Þjóðviljinn - 26.07.1986, Síða 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Sumarferð
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður farin um Verslunar-
mannahelgina 2. til 4. ágúst. Farið verður á Strandir. Lagt verður af stað
laugardaginn 2. ágúst. Frá Akranesi verður lagt af stað kl. 9.00 frá Fólks-
bílastöðinni og frá Borgarnesi kl. 9.30 frá útibúi KB við Borgarbraut.
Ekið verður sem leið liggur vestur í Dali, fyrir Klofning og að Klúku í
Bjarnarfirði. Þar verður gist í 2 nætur í herbergjum eða í svefnpokaplássi.
Sunnudaginn 3. ágúst verður farið í Árneshrepp. Upplýsingar um ferðina
veita: Akranes: Guðbjörg sími 2251. Grundartjörður: Matthildur sími
8715. Hellissandur: Drífa sími 6747. Stykkishólmur: Þórunn sími 8421.
Búðardalur: Kristjón sími 4175.
Borgarnes: Júlíus sími 7718, Sigurður sími 7122, Ólafsvík: Jóhannes sími
6438.
Frá skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Miðgarði, Hverfisgötu 105 verður
opin í sumar til kl. 16:00. Alþýðubandalagið
Ferðahappdrætti Alþýðubandalagsins 1986
Vinningaskrá
Dregíð var í kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins hjá borgarfógeta
14. júní sl.. Vinningar féllu á eftirtalda happdrættismiða:
1. Sólarlandaferð í leiguflugi með Útsýn að verðmæti kr. 35.000, nr.
15078.2. Sólarlandaferð í leiguflugi með Utsýn að verðmæti kr. 35.000, nr.
1983. 3. Sólarlandaferð i leiguflugi með Útsýn að verðæti kr. 35.000, nr.
9405. 4. Sólarlandaferð í leiguflugi með Útsýn að verðmæti kr. 35.000, nr.
3091. 5. Ferð í leiguflugi til Rhódos með Samvinnuferðum-Landsýn kr.
30.000,14164.6. Ferð í leiguflugi til Rimini með Samvinnuferðum-Landsýn
kr. 30.000, nr. 2286. 7. Flugferð til Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr.
41.000, nr. 2994. 8. Flugferð til Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr.
41.000, nr. 2971. 9. Flugferð til Evrópu með Arnarflugi að verðmæti kr.
.41.000, nr. 5913.10. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr.
30.000, nr. 6763. 11. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæri kr.
30.000, nr. 7001.12. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr.
30.000, nr. 14227.13. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr.
30.000, nr. 2154. 14. Flugferð til Evrópu með Flugleiðum að verðmæti kr.
30.000, nr. 4215. 15. Flug og bíll til Salzburg með Samvinnuferðum-
Landsýn að verðmæti kr. 20.000, nr. 4922.16. Flug og bíll til Kaupmanna-
hafnar með Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæti kr. 20.000, nr. 15214.
17. Flugferð innanlands með Arnarflugi að verðmæti kr. 5.000, nr. 14801.
18. Flugferð innanlands með Arnarflugi að verðmæti kr. 5.000, nr. 8344.
19. Flugferð innanlands með Arnarflugi að verðmæti kr. 5.000, nr. 8039.
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í Lárusarhúsi, mánudaginn 28. júlí kl. 20.30. Fundarefni' 1) Daq-
skrá bæjarstjórnarfundar 29. júlí.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Fjölskylduhátíð
Fjölskylduhátíð Alþýðubandalagsins verður haldin í Siglufirði dag-
ana 16. og 17. ágúst n.k.
Þátttaka tilkynnist í síma 71142 (Brynja) og 71712 (Hafþór).Nánari
tilhögun auglýst síðar.
Atvinna
Lausar stöður á Dalvík
Eftirtaldar stöður hjá Dalvíkurbæ eru lausar til
umsóknar:
Bæjarritari
í starfinu felst dagleg stjórnun bæjarskrifstofu,
umsjón með fjárreiðum bæjarsjóðs og rekstri.
Góð bókhaldsþekking auk þekkingar á sviði
tölvunotkunar nauðsynleg. Launakjör sam-
kvæmt launakjörum Starfsmannafélags Dalvík-
urbæjar.
Aðalbókari
( starfinu felst umsjón með bókhaldi bæjarsjóðs
og bæjarfyrirtækja auk færslu bókhalds. Launa-
kjör samkvæmt launakjörum Starfsmannafélags
Dalvíkurbæjar.
Æskilegt er að umsækjendur gætu hafið störf
sem fyrst. Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri
störf sendist til bæjarstjórans á Dalvík fyrir 12.
ágúst. Aliar frekari upplýsingar gefa bæjarritari
og bæjarstjóri.
Dalvíkurbær,
Ráðhúsinu,
620 Dalvík
Auglýsið í Þjóðviljanum
MINNING
Ólafur Sigurðsson
hreppstjóri, Háhœ
Fœddur 13. mars 1897 Dáinn 18. júlí 1986
Falls er von af fornu tré. Nú er
hann Ólafur í Hábæ allur, tæp-
lega níræður. Og bráðkvaddur
varð hann eða svo gott sem. Það
var gott, að hann kvaldist ekki.
Að vísu var elli kerling tekin að
mæða hann allmikið. Sjónin var á
förum og heyrnin einnig. Það er
því líkast sem lífið geri okkur
með tímanum ónæmari en fyrr á
æviskeiðinu gagnvart ytri áreit-
um eins og birtu og hávaða. Horf-
inn er af sjónarsviðinu traustur
maður, heilsteyptur, haldinorð-
ur. Eigum við nógu marga slíka
menn í dag?
Ólafur í Hábæ, en það var hann
jafnan nefndur af heimamönnum
og lengra að, var fæddur í Hábæ
hinn 13. mars árið 1897. Hann
dvaldi alla ævi að kalla á þessum
litla bletti og þar ber hann nú
beinin, blessaður karlinn.
Foreldrar Ólafs voru búandi
hjón í Hábæ, Sigurður Ólafsson
Ólafssonar bónda í Hábæ og
Sesselja Ólafsdóttir bónda í Há-
vaðarkoti Jónssonar. Bæði urðu
þau háöldruð. Ólafur dó 1957, en
Sesselja árið 1962. Öll var ætt
Ólafs hreppstjóra úr Þykkvabæn-
um, að undanteknu því, að amma
hans, kona Ólafs Ólafssonar, var
úr Landeyjum. Hét hún Ólöf
Guðbrandsdóttir. Foreldrar
Ólafs hvfla í Hábæjarkirkjugarði,
einnig afi hans og amma sem fyrr
er getið. Kirkja og garður í
Þykkvabæ urðu til árið 1914, er
kirkjan var flutt úr Háfi í Háfs-
hverfi í þéttbýlið í grennd við Há-
bæ. Flatlent er mjög í Þykkvabæ,
en þar sem Hábær stendur er hóll
nokkur, hvaðan ergott útsýni yfir
byggðina og vítt til fjalla. A fáum
stöðum er fjallasýn víðari en úr
Þykkvabænum. í Hábæ var lengi
höfuðból og þar hafa setið gildir
bændur. Þar hóf Ólafur búskap,
fyrst ásamt foreldrum sínum og
bróður, Óskari, sem enn er á lífi,
en árið 1940 var jörðinni skipt og
Ólafur byggði sér sérstakt hús.
Hann kvæntist ungri konu árið
1940, Guðrúnu Elíasdóttur, frá
Bolungarvík. Tók hún við
hreppstjórastarfinu af manni sín-
um fyrir nokkrum árum, og mun
vera með fyrstu ef ekki fyrsti
kvenhreppstjóri þessa lands, en
Ólafur varð fyrsti hreppstjóri
Djúpárhrepps, sem til varð árið
1936, við klofning úr Ásahreppi.
Varð Þykkvibærinn, sá mikli
þéttbýliskjarni, ásamt Háfshverfi
og Bjóluhverfi og nokkrum bæj-
um öðrum, að sjálfstæðu
sveitarfélagi, þar sem samtök í
búnaði hafa Iöngum ráðið ríkj-
um. Mátti segja, að Ólafur ynni
þar ævistarf sitt. Kom hann víða
við. Auk hreppstjórastarfanna
gegndi hann ýmsum opinberum
störfum fyrir sveit sína. Búnað-
armálunum helgaði hann krafta
sína óspart.
Faðir Ólafs, Sigurður (1870-
1957) var og framámaður í
Þykkvabæ um sína daga. Átti
hann mikinn þátt í því verki sem
lyfti þessari sveit til þess vegs sem
hún hefur haldið síðan, en það
var er Djúpós var stíflaður árið
1923. Sigurður stjórnaði þessu
verki og vann Ólafur þar að sjálf-
sögðu. Lögðu menn mikið að sér
þar, stóðu í vatni upp að öxlum,
I helköldu jökulvatni að hluta.
■ Ég kynntist Ólafi mikið. Gest-
risni þeirra hjóna var viðbrugðið.
Áreiðanlegri mann en Ólaf var
vart hægt að hugsa sér. Þeir voru
flestir áreiðanlegir, gömlu menn-
irnir. Er þessum eiginleika að
hnigna? Margt bendir til þess, því
miður.
Ólafur í Hábæ var að vísu mað-
ur hins gamla tíma. Hann fór
aldrei geyst í framkvæmdum, en
hann reisti sér heldur aldrei hurð-
arás um öxl, hann ætlaðist alltaf
af, bæði fyrir sjálfan og aðra. Mér
er kunnugt um það, að enda þótt
Ólafur væri ekki langskóla-
genginn, voru embættisverk hans
jafnan hrukkulaus. Samband
hans við sýslumenn Rangæinga,
sem lengstaf embættistíðar Ólafs
var Björn Friðgeir Björnsson,
var árekstralaust, enda báðir
friðarins menn. í skilnaðarhófi
sem Birni sýslumanni var haldið á
Hvolsvelli og fjölsótt var að von-
um, lét Björn þau ummæli falla,
er rætt var um embættisferil hans
í fjóra áratugi, að hann hefði
jafnan viljað fara sáttaleiðina í
stað malaraksturs, því að „betri
er mögur sátt en mikill dómur.“
Mér finnst þetta einnig eiga við
hinn nýlátna hreppstjóra Þykk-
bæinga (Djúpárhrepps) um langa
hríð, eða frá 1936-1980, - Ólaf í
Hábæ.
Eftirlifandi konu Ólafs, svo og
syni og öðrum aðstandendum,
vottast hér með samúð frá mér og
mínu fólki.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Samband borgfirskra kvenna
56. aðalfundur á Akranesi
11 grœnlenskar konur sátu aðalfund sambandsins
55. aðalfundur Sambandsins
var haldinn á Akranesi 6, og 7.
júní 1986.
í byrjun fundarins bauð for-
maður gesti velkomna. Meðal
þeirra voru 11 grænlenskar kon-
ur, sem hér voru á ferð og dvöldu
á Akranesi. Nutu þær nokkurrar
fyrirgreiðslu af hálfu S.B.K. og
var boðið að sitja Sambandsfund-
inn eftir því, sem þær hefðu tök á.
Setti nærvera þeirra skemmti-
legan svip á fundinn og ekki síður
kvöldvökuna, þar sem sumar
þeirra mættu í grænlenska þjóð-
búningnum. Voru þetta kær-
komnir gestir.
Útgáfunefnd bókar um og eftir
Svöfu Þorleifsdóttur, í tilefni 100
ára afmælis hennar, hefur nú að
mestu lokið störfum og mun bók-
in koma út í haust. Lesnir voru
valdir kaflar úr bókinni á fundin-
um og kvöldvökunni.
Afmælisrit S.B.K. í tilefni 55
ára afmælis Sambandsins er nú
komið út og er til sölu hjá bók-
sölum og öllum kvenfélögunum
innan Sambandsins.
Starf Sambandsfélaganna er að
vanda þróttmikið og fjölbreytt.
Sem dæmi má nefna, að eitt fé-
lagið rekur sjúkrahúsbúð allt
árið, annað er með fatabasar allt
sumarið.
Á fundinum var lýst heiðursfé-
laga S.B.K. Aðalheiði Jónsdótt-
ur var afhent heiðursskjal og
henni þökkuð óeigingjörn störf
fyrir Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi.
Samþykktar voru margar til-
lögur á fundinum og skulu nokkr-
ar nefndar.
Um símamál
55. aðalfundur S.B.K., hald-
inn á Akranesi 6. og 7. júní
skorar á samgöngumálaráðherra,
að gera nú þegar þær breytingar á
gjaldskrá Landsíma íslands, að
allt 93-svæðið verði eitt gjald-
svæði eins og 91-svæðið.
Um hússtjórnar-
skolann Varmalandi
55. aðalfundur S.B.K. haldinn
á Akranesi 6. og 7. júní 1986
harmar þá ákvörðun mennta-
málaráðherra, að hætta rekstri
hússtjórnarskólans á Varma-
landi, sem búinn er að starfa með
miklum sóma í 40 ár.
Fundurinn skorar á mennta-
málaráðherra, að athuga alla
möguleika á áframhaldandi
starfsrækslu skólans.
Úr tillögu um
brjóstmyndatæki
55. aðalfundur S.B.K. haldinn
á Akranesi 6. og 7. júní 1986
skorar á heilbrigðisyfirvöld, að
flýta kaupum á ferðatæki til
brjóstmyndatöku „mammo-
grafía“
Stjórn S.B.K. er óbreytt frá
fyrra ári. Hana skipa þesar kon-
ur: Gyða Bergþórsdóttir formað-
ur, Heiga Guðmarsdóttir ritari,
Katrín Georgsdóttir gjaldkeri,
Snjólaug Guðmundsdóttir
meðstjórnandi, og Guðríður Ein-
arsdóttir meðstjórnandi.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. júlí 1986