Þjóðviljinn - 29.11.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Laugardagur 29. nóvember 1986 273. tölublað 51. órganour
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum stað
SAMVINNUSANKI
ÍSLANDS HF.
Útvaipsráð
velur Kára
Kári Jónasson var ráðinn
fréttastjóri útvarps í gær af
Markúsi Erni Antonssyni, út-
varpsstjóra, eftir að meirihluti
útvarpsráðs hafði mælt með hon-
um í stöðuna.
Umsækjendur auk Kára voru
Einar Örn Stefánsson, Friðrik
Páll Jónsson og Stefán Jón Haf-
stein. í atkvæðagreiðslunni í út-
varpsráði fékk Kári atkvæði
fimm ráðsmanna, Stefán Jón eitt
atkvæði, Friðrik Páll eitt. At-
kvæðagreiðslan er leynileg, en
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans fékk Kári atkvæði Sjálfstæð-
ismannanna þriggja, Framsókn-
arfulltrúans Markúsar Á. Einars-
sonar og Eiðs Guðnasonar frá
Alþýðuflokki. Fulltrúar Alþýðu-
bandalags og Kvennalista munu
hafa greitt þeim Stefáni Jóni og
Friðriki Páli atkvæði. -m
Rauðakrosshúsið
Tugur
unglinga
á götunni
Á því tæpa ári sem hjálparstöð
Rauða krossins hefur verið rekin
f Reykjavík fyrir unglinga að 18
ára aldri hafa um 80 einstaklingar
komið 120 sinnum tii gistingar í
Rauðakrosshúsinu við Tjarnar-
götu.
Að sögn Hans Henttinen eins
starfsmanns hússins eru sorglega
margir sem leita aðstoðar hús-
næðislausir unglingar sem búa á
götunni. Stúlkur og piltar leita í
jafnmiklum mæli til hjálpar-
stöðvarinnar og er meðalaldur
stúlknanna um 16 ár og piltanna
18 ár en yngsti unglingurinn sem
leitað hefur aðstoðar er 13 ára.
Um 70% þeirra sem koma í
húsið neyta áfengis eða annarra
vímuefna oftar en vikulega.
Ástæður fyrir komu sinni í húsið
segja flestir vera samskipta-
örðugleika við foreldra eða for-
ráðamenn, heimilisleysi, van-
rækslu og líkamlegt ofbeldi og
þar á meðal kynferðisleg áreitni
og misnotkun.
Rauði krossinn hefur að lang-
stærstu leyti staðið undir rekstr-
arkostnaði hjálparstöðvarinnar
en í ár er reiknað með að rekstur
hússins kosti rúmar 5 miljónir.
Til að afla tekna upp í reksturinn
eru um helgina seld barmmerki
til styrktar Rauða krosshúsinu.
-lg
Mikligarður
Frönsk vika
Frönsk vika hófst í Miklagarði í
gær og er hún haldin á vegum
franska sendiráðsins. Tilgangur
þessa er að sögn Ginu Letang,
verslunarfulltrúa (Frakklands,
að styrkja viðskiptatengsl íslands
og Frakklands og kynna almenn-
ingi úrval af frönskum vörum.
Meðal þess sem boðið verður
upp á í Miklagarði næstu vikuna
verða allra handanna franskar
vörur, franskt kaffihorn sem kall-
ast Café de Paris og ýmis konar
útstillingar sem minna á Frakk-
land. Þá kemur til landsins
franska söngkonan Machon, og
mun hún skemmta viðskiptavin-
um Miklagarðs þrisvar á dag.
-vd
Austurland
Unnur Sólrún í öðru sæti
Unnur Sólrún Bragadóttir Hjörleifurfékk737atkvæðiíl.
varð í öðru sæti í forvali Alþýðu- sæd^> og alls 848 atkvæði. Unnur
bandalagsins á Austurlandi sem Sólrún fékk 405 atkvæði í 1.-2.
fram fór á Fáskrúðsfirði um síð- sæ^.> a^s ^52. Björn Gretar
ustu helgi. Hjörlcifur Guttorms- Sveinsson, Höfn, varð þnðji,
son þingmaður varð efstur í for- ^^k 216 atkvæði í 1.-3. sæti, alls
valinu. 392. Fjórði varð Sigurjón Bjarna-
son, Egilsstöðum, fékk 306 at-
kvæði í 1.-4. sæti, alls 364.
Fimmti varð Þórhallur Jónasson,
Höfn, með 314 atkvæði í 1.-5.
sæti.
Þátttaka var mikil í forvalinu,
937 kusu, tæpur helmingur af
kjósendum G-listans á
Austfjörðum 1983. Þá fékk Al-
þýðubandalagið tvo menn kjöma
á Austfjörðum, Helga Seljan og
Hjörleif, en vegna nýju kosning-
arreglnanna kann að reynast snú-
ið að halda þeirri þingmannatölu
eystra. Helgi Seljan ætlar að láta
af þingstörfum.
Unnur Sólrún Bragadóttir,
sem nú verður að öllum líkindum
í öðru sæti G-listans eystra, er
„nafn vikunnar“ í Sunnudags-
blaði Þjóðviljans, - sjá síðu 17.
-m
_
MUNDU EFTIR
MILLJÓNINNI!
msmmtm
9 «
Kynningarþjónustan