Þjóðviljinn - 26.07.1986, Qupperneq 16
Arió 1885 voru samþykkt á Alþingi lög um stofnun
Landsbanka Islands. Þarsegir m.a. aó tilgangurinn meó starfrækslu
bankans sé: „aö greióa fyrir peningavióskiptum í landinu og styója að
framförum atvinnuveganna “. A sidast lidnu ári var hlutur Landsbankans pgpps
um 50% af öllum lánum banka og sparisjóda til atvinnulífsins. ,
Landsbanki Islands er
banki allra atvinnugreina. LQ ndSll5<ÉlO HtÍ ^
felandsmanna
I
:
%
Bílainnflutningur
Yfir 4.500
á 3 mánuðum
Búið aðflytja hátt á 6
þúsund bíla innfrá ára-
mótum, þar afyfir þús-
und Lada bifreiðar
Á þremur mánuðum, frá apríi
til júnfloka voru fluttir inn 4.529
nýir fólksbflar til landsins eða
hátt í jafnmargir og á öllu sl. ári.
Á fyrri helming þessa árs hafa
verið fluttir inn rúmlega 6.500
nýir fólksbflar en alls hafa á þess-
um tíma verið fluttar inn 7.251
nýjar og notaðar bifreiðar.
Samkvæmt yfirliti Hagstofunn-
ar um bifreiðainnflutning til
landsins var mest flutt inn af Su-
baru 1800 bifreiðum á tímabilinu
apríl-júní eða samtals 380 bif-
reiðar, 304ToyotaTercel bifreið-
ar voru fluttar inn á sama tíma og
294 Daihatsu Charade. Af ein-
stökum bíltegundum var mest
flutt inn af Lada bflum á þessum
tíma eða 1.065 bifreiðar.
Flugferðir
Drap
á hreyfli
til öryggis
Twin Otter lenti á Pat-
reksfirði vegna hugsan-
legrar bilunar í hreyfli.
Flugu á öðrum hreyflin-
um í hálftíma
Á fimmtudag lenti Twin Otter
flugvél frá Flugfélagi Norður-
lands á Patreksfirði vegna hugs-
anlegrar bilunar í hreyfli. Kvikn-
að hafði á aðvörunarljósi og þótti
flugstjóra öruggara að drepa á
hreyflinum og lenda á Patreks-
ilrði en hann var á leið frá Græn-
landi til ísafjarðar með tóma vél.
„Það var engin alvara á ferðum
sem betur fór,“ sagði Gunnar
Karisson flugstjóri í samtali við
blaðamann í gær. „Hreyfillinn
var ekki bilaður þó kviknað hafi á
aðvörunarljósinu og allt gekk að
óskum. Við flugum um það bil í
hálftíma á öðrum hreyflinum en
þessi vék, sem og flestar aðrar af
þessari gerð, er hönnuð með
þann möguleika í huga að hægt sé
að fljúga á öðrum hreyflinum.
Við ætluðum að snúa til Reykja-
víkur en þar sem gott veður og
skyggni var á Patreksfirði þá ák-
váðum við að lenda þar. Öllu hef-
ur verið kippt í lag núna og vél-
inni verður flogið heim í dag,“
sagði Gunnar Karlsson flugstjóri.
Kvennaathvarf
Fengu 100 þús. að gjöf
Góð gjöffrá menningarsjóbi Sambandsins
Starfsfólk Verslunardeildar
Sambandsins afhenti fulltrú-
um Kvennaathvarfsins í Reykja-
vík eitt hundrað þúsund krónur
að gjöf í gærmorgun.
Stjórn Menningarsjóðs Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
ákvað styrkveitingu þessa á fundi
sínum fyrir skömmu, en fulltrúar
starfsmanna afhentu styrkinn
fyrir hönd stjórnarinnar. Edda
Scheving og Kristín Blöndal full-
trúar Kvennaathvarfsins veittu
styrknum móttöku og létu þess
getið, að hann yrði notaður til
þess að hefja viðgerð á húsi
Kvennaathvarfsins í Reykjavík.
Þorleifur V. Stefánsson afhendir Eddu Scheving styrkinn ásamt starfsfélögum
úr verslunardeild SlS.
möbviuinn
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Laugardagur 26. júlí 1986 166. fölublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.