Þjóðviljinn - 29.11.1986, Qupperneq 3
FREFTIR
Verslunarmenn
Lands-
byggðin
gegnUV
Forystumenn verslunar-
mannafélaga víðs vegar um
landið hafa stofnað Landsbyggð-
arsamtök verslunarmanna og er
markmið samtakanna að cfla hag
verslunarmanna á landsbyggð-
inni með því m.a. að koma fram
fyrir hönd félaganna sem samn-
ingsaðilar, þar sem óánægja er
með störf Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna.
í fréttatilkynningu frá sam-
tökunum sem héldu stofnfund
sinn á Selfossi á dögunum, segir
m.a. að það misræmi í launamál-
um sem skapast hefur milli höf-
uðborgarsvæðisins annars vegar
og félaga á landsbyggðinni hins
vegar sé óviðunandi. Þetta mis-
ræmi hafi aukist ár frá ári þrátt
fyrir loforð um úrbætur. Samn-
ingar undanfarin ár í Garðastræti
hafi farið fram í mjög þröngum
hópi og virðast vinnuveitendur
hafa ráðið þar öllum gangi mála.
Segjast samtökin ætla að vinna að
því að umrætt misrétti verði
leiðrétt að fullu í næstu kjara-
samningum.
í stjórn hinna nýju landsbyggð-
arsamtaka voru kjörin; Steini
Þorvaldsson Suðurlandi, Hólm-
fríður Ólafsdóttir Suðurnesjum,
Jóna Steinbergsdóttir Norður-
landi, Bjöm Gunnarsson Vestur-
landi og í varastjórn; Magnús
Pálsson Austurlandi og Kristinn
Gunnarsson Vestfjörðum.
-*g-
Kvikmyndir
Böðullinn
ogskækjan
Ný sjónvarpsmynd eftir
Hrafn Gunnlaugsson
frumsýnd íSvíþjóð um
áramótin. Vœntanlegíís-
lenska sjónvarpinu ífe-
brúar.
Hrafn Gunnlaugsson hefur ný-
lokið við gerð sjónvarpskvik-
myndar fyrir sænska sjónvarpið,
og verður hún frumsýnd 29. des-
ember nk. á rás eitt. Myndin
heitir Böðullinn og skœkjan og er
gerð eftir samnefndri sögu Ivars
Lo-Johansson.
-Þegar ég hlaut viðurkenning-
una í Svíþjóð sem kvikmynda-
leikstjóri ársins var mér boðið af
sænska sjónvarpinu að velja úr 20
ólíkum kvikmyndaverkefnum,
sem kostuð yrði af sænska sjón-
varpinu, sagði Hrafn í samtali við
Þjóðviljann. Ég valdi mér þetta
verkefni og fékk frjálsar hendur
við gerð sjónvarpshandrits.
Myndin gerist í lok 17. aldar og
segir frá utangarðsfóiki, sem er
að reyna að brjótast inn í samfé-
lagið. Þetta er í senn ástar- og
örlagasaga.
Hrafn sagði að hann hefði
fengið hugmyndina að myndinni
eftir að hann heyrði útsetningu
Þursaflokksins á íslenska þjóð-
laginu Grafskrift Sæmundar
Klemenssonar, og væri tónlistin
við myndina unnin út frá því stefi.
Hrafn sagðist mjög ánægður með
sýningartímann, sem valinn hefði
verið fyrir myndina, en hún verð-
ur síðan endursýnd á gamlársdag.
Myndin verður sýnd um öll Norð-
urlöndin, og sagðist Hrafn vonast
til þess að hún yrði sýnd í íslenska
sjónvarpinu í byrjun febrúar.
ólg
Við sambýlið í Víðihlíð: Guðmundur Seinsson, einn heimilismanna, Sveinbjörg Kristjánsdóttir forstöðumaður, Magnús
Kristinsson formaður Styrktarfélags vangefinna. (Mynd: Sig.)
Þroskaheftir
Nýtt sambýli í Víðihlíð
Idag var formlega tekið í notk-
un fjórða sambýli Styrktarfé-
lags vangeflnna í Víðihlíð. Hin
þrjú voru opnuð á síðasta ári, þar
af ein skammtímavist sem rekin
er i samvinnu við Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar.
„Mig langar til að nota tækifær-
ið og koma á framfæri sérstökum
þökkum til almennings fyrir þann
stuðning sem okkur hefur verið
veittur við fjáröflun og sölu jóla-
korta og happdrættismiöa," sagði
Tómas Sturlaugsson fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags van-
gefinna í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Nýja sambýlið er eitt af fjórum
raðhúsum og fyrsta skóflustung-
an að þeim var tekin árið 1983.
Bygging þess hefur kostað 23 1/2
milljón og hefur ríkið greitt 10
milljónir en Reykjavíkurborg 2
milljónir. Félagið lagði til rúmar
11 milljónir og sér það um dag-
legan rekstur. Forstöðumaður
nýja sambýlisins er Sveinbjörg
Kristjánsdóttir þroskaþjálfi. -vd.
Umferð
Sjoppueigendur fá neitun
Nesti í Fossvogi vildifá sömufyrirgreiðlsu hjá Sjálfstœðisflokknum og
Staldrið og Sprengisandur. Borgarráð hafnaði beiðninni
að er greinilegt að eigendur
Nestis ætluðu að færa sér
fyrri mistök meirihlutans í nyt, en
nú tókst að koma í veg fyrir slys af
þessu tagi og það er vissuiega
fagnaðarefni, sagði Sigurjón Pét-
ursson borgarfulltrúi í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Eigendur Nestis í Fossvogi
sendu borgarráði beiðni um að
umferðareyja á Kringlumýrar-
braut yrði rofin, svo vegfarendur
ættu greiðari leið að sjoppunni.
Eigendur vitnuðu stíft í fordæmi
fyrir sömu og svipuðum aðgerð-
um, bæði við Staldrið og við
Sprengisand, og þótti sjálfsagt að
þeir nytu sömu fyrirgreiðslu af
hálfu meirihlutans. En nú brá svo
við að meirihlutinn sá sér ekki
fært að verða við beiðni sjoppu-
eigendanna.
Eins og kunnugt er hafa minni-
hlutaflokkamir í borgarstjórn og
umferðarsérfræðingar borgar-
innar lagst mjög eindregið gegn
því að umferðareyjar verði rofn-
ar með þessum hætti. Umferðar-
sérfræðingar segja að slíkt hátta-
lag stríði gegn grundvallarreglum
í umferðarmálum, en sjoppu-
eigendur hafa fram til þessa náð
sínu fram fyrir milligöngu Sjálf-
stæðismanna í borgarráði og
borgarstjórn. Og væntanlega
notið góðs af. -gg.
Hótel Borg
Fréttirfrá
Nicaragua
Uriel Perez, sendiráðsritari ísendiráði Nicaragua í
Svíþjóð kynnir í dag ástand mála í Nicaragua og
Mið-Ameríku á opnumfundi á Hótel Borg
að skiptir engu máli hversu
miklu fjármagni Bandaríkja-
menn dæla í Contra samtökin sem
berjast gegn löglega kjörinni
stjórn Nicaragua, þeir munu
aldrei vinna sigur,“ sagði Uriel
Perez, sendiráðsritari Nicaragua
í Svíþjóð í gær. Hann er nú stadd-
ur hér á landi í boði El Salvador
nefndarinnar á Islandi og verður
opinn fundur með honum í dag á
Hótel Borg þar sem hann kynnir
stöðu mála í Nicaragua og Mið-
Ameríku.
Perez sagði m.a. að fyrir
tveimur mánuðum hefði Nicarag-
ua kært Costa Rica og Hondúras
fyrir Alþjóðadómstólnum í
Haag, fyrir að veita andbyltingar-
sveitum Contra samtakanna og
annarra sem berjast gegn Nicar-
agua hefðu fyrir stuttu haldið
fund í Costa Rica þar sem lögð
voru á ráðin um framtíðarskipu-
lag, ef þeim tækist að bylta
stjórninni í Managua.
Peres sagði að vegna nýlegra
uppljóstrana í Bandaríkjunum
um nýlegar peningasendingar
bandarískra embættismanna til
Contra samtakanna, myndi
Bandaríkjastjórn veitast erfitt að
halda áfram að koma 100
Uriel Perez. Hann kynnir stöðu mála í
Nicaragua og Mið-Ameríku á Hótel
Borg í dag kl. 14.00. Mynd. Sig.
milljóna dollara aðstoðinni til
skila til Contra samtakanna.
Fundur með Perez verður kl.
14.00 í dag á Hótel Borg. IH
Gerðuberg
Bókmennta-
basar
Bókmenntakynning, basar og
sýnikennsla í gerð aðventukransa
verður í Gerðubergi í dag kl. 13-
18 á vegum Félagsstarfs aldraðra.
Þar munu þeir Thor Vilhjálms-
son og Ingólfur Margeirsson lesa
úr bókum sínum, Grámosinn
glóir og Allt önnur Ella. Þá mun
Björn Th. Björnsson lesa úr þýð-
ingu sinni á Harmaminningu
Leónóru í Bláturni og Þráinn
Karlsson mun lesa úr Ljóra sálar
minnar eftir Þórberg Þórðarson.
Bókmenntakynningin hefst kl.
15.00. Strætisvagnar nr. 12 og 13
stoppa fyrir framan Gerðuberg.
Allir velkomnir.
Torfusamtökin
Kvosartillagan verði endurbætt
Afjölinennum fundi Torfusam-
takanna í fyrrakvöld þar sem
nýja skipulagstillagan fyrir Kvos-
ina var til umfjöllunar var gerð
samþykkt þar sem skorað er á
borgaryfirvöld að skipulagstillag-
an verði cndurbætt þannig að
mun fleiri gömui og merk hús
verði varðveitt. ,Að þeim endur-
bótum gerðum kynni að nást ein-
hugur um skipulag Kvosarinnar
og markvissar endurbætur gætu
hafist,“ segir í samþykkt samtak-
anna.
Torfusamtökin segjast jafn-
framt fagna þeim áhuga sem
borgaryfirvöld sýna gömlum
hverfum bæjarins og löngu sé
orðið tímabært að hefja endur-
bætur á byggð Kvosarinnar. Á
skipulagstillögunni séu þó ágallar
sem þurfi að bæla úr svo hún geti
talist viðunandi.
-lg-
ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3