Þjóðviljinn - 17.12.1986, Qupperneq 13
Nemendur
í spænskum menntaskólum sátu
heima í gær eða settust að í
skólastofum og í dag verður alls-
herjarverkfall meðal þeirra. Líkt
og félagar þeirra í Frakklandi, eru
spænskir námsmenn að mót-
mæla háskólakerfi landsins.
Námsmennirnir krefjast greiðari
aðgangs að háskólum landsins
og lægri skólagjalda. Þeir hafa
orðið fyrir miklum áhrifum af
námsmönnum í Frakklandi og
baráttu þeirra undanfarið. Tals-
maður námsmannasamtakanna
sagði í gær að af þátttöku náms-
manna í aðgerðum þá um daginn
mætti fullvíst telja að þátttaka í
verkfallinu í dag yrði geysimikil.
En víða á Spáni voru námsmenn
þegar komnir í verkfall í gær. [
borginni Almeira við Miðjarðar-
hafið voru 30.000 nemendur í
menntaskólum komnir í verkfall.
Þá fóru mörg þúsund námsmenn
í fjöldagöngu um götur Sevilla í
gær til að mótmæla inntökupróf-
um í háskólana. Leiðtogar náms-
manna gera ráð frir því að um
300.000 námsmenn víða um
Spán muni taka þátt í aðgerðum í
da9 Fjöldi
látinna í óeirðunum í Karachi í
Pakistan er nú orðinn að minnsta
kosti 157. Lík 25 manna voru
færð á sjúkrahús í borginni en
aðeins fjórir þeirra létust í gær.
Tveir þeirra voru skotnir fyrir að
rjúfa vopnahlé það sem nú er i
gildi í Karachi. Talsmaður hers-
ins sagði ástandið mun betra en
herinn og menn úr sjóhernum
voru kvaddir á vettvang. Þetta
eru mestu og mannskæðustu
óeirðir sem orðið hafa í Karachi í
langa tíð.
Fahd
konungur Saudi Arabíu rak í gær
yfirmann ríkisolíufyrirtækis
landsins, Petromin. Þettaerann-
ar helsti olíufrömuður Saudi Ara-
bíu sem settur er af í landinu á
tveimur mánuðum. Abdul-Hadi
Taher heitir maðurinn. Hann
hafði verið forstöðumaður fyrir-
tækisins frá því það var stofnað
árið 1962. Olíumálaráðherra
landsins, Ahmed Zaki Yamani
var rekinn 29. október síð-
astliðinn, hafði þá greinilega lent
upp á kant við Fahd konung í olí-
umálum.
ítalskir
námsmenn hafa, líkt og félagar
þeirra í Frakklandi og á Spáni,
mótmælt stefnu yfirvalda í málum
framhaldsskóla og háskóla.
(talskir námsmenn settust að í
háskólum í Róm, Turin, Milanó,
Palermo, Feneyjum, Pisa, Gen-
óa og Napólí. Það voru ungliðar í
Kommmúnistaflokknum sem
skipulögðu aðgerðirnar. Á (talíu
er fyrirhugað að setja reglur sem
leyfa rektor hvers háskóla að á-
kveða inntökugjald í skólann.
Nemendur halda því fram að slíkt
muni leysa í sundur æðra
menntakerfi ítalska ríkisins. Fyrir
viku síðan leystist friðsamleg
mótmælaganga upp í óeirðir við
lögreglu þegar öfgasinnar til
hægri komu sér inn í gönguna og
efndu til átaka.
Evrópubandalagið
hefur komist að samkomulagi um
hámark á kjöt- og mjólkurbirgð-
um bandalagsþjóða og er þetta
samkomulag sagt vera tíma-
mótasamkomulag. Fulltrúar
sögðu að ákvæðið um kjötbirgðir
hefði náðst eftir að írar höfðu
beitt neitunarvaldi sínu á fyrri til-
lögu. Sú tillaga hefði haft veruleg
áhrif á þeirra kjötframleiðslu sem
er 3,5 % þjóðarframleiðslunnar í
heild. Deilur um þessa kvóta hafa
staðið lengi meðal bandalags-
þjóða.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /o r i n r d
HJÖRLEIFSSON KtU I t K
HEIMURINN
Reagan/North og Poindexter
Friðhelgi til að svara
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það við öldungadeild Banda-
ríkjaþings að hún veitiþeimfyrrum Þjóðaröryggisráðsmönnum North ofursta og
Poindexter aðmírálfriðhelgi svo þeirfáist til að svara spurningum um
vopnasöluna til írans og um peningasendingar til Contra samtakanna
Washington - Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti hvatti í gær
bandaríska þingið til að veita
þeim Oliver North og John Po-
indexter friðhelgi fyrir mögu-
legri saksókn ef það mætti
verða til þess að tvímenning-
arnir fengjust til að bera vitni
fyrir þingnefnd um íran-
hneykslið. Þá komu þeir Don-
ald Regan, starfsmannastjóri
Hvíta hússins, og George
Shultz fyrir þingnefnd öld-
ungadeildarinnar í gærkvöldi.
Sífellt fleiri krefjast nú afsagn-
ar Regans. Hann hefur hins
vegar lýst því yfir að hann
muni ekki segja af sér emb-
ætti.
Það var talsmaður Hvíta húss-
ins Larry Speakes sem tilkynnti
um ákvörðun Reagans í gær. f
yfirlýsingu sem hann las sagði
m.a.: Forsetinn vill að allt sem
snertir þetta mál verði gert opin-
bert nú þegar. Forsetinn hefur
farið fram á það við öldunga-
deildina að hún skipi sérstaka
nefnd til að fá fram friðhelgi fyrir
Poindexter og North svo allur
sannleikur í málinu geti komið
fram í dagsljósið."
Líklegt er talið að með því að
senda fjármagn til Contra sam-
takanna svonefndu, eins og talið
er að North hafi gert, hafi banda-
rísk lög verið brotin. Á þeim tíma
sem peningasendingarnar áttu
sér stað hafði Bandaríkjaþing
sett bann á bandaríska hernaðar-
aðstoð við Contra samtökin.
Speakes var spurður að því
hvers vegna forsetinn hefði ekki
kallað þá North og Poindexter á
fund til sín og krafið þá sagna.
Speakes sagði að slíkt hefði verið
tilgangslaust. Peir hefðu þá vísað
til 5. greinar bandarísku stjórnar-
skrárinnar sem heimilar þeim að
neita að svara spurningum ef það
gæti mögulega verið notað gegn
þeim til sakfellingar. Þó svo Re-
agan hafi margoft lýst því yfir að
hann vildi sem fyrst fá fram allan
sannleikann í málinu hefur hann
verið ítrekað gagnrýndur fyrir að
beita sér persónulega ekki að
fullu í því efni.
Noregur/Ríkisstjórnin
Orngg með fjárlög
Ríkisstjórn Noregs hefur náð samkomulagi við tvo
stjórnarandstöðuflokka umfjárlagafrumvarp sitt og telur sig nú
örugga umframgangþess
Osló - Ríkisstjórn Verka-
mannaflokksins í Noregi telur
sig nú örugga um að koma
fjárlagafrumvarpi sínu i gegn-
um þingið þar sem hún hefur
fengið stuðning tveggja
stjórnarandstöðuflokka við
frumvarp sitt.
í haust taldi stjórnin að ekki
yrði erfitt að koma áætluninni í
gegnum þingið þar sem stjórnar-
andstöðuflokkarnir voru klofnir í
afstöðú sinni til einhvers valkosts
við hugmyndum Verkamannafl-
okksins. Að undanförnu hefur
hins vegar ríkt óvissa í þessum
málum. Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs
sagði í fyrradag að ríkisstjórnin
hefði komist að samkomulagi við
Kristilega flokkinn og Miðflokk-
inn um fjárlagafrumvarpið eftir
að hafa gert málamiðlun í skatt-
amálum. „Fjárlögin hafa sinn
styrkleika og einnig veikleika en
þegar á heildina er litið mun okk-
ur takast að verja það,“ sagði
Brundtland við fréttamenn í gær.
íhaldsmenn hafa deilt hart á
Verkamannaflokkinn fyrir að
gera ekki ráð fyrir nauðsynlegum
samdrætti í fjárlögum ríkisins
Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, á norska Stórþinginu. Segir
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar sinnar í höfn.
vegna minnkandi olíutekna.
Aðrir stjórnarandstöðuflokkar
settu íhaldsmenn hins vegar út í
kuldann þegar þeir gátu ekki
samþykkt hugmyndir íhalds-
manna vegna þess hversu harka-
legan niðurskurð þær fælu í sér.
Deilur á þingi um fjárlaga-
frumvarpið virðist hafa verið
undarlegar í augum norskra kjós-
enda, ef marka má nýlega skoð-
anakönnun eins norsku dagblað-
anna. Þar kemur fram að þrír af
hverjum fjórum aðspurðra
treysta sínum kjörnu fulltrúum
minna en fyrir tveimur árum síð-
an. Samkvæmt könnuninni álítur
mikill fjöldi fólks í Noregi að um-
ræður flokkanna á þingi um fjár-
lög sýndu að stjórnmálamennirn-
ir bæru frekar hag flokkana fyrir
brjósti en þjóðarhag.
Eureka
Fmmkvæði til fyrirtækja
Brussel - Ráðherrar 19 þjóða
hittast í dag í Stokkhólmi til að
ræða framgang Eureka há-
tækniáætlunarinnar sem er
svar Evrópuþjóða við há-
tæknirannsóknum Japan og
Bandaríkjanna.
Diplómatar sögðu í gær að ráð-
herrarnir myndu líkast til leggja
áherslu á það lykilhlutverk sem
iðnfyrirtæki gegna í þessu starfi,
til þess að örva hæfni evrópskra
rannsóknarmanna til að fram-
leiða hátæknivörur. Þá er einnig
búist við að ráðherrarnir bæti ein-
um 40 verkefnum við þau verk-
efni sem nú er unnið að sam-
kvæmt Eureka áætluninni. Með-
al þess nýja í þessum málum má
nefna háþróaða leysigeislaprent-
ara, gervi plöntufræ og hátækni-
verksmiðjur.
Pað var Francois Mitterrand
sem kynnti Eureku hugmyndina
fyrir 18 mánuðum. Hann taldi
nauðsyniegt að Evrópuþjóðir
kæmu með valkost til mótvægis
Sri Lanka/Tamílar
Innbyrðis átök
í Ijósi vœntanlegra samninga um sjálfstjórn Tamíla á Sri Lanka hafa
verið mikil átök milli ýmissa þjóðfrelsishreyfinga undanfarna daga
umforræði ísamningum við stjórnvöld
lolombo - Stærstu aðskilnað-
rsamtök Tamíla á Sri Lanka,
reisishreyfing Tamíl tígra,
iafa því næst útrýmt öðrum
ðskilnaðarsamtökum Tamíla
ig virðast hafa náð forystu
iður en viðræður um að binda
inda á stríðið á Sri Lanka hefj-
ist.
íbúar í heimahéruðum Tamfla
segja að Tamfl tígrarnir hafi næst-
um gert Þjóðfrelsisfylkingu Eel-
am óstarfhæfa með miklum árás-
um á stöðvar þeirra sem hófust á
laugardaginn á norður- og
austurhluta Sri Lanka. í dag hefj-
ast í Colombo, höfuðborg Sri
Lanka, viðræður fulltrúa ríkis-
stjórna Sri Lanka og Indlands um
áætlun sem gerir ráð fyrir nokk-
urri sjálfstjórn Tamfla.
Tamfl tígrarnir hafa hafnað
þessum hugmyndum og krefjast
fullkominnar sjálfstjórnar undir
nafninu Eelam á norður- og
austur hluta Sri Lanka. Rúmlega
4.500 rnanns hafa nú látist í
skærum aðskilnaðarsveita Ta-
mfla gegn stjórnarher Sri Lanka.
Átökin hafa staðið yfir í þrjú ár.
við SDI („Stjórnustríðsáætlun-
in“) áætlun Bandaríkjanna sem
er hernaðarlegt verkefni en felur
í sér fjölbreyttar hátæknirann-
sóknir.
Nú taka 12 þjóðir Evrópu-
bandalagsins þátt í þessu verkefni
en auk þeirra eru ísland, Svíþjóð,
Noregur, Finnland, Austurríki,
Tyrkland og Sviss þátttakendur.
Nokkrar þessara þjóða, þar á
meðal Bretland og V-Þýskaland,
hafa hins vegar ákveðið að taka
þátt í rannsóknarþætti „Stjörn-
ustríðsáætlunarinnar" að auki.
Eureka er nú talin hafa misst
nokkuð af fyrri drifkrafti sínum.
Það er m.a. vegna þátttöku nokk-
urra Evrópuþjóða í Stjörnu-
stríðsáætluninni. Einnig vegna
þess að margar Evrópuþjóðir
hafa ekki verið tilbúnar að leggja
jafnmikið fé af hendi til verkefn-
isins eins og Frakkar. Núverandi
formaður Eureka nefndarinnar
er frá Svíþjóð og vill nú auka
frumkvæði fyrirtækja í iðnaði.
Með það fyrir augum hefur hann
nú fengið m.a. Per Gyllenham-
mar, formann Volvosam-
steypunnar í Svíþjóð, til að
ávarpa fundinn í dag.
Miðvlkudagur 17. desember 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13