Þjóðviljinn - 17.12.1986, Side 1
Páll Halldórsson yfirflugstjóri (t.v) og Guðmundur Björnsson læknir: Þörfin á að læknir sé á vakt vegna sjúkraflugs er ótvíræð. Hefur þegar bjargað sex
mannslífum.
Landhelgisgœslan
Þyrlulæknir samþykktur
Pyrlulæknarnir taldir hafa bjargað sex mannslífum. Fjárveitingarnefnd hefur gefið grœnt
Ijós á stöðu lœknis á sólarhringsvakt vegna sjúkraflugs. Guðmundur Björnsson lœknir:
Höfum sannað þörfina
Dagsbrún vill
hefja viðræður
Á fundi trúnaðarmannaráðs
Dagsbrúnar í gærkvöldi var
ákveðið að hefja viðræður við
VSÍ sem fyrst um þá kröfugerð
sem stjórn Dagsbrúnar hefur ver-
ið að móta.
Kröfugerðin, sem er grund-
völluð á aðalkjarasamningi ASÍ,
var ekki lögð fyrir fundarmenn
en þeir voru um 40 talsins.
—K.Ól.
Við fengum grænt Ijós frá fjár-
veitingarnefnd í morgun um
að sett yrði upp föst staða læknis
á sólarhringsvakt fyrir Landhelg-
isgæsluna næsta ár, sagði Guð-
mundur Björnsson læknir í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Guðmundur er einn fimm
lækna af Borgarspítalanum sem
hafa síðan í febrúar verið sjálf-
boðaliðar í þyrluáhöfnum Land-
helgisgæslunnar og verið til taks í
sjúkraflug þegar á hefur þurft að
halda.
„Við byrjuðum á þessu til þess
að sanna fyrir stjórnvöldum þörf-
ina á þessarri þjónustu og teljum
okkur hafa gert það nú,“ sagði
Guðmundur. Læknarnir hafa
verið kallaðir út 36 sinnum og tal-
ið er víst að þátttaka þeirra hafi
Skriftir
Hafskips-Ragnar óhress
Tvöhundruð aðfinnslur við rannsókn Hafskipsmálsins í nýrri skýrslu Ragnars
Kjartanssonar. Óskað rannsóknar á rannsókninni?
Ragnar Kjartansson fyrrver-
andi stjórnarformaður Haf-
skips hefur sent saksóknara 180
síðna skýrslu eftir sig um rann-
sókn Hafskipsmálsins og segir í
tilkynningu frá Ragnari að
,4mælisverð atriði“ samandregin
í lok hvers skýrslukafla séu nær
tvöhundruð talsins.
Ragnar hefur ekki birt skýrslu
sína opinberlega, en telur að
mörg hinna „ámælisverðu atriða“
geti brotið í bága við lagafyrir-
mæli um meðferð opinberra
mála, og er Ragnar nú að athuga
ásamt lögmönnum sínum hvort
hann eigi að óska eftir opinberri
rannsókn á rannsókn Haf-
skipsmálsins, þarsem „talið“ sé
að „rannsóknarferill málsins ein-
kennist af óskiljanlegum keðju-
verkandi mistökum rannsóknar-
aðila“.
í tilkynningu Ragnars um
skýrsluna segir að hafinn sé
undirbúningur að „ítarlegri út-
tekt á umfjöllun fjölmiðla um
Hafskipsmálið og áhrifum henn-
ar á rannsóknarmeðferð þess“.
Umfjöllun alþingis um málið
verði einnig athuguð með hlið-
stæðum hætti, „m.a. með hlið-
sjón af meintum pólitískum áhrif-
um á framgang málsins í Skipta-
rétti Reykjavíkur og hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins".
Ragnar segir að síðar verði
„tekin afstaða til hugsanlegrar
opinberrar birtingar^ á skýrsl-
unni“.
að minnsta kosti bjargað sex
mannslífum á þessu ári.
„Þessari þjónustu hefði lokið
formlega í gær ef ekki hefði kom-
ið til boð frá Landssambandi
hjálparsveita skáta um að greiða
kostnaðinn í einn mánuð, í þeirri
von að stjórnvöld tækju við sér,
og það hafa þau nú gert.“
„Það er mjög mikilvægt að í
þessari samvinnu eru alltaf sömu
mennirnir, þeir hafa æft með
okkur og geta gengið í sín verk án
fyrirvara,“ sagði Páll Halldórs-
son yfirflugstjóri Landhelgisgæsl-
unnar í samtali við Þjóðviljann.
„Auk þess að vera tilbúnir í
sjúkraflug hvenær sem er hafa
þeir á sér kalltæki þannig að sjó-
farendur og aðrir geta haft sam-
band við þá og spurt ráða og jafn-
framt hvort nauðsyn sé á þyrlu
eða ekki.
Mjög hefur minnkað að við
þurfum að leita til hersins um að-
stoð við björgunarstörf nú orðið.
Aðeins þarf að leita til þeirra ef
fara þarf lengra en 180 mflur á haf
út, en það er flugdrægi TF-SIF."
-vd.
7 dagar
til jóla
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dœmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn Ijóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Samningarnir
Miðvikudagur 17. desember 1986 288. tölublað 51. drgangur
Skólaakstur
Sveitarfélögin Ilátin borga
Tillögur menntamálaráðherra um skólaakstur líta dagsins Ijós: 90 miljón króna niðurskurður. Nær
helmingur framlaganna í ár. Þingmenn fá örfáa daga til að fjalla um málið
syni á alþingi í gær. Fyrirspurn
Hjörleifs hefur raunar legið fyrir í
tvo mánuði og formlegt svar við
henni hefur ekki enn litið dagsins
ljós, og átaldi Hjörleifur seina-
ganginn harðlega. Áætlanir
Sverris um niðurskurð á fram-
lögum til þessara málaflokka
liggja nú hjá meirihluta fjárveit-
inganefndar, en þingmenn hafa
enn ekki séð þessar tillögur. Hins
vegar er áformað að afgreiða
fjárlögin á föstudaginn, þannig
að þingmenn fá mjög skamman
tíma til þess að fjalla um málið.
Sverrir lagði tillögur sínar fyrir
ríkisstjórnarfund í gærmorgun,
en stjórnarflokkarnir munu fjalla
um þær á þingflokksfundum í
dag.
Eins og menn muna gerði
menntamálaráðherra mikið fjað-
rafok vegna kostnaðar við skóla-
akstur síðla sumars á þessu ári
boðaði þá verulegan niðurskurð
á framlögum ríkisins. Upphæðin
sem ráðherrann nefndi í gær
nemur nánast helmingi þess sem
fór til þessara mála á þessu ári.
-gg
Svcrrir Hermannsson mennta- reksturs mötuneyta og gæslu í fjármunum verður velt yfir á bættur skaðinn.
málaráðherra hyggst skera heimavistum á næsta ári niður sveitarfélögin, en enn er óvíst Þetta kom fram í kjölfar fyrir-
framlög ríkisins til skólaaksturs, um 90 miljónir króna. Þessum hvort og þá hvernig þeim verður spurnar frá Hjörleifi Guttorms-