Andri meiddist skömmu síðar og
haltraði til leiksloka og kom það nið-
ur á spili Víkinga. Páll Guðmunds-
son, besti maður vallarins, átti
þrumuskot rétt framhjá marki Vík-
ings. Besta færið átti Víkingurinn Jón
Bjarni Guðmundsson, skot hans
sleikti þverslá.
Síðari hálfleikurinn var öllu líf-
legri. Víkingar hófu mikla sókn og á
55. min. uppskáru þeir laun erfiðis-
ins. Dæmd var vítaspyrna á Selfoss,
varnarmaður varði með hendi skot
Elfasar Guðmundssonar, og Elías af-
greiddi spyrnuna sjálfur af miklu ör-
yggi, 1-0.
Kvennaknattspyrna
Stjarnan
nálgast
l.deild
Stjarnan þokaði sér nær 1.
deildinni í fyrrakvöld með því að
sigra Þór 4-0 í Þorlákshöfn.
Veðurguðirnir voru svo sannar-
lcga á bandi Garðabæjarliðsins
því það lék undan roki í fyrri hálf-
leik en í logni í þeim síðari. Guðný
Guðnadóttir 2, Þuríður Gunn-
arsdóttir og Brynja Ástráðsdóttir
skoruðu mörkin. Stjarnan þarf
nú 4 stig úr 3 síðustu leikjunum til
að komast í 1. deild.
Fram vann FH 7-0 og á enn
tölfræðilega von. Katla Krist-
jánsdóttir markvörður og fyrir-
liði lék nú í sókninni og skoraði
eitt mark. Hin gerðu Sesselja Ól-
afsdóttir 2, Kristín Þorleifsdóttir,
Hrafnhildur Hreinsdóttir, Harpa
Jóhannsdóttir og Elín Gunnars-
dóttir.
Staðan í B-riðli:
7 0 0 32-4 21
5 0 2 26-9 15
2 1 2 13-5 7
2 1 4 16-30 7
1 2 4 12-29 5
0 0 5 3-25 0
-vs
Elías var aftur á ferð 5 mín. eftir
markið er hann átti þrumuskot af 25
m færi en naumlega framhjá. Besta
færi leiksins fékk þó Tómas Pálsson á
67. mín. Einn og óvaldaður á mark-
teig en lét Anton verja frá sér. Tómas
átti gott skot yfir rétt á eftir, en allt er
þegar þrennt er. Þaö sýndi Tómas og
sannaði á 76. mín. er hann fékk frá-
bæra sendingu frá Páli. Tómas lyfti
boltanum skemmtilega yfir Kristin
Arnarson markvörð Víkings, 1-1.
Halldór Gíslason, nýkominn inná
sem varamaður hjá Víkingi, brenndi
illilega af á markteig á 81. mín.
Páll Guðmundsson, miðjumaður
Selfyssinga, var besti maður vallar-
ins. Leikmaður með mikla yfirferð og
gott auga fyrir samleik. Gylfi Sigur-
jónsson átti einnig góðan leik. Hjá
Víkingi bar mest á Birni Bjartmarz.
Maður leiksins: Páll Guðmunds-
son, Selfossi.
-v.stef.
3. deild
Jafntefli
Reynir og Stjarnan skildu jöfn, 2-2,
í SV-riðli 3. deildarinnar í knatt-
spyrnu í Sandgerði í gærkvöldi.
Ragnar Gíslason og Heimir Erlings-
son skoruðu fyrir Stjörnuna í fyrri
hálfleik en þeir Grétar Sigurbjörns-
son og Óskar S. Magnússon fyrir
Reyni í þeim síðari. Staðan i deildinni
er þessi:
ÍK...................9 6 0 3 14-14 18
IR...................8 5 2 1 15-5 17
Fylkir...............8 5 1 2 20-8 16
ReynirS..............8 2 4 2 11-10 10
Grindavík............9 3 0 6 11-15 9
Stjarnan.............7 2 2 3 10-9 8
Ármann..............9 0 3 6 8-28 3
-VS
[2. deildl,
Stadan
í 2. deildarkeppnlnni í knatt-
spyrnu:
KA.............12 7 4
Selfoss........12 7 4
Völsungur......12 7 2
Víkingur.......12 6 3
Einherji.......10 5 2
iBl............11 3 6
UMFN...........11 3 2
KS.............11 2 3
Þróttur R......10 2 2
Skallagrímur.. . 11 0 0
1 31-8 25
1 25-8 25
3 28-9 23
3 32-14 21
3 13-15 17
2 22-17 15
6 16-27 11
6 15-19 9
6 16-22 8
11 4-63 0
Markahæstir:
T ryggvi Gunnarsson, KA.........17
Andri Marteinsson, Víkingi......11
Jón Gunnar Bergs, Selfossi......11
Vilhelm Fredriksen, Völsungi.....8
í dag mætast KS-Þróttur,
Einherji-ÍBÍ og UMFN-
Skallagrímur.
Þomnnur
felldi KA
Fyrsta tap Akureyrarliðsins í sumar
Völsungur-KA 1 -0 (0-0) ★ ★ ★
Það var mikil stemmning á
Húsavík í naumum sigrum
heimamanna á erkifjendunum
frá Akureyri í gærkvöldi. Áhorf-
endur voru fjölmargir, mesti fjöl-
di á Húsavík í langan tíma. KA
tapaði þarna sínum fyrsta leik í 2.
deild í sumar en Völsungar unnu
sinn fjórða leik í röð og eru komn-
ir í þriðja sætið.
KA-liðið var mun betra í fyrri
hálfleiknum en fyrir snilldartil-
þrif Þorfinns Hjaltasonar í marki
Völsunga var hálfleikurinn
markalaus. Hæst bar þegar hann
Tryggvi Gunnarsson fékk bolt-
ann í markteignum og skaut við-
stöðulausu bylmingsskoti á
Kvennaknattspyrna
Enn Valssigur
Valsstúlkurnar færðust enn
nær Islandsmeistaratitilinum í
gærkvöldi er þær sigruðu ÍBK 6-0
í Keflavík í 1. deild.
Ingibjörg Jónsdóttir skoraði
strax í upphafi beint úr horn-
spyrnu. Kristín Arnþórsdóttir
bætti tveimur mörkum við fyrir
hlé; 3-0.
A 10. mín. seinni hálfleiks
skoraði Ingibjörg eftir mikið þóf í
vítateig ÍBK og aðeins fimm mín-
útum síðar gerði hún þriðja mark
sitt í leiknum, 5-0. Vörn Vals
stöðvaði allar sóknartilraunir
ÍBK, nema þegar Erna Lúðvíks-
dóttir markvörður varði
meistaralega þrumuskot Ingu
Birnu Hákonardóttur. Kristín
innsiglaði síðan sigur Vals með
sínu 3ja marki undir lok leiksins.
Guðný Magnúsdóttir mark-
vörður ÍBK verður ekki sökuð
um mörkin því hún stóð svo sann-
arlega fyrir sínu. Helga, Inga og
Katrín áttu ágæta spretti en Vals-
liðið var jafnt og sterkt eins og
áður.
-MHM
Próttarar
„Páll var í gipsi"
Hefði aldrei leikið gegn Einherja, segir Ómar
Stjarnan 7
Fram 7
ÍBÍ 5
ÞórÞ 7
7
FH 5
,4*011 Ólafsson hefði aldrei get-
að leikið þennan leik gegn Ein-
herja, hann var með fingur í
gipsi, og það er því fjarri lagi að
við höfum verið að reyna að
seinka leiknum hans vegna,“
sagði Ómar Siggeirsson hjá
knattspyrnudeild Þróttar í
Reykjavík í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Eins og fram kom í blaðinu í
fyrradag telja margir að Þróttarar
hafi af ásettu ráði hagað málum
þannig að leikur þeirra við Ein-
herja á Vopnafirði gæti ekki farið
fram sl. laugardag, þar sem Páll
var þá staddur í Vestur-
Þýskalandi.
„Mistökin liggja í því að við
höfðum bókað allar okkar ferðir í
sumar hjá Sverri Þóroddssyni.
Þegar við hringdum þangað
tveimur dögum fyrir leikinn, eins
og venjulega til að athuga hvort
ekki væri allt í lagi kom í ljós að
leikurinn hafði aldrei verið færð-
ur inní dagbók flugfélagsins. Það
er rétt sem Aðalsteinn Steinþórs-
son formaður mótanefndar segir
að við hefðum getað komist á
annan hátt með flugi til Vopna-
fjarðar þennan dag - en það var
bara önnur leiðin, við hefðum
ekki komist til baka,“ sagði
Ómar. -VS
markhornið, en Þorfinnur fór á
eftir boltanum og varði stórkost-
lega. „Ég sá hann inni,“ sagði Jó-
hannes Sigurjónsson ritstjóri
Víkurblaðsins og gamall bragða-
refur úr boltanum.
í síðari hálfleik komu Völsung-
ar mun meira inní leikinn. Sigur-
markið kom á 76. mínútu og var
sérlega glæsilegt. Birgir Skúlason
vann návígi í eigin markteig, tók
boltann með sér, hljóp upp allan
völi og sendi á Kristján Olgeirs-
son sem átti í litlum vandræðum
með að þruma boltanum f mark-
hornið, 1-0.
Völsungar voru heppnir og
geta þakkað Þorfinni stigin þrjú.
„Við ætlum að vinna Njarðvík,
það er nóg handa okkur í bili,“
sagði Björn Olgeirsson fyrirliði
Völsungs þegar hann var spurður
hvort Völsungar gætu komist í 1.
deild. Erlingur Kristjánsson og
Friðfinnur Hermannsson léku
báðir mjög vel með KA og það
verður gaman að fylgjast með
þeim síðarnefnda ef KA vinnur
sér sæti í 1. deild.
Maður leiksins: Þorflnnur
Hjaltason, Völsungi.
-ab/Húsavík
Frakkland
Tveir
snjallir
til Brest
Franska 1. deildarliðið Brest
gekk í gær frá kaupum á tveimur
af snjöllustu varnarleikmönnum
Suður-Ameríku. Þeir eru Jose
Luis Brown frá Argentínu og Jul-
io Cesar frá Brasilíu. Brown er
þrítugur og skoraði fyrsta mark
úrslitaleiks heimsmeistarakeppn-
innar í Mexíkó en Cesar er aðeins
23 ára og þótti einhver besti varn-
armaður í keppninni.
-VS/Reuter
Golf
Drengjalandsliðið í knattspyrnu fer á morgun, sunnudag, til Danmerkur þar
sem það tekur þátt í Norðurlandamóti. Leikið verður við Svía á mánudag en
síðan við Finna, Dani, Færeyinga og Norðmenn. E.ÓI. tók þessa mynd af
liðinu, Lárus Loftsson þjálfari er aftast til hægri en Steinn Halldórsson úr
drengjalandsliðsnefnd aftast til vinstri.
Landsmótið
að byrja
Hefst í Leirunni á mánudaginn
Landsmótið í golfi 1986 hefst á
mánudaginn, 28. júlí, á hinum
glæsilega Hólmsvelli í Leiru, rétt
utan Keflavíkur. Golfklúbbur
Suðurnesja sér um framkvæmd-
ina á mótinu sem verður það fjöl-
mennasta og viðamesta i sögunni.
Mótið er sett á mánudag en á
þriðjudag hefst keppni í 2. og 3.
flokki karla og 2. flokki kvenna.
Meistaraflokkar og 1. flokkar
karla og kvenna hefja síðan
keppni á miðvikudaginn. Á
föstudag klára þrír fyrsttöldu
flokkarnir en hinir fjórir á laugar-
daginn. Leikin er ein 18 holu um-
ferð hvern keppnisdag í hverjum
flokki.
Að sögn mótsstjórnarmanna,
Kristjáns Einarssonar, Loga
Þormóðssonar og Ómars Jó-
hannssonar, er mótið stór stund
fyrir Golfklúbb Suðurnesja.
Þarna verður í fyrsta skipti leikið
opinberlega á 18 holu vellinum í
sinni endanlegu mynd og nýr
skáli tekinn í notkun. Mikil vinna
var lögð í að gera aðstöðuna til-
búna á réttum tíma og það hefur
tekist á myndarlegan hátt.
Núverandi íslandsmeistarar
karla og kvenna eru Sigurður
Pétursson og Ragnhildur Sigurð-
ardóttir úr GR og þau verða ör-
ugglega í baráttunni um efstu sæt-
in. Búast má við að skæðustu
keppinautar Sigurðar verði Úlfar
Jónsson, GK, sem einn íslend-
inga er með 0 í forgjöf, og Ragnar
Ólafsson, GR, sem er með 1 eins
og Sigurður.
-VS
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. júlí 1986