Þjóðviljinn - 21.12.1986, Blaðsíða 18
KROSSGATA
NR. 549
1— 2 3 </ 5" z— W~ J~~ H W~ 9 9— 10 02 i—
7i~ 0? 1Z /3 )Z $ 9 )> ,s£ V- lé> )7 16' IV
i*) 3 n~ n ir Zb z 9 20 IV T~ )í *> $
3 1/ 02 T~ )> 8 S' w 02 V ¥ 9 )l
2Í 75 £ 02 3 3 53 3 2% !á> 02 2S )i> Zo
5 02 3 2 Zö W~ Z7 28 9 3 16' )6> 2é>
Zp 13 w~ Zo 02 17 02 V ? w 02 * 2V- & 23
iL 17 w vr 2o 02 )% 7 T~
W~ $ \8 02 3 z 8 r 51 02 \ÍD 2V
n 02 )Q- /7 T~ £ 02 ll Zo % i y* v * ¥■
17 T/ y— 16 Zé> 02 )<* 17 02 \7 s 6' V-
% U y s M Ú 02 )+ T~ 2o )lo V- T~ y
02 17- 3 Zo 02 3/ zé 02 il V- 02 T~ /Y
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni á
Vesturlandi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
549“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verðasend til vinn-
ingshafa.
10 30 13 13 13 18 3 8
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Brynhildur Skeggja-
dóttir, Safamýri 48,
Reykjavík, hlaut verö-
laun fyrir krossgátu nr.
545. Lykilorðið var
Grábrók. Hún fær senda
Stóru skordýrabókina frá
Fjölva.
Verðlaunin fyrir
krossgátuna þessa vik-
una er Fjölvabókin um
Seinni heimsstyrjöldina.
Höfundur er Ronald
Heiferman.
SKAK
Skák, fiskur og meistarar
Ýmislegar líkingar má finna
með fiskveiðum og skáktafli.
Skákmótin svara til veiðanna
sjálfra þar sem sumir róa á gjöf-
ulli mið en aðrir og eins eru menn
misfengsælir. Fremstu meistar-
arnir geta kallast aflakóngar
skákborðsins því ekki er öllum
gefið að finna góð mið eða vinna
sterk mót.
Eftir að skákmótum er lokið og
meistararnir hafa fengið sín föstu
laun og/eða aflahlut hefst
vinnslan. Merkustu skákimar eru
vinsaðar úr (sbr. að þorskur þykir
verðmeiri en karfi), þær prentað-
ar og skýrðar í mismunandi
formi. Sumar skákir eru hrað-
frystar í fræðileg skáktímarit
handa fagmönnum til neyslu eða
frekari úrvinnslu en aðrar fara í
neytendaumbúðir í blöðum,
skákdálkum eða bókum.
Svo líkingunni -sé haidið áfram
þá eru neytendur afar ólíkir.
Sumir rífa blessaðan fiskinn í sig á
hlaupum um leið og þeir kíkja á
stöðumyndir og renna yfir leikina
íhuganum. Aðrirtefla skákirupp
úr fínum bókum á skrauttöfl í
sparistofunni eftir góðan máls-
verð við Sjávarsíðuna eða í
Naustinu en flestir fara líklega bil
beggja, ljúka við soðninguna og
kartöflurnar og skoða svo áhuga-
verðar stöður og skákir í ró-
legheitum.
Stundum finnur maður bein í
fiskinum sínum og á sama máta er
iíka stundum hægt að finna af-
leiki eða ónákvæmni í skákum
meistaranna. Eina slíka flís fann
velski skákmeistarinn George
Botterill í 11. skák nýafstaðins
heimsmeistaraeinvígis eftir 22.
leik svarts:
Hvítt: Karpof
Svart: Kasparof
Karpof lék hér 23 Rexg6+
hxg6 24. Dxg6 De5 25. Hf7 Hxf7
26 Dxf7 Rg5 27. Rg6 + Kh7 28.
Rxe5 Rxf7 28. Rxf7 Kg6 og svart-
ur stóð örlitlu betur í endataflinu
þótt skákinni lyktaði með jafn-
tefli. Botterill vill láta hvít drepa
með hinum riddaranum. Þá hefur
riddarinn á e7 enn vald á g8-
reitnum og hvítur getur því hótað
máti á h-línunni:
23. Rhxg6+ - hxg6
24. Dxg6 - ...
Nú á svartur þrjár leiðir:
a) 24. ... - De5
25. Kxh3 - fxe3
Ef 25. ... Dxc7 26. Dh5+ og
mát í næsta leik.
26. Hhl - Hf4
27. g3
og svartur verst ekki máthót-
uninni á h-línunni.
b) 24. ... - Dh7
25. gxh3 - Hf6
Ef25. ...-Be5 kemur26. Hc5.
26. Dxh7+ - Kxh7
F- Hgl
og hvítur á að vinnaeftir 21. ...
Hf7 28. Rd5 eða 27. ... fxe3 28.
Rf5 því svarti kóngurinn er í
klemmu.
c) 24. ... - Hf5
25. gxh3 - fxe3
26. Dxh5+ - Hxh5
27. Rg6+ - Kg8
28. fxe3
Hvítur er peði yfír, hefur öfl-
ugan hrók á sjöundu röð og frum-
kvæði sem ætti að duga til vinn-
ings. Þetta er þó besta leið svarts.
Fleiri eru heimsmeistarar en
karlar. Heimsmeistari kvenna,
Maja Ciburdanidze, varði titií
sinn í haust gegn áskorandanum,
Akmylofskaju, af miklu öryggi.
Hún hlaut 8V2 vinning gegn 5Vz,
vann fjórar skákir og tapaði einni
en níu urðu jafntefli. Eitt dæmi
verður að nægja um taflmennsk-
una sem sýnir ákveðnar hliðar á
heimsmeistaranum:
Hvítt: Ciburdanidze.
Svart: Akmylofskaja.
1. d4 - Rf6 ii. a3 - Ra-c5
2. Rf3 - e6 12. b4 - Rxc3
3. g3 - b6 13. Bxc3 - Re4
4. Bg2 - Bb7 14. Bxf6 - Dxf6
5. 0-0 - Be7 15. Dd4 - Rg5
6. c4 - 0-0 16. Dxf6 - Rxf3+
7. Rc3 - Re4 17. Bxf3 - Hxf6
8. Bd2 - f5 18. Hf-dl - e5
9. d5 - Bf6 19. e4 - fxe4
10. Hcl - Ra6
JÓN
TORFASON
Hvítur hefur ekki teflt sérlega
hvasst. Hann hefur meira rými og
ágæt færi á peðaframrás á mið-
borði og drottningarvæng en hef-
ur ekki reynt að pína meira út úr
stöðunni en unnt er, t.d. leyft
stórfelld uppskipti sem hafa létt á
stöðu svarts. Hér lék svartur af
sér því nú fær hvíti biskupinn
aukið svigrúm og getur beitt sér
gegn kóngsvæng svarts. Betra var
19. ... g6 eð 19. ... f4.
20. Bxe4 - Ha-f8
21. Hd2 - d6
22. c5 - g6
Hvítur opnar c-línuna í næsta
leik og svartur leikur þessu til að
fría kónginn frá að valda h-peðið.
Hann á að valda reiti í borðinu
drottningarmegin.
23. cxb6 - cxb6 28. Kg2 - Hf6
24. Hd-c2 - He8 29. f3 - Ke8
25. Hc7 - Hf7 30. g4 - Kd8
26. h4 - Kf8 31. Kg3 - Hf-f7
27. H7-c3 - He-e7 32. H3-c2 - ...
Hér leikur svartur af sér öðru
sinni en staðan er samt orðin
mjög erfið. Hvítur hótar g4-g5,
Hh2 og h4-h5 x g6. Hvítur á að
vinna þá stöðu með tímanum.
32. ... - Hc7 35. h5 - gxh5
33. Hxc7 - Hxc7 36. g5 - Kd8
34. Hxc7 - Kxc7 37. Kh4
Svartur gafst upp því eftir 37.
... ke7 38. Kxh5 Kf7 39. Kh6 Kg8
fellur h-peðið með skák og hvítur
vinnur auðveldlega.'
Þetta er ekkert sérlega tilþrifa-
mikil skák en sýnir vel að Cibur-
danidze er praktískur skákmað-
ur. Hún fékk heldur frjálsara tafl
í byrjun, tefldi varlega og beið
færis. Þegar andstæðingurinri lék
af sér voru hins vegar engin grið
gefin.
BRIDGE
Sigurður, maður ársins
Frá því bridgeþáttur Þjóðviljans
hóf göngu sína, hefur umsjónarmað-
• ur, í lok hvers árs, valið bridgemann
ársins. Tvær reglur hafa gilt í vali
þessu. Aðeins einu sinni er hver spil-
ari útnefndur og hann verður að hafa
skarað fram úr á einhverjum sviðum
þeirrar íþróttar, sem við daglega
nefnum bridge.
Frá 1977 hafa eftirtaldir aðilar ver-
ið útnefndir:
1977: Skúli Einarsson
1978: Ásmundur Pálsson
1979: Þórarinn Sigþórsson
1980: Örn Arnþórsson
1981: Stefán Guðjohnsen
1982: Jón Baldursson
1983: Guðmundur Páll Arnarson
1984: Guðmundur Sv. Hermannsson
1985: Guðmundur Kr. Sigurðsson.
Og bridgemaður ársins 1986 er, að
mati þáttarins, Sigurður Sverrisson.
Sigurður er annar aðilinn að parinu
Sigurður og Jón Baldursson, sem eru
sennilega sterkasta par sem við höf-
um komið okkur upp. Árangur
þeirra, saman og sitt í hvoru lagi er
gríðarlegur, á ekki fleiri árum en raun
ber vitni. Þeir eru báðir 32 ára og eiga
því væntanlega eftir að hrella okkur
hina í nokkra áratugi í viðbót.
Sigurður er vel að þessari útnefn-
ingu kominn, og ætti raunar að vera
búinn að fá hana fyrir all nokkru. Til
hamingju, Siggi minn.
í stuttu máli...
Anton R. Gunnarsson og Friðjón
Þórhallsson, frá Bridgefélagi
Breiðholts, urðu Reykjavíkurmeist-
arar í tvímenning um síðustu helgi.
Þeir sigruðu næsta örugglega í úr-
slitum 20 para, að undangenginni
forkeppni tæplega 60 para. Þetta er
fyrsti sigur þeirra í meiriháttar móti til
þessa. Anton hefur hins vegar tvíveg-
is spilað fyrir íslands hönd í landsliði
yngri spilara, á Norðurlandamótinu
’85 og á Evrópumótinu ’86. Til ham-
ingju strákar...
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
hefst í Sigtúni 9, miðvikudaginn 7.
janúar. Skráningu í mótið, svo og í
Bikarkeppni Reykjavfkur sem hefst í
janúar, lýkur mánudaginn 5. janúar.
Ólafur Lárusson annast þá hlið mála.
Opna mótið uppi á Skaga verður.
Síðasti möguleiki á skráningu í mótið
er á morgun (sunnudag) í síma 93-
2020 (Guðmundur Sveinsson).
Opna jólamótið í Hafnarfirði verð-
ur laugardaginn 27. desember, í
Flensborg. Skráning er hjá þeim Ing-
vari Ingvarssyni og Kristjáni
Haukssyni. Þar er á ferðinni árlegt
Mitchell-mót.
Jólamót þeirra norðanmanna á
Akureyri verður í blómaskálanum
Vín v/Hrafnagil laugardaginn27. des-
ember og hefst kl. 10 árdegis.
Tvær umferðir í Mitchell með veg-
legu borðhaldi milli umferða. Þeir
kunna lagið á þessu fyrir norðan...
Síðasta umferðin í aðalsveita- !
keppni Bridgefélags Reykjavíkur er í
dag (laugardag) í Hreyfli og hefst kl.
13.30. Sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar hafa þegar sigrað mótið með
yfirburðum. Gott hjá þeim. Eftir
spilamennsku býður félagið uppá jól-
akaffi og tilheyrandi.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
í janúar fer Bridgesambandið inn í
nýtt húsnæði að Sigtúni 9. Þá hefur
BSÍ fengið nýtt pósthólf, sem er: 272
- 121 Reykjavík. Væntanlega mun
símanúmer einnig breytast frá og með
1. febrúar nk.
Meistarastigaskráin er komin í
vinnslu og kemur út um miðjan janú-
ar. Tóti er ennþá efstur með 1031 stig
en fast á hæla hans koma þeir Jón
Bald., með 974 og Sigurður Sverris-
son með 904. Flest stig frá síðustu
skrá hefur Sigurður fengið eða 160
stig. Ekki dónalegt það.
Alls er nöfn 2820 spilara að finna í
skránni í 48 félögum. Flestir eru
skráðir á Akureyri (172) og þá hjá
Bridgefélaginu (142) og þriðja
„stærsta” félagið eru Breiðfirðingar í
Reykjavík (122).
_____
Bridgesamband fslands hefur
ákveðið að gefa mönnum kost á þátt-
töku í Evrópumótinu í tvímennings-
keppni, sem spilað verður í París
helgina 27.-29. mars 1987. ísland á
rétt á að senda allt að 7 pör á mótið.
Bridgesambandið mun greiða þátt-
tökugjald keppenda. Frestur til að
sækja um, til BSÍ, er til 20. janúar.
Bridgesambandið áskilur sér allan
rétt til vals á hugsanlegum keppend-
um á þetta mót.
Umsjónarmaður vill í lokin Óska
landsmönnum ölklum innilegra jóla
og farsæls nýs árs. Um leið er beðist
velvirðingar á því starfi sem umsjón-
armaður hefur innt af höndum fyrir
félögin í landinu upp á síðkastið.
Vegna plássleysis heí 'ðeins brot af
aðsendu efni birst. Er pað miður. En
hver veit hvað nýtt ár ber í skauti sér.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. desember 1986