Þjóðviljinn - 29.11.1986, Blaðsíða 1
Laugardagur 29. nóvember 1986 273. tölublað 51. órgangur
Sjónvarp
Fréttir kl. 8
Stöð tvö til hálfátta
Á útvarpsráðsfundi í gær var
samþykkt að halda sig við fyrri
ákvörðun um að færa aðaifrétt-
atímann til klukkan átta aftur frá
hálf átta, í samræmi við meiri-
hlutaálit úr nýlegri skoðanakönn-
un. Færast fréttirnar til á mánu-
daginn.
„Við bara tökum þessu,“ sagði
Ingvi Hrafn fréttastjóri. Hann
sagðist hafa skýrt útvarpsráði frá
áhyggjum sínum og sinna, en
ráðsmenn hafi talið þær ástæðu-
lausar, fréttastofan sé nægilega
öflug til að senda út á eftir Stöð
tvö. „Ég vona að þeir hafi rétt
fyrir sér,“ sagði Ingvi Hrafn. Á
stöð tvö hefur verið ákveðið að
flytja fréttatímann aftur til hálf
átta. * -ui
Forval ABR
240 nýir
Samningaviðrœður
VSIhafnar
bráðabiraðalausn
Ásmundur Stefánsson: Lögð áhersla nú á uppstokkun launaflokkakerfisins. Erfitt
verður að ná samkomulagifyrir 1. desember. Halldór Björnsson: 6 mánuðir væru
ekki svo fjarri okkar hugmyndum
skammtímasamninga og það lág- ekki skipti máli. áfram en áætlað er að samninga-
markssamningstímabil sem VSÍ í dag munu viðræður lands- viðræðufundurinn hefjist klukk-
væri að tala um, væri svo lítill að sambandanna og VSÍ halda an 17. -K.ÓI.
r
Afundi samninganefndarinnar
f ---------- .....
í gær gerði VSI grein fyrir því
að sambandið væri ekki tilbúið til
þess að semj a til skemmri tíma en
6 mánaða. Þar með er úti önnur
sú leið sem ASÍ hefur látið reyna á
f viðræðunum sem er bráða-
birgðasamkomulag um hækkun
lægstu launanna.
Asmundur Stefánsson forseti
ASÍ sagði að í framhaldi af
ákvörðun VSÍ yrði látið reyna
meira á það að launaflokkakerfið
verði stokkað upp, en í gærkvöldi
stóðu yfir fundir með landsam-
böndunum þar sem þau mál voru
rædd. Ásmundur sagði að þessi
þróun hafi gert það að verkum að
mjög erfitt yrði að ná samkomu-
lagi fyrir 1. desember eins og
stefnt var að í upphafi.
Fulltrúi Dagsbrúnar á fundin-
um í gær, Halldór Björnsson
varaformaður Dagsbrúnar sem
sat fundinn í gær í fjarveru Guð-
mundar sagði að ákvörðun VSÍ
kæmi ekki illa við Dagsbrún þar
eða tímamunurinn á hugmyndum
Dagsbrúnar um gildistíma
félagar
Frambjóðendur valdir í
dag og á morgun
Alþýðubandalagsmenn í
Reykjavfk velja sér frambjóð-
endur í forval í dag og á morgun,
og eru tæplega 1500 manns á
kjörskrá, þar af um 240 félagar
sem bættust í hópinn á síðustu
dögum. Kosið verður á Hverfis-
götu 105, í flokksmiðstöðinni á
efstu hæð, f dag, laugardag,
klukkan 10-18, og á morgun
klukkan 10-19. Úrslit liggja varla
fyrir fyrren seint á sunnudags-
kvöld.
Frambjóðendur í forvalinu eru
þrettán og skal kjósa sjö, hvorki
fleiri né færri. Þessa sjö á að tölu-
setja 1.-7. Atkvæði eru talin
þannig að sá sem flest atkvæði fær
í fyrsta sæti hlýtur fyrsta sætið, sá
sem flest fær í 1. og 2. sætið lendir
í öðru sæti, sá sem flest fær í 1., 2.
og 3. sætið lendir í þriðja sæti, og
svo framvegis.
Nýir félagar verða að greiða að
minnsta kosti 500 krónur (hálft
lágmarksárgjald) til að hafa
kosningarétt. Miðað er við að
aðrir félagar skuldi ekki meira en
eitt gjaldfallið árgjald, en félags-
stjórn ætlar sér ekki að gera
neinn afturreka af fjárhagsástæð-
um.
Það verður heitt á könnunni
báða dagana á Hverfisgötunni.
- m
ASÍ/VSÍ
Ekkert leynimakk
Ásmundur Stefánsson svararfréttDVum „leynilegtsamkomulag“: Fréttin er
lygavefur sem miðar aðþví að hafa áhrif á prófkjör í ákveðnum flokki
kjörbaráttu að eyða allri síðustu
vikunni fyrir prófkjörið í stans-
lausa samningafundi í stað þess
aö er naumast hægt að finna
annan tilgang með frétt DV f
dag en að það sé verið að reyna að
hafa áhrif á prófkjör í einum
ákveðnum stjórnmátaflokki,
sagði Ásmundur Stefánsson for-
seti ASÍ á blaðamannafundi í gær
um frétt DV samdægurs þar sem
blaðamaður hefur eftir heimild:
armanni sínum að ASI og VSI
hafi gert með sér samningsdrög
um 25 þúsund króna lágmarks-
laun og að samtfmis yrði
launauppbótum uppá 2% sem
koma áttu á launin 1. desember
sleppt.
Á blaðamannafundinum sagði
Ásmundur:
„Það er eitt að óhæfir blaða-
mann falli í þá freistni að semja
ruglgreinar um prófkjör flokka.
Það er þeirra mál. Það er annað
þegar fjölmiðlar spila út lygum
um mál sem miklu skiptir í þeim
tilgangi einum að hafa áhrif á
prófkjör í einstökum flokkum.
Menn mega ætla mér að telja
það heppilegast fyrir mig í próf-
að vinna að minni kosningu. Það
er hins vegar einum of langt
gengið að ljúga því upp að ég sé
með samningsdrög í höndunum
um 25 þús. kr. lágmarkskaup,
sem eigi að greiðast með því að
fórna 2% kauphækkunum um
næstu mánaðamót. Ég hef ítrek-
að lýst því yfir að ekki komi til
greina að afsala neinu af eðliiegri
kauphækkun 1. des. Sú stað-
reynd liggur fyrir. Það hefur
samninganefndin í heild eða í
hlutum ekki heldur gert. Ég hef
hvergi ljáð máls á 25 þús. lág-
markslaunum. Sú staðreynd
liggur einnig fyrir.
Eg hef ekki og ætla ekki að
blanda í eina kös mínu pólitíska
starfi og starfi fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Ég sit nú í
samningaviðræðum og við öll
sem hér sitjum og við hljótum að
óska eftir því að fá að vinna í friði
fyrir skemmdarverkamönnum.
Frjálsblaðamennska ereitt, iyga-
vefur af þessu tagi er utan veggja.
Það er bein atlaga að almennu
launafólki að útbreiddasti fjöl-
miðill landsins beri siíkar lygar á
torg. Slíkar lygar eru árás á samn-
inganefndina alla og við hljótum
að mótmæla því.“
Stend við fréttina
Sigurdór Sigurdórsson: Ekkert nýtt aðfá yfir mig svona gusu
Eg stend hundrað prósent við
mína frétt, sagði Sigurdór Sig-
urdórsson blaðamaður á DV við
Þjóðviljann í gær, eftir blaða-
mannafund Ásmundar Stefáns-
sonar.
„Það er ekkert nýtt fyrir mér
eftir 16 ára starf sem blaðamaður
á Þjóðviljanum og nú á DV, að fá
svona gusu yfir mig frá Ásmundi
Stefánssyni, og ég minni í því
sambandi á skrif mín í Þjóðvilj-
ann 1984, um að búið væri að
semja um ákveðin atriði. Það var
líka kallað lygi, en reyndist síðan
hárrétt,“ sagði Sigurdór.
„Eftir að hafa fylgst með samn-
ingum og verkalýðsmálum í mörg
ár fer ekki hjá því að maður eigi
sér heimildarmenn í innsta hring,
bæði hjá ASÍ og VSÍ. Heimildar-
maður minn er nú alveg öruggur,
og ég mun staðfesta þessa frétt
mína í DV nú um helgina. Þetta
var til umræðu í efnahagsnefnd-
inni, og upphlaup Dagsbrúnar í
samningunum varð til vegna þess
að þeir vissu af þessu."
- m