Þjóðviljinn - 17.12.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.12.1986, Blaðsíða 2
Hvað áætlar þú að jólin muni kosta þig? Júlíus Sigurðsson, vélstjóri: Biddu fyrir þér! Ég þori ekki að hugsa út í það. Það verður allt of mikið. Björn A. Erlingsson, nemi: Ég er nú ekkert farinn að hugsa út í það. Ætli þetta verði ekki allt í allt u.þ.b. 25 þúsund krónur. Helga Snorradóttir, húsmóðir: Guð minn góður, ég veit það ekki! En ætli ég segi ekki svona 100 þúsund krónur í jólagjafir og heimilishald. Katrín Eyjólfsdóttir, afgreiðslustúlka: Lágmarkið verður 15 þúsund krónur í jólagjafir og svo eyðir maður uppundir 10 þúsundum í heimilishaldið. Ásta Bjarnadóttir, sjúkraliði: Það er nú ekki gott, aö segja. Þetta verður gríðarlega mikið. A.m.k. 15 þúsund fara bara í jóla- gjafir. FRÉTTIR Álverið Rafmagnsverðið óbreytt Forsendur rafmagnssamningsins frá 1984 standast ekki. Óbreytt raforku- verð, 12,5 mill, frál985. Verðið á nœsta ári84% afþvísem œtlað var Meðalverð sem ísal borgaði fyrir raforkuna í fyrra var 12,5 mill á hverja kflóvattstund og á þessu ári hefur verðið verið svipað, þó það hafí náð 12,7 millum á þriðja ársijórðungi. Samkvæmt forsendum síðasta álsamnings, sem samþykktur var á alþingi í nóvember 1984, átti raforkuverðið í fyrra að vera 13,8 mill að meðaltali, 14,7 á þessu ári og spáin fyrir næsta ár var 16,1 mill. Nú, tveimur árum síðar er búist við að raforkuverð á næsta ári verði 13,5 mill að meðaltali, eða aðeins 84% af því sem spáð var 1984. Þetta kemur m.a. fram í skrif- legu svari Alberts Guðmunds- sonar við fyrirspurnum Hjörleifs Guttormssonar um þróun rafork- uverðs til ísals á árunum 1985- 1987. í svarinu kemur fram að tekjur Landsvirkjunar af orkusölu til ísals á árinu 1985 námu 15,3 milj- ónum dala, en við gerð síðasta álsamnings var því spáð að tekj- urnar yrðu 19 miljónir dala 1985. Sömu sögu er að segja um 1986 og 1987. Spá fyrir 1986 var 20,1 miljón dala í tekjur, reyndin verður 16,5 miljónir, spáin fyrir 1987 var 22,1 miljón en nú er áætlað að tekjur Landsvirkjunar á næsta ári verði ekki nema 18,7 miljónir dala. Spárnar hafa samkvæmt þess- um svörum engan veginn staðist, hvorki hvað varðar orkusöluna sjálfa, sem hefur verið minni en ætlað var, verðið, sem hefur ver- ið Iægra á hvert mill og heildar- tekjurnar sem Landsvirkjun var spáð. Verslunareigendur hafa víða boðið viðskiptavinum að taka forskot á sæluna í jólainnkaupum með því að byrja nýtt kortatímabil fyrr en venjulega. Mynd: Sig. Greiðslukort Tilboð um nýtt kortatímabil Verslanirbjóða viðskiptavinum að versla á kortatímabili sem tekur gildiþ. 1 ‘8. allavikuna. Um 200 Visaumsóknir afgreiddar daglega. Um 80þúsund korthafar í landinu. Ragnhildur Bender: Viðskipti hafa aukist eftir að tilboðið vargert Nokkrar verslanir á höfuðborg- arsvæðinu hafa gert viðskipt- avinum það tilboð að nota greiðslukort sitt nú án þess að til endurgreiðslna komi í janúar eins og reglurnar segja til um. Tíma- bilið sem gerir ráð fyrir endur- greiðslum í janúar hefst ekki fyrr en þ. 18 desember en margir virð- ast bíða með jólainnkaupin þar til nýja greiðslutímabilið hefst. „Við gerum viðskiptavinum þetta tilboð til þess að við fáum ekki yfir okkur alla dembuna á fimmtudaginn,“ sagði Ragnhild- ur Bender verslunarstjóri hjá Bókabúð Braga í samtali við Þjóðviljann. „Að öllum jafnaði greiða um 20% af viðskiptavin- unum með greiðslukortum en frá því að við gerðum þetta tilboð hefur hlutfallið verið hærra og viðskiptin aukist“. „ Við höfum ekki afskipti af því hvernig menn haga sinum sam- keppnismálum," sagði Magnús Finnbogason framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna. „Hitt er annað mál að okkur þykir eðli- legt að þeir sem nota kortin greiði kostnaðinn af þeim sjálfir svo hann lendi ekki á þeim sem kjósa að nota ekki kort, því að sjálf- sögðu hleypur kostnaðurinn út í verðlagið," sagði Magnús og benti á að í Noregi væri búið að breyta lögunum þannig að kort- hafar greiddu sjálfir kostnaðinn. Hjá Visa fengust þær upplýs- ingar að umsóknir um greiðslu- kort hafa aukist nokkuð í des- embermánuði og eru nú um 200 umsóknir afgreiddar daglega. Þá fengust þær upplýsingar að kort- hafar séu alls um 80 þúsund en það svipar til fjölda heimila á öllu landinu. -K.Ol. Útgáfa Ný bók um saumaskap Nákvæmar teikningar. Óreyndir karlar gœtu jafnvelsaumað Fyrsta bókin sem birst hefur um saumaskap kemur út á þessu hausti hjá bókaútgáfunni Óðinn, þýdd úr þýsku af Fríði Ólafsdóttur, sem er lektor í hand- menntum. „Einn stærsti kostur þessarar bókar eru frábærar teikningar, sem sýna nákvæm- lega hvernig á að bera sig til við saumaskapinn,“ sagði Fríður í stuttu spjalli í tilefni af útkomu bókarinnar. „Þær gera það að verkum, að meira að segja ó- reyndir karlar eiga hægt með að leggja til atlögu við saumana.“ lbókinni er útskýrt nákvæm- lega, hvernig öll vinna við sniðn- ingu og saumaskap fer fram. Næstum hverju atriði fylgir vinn- uteikning sem sýnir greinilega hvað gert er hverju sinni. M.a. eru nákvæmar leiðbeiningar um: máltöku, sniðningu, mátun, kraga, ermar, vasa, klaufar, falda, fóður, hnappagöt, herra- buxur, dömubuxur, rennilása, breytingar á sniðum, meðhöndl- un mismunandi efna, hvernig saumað er úr leðri o.m.fl. „Með hjálp þessarar bókar ættu jafnvel óvanar saumakonur og óvanir saumamenn að geta fundið lausn á öllum vandamál- um sem kynnu að koma upp við saumaskapinn,“ sagði Fríður að lokum. - m 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 17. desember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.