Þjóðviljinn - 26.07.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 26.07.1986, Blaðsíða 15
AFMÆU Sjötugur á sunnudag Sigurður Hafstað Nú mun vera liðinn eitthvað aldarfjórðungur síðan viðkynn- ing mín hófst við þau Ragnheiði og Sigurð Hafstað. Sigurður var þá nýkominn að sendisveit ís- lands í Osló, og Jón vinur minn og svarabróðir Eiríksson, sem þá hafði numið þar staðar skamma hríð á leið sinni í annað ljós, eggj- aði mig á að binda við hann vin- áttu; kvað mér myndi þykja meira varið í lífið eftir en áður. Því er ekki að neita að ég var hálftortrygginn í fyrstunni. Hvorttveggja er að ég er mið- aldamaður í þeli niðri og því van- ur að skýr takmörk eigi að vera milli veraldlegs embættisvalds og klerklegs valdleysis, enda hafði ég allt síðan hernámið dundi yfir og öll þau ósköp sem af því leiddi, tamið mér tómlæti í samvistum við umboðsmenn utanríkismála- stjórnarinnar; þóttu og ráðherr- arnir lengstaf gallagripir, en fornt mál að eftir höfðinu dansi limirn- ir. Pað sagði Jón mér til marks um mannkosti Sigurðar að hann væri aldavinur Steins Steinars, en Steinn var í þá tíð mestur ógnar- bfldur lögboðinnar meðalhegð- unar á íslandi, svo að jafnvel Kiljan komst ekki með tærnar þar sem hann hafði hælana, enda sá íslendinga sem um mína daga hefur komist næst því að vera tek- inn í guðatölu. Svo vænt þótti Steini um Sigurð að þegar hann hafði um síðir tyllt einhverjum fótum undir fjárhag sinn og kom- ið sér upp bankareikningi, gaf hann út sinn fyrsta tékka á nafn Sigurðar. Væri þeim í bönkunum gefin andleg spekt til jafns við gengisfellingarvitið, héngi þessi tékki nú í fordyri Landsbankans í fagurri umgerð. Og er nú ekki að orðlengja það að hér fór fyrir mér sem einatt verður, að kreddurnar tvístrast í viðkynningu einstaklinganna. Ég kannast heldur ekki við fólk öllu fjarkomnara þeirri menningar- deyfð og hugarslyðru sem for- sprakkar þjóðfélagsins hafa verið að innræta okkur síðasta mannsaldurinn, en Sigurð Haf- stað og þau Ragnheiði bæði og börn þeirra. Ekki efast ég um að Sigurður kunni öðrum mönnum betur allar þær íþróttagreinar sem diplómatíinu heyra; um það munu vonandi aðrir fjalla. Sjálf- um er mér minnisstæðast hvflík hjálparhella hann hefur reynst ís- lenskum stúdentum í þeim borg- um þar sem hann hefur gegnt embætti; líklega hefðu sumir orð- ið að liggja úti vetrarlangt ef Sig- urður hefði ekki vitað af húsa- skjóli einhvers staðar, og er lygi líkast hversu útsjónarsamur hann hefur margsinnis reynst. Stund- um er ég hræddur um að Sigurður hafi orðið að taka á honum stóra sínum í viðskiptum við suma yfir- boðara sína, og þá komið sér vel að hafa fengið þeirrar listar sem sumir kalla ironíu en Konráð lætur duga að nefna háð og skop, og kunna að brosa í huga inni, að baki hæversklegum orðum. Allt fyrir það leggst einhvern veginn í mig að Sigurður kunni þar best við sig sem eru skáld og spekingar og aðrir andagiftar- menn. Mér er til efs að ég hafi á öðru heimili hitt fyrir mér fleiri fróðleiksmenn og snillinga en hjá þeim Ragnheiði og Sigurði, og voru ekki allir löggiltir af há- skólum eða á fjárlögum. Mér er heldur ekki grunlaust að vinfengi Sigurðar við utanþjóðfélags- menn í bragarstétt hafi stuðlað að því að honum hefur aldrei verið falin forstaða sendisveitar, sem honum þó bar bæði vegna emb- ættisaldurs og kunnáttu og lang- vinnrar lífsreynslu. í þessum skrifuðum orðum rifjast upp fyrir mér einkum og sér í lagi það fulltingi margvíslegt og ténaður sem Sigurður hefur veitt mér í andlegum efnum þann aldarfjórðung sem við höfum þekkst. Ég minnist þess t.a.m. að ég lá andvaka og bylti mér sitt á hvað heila nótt og reyndi að koma fyrir mig hendingum úr Jesú rímum Krists og sveina hans eftir Tryggva Magnússon, and- legu kvæði sem mér hefur einlægt þótt vænt um. Að dagmálum kvaddi ég dyra á skrifstofu Sig- Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Rafmagnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í díesel vararafstöð 240 kW. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26. ágúst nk. kl. 11 fyrir hádegi. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 Útboð Sementsverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum í að brjóta niður og flytja í burtu rúml. 60 m af færibandshúsi verksmiðjunnar. Húsið er úr járn- bentri steinsteypu og stendur á bryggju við verk- smiðjuna á Akranesi. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. des. 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Almennu verk- fræðistofunni h.f., Fellsmúla 26 í Reykjavík. Tilboðum skal skila til Sementsverksmiðju ríkis- ins á Akranesi eigi síðar en kl. 11.30 þriðjudaginn 19. ágúst n.k. Sementsverksmiðja ríkisins. urðar, hófst orða fyrirvaralaust og mælti af munni fram: Blessað vesin hátt til hnés, himna deshúss gróður. En hér fór allt eins og þegar Kilj- an og Þórbergur voru að kveðast á í mýrinni: Sigurður svarar um leið og ég læt aftur á eftir mér: Líknartrésins frítt með fés, frelsarinn Jesús góður. Líklega eru fá sendiráð í heimin- um þess umkomin að veita betri þjónustu. Þó held ég að Sigurði láti betur veraldlegur kveðskapur en guð- rækilegur. Það var hér á árunum að lögregluþjónn í Reykjavík, hagmæltur maður, orti drápu um Noregskonung, og þótti einsætt að hann flytti konungi drápuna að fornum sið. En þetta var tíma- skekkjumaður eins og ég, og sá af lagður að íslensk skáld steðjuðu inn í borðstofu hjá konungum, nýkomnir af skipsfjöl og vísast ekki búnir að strjúka framan úr sér sjóveikina, og ryddu úr sér tíræðum drápum með reknum kenningum og heitum svo forn- um að ekki hafa skilist síðan á steinöld, meðan Ólafur Haralds- son tíndi í sig steikina. En Sigurð- ur kunni ráð við því, og kom þar saman skáldskaparvit hans, dipl- ómatísk lipurð og íþróttagrein sú íronía sem Konráð gefst upp við að gefa íslenskt nafn. Kvæðið var sent konungi samkvæmt réttum hirðsiðum, og fenginn til þjóð- kunnur prófessor í fornskálda- máli að snara því á tungu innan- landsmanna sem næst frumkvæð- inu bæði að orðafari og bragar- hætti. Þótti þýðingin takast svo vel að þýðandinn var skrýddur heiðursmerki í þakklætis skyni. Einhvern veginn gleymdist þó skáldið, og fór orðulaus fram af heiminum, hvað sem síðan tók við; en það var ekki Sigurði að kenna. Upp úr þessu hófst sú grein skáldskapar sem nefnd hefur ver- ið grindarsnúningsvísur af kunn- áttumönnum, og er Sigurður frumkvöðull hennar. Mér hefur verið sagt að þeir hafi stundum kveðist á grindarsnúningsvísum Sigurður og kollegar hans í utan- ríkisráðuneytinu og sent á dul- máli stofnunar sinnar; ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Mér er heldur en ekki dillað í þeli niðri þegar ég hugsa til þeirra gaura í CIA eða KGB, eða hvað þau heita þessi skammstöfuðu snuðrarafélög, þar sem þeir strit- ast við að lesa úr þessum skeyt- um. Svo br við að kona teygði Jón heitinn Eiríksson á flærðir, og varð Jóni alltíðrætt um sem von var til, en þó náði hann sér aftur um síðir. Þá kvað Sigurður: Snúnings þindarlausum leik lauk í synd og trega. Hœla tinda bikkjan bleik brá mér skyndilega. Bændur athugið Frestur til aö skipta réttindastigum áunnum til ársloka 1983 meö maka eöa sambýlismanni, sbr. lög nr. 50/1984, rennur út 1. ágúst 1986 og verður ekki framlengdur frekar. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu sjóösins og formönnum búnaðarfélaganna um land allt. Lífeyrissjóður bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg, sími 91-18882. Grunnskóli Siglufjarðar Enn vantar okkur kennara í eftirtaldar greinar: Stærðfræöi og eðlisfræði 7.-9. bekk. Samfélagsgreinar 7.-9. bekk. íþróttir drengja. Almenn kennsla í yngri bekkjum. í skólanum eru um 300 nemendur og yfir 20 kennarar. í boöi er húsnæðisstyrkur. Frekari upplýsingar gefa formaður skólanefndar í síma 96-71616 (96-71614) og skólastjóri í síma 96-71686. Skólanefnd Vísast að hæla tinda bikkja hafi reynst þeim skammstöfuðu fullstrembin kenning; hvað þá himnadeshússgróðurinn góði. Sigurður Hafstað er víðförull maður, hefur séð borgir og þekk- ir skaplyndi margra manna, eins ' og Sveinbjörn Egilsson segir um Odysseif: polýtropos anér. f at- vinnustétt Sigurðar veitist mörg- um erfitt að varðveita menning- arlegt sjálfstæði sitt og uppruna, og verða að síðustu svo sem ekki neitt í neinu, hugurinn eins og rek hvað úr sinni áttinni. Þau Ragn- heiður og Sigurður hafa efalaust vitað af þessari hættu þegar þau fóru á stað í fyrsta skipti. En þeim hefur auðnast að geyma bæði inn- borinnar menntunar og arfgeng- inna siða, og ávaxta svo með nýrri lífsreysnlu í ókunnum stöð- um sjálfum sér og börnum sínum til þroska og náungum sínum til nytsemdar og ánægju. Dætur þeirra og synir hafa vanist gersku máli, frakknesku, norsku og ensku, svo nokkuð sé talið, í þeim borgum þar sem þau ólust upp, og hafa með tilhjálp þeirrar kunnustu unnið gagnsamleg störf heima á ættlandi sínu. Aldrei man ég þó til þess að ég hafi orðið þess var í málfari þeirra að þau hafi nokkru sinni farið út fyrir Lýtingsstaðahrepp; það væri þá helst að íslenskt tungutak hafi eflst og liðkast í glímunni við fjöl- tyngið að orðum og hugtökum. Og er eitt með öðru til marks um þá menningarlegu samvisku og hugsjón sem uppeldi þeirra var grundvallað á. Þau Sigurður og Ragnheiður eru nú flutt búferlum til íslands, jafnung í hugum og þegar við kynntumst fyrir fjórðungi aldar. En hér í Osló þar sem þau hafa átt heima síðustu árin, er þvflíkast sem stykki hafi verið skorið úr tilverunni og verði ekki aftur bætt í skarðið. Þau hafa fundið húsi sínu stað þar sem víðsýnast er á Seltjarnarnesi og áveðrasamast, og þangað sendi ég nú Sigurði kveðjur mínar og heillaóskir á af- mælisdaginn; og eru þó ómur einn af því sem mér býr í huga. Og mætti ég bera fram við hann enn eina bæn öllu fyrra kvabbi til viðbótar, þá væri hún sú að hann setti nú saman minningar sínar um víðförla ævi og kynni sín af skapferli manna, og héldi svo hátíðlega heimkomuna. Friðrik Þórðarson ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.