Þjóðviljinn - 09.12.1986, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
1. Margrét Frímannsdóttir
2. Ftagnar Óskarsson
3. Unnar Þór Böðvarsson
4. Margrét Guðmundsdóttir
5. Anna Kristín Sigurðardóttir
6. Elín Björg Jónsdóttir
Úrslitin á Suðurlandi
1. 157 1-2. 174 1-3. 175
20 122 144
2 23 56
3 18 49
5 20 28
3 19
1-4. 1-5. 1-6.
179 180 182
153 156 164
82 90 98
78 90 105
38 55 66
28 55 73
Á kjörskrá voru 288. Þar af kusu 199 eða tæp 70%
Suðurland
Norðurland eystra
Svanfnður
í öðm sæti
Steingrímur meðfullt hús í 1. sœti og
Sigríður Stefánsdóttir í3ja sœti
Margrét oddviti
í efeta sætinu
Kjördœmisráð búið að stilla upp lista. Ragnar Óskarsson
annar og Unnar Pór Böðvarsson íþriðja sœti
Margrét Frímannsdóttir
oddviti á Stokkseyri fékk
trausta kosningu í h sætið í síðari
umferð forvals Alþýðubanda-
lagsins í Suðurlandskjördæmi
sem fram fór í lok sl. viku. At-
kvæði í forvalinu voru talin á
kjördæmaþingi flokksins í Ölfus-
borgum og jafnframt samþykkt-
ur einróma listi flokksins fyrir
komandi kosningar.
Efstu 6 sætin eru samkvæmt
niðurstöðum forvalsins og er
Ragnar Óskarsson, kennari og
bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum í
2. sæti. Unnar Þór Böðvarsson,
skólastjóri í Reykholti í Biskups-
tungum er í 3. sæti. Margrét Guð-
mundsdóttir, bóndi, Vatns-
skarðshólum í Mýrdalshreppi í 4.
sæti. Anna Kristín Sigurðardótt-
ir, forstöðumaður, Selfossi í 5.
sæti. Elín Björg Jónsdóttir, skrif-
stofumaður, Þorlákshöfn í 6.
sæti.
í 7. sæti er Þorsteinn Gunnars-
son, blaðamaður, Vestmanna-
eyjum. 8. sæti Hilmar Gunnars-
son, verkamaður, Kirkjubæjar-
klaustri. 9. sæti Hansína Stefáns-
dóttir, verslunarmaður, Selfossi.
10. Dóra Kristín Halldórsdóttir,
bóndi, Snjallsteinshöfða, Rang-
árvallasýslu. 11. Arnór Karlsson,
bóndi, Arnarholti, Biskupss-
tungum og í 12. sæti er Þór Vig-
fússon, skólameistari á Selfossi.
-lg-
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður frá Gunnars-
stöðum i Þistilsfirði varð efstur í
síðari umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra sem fór fram sl. laug-
ardag. Steingrímur hlaut um
80% greiddra atkvæða í 1. sætið
og samtals um 95% atkvæða.
Af 217 gildum atkvæðum,
hlaut Steingrímur 168 atkvæði í 1.
sæti og 200 atkvæði í 4 efstu sætin.
í öðru sæti varð Svanfríður Jón-
asdóttir kennari og bæjarfulltrúi
á Dalvík með 121 atkvæði í tvö
efstu sætin og 171 atkvæði alls.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi á Akureyri varð í þriðja
sæti með 131 atkvæði í þrjú efstu
sætin og 163 atkvæði alls. í fjórða
sæti varð Björn Valur Gíslason
stýrimaður og bæjarfulltrúi á Ól-
afsfirði með 97 atkvæði í fjögur
efstu sætin.
Aðrir sem tóku þátt í forvalinu
voru Örlygur Hnefill Jónsson
lögmaður á Húsavík, Benedikt
Sigurðarson skólastjóri á Akur-
eyri og Auður Ásgeirsdóttir fisk-
verkunarkona á Raufarhöfn.
Uppstillinganefnd mun á
grundvelli þessarar niðurstöðu
gera tillögu um uppröðun á lista
flokksins og leggja hann fyrir
aukakjördæmisfund í janúar.
-lg-
alþyöu
uiattiö
0 68 13 33
0 68 18 66
0 68 63 00
Blaðburóur er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigf
LAUS HVERFI
NÚ ÞEGAR:
Blaðbera
vantar
víðs vegar
um
borgina
ÞJ001UINN
a' útvarpsauglýsingum
Gjald fyrir birtingu auglýsinga í RÚV, Rás 1 hefur
verið lækkað sem hér segir:
Auglýsingar fyrir hádegi:
(Kl. 7:25,7:55,8:25 og 12:10) áðurkr. 240.- núkr. 210.-
pr.orð.
Auglýsingar lesnar eftir hádegisfréttir og fyrir
kvöldfréttir:
(Kl. 12:50 og 18:30) áðurkr. 210.-núkr. 190.-pr.orð.
Auglýsendur athugi að morguntími, hádegistími og
kvöldfréttatími hafa yfirgnæfandi hlustun á landsvísu,
samkv. könnun Félagsvísindastofnunar frá 6. nóv. sl.
Meðjólakveðju
Auglýsingadeild RÚV.
ráv o
RÍKISÚTVARPIÐ Rást
Sterkasti ljósvakamiðillmn á landsvisu Símar: 22274,22275