Þjóðviljinn - 13.12.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓOVIUINN
Laugardagur 13. desember 1986 285. tölublað 51. árgangur
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staö
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Hjálparstofnun kirkjunnar
Bókanaust
Deilan olli tugmiljóna tapi
Thor selst
og selst
Skáldsaga Thors Vilhjálms-
sonar, Grámosinn gióir, er ein af
söluhæstu íslensku skáldsögunum
í upphafi jólavertíðarinnar.
Önnur prentun er að seljast upp
og hin þriðja væntanleg frá for-
laginu, Svart á hvítu, eftir helgi.
Auk Thorsbókar mun bók
Steinunnar Sigurðardóttur,
Tímaþjófurinn, og bók Sigurðar
A. Magnússonar, Úr snöru fugl-
arans, vera á mestum söluspretti
af íslenskum skáldsögum á jóla-
markaði enn sem komið er.
- ólg
Hjálparstofnunin metur tap stofnunarinnar vegna gagnrýninnar á hana upp á tugi miljóna
króna. Guðnnlaugur Stefánsson: Höfum áhyggjur afþvíað geta ekki staðið við
skuldbindingar við hjálparþega. Nema um 6-7miljónum krónafram tiláramóta
Sú staða sem deilan hefur vald-
ið er hægt að mæla í miljónum ef
ekki tugi miljóna þó ekki sé hægt
að festa neina ákveðna tölu, sagði
Gunnlaugur Stefánsson fræðslu-
stjóri Hjálparstofnunar kirkj-
unnar um stöðuna hjá stofnun-
inni í dag.
Gunnlaugur sagði að vegna
deilnanna hafi orðið að fresta
söfnun sem stóð til nú í haust og
það hafi verið afráðið að efna
ekki til söfnunar fyrir áramótin
vegna þeirrar áhættu sem kostn-
aður við slíka söfnun myndi hafa.
Fólk væri þó ekki alfarið hætt að
gefa til hjálparstarfsins og í raun
væri mjög mikið um símhring-
ingar frá fólki sem spyrðist fyrir
um hvernig það gæti komið fram-
lögum til skila.
Gunnlaugur sagði að megin-
áhyggjur fulltrúa Hjálparstofn-
unarinnar sem höfðu skapast
vegna þessa, væru fólgnar í því að
ekki væri hægt að standa við
skuldbindingar sem stofnunin
hefði gagnvart aðilum erlendis
sem hefðu treyst á hjálpina og
gerðu enn. Þar á meðal væru
flóttamenn frá Afganistan og
Eþíópíu og munaðarlaus börn í
Eþíópíu. Auk þess væri stofnunin
með ýmsar skuldbindingar í
smáverkefnum innan Lúterska
alþjóðasambandsins. í krónum
talið væri sú upphæð sem í skuld-
bindingunum væri falin um 6-7
miljónir fyrir áramót og nú væri
verið að reyna að leita leiða til
þess að standa við þessar skuld-
bindingar m.a. með því að leita
eftir samstarfi við systurstofnanir
erlendis.
Ekki hefur enn verið gengið frá
endurskipulagningu á starfsemi
stofnunarinnar en nefnd á vegum
Hjálparstofnunarinnar og
Kirkjuráðs er að vinna að því
verkefni nú og verða niðurstöður
hennar væntanlega teknar fyrir á
aðalfundi eftir áramót. Að sögn
Gunnlaugs er líklegt að starfs-
mannahald verði þá skoðað í ljósi
þeirra breytinga. -K.Ól.
Framkvœmdasjóður
fatlaðra___________
30 miljónir
í viðbót
Porsteinn Pálsson
tilbúinn að hœkka
framlagið úrþriðjungi
upp í helming þess sem
lögboðið er
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra lýsti því yfir á alþingi í
gær að hann væri tilbúinn til að
hækka framlag til Framkvæmda-
sjóðs fatlaðra úr 100 miljónum
króna í 130 miljónir á næsta ári.
Þingmenn Alþýðubandalags-
ins í báðum deildum hafa lagt til
80 miljón króna hækkun á þessu
framlagi. Helgi Seljan fagnaði
yfirlýsingu Þorsteins gær en benti
á að 30 miljónirnar þýddu aðeins
að sjóðurinn fengi helming lög-
boðins framlags á næsta ári í stað
þriðjungs eins og fjárlagafrum-
varpið gerir ráð fyrir. Þetta væri
því alls ekki nóg.
-ÁI
A tvinnuástandið
Atvinnulausum
fjölgar
Atvinnuleysi jókst nokkuð í nóv-
embermánuði miðað við mánuð-
inn á undan. Skráðum atvinnu-
leysisdögum fjölgaði úr um 7.800
f 10.400 og atvinnulausum að
meðaltali úr 360 í 480 manns.
í frétt frá félagsmálaráðu-
heytinu segir að í lok síðasta mán-
aðar hafi 640 manns verið á skrá
vinnumiðlunarinnar, þannig að
atvinnuleysi hefur aukist talsvert
er leið á mánuðinn. Þrátt fyrir
þessa aukningu í nóvember-
mánuði nú er skráð atvinnuleysi
mun minna í sama mánuði en ver-
ið hefur undanfarin ár. Helmingi
færri atvinnuleysisdagar voru
skráðir í nóvember í ár en í sama
mánuði í fyrra. -gg