Þjóðviljinn - 13.12.1986, Side 3
Hagrœðingin
Ríkisstjórnin
FRETTIR
Einar Thoroddsen háls-nef og eyrnalæknir skoðar hér Gísla Þór sem er 1 árs. Mamma hans, Þórunn Daðadóttir, situr undir honum. Mynd E.ÓI
Eyrnarbólga
1000 aðgerðir á ári
Einar Thoroddsen lœknir: Bætt aðstaða ogfleiri
sérfræðingar. Umhleypingasöm veðrátta helsta orsökin
Aðgerðum vegna eyrnabólgna f
börnum hefur fjölgað um helm-
ing á undanförnum þremur
árum. Að sögn Einars Thorodd-
sen sérfræðings í háls-nef og
eyrnalækningum eru fram-
kvæmdar að minnsta kosti 1000
aðgerðir á ári vegna ýmis konar
eyrnasjúkdóma í börnum. Fyrir 2
árum var 3 mánaða biðlisti fyrir
aðgerðir sem þessar en í dag er
hann um 2-3 vikur.
Ástæðumar fyrir þessari
fjölgun segir Einar vera bætta
svæfingaaðstöðu á stofum sérf-
ræðinga og fjölgun þeirra á und-
anförnum tveimur árum.
„Þetta era nokkuð fleiri að-
gerðir en í öðrum löndum og að
mínu mati er það í fyrsta lagi
vegna þess hve veður hér eru
umhleypingasöm" sagði Einar í
samtali við Þjóðviljann. „í öðru
lagi er auðveldara að komast til
sérfræðings hér en annars staðar,
þannig að aðgerðir eru fram-
kvæmdar fyrr en ella.“
Að mati Einars þurfa um 30%
sjúklinga að koma aftur og al-
gengast er að börn á aldrinum 1
1/2 árs til 3 ára fái eyrnabólgur.
Nokkuð algengt er nú að plast-
ventlar séu settir í eyru barna sem
þjást af sýkingu í eyra. M er
stungið gat á hljóðhimnuna,
vökvi sem hefur safnast fyrir í
miðeyranu sogaður út og eins
konar loftventill settur í hljóð-
himnuna til þess að hún grói ekki
og allt fari í sama farið. Þessir
ventlar detta út sjálfir eftir 4-8
mánuði eða eru fjarlægðir.
„Sýkingar koma oft eftir að
böm fara á barnaheimili, þar er
meiri hætta á -að börnin smiti
hvert annað“ sagði Einar. „Ég
held þó að það skipti ekki miklu
máli þó börnin séu dúðuð gegn
veðri og vindum, en sumar mæð-
ur vita betur um það en ég.“
-vd.
Samningarnir
Snót felldi
samningana
Fjölmennur
félagsfundur Snótar
felldi samningana.
Óánœgjan mest
vegna skorts á
ákvœðum um
starfaldurshœkkanir
fiskvinnslufólks. 7
félög hafa samþykkt
Á óvenju fjölmennum félags-
fundi Verkakvcnnafélagsins
Snótar í Vestmannaeyjum í fyrra-
kvöld voru samningarnir felldir
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða. Snót er enn sem komið er
eina félagið sem hefur fellt samn-
ingana en alls höfðu f gærdag 7
verkalýðsfélög tekið samningana
til umfjöllunar.
Að sögn Vilborgar Þor-
steinsdóttur formanns Snótar var
meginástæðan fyrir óánægju fé-
lagsmanna sú að ekki skyldi vera
ákvæði í samningunum um starfs-
aldurshækkanir fiskvinnslufólks.
Flestir félagsmanna starfa við
fiskvinnslu og að sögn Vilborgar
er stór hluti þeirra á launum sem
greidd eru eftir 15 ára starfs-
reynslu og kemur því ekkert í
þeirra hlut að þessu sinni. Þá
voru konurnar hræddar um að
þegar búið er að taka starfsald-
urshækkanirnar út einu sinni þá
verði erfitt að fá þær inn aftur.
Verkakvennafélagið Fram-
sókn, félag fiskvinnslukvenna í
Reykjavík, greiddi jafnframt at-
kvæði um samningana í fyrra-
kvöld og bar nokkuð á óánægju
þar þó meirihlutinn hafi sam-
þykkt samningana, eða 61 á móti
39 sem vildu fella þá. Önnur félög
sem hafa samþykkt samningana
eru Hlíf í Hafnarfirði, Eining á
Akureyri, Boðinn í Þorlákshöfn,
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis og Félag
starfsfólks í veitingahúsum.
-K.ÓI.
Skilur eftir 12 Hafskipsmál
Erlendar skuldir hækka um 10þúsund á mann á þessu ári. Margar breytingartillögur við fjárlög
342% hækkun
hjá Sverri
Sagan afþví hvernig
menntamálaráðherra
endurskipulagði LÍN
Hvaða ríkisstofnun skyldi það
nú vera sem fékk 9,2 miljónir í
rekstrarfé á fjárlögum á þessu
ári, eyddi 37 mi|jónum og á að fá
40,7 mijjónir í reksturinn á næsta
ári?
Geir Gunnarsson upplýsti á al-
þingi í gær að svona væri komið
rekstri Lánasjóðs íslenskra náms-
manna, þeirrar stofnunar, sem
menntamálaráðherra sjálfur,
Sverrir Hermannsson, tók að sér
að endurskipuleggja fyrir réttu
ári. Geir rifjaði upp hvernig
Sverrir skar einhendis niður 10
miljón króna hækkun til skrif-
stofu LÍN á fjárlögum þessa árs
og taldi, „blóðþyrstur að vanda“
að 9,2 miljónir væri kappnóg
rekstrarfé. „En niðurstaðan sem
nú liggur fyrir er hvorki 9,2 né
19,2 miljónir,“ sagði Geir.
„Rekstrarkostnaðurinn verður
37 miljónir á þessu ári. Og nú er
lagt til að áætlaður rekstrark-
ostnaður skrifstofunnar verði
40,7 miljónir króna á næsta ári
eða 342% hærri en menntamála-
ráðherra ætlaði að sjá um að
hann yrði 1986!“
-ÁI
Geir Gunnarsson sagði m.a. í
umræðum á alþingi í gær að ríkis-
stjórnin skildi eftir sig jafnvirði
12 Hafskipsgjaldþrota í halla-
rekstri á ríkissjóði og skulda-
söfnun síðustu þriggja ára. Þrátt
fyrir mikið góðæri og auknar
tekjur hefði ríkisstjórninni tekist
að auka erlendar skuldir hverrar
fimm manna fjölskyldu um 50
þúsund krónur á þessu ári því
nýjar lántökur væru 111% hærri
en afborganir. Þriðja árið í röð
hygðist ríkisstjórnin svo reka rík-
issjóð með halla.
Geir benti á að frá árinu 1984
hafa tekjur ríkissjóðs á föstu
verðlagi hækkað um 0,6% en út-
gjöldin um 16,3%. Fram-
kvæmdafé hefði verið stórlega
skorið niður og framlög til dag-
vista, mennta- og fjölbrauta-
skóla, grunnskóla, sjúkrahúsa,
heilsugæslustöðva, hafnarfram-
kvæmda og flugvalla þyrftu nú,
að hækka um 30% til að ná sama
verðgildi og á árinu 1983. Þá
gagnrýndi hann að fyrirtæki og
eignaaðilar hefðu notið vaxandi
skattívilnanna og benti á að
meira en helmingur fyrirtækja
greiðir engan tekjuskatt nú.
Geir benti á að verulegar fjár-
hæðir vantar enn í frumvaipið til
að tryggja lágmarksrétt þeirra
sem hafa nánast eingöngu bætur
almannatrygginga sér til fram-
færis en sá hópur hefði aðeins
notið 17% hækkunar bóta á árinu
meðan laun hefðu hækkað um
35%. „Nú þegar gerðir hafa verið
kjarasamningar um verulega
hækkun lágmarkslauna hljóta
þessi kjaramál skjólstæðinga
almannatrygginga að koma til
sérstakrar endurskoðunar“ sagði
Geir. „Síst er ástæða til þess að
þeir landsmenn sem hafa
lífsframfæri sitt nánast eingöngu
af tryggingabótum, dragist aftur-
úr öðrum þegar allar ytri aðstæð-
ur í þjóðarbúinu eru einhverjar
þær hagstæðustu sem þekkst
hafa.“ Geir benti á að til að
tryggja kaupmátt jafnt launa sem
tryggingabóta dygði skammt að
hlaða stíflugarða og greiða hlut
ríkisins í verðlagsaðhaldi með
skuldasöfnun einni saman. Ef
óbreyttri stefnu yrði haldið
myndu stíflurnar bresta með
óhjákvæmilegum afleiðingum:
verðlagssprengingu.
Fjölmargar breytingatillögur
komu fram frá stjórnarandstöð-
unni við fjárlagafrumvarpið í gær
og er búist við enn fleirum fyrir
þriðju umræðu. Ragnar Arnalds,
Skúli Alexandersson, Steingrím-
ur J. Sigfússon, Guðrún Helga-
dóttir, Helgi Seljan og Hjörleifur
Guttormsson flytja tillögur um
1900 miljón króna skattahækkan-
ir, þ.m.t. 300 miljón króna stór-
eignaskatt og 200 miljón króna
skatt á ferðamannagjaldeyri, en
einnig hækkun á eignar- og tekju-
sköttum. Þau leggja einnig til
samtals um 350 miljón króna
hækkun á framkvæmdum ríkisins
við dagvistarheimili, grunn-
skólabyggingar og flugvelli, til
Þjóðleikhússins, til jöfnunar á
námskostnaði og framlögum til
lista. Þá leggja þau til að fram-
kvæmdafé ÁTVR verði skorið
niður um helming og að felld
verði niður heimild til fjármála-
ráðherra til að fella niður tolla af
afruglurum og fleiri tækjum fyrir
nýjar sjónvarpsstöðvar.
Steingrímur J. Sigfússon og
Hjörleifur Guttormsson flytja til-
lögur um að fella niður og lækka
framlög íslendinga til Nató, þ.e.
til svokallaðrar varnarmálaskrif-
stofu, þingmannasamtaka Nató
o.fl. Þá leggja þeir til að rek-
strarkostnaður ratsjárstöðva
verði strikaður út úr fjárlögunum
en í stað þessa verði framlög til
Þróunarsamvinnustofnunar
hækkuð úr 24 í 80 miljónir.
Þeir Hjörleifur og Steingrímur
ásamt Helga Seljan flytja einnig
tillögur um aukin framlög til Al-
þýðuskólans á Eiðum, til fram-
kvæmda í þjóðgörðum á vegum
náttúruvemdarráðs, 5 miljónir
króna í búrekstrarkönnun, sem
Hjörleifur hefur flutt tillögu um,
og 10 miljónir til umhverfis-
verndar á ferðamannastöðum.
Þá flytur Steingrímur tillögu um
að 5 miljónum verði veitt til að
undirbúa og hefja háskólakenns-
lu á Akureyri og þeir Helgi og
Hjörleifur vilja að 300 þúsund
krónum verði veitt til kirkjumið-
stöðvar á Austurlandi. Þá flytur
Svavar Gestsson tillögu um að
framlög til Rannsóknasjóðs HÍ
verði hækkuð um helming í 75
miljónir króna.
Kvennalistinn flytur tillögu um
133ja miljón króna hækkun á
framlagi til dagvista og 74ra milj-
ón króna hækkun á framlagi til
lista. Þær leggja einnig til um 200
miljón króna hækkun á fram-
lögum til Háskóla íslands.
Kjartan Jóhannsson leggur til
að framlögin til HÍ verði hækkuð
um 65 miljónir, Kolbrún Jóns-
dóttir að framlag til Sjúkraliða-
skólans verði hækkað um 1,1
miljónir í 7 miljónir króna og
Kolbrún, Jóhanna Sigurðardótt-
ir og Eiður Guðnason leggja til að
framlag til aðgerða gegn fíkniefn-
um verði hækkað úr 1 miljón í 10
miljónir og að 20 miljónum verði
varið til aðgerða gegn skattsvik-
um. _ÁI
Laugardagur 13. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3