Þjóðviljinn - 15.10.1986, Page 4
LEIÐARI
Reagan
Fastheldni Ronalds Reagans forseta á hina
umdeildu Stjörnustríðsáætlun Bandaríkja-
manna varð til þess að slitnaði sundur með
þeim Míkhaíl Gorbatsjof aðalritara í afvopnun-
arviðræðum þeirra á Reykjavíkurfundinum um
helgina.
Viðbrögð heimspressunnar og margra
kunnra stjórnmálaleiðtoga, meðal annars í
heimalandi Reagans sjálfs, hafa verið á svip-
aða lund: djúp vonbrigði. Menn virðast skynja,
að í Reykjavík fór sögulegt tækifæri forgörðum.
James Schlesinger, fyrrum varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, lét þannig um mælt í sjón-
varpsviðtali að í Reykjavík kunni menn að hafa
glatað tækifæri sem ekki gefist aftur næstu 10-
15 árin, jafnvel lengur.
öldungardeildaþingmaðurinn Edvard Kenn-
edy, sem löngum hefur efast mjög um varnar-
mátt geimvopnakerfis Stjörnustríðsáætlunar-
innar kvað Reagan forseta hafa misst af sögu-
legu tækifæri til að stöðva vopnakapphlaup
stórveldanna. „Þetta mikla, sögulega tækifæri
gafst í viðræðunum á íslandi," sagði Kennedy í
yfirlýsingu, „en því var fórnað, að minnsta kosti
um stundarsakir, á ótryggu altari Stjörnustríðs-
áætlunarinnar.11
Gary Hart, áhrifamaður í flokki Demókrata lét
jafnframt svo um mælt að mistök Reagans á
íslandi hafi leitt í Ijós, að hann sé í rauninni ekki
fyllilega heill í yfirlýsingum sínum um stöðvun
vopnakapphlaupsins.
Sérfræðingar á vegum rannsóknastofnana
neikvæð viðbrögð
víða um heim eru sömuleiðis á þeirri skoðun að
Reagan forseta hafi orðið á mikil mistök í ein-
strengingslegri afstöðu sinni. Sovétmenn hafi
undir forystu Míkaíls Gorbatsjofs teygt sig mjög
langt og í rauninni verið komnir lengra en menn
hefði fyrir fundinn getað órað fyrir. Reagan hafi
því orðið á afdrifarík mistök, og Gorbatsjof sé sá
sem í ásýnd heimsins fljúgi af fundi í Reykjavík
með pálma í höndum.
Mat fréttaskýrenda í Bandaríkjunum er mjög í
þessa veru. Það sést meðal annars á því hvern-
ig þeirtelja að Reykjavíkurfundurinn hafi áhrif á
stöðu Repúblikana, flokks Reagans, í kosning-
um sem standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. En
niðurstöður fundarins munu að þeirra skoðun
minnka líkur á að Repúblikanar nái að verja
meirihluta sinn í Öldungadeildinni.
Þessi túlkun er raunar sömu ættar og al-
menningsálitið hér á íslandi. íslenskur almenn-
ingur var í mun nánari tengslum við leiðtoga-
fundinn en fólk annars staðar í heiminum. Hér
fylgdist fólk tæpast með nokkru öðru meðan á
fundinum stóð, það skoðaði frammistöðu
leiðtoganna tveggja mjög grannt. Og að fundin-
um loknum er ekki vafi á, að menn telja Reagan
hafa farið illa að ráði sínu, en Gorbatsjof hafa
komið fram sem hin ábyrga leiðtoga.
Andstæðurnar á milli framkomu þeirra
tveggja að loknum fundahöldum skiptu þar
miklu og sýndu ef til vill best muninn á mönnun-
um tveimur. Gorbatsjof hélt rakleiðis á fjöl-
mennan blaðamannafund í Háskólabíói og
greindi frá því helsta sem þeim leiðtogunum
hafði í millum farið. Og notaði tækifærið til að
bera fram þakkir til íslensku þjóðarinnar við rit-
stjóra íslensks blaðs sem á fundinum var.
Reagan ók hinsvegar beina leið til hersvæð-
isins í Keflavík. Þar hagaði hann sér eins og
þriðja flokks skemmtikraftur. Lét sér sæma að
segja ódýra brandara svo að segja í sama
mund og einar þýðingarmestu afvopnunarvið-
ræður stórveldanna höfðu farið út um þúfur. Og
einu þakkirnar sem hann flutti íslensku þjóðinni
fyrir framlag hennar voru færðar í amerísku flug-
skýli yfir amerískum hermönnum.
Sannkölluð smekkleysa.
Eitt mesta tækifæri til raunverulegrar fækk-
unar á langdrægum og meðaldrægum kjarna-
vopnum fór forgörðum vegna þess að Reagan
forseti vildi ekki takmarka tilraunir í geimnum á
kjarnavopnum sem tengjast hinum fráleitu
Stjörnustríðsáætlunum hans. Það voru afleit
mistök af Reagans hálfu. Um það vitna ekki
bara ummæli heimspressunnar heldur og leið-
toga í hans eigin heimalandi.
I Reykjavík fór vissulega sögulegt tækifæri
forgörðum. En skapari allrar skepnu lofi, að
þann ramma sem áður var búið að smíða utan
um fækkun kjarnavopna megi nota sem grund-
völl að öðrum og gagnlegri leiðtogafundi.
Til einhvers yrði þá erfiði Reykjavíkurfundar-
ins.
-ÖS
KUPPT
Fjölmiðla-
stríð
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, sem
gerir sér vel grein fyrir fjölmiðla-
tafli samtímans, segir í Alþýðu-
blaðinu í gær á þá leið að „hinir
rússnesku stórmeistarar í liði
Gorbatsjofs unnu áróðursstríðið
með algjörum yfirburðum. “
Það eru svosem fleiri að taka
undir þetta, sumir í blöðum, aðrir
á gatnamótum og heitum pott-
um. Gorbatsjof var, segja menn,
mælskur vel á blaðamannafund-
inum og þótt hann væri gramur
yfir málalokum, þá gætti hann
stillingar og var ekki skömmótt-
ur. Nema þá helst út í það sem
kallað hefúr verið „samsteypa
herforingja og iðjuhölda“. Nokk-
uð vel til fundið hjá Gorbatsjof
reyndar að nefna þá blökk - svo
skemmtilega vill til, að það voru
ekki Sovétmenn né heldur
vinstrisinnaðir félagsfræðingar
sem gáfu vissum pólitískum
öflum þetta nafn, heldur Eisen-
hower Bandaríkjaforseti, sem
vissi náttúrlega hvað hann söng í
þessu máli.
Það kemur líka fyrir - og sést
aðeins á Morgunblaðinu, að
mönnum þykir miður að Reagan
skuli hafa tapað í margnefndu á-
róðursstríði hér á íslandi. En þeir
sem svo hugsa vita það líka, að
ekki tjóir um að sakast: Reagan
hefur til þessa kunnað manna
best á fjölmiðlaspilið - svo hér
má segja að komi vel á vondan,
það er ekki eins og Bandaríkja-
forseti geti talið sig upp yfir það
hafinn að dansa með í þeim leik.
En það er ekki síst eitt sem mjög
háir Reagan hér á landi og er
nokkuð svipað og það sem gerði
5 MU u 1912
a M. A fc H H I
OpraH UeHTpanbHor°_J<oMHTeTa KflCCj
C,lí.r» >1 » u«h.»««'
SWWW* OTT>e3A M. C. ropöaneBa
W E C T H bl X _ u «
C0BET0B B reeKbiIBHK
~-r
JpyýKecTBenHaa 6ece;ja
| lltjmjMMil SfvxXHÍi** ‘'t’
rortsAir.ay u. c
OG SKORIÐ
Nixon ekki sérlega vinsælan hér
þegar hann kom að tala við Pom-
pidou. Bandarískir hafa afar tak-
markaðan skilning á smáþjóðum
og þeirra viðkvæma tilfinninga-
lífi. Þeir nenna ekki einu sinni að
láta sem þeir hafi áhuga á þessari
þjóð og landinu sem Nixon kall-
aði á sínum tíma „hundsrass" og
„lýðveldið írland."
Hrollvekja
Sumir blaðamenn bregða á
hina dramatísku tóna og skal þá
bent á skemmtilegt framlag
Björns Bjarnasonar í þeim efnum
en hann segir:
„Gorbatsjof var í samskonar
Zil-bíl og hann ekur um í Moskvu
og eru þeir þannig gerðir að
gluggatjöld koma í veg fyrir að
farþeginn sjáist. Á hinn bóginn
voru öryggisverðir Gorbatsjofs
ekki í felum: Þeir störðu svo fast
út um opna gluggana á bílum sín-
um, að augnaráðið eitt nægði til
að frysta þann, sem mætti því.“
Einhvers staðar verður
hrollvekjan að vera.
Illt er það
og bölvað
Eins og margtekið hefur verið
fram strandaði samkomulag á
SDI, Stjörnustríðsáætluninni
svonefndu. Reagan heldur því
fram að áætlun þessi sé nauðsyn-
leg trygging fyrir öryggi Banda-
ríkjanna „ef Sovétmenn skyldu,
eins og þeir hafa oft gert áður,
ganga á bak skuldbindinga sem
þeir hafa gengist undir. “
Manni sýnist að fáir séu til að
taka undir þetta sjónarmið Reag-
ans. Sannleikurinn er sá, að SDI
hafði eina jákvæða hlið - það
mátti nota áætlunina sem skipti-
mynt í samkomulagi við Sovét-
menn, m.a. um stórfelldan niður-
skurð kjarnorkuvopna - og það
kom í ljós í Reykjavík að þetta
var fyllilega mögulegt.
En ef að haldið er áfram með
Stjörnustríðið þá er afar torvelt
að sjá á því jákvæðar hliðar -
hvernig sem á málið er litið.
Það er talið mjög vafasamt að
geimvarnavopnin geti veitt það
öryggi sem forsetinn lofar - svo
margir flóknir tæknilegir örðug-
leikar hljóti að vera á því að slíkt
vopnakerfi virki.
SDI er nýr áfangi í vígbúnað-
arkapphlaupi sem mundi ganga
mjög á skjön við samninga um
fækkun kjarnorkuvopna. (Það
má og minna á það, að Sovét-
menn hafa verið miklu fúsari en
áður til að leyfa allskonar eftirlit
með vopnabirgðum sínum en
áður).
í fjórða lagi er það mikill mis-
skilningur ef einhverjum dettur
það í hug, að með hernaðarlegum
yfirburðum af því tagi sem falist
gætu í SDI sé hægt að hræða So-
vétmenn til að sitja auðum hönd-
um - eða fá þá til að slaka á í
ýmsum mannréttindamálum. Ef
að haldið er áfram af fullum
krafti með SDI munu Sovétmenn
finna sitt „svar“ við því, eins þótt
það verði í öðru sniði. Þetta
„svar“ mun að líkindum bæði
spilla sambúð risaveldanna,
skerða lífskjör í Sovétríkjunum -
og gera líf fólksins þar að öðru
leyti verra, einnig að því er varð-
ar málfrelsi,ferðafrelsi og fleira.
í fimmta lagi er þrjóska forset-
ans og hans manna í sambandi við
SDI afar líkleg til að vekja upp
mikinn ágreining í Nató, því
Vestur-Evrópumenn eru vitan-
lega gramir yfir því að gott tæki-
færi var ekki nýtt hér í Reykjavík.
Nú má að sönnu segja að Þjóð-
viljamenn gráti það þurrum tár-
um að heimilisböl komi upp í
Nató - en af því við vorum að
skoða málið „frá öllum hliðum,“
þá má þessi athugasemd hér
fylgja með.
Að skrifa
nafn
Menn hafa þessa daga verið að
spyrja að því hvernig á því standi
að Morgunblaðið skrifi Gorbac-
hev en Þjóðviljinn Gorbatsjof -
og ýmisleg tilbrigði eru önnur á
nafninu.
Svar: Þegar nöfn eru umrituð
af rússnesku letri (kírillitsa), þá
tekur t.d. Morgunblaðið þann
kost að nota enska umritun, þar
sem stafur kemur fyrir staf án
þess að hugsað sé til enda hvernig
nafnið er borið fram. Ch er ekki
til á íslensku - við Þjóðviljamenn
notum því tsj, sem að vísu er ekki
fullgild hljóðritun heldur. En o
höfum við í enda orðsins vegna
þess að áhersla fellur á lokaat-
kvæði nafnsins og þá breytist e í>
o. - áb
DJÓÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðins-
son.
Fréttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaöamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Olafs-
dóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason.
Sigurður A. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri)
Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlitsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglysingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
CÍausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Augiýsingar: Síðumúia 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Biaðaprent hf.
Verð i lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15. október 1986