Þjóðviljinn - 13.12.1986, Qupperneq 13
Sranmálið
svonefnda teygir anga sína víða.
í gær var haft eftir heimildar-
mönnum í ísraeiska varnamála-
ráðuneytinu og ísraelskum
vopnasölum að fyrirtæki í Bret-
landi og Portúgalir hafi tengst
sölu á ísraelskum vopnum til
írans fyrir hundruði milljóna doll-
ara síðustu sex árin. Heimildar-
mennirnir segja að þessi vopna-
sala hafi verið mun umfangsmeiri
en sú vopnasala sem bandarískir
embættismenn hafa staðið fyrir
að undanförnu og valdið hefur
svo miklu fjaðrafoki. „Ef við selj-
um bandarísk vopn,“ sagði einn
ísraelskur vopnaframleiðandi og
seljandi, „verðum við auðvitað
að fara eftir þeirra reglum hvað
varðar leyfi og annað slíkt. Ef við
seljum hins vegar okkar eigin
vopn varðarengan um það hverj-
um við seljum þau.“ Þessi um-
ræddu vopn sem fóru til (ran átti
opinberlega að selja Bretum,
með samþykki fjögurra ísra-
elskra varnamálaráðherra í röð.
Vopnin fóru hins vegar aldrei til
Bretlands. Þess í stað voru þau
flutt úr ísraelskum flutningavélum
hins ríkisrekna El Al flugfélags í
ómerktar flugvélar á Lissabon
flugvelli. Þær flugu aftur beint til
írans. Heimildarmennirnir sögðu
að bresk yfirvöld hefðu líkast til
ekkert vitað hvernig í öllu lá þar
sem bresku fyrirtækin sem vopn-
in voru skráð á voru yfirleitt papp-
írsfyrirtæki. Þau munu vera ansi
mörg i þessum bransa.
Utanríkisráðherrar
hinna 14 Natóríkja í Evrópu gáfu í
gær takmarkað samþykki sitt við
tillögum Bandaríkjamanna um að
semja við Sovétríkin um 50 %
fækkun langdrægra kjarnorku-
flauga og að gera samning um
meðaldræg kjarnorkuvopn.
Fundi ráðherranna lauk í gær í
Brussel í Belgíu. Einnig var sam-
þykkt að hefja viðræður við A-
Evrópuríki um tilhögun hefð-
bundins vopnabúnaðar. í lokayf-
irlysingu ráðherrafundarins var
ekki að finna neinar hugmyndir
um eyðingu allra langdrægra
kjarnorkuflauga á tíu árum. Það
munu hafa verið Bretar'og Frakk-
ar sem stóðu fyrir því að ekkert
slíkt var samþykkt.
Nunna
ein frá Hollandi, 70 ára að aldri,
fékk í gær árleg verðlaun holl-
enska kvenréttindatímaritsins
Opzij fyrir að vinna að réttindum
þeirra kvenna sem tilheyra hinni
rómversk-kaþólsku kirkju. Systir
Fransiska heitir nunnan. Hún er
fylgjandi fóstureyðingum og
vígslu kvenpresta, tilheyrir holl-
enskri reglu sem ber heitið „Dæt-
ur Maríu og Jósefs". Systir Fra-
nsiska hefur árum saman unnið
að fyrrnefndum baráttumálum
með vinnu sinni í ýmsum nefnd-
um, útgáfu og með því að flytja
mál sitt í hinum ýmsu klaustrum.
Frönsk
stjórnvöld hafa tilkynnt áætlanir
um að leggja sérstakan skatt á
kveikjara og eldspýtur til að fjár-
magna aðgerðir til að koma í veg
fyrir þá mörg þúsund skógarelda
sem verða í S-Frakklandi á sumri
hverju. Á síðasta sumri urðu
verstu skógareldar í S-Frakk-
landi í tuttugu ár. Tíu manns lét-
ust í eldsvoðunum, allt að 50.000
hektarar skógar urðu eldinum að
bráð og tjón er metið á 154
milljónir dollara.
Karl Bretaprins
er nú talinn koma til greina sem
næsti landstjóri í Hong Kong,
bresku krúnunýlendunni á Kín-
aströnd. Blaðið Sunday Tele-
graph segir síaukinn stuðning við
hann meðal Hong Kong-manna
sem eiga framundan óvissa tíma
áður en Peking-menn taka við
stjórninni árið 1997. Talsmenn
drottningar og utanríkisráðuneyt-
is eru þöglir sem gröfin, en þeir
sem segja söguna benda til
stuðnings á fordæmi einsog Mo-
untbatten jarl, sem stjórnaði á
Indlandi þegar það varð sjálf-
stætt árið 1947.
HEIMURINN
S-Afríka
Nýjar fjöldahandtökur
Snemma í gœrmorgun handtók s-afríska lögreglan ótiltekinn fjölda manns sem
hún sagði vera liðsmenn Afríska Þjóðarráðsins. Tilkynnti aðfólkið hefði œtlað
að standa fyrir miklum ofbeldisaðgerðum íjólavikunni
Jóhannesarborg - Lögreglan í
S-Afríku hóf í morgunsárið í
gær miklar fjöldahandtökur,
meðal hinna handteknu var rit-
stjóri dagblaðs og tveir Sviss-
lendingar. Ekki er vitað um
fjölda handtekinna.
Ritstjórinn, Zwelakhe Sisulu,
stjórnar blaðinu „Ný Þjóð“ (New
Nation) sem er víðlesið, sérstak-
lega af svörtum íbúum landsins.
Faðir Sisulu er einn af áhrifa-
mestu mönnum í hinni svörtu
þjóðernishreyfingu landsins.
Lögregluforinginn Johan Coet-
zee sagði að hinir handteknu
hefðu verið félagar í Afríska
þjóðarráðinu (ANC) og aðrir
sem hefðu í hyggju að efna til
ofbeldis í jólavikunni. Hann til-
tók ekki fjölda handtekinna. Hin
opinbera fréttastofa S-Afnku til-
kynnti um miðjan dag í gær að
tveir Svisslendingar hefðu verið
handteknir, grunaðir um tengsl
við Afríska Þjóðarráðið.
Handtökurnar koma í kjölfar
hertrar ritskoðunar í landinu.
Coetzee sagði að lögreglan hefði
fengið upplýsingar og skjöl um að
ANC hefði haft í hyggju víðtækar
ofbeldisaðgerðir um allt landið.
Fjölmörg dagblöð og stjórn-
málaieiðtogar í landinu
gagnrýndu harkalega þessar nýj-
ustu aðgerðir stjórnvalda og eitt
dagblað í Pretoríu líkti aðgerðun-
um við stefnu yfirvalda í „ban-
analýðveldum“.
Yfirvöid tilkynntu frétta-
mönnum að leyfilegt væri að
segja frá handtöku Sisulu þar sem
móðir hans hefði fengið vitneskju
frá hinu opinbera um handtök-
una og því væri málið orðið opin-
bert. Faðir Sisulu, Walter Sisulu
Helstu leiðtogar repúblikana á Bandaríkjaþingi krefjast þess nú að Reagan Bandaríkjaforseti reki þessa tvo menn, þá
Villiam Casey, yfirmann CIA, og Donald Regan, starfsmannastjóra Hvíta hússins.
Reaganl íranmálið
Repúblikanar heimta aðgerðir
Washington - „Hér þarf mikla
húshreinsun," sagði repúblik-
anaþingmaðurinn William
Broomfield við fréttamenn í
gær og átti þá við Hvíta húsið
og valdamenn þar. Síðustu
daga hefur óánægja vaxið
mikið í flokki Reagans Banda-
ríkjaforseta og í gær létu marg-
ir þeirra í sér heyra, kröfðust
aðgerða. Sérfræðingur í
bandarískum lögum sagði í
gær að yfirheyrslur vegna ír-
anmálsins gætu dregist.
Einn áhrifamesti þingmaður
repúblikana á þingi, Richard
Lugar, sagði í gær að hann vildi
að Reagan ræki Donald Regan,
starfsmannastjóra Hvíta hússins,
og William Casey, yfirmann
bandarísku leyniþjónustuanar
CIA. Þá birti bandaríska ^tór-
blaðið Washington Post í gær
grein eftir leiðtoga repúblikana í
öldungadeildinni, Robert Dole,
þar sem hann hvetur forsetann til
að láta til skarar skríða. „Nú er
hætta á að íranmálið muni beygja
þjóðina næstu mánuði. Við verð-
um að fá fram allar staðreyndir
málsins nú, svo að við - forsetinn,
þingið og þjóðin - getum gert út
um málið í eitt skipti fyrir öll og
snúið okkur síðan að málefnum
þjóðarinnar.“
Dole lýsti þeirri skoðun sinni
að þeir North ofursti og Poindex-
ter aðmíráll ættu að ganga fyrir
forsetann og segja honum allt um
þetta mál.
Nicaragua
situr nú í fangelsi ásamt Nelson
Mandela dæmdur fyrir landráð.
Ný Þjóð nýtur stuðnings kaþól-
sku kirkjunnar og hefur beitt sér
af hörku gegn kynþáttaaðskiln-
aðarstefnunni. Því hefur Pretorí-
ustjórnin oft beitt skeytum sínum
að blaðinu og sakað það um að
vera málpípu ANC.
Mikil ringulreið hefur verið
meðal erlendra fréttaritara í S-
Afríku eftir að nýjar reglur voru
settar um ritskoðun í fyrradag.
Sögðu fréttamenn að mikilla
mótsagna gætti hjá yfirvöldum
vegna hins aukna fréttabanns.
Filippseyjar
/Vopnahlésbrot
Verður ekki
þolað lengur
Manila- Fidel Ramos, yfirmað-
ur herafla Filippseyja, hélt í
gær áfram harðri gagnrýni
sinni á skæruliða kommúnista
og sagði að ríkisstjórn lands-
ins myndi ekki umbera frekari
brot á vopnahléssamkomu-
laginu á Filippseyjum sem nú
hefur verið í gildi síðan á mið-
vikudag.
Ramos sagði þetta í kjölfar
mikillar ólgu sem komin er upp
innan hersins vegna þess að
skæruliðar gengu í fyrradg um
með vopn í litlum bæ ekki fjarri
Manila. Talsmaður forseta lands-
ins, Corazon Aquino, sagði að
hún myndi láta það eftir vopna-
hlésnefndinni að leysa þetta mál.
Talsmaður nefndarinnar sagði í
gær að atvikið „gæti líklega talist
brot á vopnahléssamningnum.“
Ramos heldur því fram að sam-
ið hafi verið um að skæruliðar
skyldu ekki bera vopn í þéttbýli
en samningamenn skæruliða
segjast ekki hafa skrifað undir
slíkan samning.
Tveir menn hafa nú látist eftir
að vopnahléð gekk í gildi, stuðn-
ingsmaður skæruliða og stjórnar-
hermaður. Eftir því sem embætt-
ismenn hersins segja skutu
skæruliðar hermanninn þegar
þeir reyndu að ræna vopnum
hans.
Dómur yfir Hasenfus staðfestur
Dómsyfirvöld íNicaragua hafa staðfest30 árafangelsisdóm yfir Eugene Hasenfus. Spennan á
landamærum Nicaragua og Hondúras minnkar
Managua - Dómstóll í Nicar-
agua staöfesti í gær dóm sérs-
taks alþýðudómstóls landsins
um 30 ára fangelsi til handa
Bandaríkjamanninum Eugene
Hasenfus sem náðist þar sem
hann var að flytja vopn til
contra hreyfingarinnar.
Hasenfus hafði fallið frá því að
áfrýja dómnum í von um að ríkis-
stjórn Nicaragua muni náða hann
og leyfa honum að fara til Banda-
ríkjanna. Forseti dómstólsins
sagði í gær að eftir að hafa farið
yfir gögn málsins hefði hann
komist að þeirri niðurstöðu að
sekt Hasenfus hefði verið sönnuð
með sanngjörnum hætti.
Lögfræðingur Hasenfus hafði
lýst því yfir að hann hefði ekki
notið viðunandi aðstæðna í vörn
sinni. Dómarinn, Cuadro Lopez,
sagði að lögfræðingnum hefði
verið tryggðar eðlilegar aðstæður
við vörn skjólstæðings síns.
Þegar Daniel Ortega, forseti
Nicaragua, var spurður um
möguleika á náðun fyrir Hasen-
fus, endurtók hann það sem em-
bættismenn þarlendir hafa áður
sagt:„Við höfum náðun í stefnu
okkar og sú stefna er óbreytt...
Hvað varðar Hasenfus, sjáum við
til. Það fer eftir ýmsu.“
Réttarhöldin í gær koma í
kjölfar mikillar spennu á landa-
mærum Nicaragua og Hondúras.
Hún hefur þó minnkað undan-
farna daga. Ortega sagði í fyrra-
kvöld að yfirvöld í Hondúras ættu
að koma Contra mönnum burtu
af landsvæði sínu. Hann sagði að
forseti Hondúras, Jose Azcona,
ætti að hafa þann styrk og virð-
ingu að segja Bandaríkjunum að
draga sig ekki inn í þessar deilur
um Contra samtökin. Vaxandi
óáænægju gætir nú í Hondúras
með veru Contra samtakanna í
landinu. í gær var gefin út til-
kynning Bandaríkjastjórnar og
Hondúrasstjómar þar sem sagði
að stefnt skyldi að því að Contra
samtökin færðu alla sína starf-
semi frá Hondúras til Nicaragua.
Ymsir vestrænir fréttamenn í
Managua, höfuðborg Nicaragua
hafa lýst þeirri skoðun sinni að
Bandaríkin vilji magna upp átök
á landamæmm landanna tveggja
þannig að Hondúras her leggi í
beinar hernaðaraðgerðir gegn
Nicaragua og átökin magnist
þannig upp að Bandaríkin geti
smátt og smátt gengið inn í átökin
af fullum krafti. Azcona sagði í
gær að ef hersveitir Nicaragua
fæm yfirlandamærin að herja á
Contra samtökin, yrði því svarað
af fullum krafti af Hondúras her.
Laugardagur 13. desember 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13