Þjóðviljinn - 30.08.1986, Side 4
______________LEIÐARI____________
Raunhæfar friöarhugmyndir
Fulltrúar fimm af sex þingflokkum sóttu í vik-
unni fyrsta fund í norrænu þingmannanefndinni
sem kennd er viö Anker Jörgensen, formann
danska jafnaöarmannaflokksins. Þeirri nefnd er
ætlað aö koma á samstarfi milli þjóöþinganna á
Norðurlöndum um aö Norðurlönd veröi lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði. Þessi fundur tókst
vel. Augljóst er að mikið verk er frammundan en
þaö er líka augljóst aö á Noröurlöndum skortir
ekki vilja til aö vinna þetta verk.
Úr herbúðum þeirra stjórnmálaafla íslenskra
sem enn hrærast í andrúmslofti kalda stríðsins
heyrast þær raddir aö tillögur um formlegan
samning norrænna þjóða um kjarnorkuvopna-
laust svæöi séu firra, einangraöur minnihluta-
hégómi, til þess eins geröur aö hleypa aö
rússneska birninum. Hér er á ferö vanþekking
eða blekkingartilraun, nema hvorttveggja sé.
Svavar Gestsson, einn þingmannanna í Anker-
nefndinni, minnir á það í helgarblaði Þjóðviljans
aö hugmyndin um kjarnorkuvopnalaust svæöi á
Norðurlöndum er síöur en svo einstæð. Meira
en fjörutíu ríki hafa þegar gerst aðilar aö slíkum
svæöum víöa um heim, og Sameinuöu þjóöirn-
ar hafa hvatt til þess aö slíkir milliríkjasamningar
séu geröir.
Tillögur um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
eru einnig harla langt frá því að vera hugdetta
minnihlutamanna. Þessar tillögur njóta meiri-
hlutastuönings meöal almennings á Noröur-
löndum og á þjóðþingum þeirra, einsog Anker-
nefndin sýnir best, en þar eiga sæti fulltrúar
allra pólitískra strauma norrænna nema frá
hægri öfgamönnum, en meöal þeirra hefur
Sjálfstæðisflokkurinn íslenski valið sér stööu.
Vísindaleg skoöanakönnun sem gerð var
fyrir nokkru hérlendis leiddi í Ijós meirihluta-
stuðning íslendinga við þessar hugmyndir, og
öll vötn falla til aö Sjálfstæðisflokkurinn standi
einn uppi á alþingi í andófi gegn samstarfi um
kjarnorkuvopnalaust svæöi, að vísu studdur af
formanni Alþýöuflokksins sem hefur notfært sér
þetta mál til að svala að nokkru landskunnri
athyglisgirnd sinni.
Tillögurnar um kjarnorkuvopnalaus Noröur-
lönd hafa líka þann kost að vera í sjálfu sér afar
skýrar og vísa jafnframt veginn til stærri friðar-
verkefna í Evrópu. Gert er ráö fyrir aö norrænar
þjóöir semji sín á milli um aö nota ekki og fram-
leiða ekki kjarnorkuvopn, taka ekki á móti kjarn-
orkuvopnum af neinu tæi og Ijá ekki máls á að
önnur ríki flytji inn, noti eða geymi kjarnorku-
vopn í löndum þeirra.
Kæmu Norðurlöndin sér saman um slíkan
samning væri næsta verk aö knýja stórveldin til
að gefa um þaö yfirlýsingu aö þau viröi hið
kjarnorkuvopnalausa svæði, og aö þau muni
ekki nota né hóta aö nota kjarnorkuvopn gegn
samningsríkjunum. í þessu felst aö þau flyttu
slík vopn ekki inn á samningssvæðið og stæöu
ekki að heræfingum með slík vopn á svæöinu.
Það bendir margt til aö Norömenn, Danir,
Svíar, Finnar, Grænlendingar og Færeyingar
séu nú aö bíða eftir aö íslendingar taki af skarið í
þessum efnum og segi til um það afdráttarlaust
hvort þeir vilja vera með. Neiti (slendingar, eða
dragi á eftir sér lappirnar einsog Matthías utan-
ríkisráöherra Mathiesen, eru miklar líkur á aö
kjarnorkuvopnalaust svæöi veröi stofnað á
Noröurlöndum án þess að skeyta um þátttöku
íslendinga. Slíkir atburöir yröu síðan til þess aö
auka þrýsting Bandaríkjahers um aö íslending-
ar láti af andstööu sinni viö aö hafa kjarnorku-
vopn.
Fundur vestnorræna þingmannaráösins á
Selfossi nú í vikunni steig mikilvægt skref í rétta
átt með því að skora á stjórnir Færeyja, Græn-
lands og íslands aö beita sér fyrir aö lýsa kjarn-
orkuvopn útlæg ger á hinu vestnorræna svæöi.
Þaö er lærdómsríkt fyrir íslenska úrtölumenn aö
sjá aö sú ályktun var samþykkt meö öllum
greiddum atkvæöum, - hjá sátu að vísu tveir
Islendingar og einn skoðanabróöir þeirra fær-
eyskur. Norræn samfylking um þessar raun-
hæfu friöartillögur er aö eflast, og hér á íslandi
stefnir líka í rétta átt þótt nokkrir pólitíkusar
rembist enn einsog rjúpan við staurinn af annar-
legum ástæöum ættuðum úr kalda stríðinu.
- m
LJOSOPIÐ
Mynd. K.G.A.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafs-
dóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigur-
dór Sigurdórsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir),
Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlltsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Husmóöir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. ágúst 1986