Þjóðviljinn - 07.12.1986, Blaðsíða 3
Stangveiði-
menn bylta
Nokkur óánægja hefur grafið
um sig undanfarin misseri
með stjórn mála innan Stang-
aveiðifélags Reykjavíkur.
Yngri mönnum hefur fundist
kominn tími til að ýmsir hinna
eldri og þaulsætnari víki fyrir
nýjum mönnum. Þeir eldri
hafa verið á öðru máli. Um
síðustu helgi var svo aðal-
fundur félagsins haldinn, og
mikill viðbúnaður. Yngra liðið
smalaði af hörku dagana á
undan, og engu líkara en próf-
Kjör væri að bresta á! - Úrslit-
in urðu þau, að varaformaður-
inn Ólafur Haukur Ólafsson
var felldur og í hans stað náði
kjöri fulltrúi andófsliðsins,
Friðrik Þór Stefánsson Iög-
fræðingur. Að auki komst
Guðlaugur Bergmann sem
hefur leynt og Ijóst stutt
breytingar á félaginu, inn í
stjórnina.B
ríkisins og verður fróðlegt að
siá hvað embættiðgerir.Heim-
ila þeir fyrir sitt leyti lagningu
brautarinnar um Fossvogsdal
eða neita yfirvöld að staðfesta
skipulagið af sömu ástæðu og
Kópavogsskipulag fékkst ekki
staðfest? Hér virðist Stefán
Thors skipulagsstjóri og hans
menn komnir í allnokkurn
vanda. En við fylgjumst
spennt með hvað gerist (mál-
inu...
Framsýnt
skáld
Enn er ótalið í prófkjöri krata á
Vestfjörðum og hafa menn
stórar áhyggjur, ekki síst á
Vesturgötunni í Reykjavík,
þar sem formannsfrúin í Al-
þýðuflokknum hafði beitt sím-
anum gegn Sighvati. Henni
til huggunar orti hinn framsýni
Guðmundur Bergþórsson
um 1700 í Olgeirs rímum
danska:
Gráttu ei seljan sofnis dúna
því sigur vinnur Karvel
núna.H
Sérfræðingar Reykjavíkur-
borgar halda sínu striki varð-
andi uppbyggingu hraðbraut-
arkerfisins innan og utan
borgarmarkaog gera m.a. ráð
fyrir lagningu Fossvogsbraut-
ar. Forráðamenn borgarinnar
láta sér í léttu rúmi liggja þótt
fyrirhuguð braut liggi um 90%
í landi Kópavogskaupstaðar.
Þar á bæ halda menn hins
vegar öðru striki; sumsé því
að Fossvogsdalur eigi að
vera útivistarsvæði. Ungur
Kópavogsbúi lauk nýverið
námi í landslagsarkitektúr frá
háskóla í Kanada og fjallaði
lokaverkefni hans um Foss-
vogsdal sem útivistarsvæði.
Hann hefur kynnt hugmyndir
sínar fyrir Umhverfisráði Kóp-
avogs og lýst mönnum þar
mjög vel á.Bæjaryfirvöld hafa
enda i hyggju að hanna dalinn
sem útivistarsvæði og má bú-
ast við framkvæmdum þar
innan tíðar. Á meðan reikna
skipulagsfræðingar Davíðs
þetta umferðarmannvirki inn
á land sem hann hefur enga
lögsögu yfir...B
Hvað gerir
skipulagsstjóri?
Og meira um Fossvogsbraut.
Þegar Kópavogskaupstaður
lagði aðalskipulag sitt fyrir
skipulagsstjórn ríkisins í fyrra,
fékk það blessun embættisins
með ákveðinni undantekn-
ingu. Ekki var fallist að svo
komnu máli á að Fossvogs-
braut skyldi tekin út af skipu-
laginu, vegna þess að í aðal-
skipulagi Reykjavíkurborgar
væri reiknað með mannvirk-
inu. Nú er Reykjavíkurborg að
leggja endurskoðað aðal-
skipulag fyrir skipulagsstjórn
Birgðir upp
á 3 miljónir
Skipulagsstofa höfuðborgar-
svæðisins gaf út fyrir nokkru
litprentaðan bækling um fjár-
festingarmöguleika í atvinnu-
lífi svæðisins. Ritið er á ensku
og ætlað útlendum fjármála-
mönnum til lestrar. Mikið var
skrifað um bæklinginn þegar
hann kom út og þótti ýmsum
all mikið í lagt. Eitthvað virðist
hafa gengið illa að koma
gripnum í lóg því upplýst hefur
verið að Skipulagsstofan liggi
uppi með birgðir af ritinu, sem
metnar eru á 3 miljónir króna.
Þá draga margir í efa gagn-
| semi svona útgáfustarfsemi
því sagt er að þeir útlendingar
sem spurst hafa fyrir um
möguleika hér á klakanum
hafi fengið lítil svör og léleg.
Það er nefnilega ekki nóg að
benda mönnum á mögu-
leikana í glæsiriti af þessu
tagi. Það þarf þá að skapa þá
líka...B
Bæjarmörkin
standa í vegi
Heimtar
fleiri afruglara
Forráðamenn Stöðvar 2 eru
ekki allt of ánægðir með þá
fyrirgreiðslu sem innflutnings-
aðilar á afruglurum stöðvar-
innar hafa fengið hjá fram-
leiðendum. Hátt í 10 þúsund
manns hafa skrifað sig fyrir
afruglurum en innan við helm-
ingur fengið töfratólið í hend-
ur. Mun dr. Jón Óttar Ragn-
arsson stöðvarstjóri vera á
förum til útlanda og aetlar að
setja framleiðendunum tvo
kosti: annaðhvort útvegi þeir
innflutningsaðilum á Islandi
nóg af tækjum strax eða þeir
borgi brúsann þegar Stöð 2
leggur upp laupana. Ekki
færri en 7000 áskrifendur
þurfa til að koma ef reksturinn
á að ganga upp. Meðan þeirri
tölu er ekki náð er tap á rekstr-
inum og er þess vænst að för
dr. Jóns Ragnars verði til að
hreyfing komist á málin...B
Keldur að
grotna niður
Það er sláandi munur á viður-
gjörningi þeim sem íslenskum
vísindastofnunum er veittur
og því sem íslenskir kapitalist-
ar hafa umleikis þegar þeir
reisa hús yfir starfsemi sína.
Húsakynni tilraunstöðvar Há-
skólans í meinafræðum á
Keldum eru við það að hrynja
yfir starfsmennina og ríkis-
valdið skellur skollaeyrum við
hvers konar beiðnum um
aukið fé. Þar er verið að vinna
merkar athuganir, m.a. á
veiru þeirri sem veldur visnu í
sauðfé, en hún er af sama
stofni og veira sú er veldur
eyðni í mannfólkinu. Hinu
megin Vesturlandsvegar hef-
ur á örfáum árum risið glæsi-
byggð íslenskra fjármála-
manna og ekkert til sparað.
Það er hætt við að allur mar-
marinn og palisanderinn verði
fáum til yndisauka þegar
eyðnifaraldurinn hefur
herjað...B
Sunnudagur 7. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
-pétveii'
B2
Sigrún
Eldjárn
Nútímaævintýri fyrir káta krakka
Dag nokkurn þegar Áki litli bregður sér út
í garð hittir hann kostulega geimveru -
með tvö höfuð og fjóra fætur - sem segist
heita Bétveir. En hvað í ósköpunum er
Bétveir að gera á jörðinni?
Bækur Sigrúnar Eldjárn njóta mikilla
vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar.
Heillandi ævintýri með litmyndum á hverri
síðu.
Verð kr. 788.00
FRAKKASTÍG 6A, I2I RÐ1<jAVÍK,SÍMI:9l-25l88
Kæri
Kaerf
Sá«
Sigtryggur
Jónsson
Sálfræðingur svarar ungu fólki
Hvað get ég gert til að bæta fjölskyldulífið
heima?
Er ekkert athugavert yið það að unglingar
detti í það um hverja helgi?
Eiga unglingar rétt á því að fá getnaðar-
varnir?
Hvernig get ég öðlast meira sjálfstraust?
í bókina geta unglingar sótt fróðleik, hvatn-
ingu og góð ráð á því stórkostlega ævi-
skeiði sem unglingsárin eru. Kæri Sáli er
bók sem unglingum þykir bragð að - og
fullorðnir ættu að kynna sér.
Verð kr. 988.00
diS,ur
Charles
Dickens
„Mikillar þakkar vert að fá þessa
skemmtilegu jólasögu í svo góðri þýð-
mgu
Örn Ólafsson, DV
Sagan um nirfilinn gamla sem hatast við
jólin og boðskap þeirra. Furðulegar sýnir
ber fyrir augu hans á jólanótt, og þegar
hann rís úr rekkju á jóladag lítur hann
heiminn öðrum augum en áður.
Ein fegursta jólabók ársins - prýdd fjölda
teikninga og litmynda.
Þorsteinn frá Hamri þýðir söguna.
Verð kr. 888.00
Thorbjörn
Egner
Fólk og ræningjar
I KARDEMOMMUB2E
THOftSJORN EGNER
•'OIHACló
Hver kannast ekki við Kasper, Jesper
og Jónatan?
Nú er hún komin út aftur, sagan um ræn-
ingjana þrjá og Soffíu frænku. Bókin kom
upphaflega út fyrir aldarfjórðungi og hefur
verið ófáanleg um langt skeið.
Bókina prýðir mikill fjöldi litmynda sem
höfundurinn hefur gert sérstaklega fyrir
þessa útgáfu sögunnar.
Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpalæk
þýða söguna.
Verð kr. 788.00
Ibottningar dauoans
dauðans
Yoko Tsuno
Myndasögurnar um Yoko Tsuno hafa farið
mikla frægðarför um Evrópu. Yoko og vinir
hennar hafa komist í samband við íbúa á
fjarlægri reikistjörnu. Skyndilega færist
harka í leikinn. Ef drottning dauðans nær
yfirhöndinni munu skelfilegir atburðir
gerast.
Verð kr. 487.00