Þjóðviljinn - 30.08.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.08.1986, Blaðsíða 8
Sagnfræði Saga ísafjarðar Annað bindi eftir Jón Þ. Þór Eins og f lestum ætti að vera kunnugtátti Ísafjörður200ára kaupstaðarafmæli þann 18da ágúst. Af því tilefni kom á dögun- um út annað bindi sagnfræði- verks sem fjallar um sögu ísa- fjarðar og tekur yfir árin 1867- 1920. Sögufélag ísfirðinga stendur fyrir þessari sagnaritun ogþaðer Jón Þ. Þórsagnfræð- ingursem skráir. Þessi bók skiptist í eina tólf kafla sem fjalla um ýmsa þætti bæjarlífsins. Þar á meðal má nefna byggingu og vöxt bæjarins, um stéttarfélög og hagsmunafé- lög ýmis konar og um bæjarbrag og lífshætti á ísafirði á árunum 1867-1920. Þá er fjallað um skólamál, prent- og útgáfumál og kemur Þjóðviljinn eðlilega nokk- uð við sögu í þeim kafla. Þá eru kaflar um menningarmál al- mennt og listir og fjallað er um pólitík á ísafirði þessara ára. -pv MENNING Stjörnugjöf: ★ ★★★ frábær, ★★★ mjög góð, ★★ sæmileg, ★ uppfyllir lágmarks kröfur, 0 léleg Svo sem allt í lagi... ★ ’/2 I kapp við tímann (Racing with the Moon) Regnboginn Bandarísk, 1984 Leikstjóri: Richard Benjamin. Handrit: Steven Kloves Tónlist: Dave Grusin. Framlei&endur: Alain Bernheim og John Kohn Helstu leikarar: Sean Penn, Nicolas Cage og Elizabeth McCovern. í kapp við tímann er ein af þess- um myndum sem eru um margt prýðilega gerðar, en gjörsamlega lausar við að vera sérstakar, og skilja því ósköp takmarkað eftir að sýningu lokinni. Og ef einhver spyr hvernig manni hafi þótt; „jújú, svo sem allt í lagi...“, og síðan ekki söguna meir. Sagan, sém er langt frá því að vera sláandi frumleg, gerist í litlu sjá- varþorpi á vesturströnd Banda- ríkjanna veturinn ’42-3 og greinir frá samskiptum vinanna Nash og Nickys við kvenpeninginn, á meðan þeir bíða þess að vera kallaðir til fjarlægra vígstöðva, handan hafsins. Þeir fóstbræður eru óttaiegir gaurar og því gengur á ýmsu í Amorsglímu þeirra, eins og við er að búast. Þrátt fyrir fremur ófrumlega hugmynd er ég ekki í minnsta vafa um að gera hefði mátt betur, ef rétt hefði verið haldið á spilun- um. Það er einfaldlega eins og vanti herslumuninn á flestum sviðum. Það vantar ekki að sum atriðanna séu bæði skemmtileg og falleg, og ekki er hægt að kvarta yfir lélegum leik; hann er langt yfir meðallagi, eins og við er að búast af hæfileikapiltunum Penn og Cage, og reyndar einnig Elizabeth McCovern sem fer ágætlega með hlutverk kærustu Nash. Þetta er allt saman gott fólk sem þegar hefur sannað ágæti sitt í merkum myndum á borð við „Fálkann og snjómann- inn“, „Birdy" og „Ragtime“. Samt sem áður hefur í kapp við tímann ekki tilætluð áhrif, því einstökum efnisþáttum eru gerð fremur yfirborðsleg skil, per- sónur eru ekki ýkja áhugaverðar, kátbroslegu atriðin ekki nógu næm og spennuaugnablikin ekki nógu æsandi. Frásögninrís því sjaldan og heildin verður í daufara lagi. Og ég hef ekki meira að segja um kvikmyndina I kapp við tímann, að svo stöddu. H.O. Hljómsveit í Kristskirkju Sónötur o.fl. í Norræna Flðlu- og píanótónleikar Hlífar Sig- urjónsdóttur og Davld Tutt í Nor- ræna húsinu sl. sunnudag. Efnisskrá: Schubert ... Sóntana op. 137 nr. 1. Prokoffiev ... Fimm lög fyrir flðlu og píanó. Stravinsky ... ítölsk svíta f. fi&lu og píanó. Brahms... Sonata í d moll op. 108. Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu- leikari hefur veri hálfgerð huldu- kona hér í tónlistarlífinu, þó oft hafi maður heyrt fallega um hana talað. í það minnsta hef ég ekki heyrt hana leika á opinberum tónleikum fyrr en um daginn í Norræna húsinu. Ekki svo ég muni og ég myndi muna það því hún er ljómandi. Hún hafði fengið til liðs við sig aldeilis ágætan píanóleikara frá Kanada, David Tutt að nafni, og saman léku þau bráðskemmti- lega og vandaða efnisskrá. Tónleikarnir hófust með smá- sónötunni í D dúr eftir Schubert, einu af þeim verkum sem allir fiðluunnendur fikta við tiltölu- lega snemma á námsferlinum. Þá er þetta kannski hálfgert ómark og engin sérstök músisering, en mikið höfðum við krítikker Morgunblaðsins samt gaman af op. 137, öllum þrem, fyrir uþb. 35 árum. Ætli við búum ekki að því ennþá? En það voru sannarlega engin nemendatök f spilamennsku þeirra Hlífar og Davids, og út- koman var ekta Schubert með ljúfsárrí lýrík í hverjum tóni. Svo komu fiðlulögin fimm eftir Prokoffiev, sem eru litaglaður impressjónismi og ekkert sérlega háreist í hugsununni. En þau eru sniðug og snúin og voru flutt með miklum elegans. ítalska svítan eftir Stravinsky, sem er samin upp úr Pulcinella- ballettinum, sem er saminn upp- úr Pergolesi, var svo síðast fyrir hlé. Þetta er auðvitað orkester og söngmúsík fyrst og fremst, en það er ótrúlegt hvað hún er samt skemmtileg í þessum búningi, enda heppnaðist meistara Stra- vinsky allt sem hann tók sér fyrir hendur. Eða næstum allt. Meira að segja að skrifa fílaballett, sem er eftir á að hyggja kannski ekk- ert þrekvirki, því fflar munu vera sérlega músíkalskir og fágaðir í hreyfingum þegar þeim tekst upp. Eftir hlé var svo hápunktur tónleikanna: d moll sónatan eftir Brahms. Fyrir utan að vera þó- nokkur „fingurbrjótur“ fyrir bæði hljóðfæri, útheimtir hún mikið listrænt úthald og stflvissu. Hvorugt vantaði. Þetta var að vísu enginn „þungaviktar" Brahms, heldur tær og „músíkal- skur“ Brahms, og það var fallegt. Hlutur Davids Tutts var sannar- lega ekki síðri en Hlífar, og sann- ar orð Berkofskys, að píanó- leikur veltur mest á píanóleikar- anum, en ekki hljóðfærinu sem hann hefur undir höndum, þó vissulega hjálpi góður Steinway eða Bechstein til. Hvaða tegund er annars í Norræna húsinu? Hlíf sannaði vissulega þarna að hún er í fremstu röð íslenskra ein- leikara og væri vissulega þarft og ánægjulegt að heyra hana leika með Sinfóníuhljómsveitinni. t.d. Mozart eða Beethoven. Já eða Stravinskykonsertinn sem alltof fáir þekkja. LÞ Við sem eigum kirkjusókn í Landakoti vorum svo heppin um daginn að fá á milli 25 og 30 ung- menni í heimsókn. Og það sem meira var, þau höfðu myndað með sér aldeilis ágæta hljóm- sveit, að vísu ekki stóra, en sam- stillta og lifandi hljómsveit sem unun var að heyra. Þetta var einkum að þakka framtaki tveggja ungra manna, þeirra Guðna Franzsonar klarin- ettuleikara og Hákonar Leifs- sonar, sem fæst við hornleik, tónsmíðar og stefnir í hljóm- sveitarstjórn af miklu kappi. Og útkoman var sannarlega ánægju- leg og sannaði enn einusinni hví- líkir framtíðarmöguleikar eru í ís- lensku músíklífi, ef vel er á hald- ið. Efnisskráin var alveg mátulega löng og fjölbreytt, eitt nútíma- verk, eitt úr síðrómantíkinni og loks klarinettukonsertinn eftir Mozart. Hún hófst með Winter- nacht, áferðarfallegu og innilegu verki eftir Hans Abrahamsen, sem er líklega besta tónskáld dana af yngri kynslóð. Þarna gætti ýmissa stflþrifa, allt frá Ni- elsen, í gegnum Stravinsky og upp í Schönberg eða jafnvel We- bern, með viðkomu hér og þar. En einhvernveginn varð samt úr þessu sannfærandi og beinlínis falleg heild, sem var að auki prýðilega flutt og kurteislega. hugaverðast, sjálfur klarinettuk- onsert allra klarinettukonserta (sem eru reyndar ekki margir); Klarinettukonsert í A dúr eftir W. A. Mozart. Og hann var ótrú- lega vel fluttur og þrátt fyrir mikla akkústíkk kirkjunnar, fur- ðu skýr og klár. Að vísu á þykkur tónn Guðna kannsi betur heima í venjulegum konsertsal, og styrksins vegna (sem var mikill) átti hann til að drukkna í sjálfum sér, einkum í hröðum hlaupum. En leikur hans var samt brilljant og dramatískur. Spennandi. Og þarna sýndi Hákon hvað í honum býr, því það er erfitt að leiða hljómsveit í einleikskonsert, svo allir aðilar njóti sín til fulls. Það var ekki annað að heyra en það heppnaðist prýðilega. Fín byrj- un. Stoltur faðir, L.Þ. Hópurinn sem stóð að Töðugjöldunum. Svo komu Lieder eines fa- hrenden Gesellen eftir Mahler, í kammersveitarbúningi Schön- bergs, og þau söng Ragnheiður Guðmundsdóttir ekki aðeins vel, heldur af sannri og hreinni til- finningu. Það er annars merkilegt að við skulum eiga jafn radd- prúða söngkonu sem næstum aldrei heyrist í. Að vísu erum við meðal ríkustu þjóða heimsins og þykjumst því þessvegna hafa efni á furðulegustu hlutum. En við megum ekki fela og hundsa tal- LEIFUR ÞÓRARINSSON entin okkar. Það er einfaldlega vondur bisniss. Auðvitað var lokaverkið á- Safnahús Skjöl sýnd Þjóðskjalasafn minnist afmælis Þjóðskjalasafn (slands hefur í til- efni tveggja alda afmælis Reykjavíkurkaupstaðar, sett upp nokkurskjalagögn safnsinstil sýnis í anddyri Safnahússins við Hverfisgötu. Meðal sýningarskjala má nefna sálnaregistur Reykjavík- ursloknar frá því í desember 1786, tíundarreikníngar, upps- kriftir á dánarbúum og umsóknir tómthúsanna um sveitarstyrk. Þá má nefna ýmis málskjöl, gerða- bók Alþingis frá 1799 og 1800, og margvíslegan fróðleik um saka- fólk t.d. um Steinunni Sveinsdóttur frá Sjöundá. Þá má nefna auglýsingu frá Jörgen Jörgensen „hundadaga- konungi“ rituð af hans eigin kon- unglegu hendi og setningarbréf frá Trampe greifa þar sem hann setur Finn Magnússon í embætti bæjarfógeta í Reykjavík 1806. Og er hér fátt eitt nefnt af sýning- arplöggum. - pv 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.