Þjóðviljinn - 13.12.1986, Blaðsíða 2
—SPURNÍNGIN-
Kaupir þú bækur til jóla-
gjafa?
Þorbjörg Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur:
Ég hef keypt eina. Bókaúrvalið er
svipað og undanfarin ár, mikið af
ævisögum. Ég kaupi bækureins-
og Niðurlæginguna og framhald-
ið af Stúlkunni á bláa hjólinu. Ég
kaupi lítið af íslenskum bókum,
nema bækur Sigurðar A.
Magnússonar.
Fjóla Helgadóttir nemi:
Ég er ekki búin að því en ætla að
gera það. Mér líst mjög vel á
bókaúrvalið núna og er hrifin af
bók Steinunnar Sigurðardóttur.
Ég kaupi oftast bækur til jóla-
gjafa.
Ómar Kristjánsson
framkvæmdastjóri:
Já, ég kaupi frekar íslenskar
bækur en það fer auðvitað eftir
því fyrir hvern maður er að
kaupa. Það er mikið til af góðum
bókum núna, til dæmis bókin um
Hafskipsmálið.
Geir Herbertsson prentari:
Já, eitthvað en ég held ég fái nú
fleiri bækur en ég gef öðrum. Ég
kaupi mikið af íslenskum ævi-
sögum fyrir jólin.
Þórður Guðmundsson
eftirlaunaþegi:
Nei, við hjónin gefum mest
bamabörnunum og þá prjónaföt
og slíkt. Sjálfur les ég aðallega
fagbækur. Núna líst mér vel á
Heimsmyndarbókina og bókina
um Vftóngslækjarætt.
FRÉTTIR
Aldraðir
Minnihlutinn útilokaöur
Sjálfstœðisflokkurinn skipar nefnd um öldrunarmál.
Þrír fulltrúar Flokksins, einnfrá minnihluta
Vinnubrögð Árna Sigfússonar í
þessu máli vekja furðu mína.
Hann hefur jafnvel gengið lengra
en forverar hans í stöðu formanns
félagsmálaráðs í að útiloka
minnihlutann frá að fylgjast með
málum, sagði Guðrún Ágústs-
dóttir borgarfulltrúi í samtali við
Þjóðviljann I gær.
Skipuð hefur verið nefnd á
vegum borgarinnar, sem er ætlað
það hlutverk að taka til athugun-
ar málefni aldraðra í borginni og
þann vanda sem eldri borgarar
búa við. Sæti í nefndinni eiga
Ámi Sigfússon formaður fél-
agsmálaráðs, Katrín Fjeldsted
formaður heilbrigðisráðs og Páll
Gíslason formaður byggingar-
nefndar stofnana í þágu aldraðra,
öll í Sjálfstæðisflokki, en aðeins
einn fulltrúi minnihlutans.
Minnihlutinn gerði tillögu um
að fulltrúar minnihlutans í nefnd-
inni yrðu tveir, en sú tillaga var
felld. Árni Sigfússon stakk upp á
Guðrúnu Ágústsdóttur sem full-
trúa minnihlutans í nefndinni, en
Guðrún vékst undan því að sinni,
enda þyrftu fulltrúar minnihlut-
ans að ræða það sín á milli.
Sá vandi sem nefndin á að at-
huga er einkum fólginn í því að
um 1100 manns bíða nú eftir því
að fá inni í leiguíbúðum á vegum
borgarinnar, en engin áform eru
uppi um að byggja slíkar íbúðir.
-gg
Starfsfólk Plantprents færði Mæðrastyrksnefnd veglega peningagjöf að upphæð 45.600 krónur. Mynd E.OI.
Mœðrastyrksnefnd
Fleiri sækja um styrk en áður
Fólk leitarfyrr til Mœðrastyrksnefndar en áður
að hafa óvenju margir leitað
til okkar nú þegar sem er
óvenju snemmt og það er útlit
fyrir að þeir verði fleiri en áður“
sagði Guðlaug Runólfsdóttir
framkvæmdastjóri Mæðra-
styrksnefndar í samtali við Þjóð-
viljann en Jólasöfnun nefndar-
innar hófst í byrjun desember að
veiyu.
„Söfnunin hefur gengið sæmi-
lega og okkur hefur borist mjög
mikið af fötum“ sagði Guðlaug.
„Fyrirtæki og starfsmenn þeirra
hafa tekið okkur vel, til dæmis
gaf starfsfólk Plastprents 45.600
krónur á fimmtudag.
Fataúthlutun fer fram í Trað-
arkotssundi 6 en peningastyrkir
eru afhentir á Njálsgötu 3. -Vd.
Eyðni
Verjumst eyðni
Þjóðviljinn
VRfólk
óánægt
Starfsmenn Þjóðviljans sem
félagsbundir eru í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur hafa
sent frá sér ályktun þar sem ný-
gerðum kjarasamningum er mót-
mælt.
VR menn á Þjóðviljanum lýsa
yfir fullum stuðningi við sam-
þykkt aðalfundar miðstjórnar
Alþýðubandalagsins fyrir
skömmu, en þar segir að lág-
markskaup skuli ekki vera undir
35.000 kr á mánuði.
Bæklingur um eyðni sendur til ungs
fólks á aldrinum 15-24 ára.
Verjumst eyðni, notum smokk-
inn“ heitir nýútkominn bækl-
ingur um eyðni sem Landlæknis-
embættið hefur gefið út og sent til
alls ungs fólks í landinu á aldr-
inum 15 til 24 ára. Vegna mistaka
hjá Skýrsluvélum var bæklingur-
inn einnig sendur til 12-14 ára
barna á höfuðborgarsvæðinu.
Bæklingurinn útskýrir hvað
eyðni er, hvernig hún lýsir sér,
hvaðan hún er upprunnin og
hvernig hún smitast.
Tekið er fram að allir geti smit-
ast og margt bendi til þess að
helsti áhættuhópur sjúkdómsins í
dag sé ungt fólk á aldrinum 15 ára
til þrítugs. Einsog nafn bæklings-
ins gefur til kynna er lögð mikil
áhersla á að fólk noti smokka þar
sem þeir eru góð smitvörn.
Varað er við fordómum og
bent á að eyðnismit er ekki mæli-
kvarði á siðferði fólks. _V().
2 SfDA - ÞJÓÐVIUINM 1 kwtfwlBgwr 18. áiHwfcir 1986