Þjóðviljinn - 17.12.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Skákkapparnir frá Dubai ásamf einum þungum mánni úr pólitíkinni: Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Jóhann Hjartarson, Sverrir Hermannsson, Karl Þorsteins, Guðmundur
Sigurjónsson, Kristján Guðmundsson, Þráinn Guðmundsson. (mynd : EÓI.)
Ólympíuskáksveitin
Peir verða ekki bomir ofíofi
Menntamálaráðherra heiðrar Dubai-farana og setur fram hugmynd um ríkisrekinn skákskóla
Skákskóli ríkisins? í hófi sem
Sverrir Hermannsson hélt
skákmönnum í gær I tiiefni
Dubai-mótsins kastaði hann fram
þeirri hugmynd að stjórnvöld
styddu skáklistina með einhverj-
um slíkum hætti: „nú eða aldrei
hljóta ráðamenn að stíga á stokk
og strengja þess heit að efla vöxt
og viðgang skákarinnar,“ sagði
Sverrir, og þakkaði Dubai-förum
í nafni þjóðarinnar: „þið verðið
ekki bornir oflofi“.
Sverrir sagðist vera með í burð-
arliðnum tillögur um skákskóla
sem rekinn yrði fyrir ríkisfé, en
eftir væri að fullmóta þær tillögur
í samráði við forystumenn í skák-
hreyfingunni.
í hófið í Ráðherrabústaðnum
við Tjörnina í gær voru komnir
skákmennirnir sex frá ólympíu-
mótinu í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, liðstjóri þeirra
og Skáksambandsforseti, for-
ystumenn í skáklífi, fornir skák-
kappar og fjöldi annarra gesta.
Þráinn Guðmundsson þakkaði
menntamálaráðherra boðið og
hlý orð fyrir hönd Duabi-hópsins
og skákforystunnar, og sagði vel-
vilja menntamálaráðherra og fyr-
irrennara hans eiga sinn þátt í
góðum árangri skákmannanna, -
allra mest væri þó vert að allur
almenningur fylgdist með þeim,
veitti þeim aðhald og fagnaði af-
rekum þeirra.
—m
Húsnœðismál
Alexander vaknaður
Átta þúsund manns eiga samtals 12 miljónir inni hjá Húsnæðisstofnun
^-ORFRETTIR—
Kornelíus
Sigmundsson
sendifulltrúi í utanríkisráðuneyt-
inu hefur veriö ráðinn forsetaritari
í stað Halldórs Reynissonar sem
tekur við Hrunaprestakalli eftir
áramótin. Kornelíus er 39 ára
gamall hagfræðingur og hefur
starfað í utanríkisþjónustunni síð-
an 1973. Hann er giftur Ingu Her-
steinsdóttur verkfræðingi.
13.5% verðbólga
hefur verið að jafnaði á þessu ári
samkvæmt útreikningum
kauplagsnefndar á vísitölu fram-
færslukostnaðar. í byrjun des-
ember var vísitalan orðin 180.85
stig og var þá orðin 0.91 % hærri
en í nóvemberbyrjun. Helmingur
hækkunarinnar stafaði af hærra
matvöruverði.
Öllum smábátum
undir 10 brl. er bannað að stunda
bolfiskveiðar frá og með I5. des-
ember til 15. janúar n.k.
Forstjóri Finlandia-
hússins
í Helsinki, dr. Carl Öhman, heldur
fyrirlestur í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20.30 um efnið „Norden
í Várlden." Carl Öhman er mál-
fræðingur að mennt og kenndi
áður latínu og norræn mál.
Foreldrafélög
dagvistar-
heimilanna
Lækjarborgar og Vifilstaðaspít-
ala lýsa yfir fullum stuðningi við
kjarabaráttu fóstra og hvetja
stjórnvöld til að taka þegar í stað
upp viðræður um kaup og kjör
fóstra.
Gallerí Svart á hvítu
við Óðinstorg, hefur opnað sölu-
sýningu á smámyndum eftir
unga myndlistarmenn. Sýningin
stendurfram á aðfangadag og er
opið alla virka dagafrákl. 14-18.
Verkalýðsráð
Flokks mannsins
mótmælir harðlega kjarasamn-
ingum ASÍ og VSl og hvetur alla
launþega til að fella þá í félögum
sínum.
Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra sagði á alþingi í
gær að tæplega 8000 lánþegar
ættu rúmlega 12 milljónir króna
inni hjá byggingarsjóði vegna of-
reiknaðrar lánskjaravísitölu allt
frá árinu 1983. Ákveðið hefur
verið að endurgreiða þessa pen-
inga.
Tildrög þessa eru þau að ríkis-
stjórnin ákvað í september árið
1983 að hækkun lánskjaravísitölu
skyldi þá verða 5,1 % í stað 8,1%.
Húsnæðisstofnun var falið að sjá
um að hrinda þessari samþykkt í
framkvæmd, en ákvörðunin var
aðeins látin gilda fyrir september
mánuð 1983. Það leiddi til þess að
lán um 8000 manns urðu of há allt
fram á þennan dag.
Alexander svaraði fyrirspurn
Kolbrúnar Jónsdóttur um málið í
gær og skellti skuldinni á starfs-
menn Húsnæðisstofnunar. Hann
sagði að Húsnæðisstofnun hefði
ítrekað verið falið að framfylgja
samþykkt stjórnarinnar, en ár-
angurslaust.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi
félagsmálaráðherra harkalega
vegna þessa máls og stefnu
Meiri afli en búist var' við í
haust og hækkað útflutn-
ingsverðlag, einkum í október og
nóvember, eru að sögn Jóns Sig-
urðssonar forstjóra Þjóðhags-
stofnunar meginástæðurnar fyrir
breyttri þjóðhagsspá sem lögð
var fram fyrir helgi og þar sem
spáð var 4-5% hagvexti á næsta
ári í stað 2% hagvaxtar áður.
Önnur atriði sem Jón nefndi er
stjórnarinnar í husnæðismálum í
gær. Svavar Gestsson Alþýðu-
bandalagi sagði ráðherrannn
hafa snúist í marga hringi í málinu
bættur viðskiptajöfnuður þar eð
útflutningur hefur gengið örar
fyrir sig en oft áður. Gengið hefur
á birgðir sem til voru í landinu og
aukin ísfiskssala hefur þýtt
hraðara peningastreymi inn í
landið en áður. Um hvort þjóð-
hagsspár Þjóðhagsstofnunar
væru nokkurn tímann réttar sagði
Jón að ekki væri ástæða til þess að
ætla að þjóðhagsspár hittu ná-
og saga þess væri með miklum
ólíkindum.
„Það er greinilegt að félags-
málaráðherra hefur verið
kvæmlega í mark þegar ytri að-
stæður breyttust jafn ört og raun
ber vitni. „Ég tel nú reyndar að
hugmyndirnar um framvindu
efnahagsmála sem lýst hefur ver-
ið á árinu, hafi í aðalatriðum ver-
ið réttar. Hins vegar sáum við
ekki nákvæmlega fýrir hversu öfl-
ug uppsveiflan varð,“ sagði Jón.
Loks sagði Jón að þær upplýs-
ingar sem þessi spá væri byggð á
steinsofandi í þessu máli í þrjú ár
og það er aumt að ásaka nú emb-
ættismenn um hvernig komið
er,“ sagði Svavar. -gg
hefðu verið sendar samtökum
launafólks og vinnuveitenda fyrir
miðjan nóvember þannig að for-
sendur þeirra niðurstaðna sem
liggja fyrir nú hafi verið þessum
aðilum vel kunnar í megin-
atriðum áður en til samningsvið-
ræðna kom.
-K.ÓI.
Miðvlkudagur 17. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Sérkennsla
Umdæmum stóriega mismunað
Geysilegur niðurskurður á sérkennslu miðað viðþörfút um landið. Reykjavík
nýtur algerrar sérstöðu
Reykjavíkurumdæmi er eina
fræðsluumdæmið á landinu
sem kemst nálægt því að fá
fullnægjandi fjárveitingar til
sérkennslu í grunnskólum. Ann-
ars staðar er þessi kcnnsla stór-
lega skorin niður og mat fræðslu-
stjóra umdæmanna um þörf á
sérkennslu í raun og veru að engu
að engu haft.
í svari menntamálaráðherra
við fyrirspurn Steingríms J.
Sigfússonar Alþýðubandalagi
kemur fram að í Reykjavík er
metin þörf fyrir sérkennslu á
næsta ári 1543 stundir, en heimil-
uð kennsla samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi er 1533 stundir.
Þegar litið er á önnur umdæmi
lítur dæmið allt öðruvísi út. Það
er mat fræðslustjóra Vesturlands
að þörf sé á 679 sérkennslustund-
um, en áætlun menntamálaráðu-
neytisins hljóðar upp á 318 stund-
ir. Sambærilegar tölur fyrir Norð-
urland eystra eru 950 og 300
stundir, þannig að umdæmið fær
aðeins fjárveitingu til þess að
veita innan við þriðjung þeirrar
sérkennslu sem talin er þörf á.
Á Norðurlandi véstra er talin
þörf á 450 sérkennslustundum á
næsta ári, en ráðuneytið veitir að-
eins heimild fyrir 110 stundum. Á
Vestfjörðum er þörfin 230, en
áætlun hljóðar upp á 140. Annars
staðar er útkoman svipuð.
í yfirliti yfir þróun þessara
mála kemur fram að hún hefur
verið svipuð á undanförnum
árum. Reykjavík hefur orðið
minnst fyrir barðinu á skurðhníf
Sverris Hermannssonar, en
önnur umdæmi hafa mátt þola
miskunnarlausan niðurskurð
miðað við metna þörf ár eftir ár.
-gg
Samningarnir
Vissu um nyju spana
Meiri afli en búist var við og betra úflutningsverð meginástœðurfyrir breyttri spá.
Jón Sigurðsson: Upplýsingarnar lágufyrir um miðjan nóvember