Þjóðviljinn - 10.10.1986, Side 4

Þjóðviljinn - 10.10.1986, Side 4
LEIÐARI ÍHöfða Veri velkomnir til landsins leiðtogar risaveld- anna, Reagan og Gorbatsjoff. Þeir eru komnir til Reykjavíkur til að ræða saman um skref til friðar, og einsog ástandið er nú í heimsmálum er rétt að fagna jafnvel því að forystumenn Sovétríkjanna og Bandaríkjanna skuli geta tekist í hendur. Á það hefur hinsvegar verið bent í grein í Þjóðviljanum að ekki sé ástæða til að vera of bjartsýnn á árangur, - til að stemma stigu við vígbúnaðarkapphlaupinu þurfi hvorki meira né minna en að gjörbreyta efnahagskerfinu í Bandaríkjunum og stjórnkerfinu í Sovétríkjunum, sem hvort á sín- um póli myndi aflvélar hernaðarhyggjunnar. Það er aftur á móti engin ástæða heldur til að láta hugfallast í baráttu fyrir friði og afvopnun með því að mikla fyrir sér þær forsendur stór- veldahagsmuna og gróðasjónarmiða sem liggja að baki staðreyndum kjarnorkubrjálæðis- ins. Gleymum því ekki að þeir Reagan og Gor- batsjoff takast ekki í hendur í Höfða vegna þess að þá langi til, - ein höfuðorsök slíks leiðtoga- fundar nú er öflugt almenningsálit í öllum heimshlutum. Almenningsálit sem meðal ann- ars hefur knúið þessa leiðtoga til að lýsa því yfir, hvorn með sínum hætti, að takmark þeirra sé útrýming kjarnorkuvopna og friður heims um ból. Þessi afstaða almennings austan og vestan, og á Lækjartorgi norðan og sunnan, hefur ekki orðið til úr engu; þar á mikinn þátt frumkvæði ýmissa hópa og hreyfinga sem hafa tengst þvert á gömlu kalda- stríðslínurnar. Skynsamir stjórnmálamenn, djarfhuga þjóðarleiðtogar, hugsandi listamenn, raunsæirvísindamenn, og ekki síst við, almenn- ingur, sem með baráttu fyrir afvopnun og heimsfriði erum að verja þau réttindi sem í senn eru hin víðtækustu og hin dýrmætustu: lífið sjálft. Víst ætla íslendingar að haga svo til að þeir Reagan og Gorbatsjoff geti ræðst við í Reykja- vík í ró og næði, og borgarbúar eru reiðubúnir að breyta lífsháttum sínum yfir helgina í þágu fullkomins öryggis kringum leiðtogana. íslensk- ir ráðamenn verða hinsvegar að hafa hugfast að öryggisgæsla er ekki það sama og afnám almennra mannréttinda. Hinn svokallaði mis- skilningur um komu gyðinga til landsins í tilefni fundarins er nokkurnveginn versta landkynning sem komið gat uppá, - og óskandi er að nesja- mennska hérlendra stjórnenda og embættis- manna ali ekki af sér fleira af því tæi. Að svo mæltu hvetur Þjóðviljinn reykvíkinga til að fjölmenna á friðarfundinn á Lækjartorgi í kvöld klukkan níu. Ef leikurinn sést Þriðja heimsmeistaraeinvíginu í skák milli þeirra Kasparoffs og Karpoffs er lokið með sigri hins fyrrnefnda. Óvíða hefur verið fylgst með þessari viðureign jafnvel og á (slandi, og þótt skákmeistararnir tveir hafi aldrei hingað komið eru þeir orðnir fjölskylduvinir á fjölmörgum ís- lenskum heimilum. Enda iðka þeir íþrótt sína við skákborðið af stakri snilld og gangur viður- eignarinnar hefur verið slíkur að áhugamenn um skák og skákmeistara hafa staðið á öndinni af spenningi eftir fréttum frá London og Lenín- grad. Einar Benediktsson sem eittsinn bjó í Höfða sagði í kvæðinu Væringjum: Vort heimslíf er tafl fyrir glöggan gest, þar sem gæfan er ráðin, ef leikurinn sést, - og þá haukskyggnu sjón ala fjöll vor og firðir. Heimstaflsmönnunum sem nú gista Höfða gefst nú þessi haukskyggna sjón, - og vonandi sjá þeir hér eina leikinn í stöðunni: að Ijúka tafli sínu á jafn virðulegan og friðsamlegan hátt og þeir félagar Anatólí Evgénevits og Garí Klöru- son austur við Finnskaflóa. -m KUPPT OG SKORHE) Kosninga- töfrar Einhver athyglisverðasta frétt innlend þessa síðustu alþjóðlegu æsingadaga var sú, að svo fáir gæfu kost á sér í prófkjör til lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi við næstu kosningar, að flokkurinn væri alveg miður sín. Manni skilst að helst verði að hætta við prófkjör - að minnsta kosti í því formi sem þau hafa verið iðkuð. Að sumu leyti má segja að þetta séu gleðileg tíðindi. Próf- kjörshasarinn, einkum eins og hann hefur verið iðkaður í Sjálf- stæðisflokknum, hefur nefnilega verið eitt af því sem hefur verið að færa íslenskt stjórnmálalíf yfir í það far sem bandarísk pólitík rennur eftir. Með öðrum orðum: þessi slagur stigmagnast upp í það, að enginn frambjóðandi á sér von nema sá sem hefur yfir verulegu fjármagni að ráða. Eigið fé dugar skammt þegar auglýsingar um ágæti frambjóð- anda fara að breiða úr sér yfir síður Morgunblaðsins (og kann- ski fara þær líka inn í sjónvarps- stöðina nýju). Þetta þýðir að í kringum hvern væntanlegan þingmann myndast hagsmunahópur fólks í efnaðra lagi, sem gerir út sinn mann - og væntir þess náttúrlega að hann sé þess hagsmunavörður og þjónn í framtíðinni. Slagur af þessu tagi er einnig líklegri til að gera stjórnmálabaráttuna lágkúru- legri en efni standa til. Fólk úr sama flokki er ekki líklegt til þess í auglýsingaleiknum, að viðra einhver sérstök viðhorf til þjóð- mála eða takast á við skoðanaá- greining í hreyfingunni. Allt fer í æ ríkara mæli að snúast um alls- konar smámuni, um það í hve mörgum félagasamtökum af öllu tagi frambjóðandinn hefur vasast fyrr og síðar, hvernig hans fjöl- miðlaframganga er, hvernig hann eða hún líta út, og það er, eins og reynslan sýnir, jafnan stutt í það að makar og börn og húsakynni séu dregin inn í slaginn um „vin- sældir og áhrif“. Sögðum við ekki? Pað er svo óneitanlega nokkuð gaman að því fyrir gamlan hund í Alþýðubandalaginu, að hug- myndir manna t.d. í Sjálfstæðis- flokknum um það, hvað eigi að taka við prófkjörum, eru ekki ó- líkar því sem tíðkast hefur í hans eigin flokki. Hér er átt við, að fyrst sé af stað farið með tiltölulega opna skoð- anakönnun meðal flokksmanna um hugsanlegt fólk á lista og upp úr henni komi svo sá hópur, sem menn æskja að gefi kost á sér í framboð. Það er ekki langt síðan að þessi tilhögun Allaballans þótti bera vott um vonda varfærni og and- lýðræðisleg viðhorf. Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn höfðu mjög hátt um opin próf- kjör, sem áttu að tryggja hin beinu og sterku áhrif almennra kjósenda á skipan framboðslista flokkanna. Síðan hefur mjög dregið úr hrífningu manna af prófkjörun- um opnu. Menn viðurkenndu fljótlega að með þeim væri bæði boðið upp á fjáraustur sem væri á fárra færi, og svo væru raunveru- legir möguleikar á því, að and- stæðingar þess flokks, sem til op- ins prófkjörs efnis, notuðu tæki- færið til að vinna skemmdarverk gegn honum. Jafnt og þétt hafa flokkar (og einstaka kjördæma- ráð) flúið frá þessum siðum og inn í forval eða prófkjör sem bundið er við flokksmenn sjálfa. Og nú sýnist sú tilhögun einnig í kreppu. íslendingar hafa nú margsinnis haft af því spurnir, að fréttamenn erlendir, sem hér sitja og láta sér leiðast meðan þeir bíða eftir sín- um tvíhöfða Godot, hafa sent pistla til fjölmiðla sinna sem gefa „ranga mynd“ af íslandi. Þeir geri alltof mikið úr draugatrú landans eða þá græðgi þeirra sem selja þjónustu á höfuðborgar- svæðinu þessa daga. Klippara var það því nokkur huggun, þegar hann hitti að máli traustvekjandi fréttamann en- skan, sem hafði samúð með okk- ur í þessu máli. Ég skil vel, sagði hann, að menn eru mjög við- kvæmir fyrir þessum skrifum. Ég geri mér líka grein fyrir því, að það eru ekki nema tiltölulega fáir sem haga sér einsog óðir menn í peningaleitinni. Og svo er það líka eins og fyrri daginn, sagði hann - einhverjir einstaklingar spekúlera - en íslenska ríkið leggur út ýmislegan kostnað. Og ég skil, sagði hann, að vissu leyti þá sem fá snert af gullæði þegar svona stendur á. Amríkan- ar vaða hér um og bjóða mönnum stórfé fyrir hitt og þetta og einatt miklu meira en íslenskum hafði dottið í hug sjálfum. Af þessum sökum fer öll skynsemi á tvist og bast... Svo mælti sá enski. Og hér mætti bæta því við, að íslending- ar sitja í báti með öllum öðrum smærri samfélögum þegar að því kemur að heimspressan tyllir nið- ur tánum þeirra á meðal. Þetta er fólk sem er að flýta sér, sem ekki ígrundar nokkurn skapaðan hlut, grípur það sem laust liggur á yfir- borðinu og blæs upp - einkum ef um er að ræða eitthvað skrýtið, sérviskulegt og hneykslanlegt. áb DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéöins' son. Fréttastjórl: Lúövík Geirsson. Blaöamenn: Garöar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Olafs- dóttir, Magnús H. Gíslason, Möröur Ámason, ólafur Gíslason. Siguröur A. Friöþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíösdóttir, Víoir Sigurösson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri) Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. LJósmyndarar: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson. Útlit8telknarar: Sævar Guöbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guörún Guömundsdóttir. Skrif8tofustjóri: Jóhannes Haröarson. Skrifstofa: Guörún Guðvaröardóttir, Magnús Loftsson. Auglýsingastjóri: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga CÍausen, Guömunda Kristinsdóttir. Sfmvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðlr: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Höröur Oddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síöumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð: 55 kr. Áskriftarverð á mánuði: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. október 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.