Þjóðviljinn - 24.12.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Kristján Borgar Samúelsson, sjö ára.
Gunnar Jónsson, tólt ára. Myndir KGA.
Jólin
Saman í hríng á Hringnum
Jólaheimsókn á Barnaspítala Hringsins
Það eru ekki allir sem geta
haidið jólin hátíðleg í faðmi
fjölskyldunnar, en þó fólk sé að
heiman reynir það samt að gera
sér glaðan dag. Sumir eru sjúkir
og verða að dvelja á sjúkrahúsum
og gerir starfsfólk sitt ýtrasta til
að gera jólin að hátíð ljóss og
friðar.
Pjóðviljinn heimsótti Barna-
spítala Hringsins í gær og færði
börnunum þar jólagjafir. Flestir
krakkarnir á Barnaspítalanum fá
að fara heim um jólin, en svo er
þó ekki um alla. Kristján Borgar
Samúelsson er sjö ára og liggur
lærbrotinn á deildinni. Var hann
að horfa á skrípo af vídeó er okk-
ur bar að garði. Verður hann að
dvelja á deildinni yfir hátíðirnar
en var ekki niðurdreginn yfir því.
Fékk hann bók Guðrúnar Helga-
dóttur, Saman í hring, í jólagjöf
Okurmálin
Afleiðing pólitískrar stefnu
Svavar Gestsson: Ríkisstjórnin og Seðlabankinn leyfðu okur og afhentu okrurum
valdið
Akvörðun ríkisstjórnarinnar
frá ágúst 1984 um vaxtafrclsi
var pólitísk ákvörðun og afrek
sem Þorsteinn Pálsson jafnaði til
stærstu tíðinda Isiandssögunnar í
cfnahagsmálum. Afleiðingarnar
sem blasa við eru frelsi fárra
(jármagnseigenda og ófrelsi fjöld-
ans, sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins um
vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar.
Svavar sagði að haustið 1984
hefði hann bent á að Seðlabank-
inn hefði ekki heimild til þess að
innleiða hömlulaust vaxtafrelsi.
Bankanum bæri skv. lögum að
ákveða hæstu heimila vexti.
„Bankaráðsmaður Alþýðu-
bandaiagsins mótmælti í banka-
ráði Seðlabankans og ég flutti
síðan frumvarp um haustið um að
afturkalla vaxtafrelsið. Enginn
tók undir það nema Alþýðu-
bandalagið: ekki hinir stjórnar-
andstöðuflokkarnir, ekki ríkis-
stjórnin - en okrararnir léku
lausum hala“.
Svavar sagði að í þeim okur-
málum sem upp hefðu komið
væri ábyrgðin ríkisstjórnarinnar
og ekki síst Þorsteins Pálssonar
sem knúði fram vaxtafrelsið og
leyfði þar með okrið. Þá væri
ábyrgðin Seðlabankans sem
braut lög með því að afhenda
markaðnum vaxta-
skráningavaldið.
„Afstaða Alþýðubandalagsins
er skýr: Við viljum í fyrsta lagi að
notuð verði heimild sem er í gild-
andi Seðlabankalögum um að
setja hámarksvexti. Það á ríkis-
stjórnin að gera. í öðru lagi að
sett verði ný okurlög. í þriðja lagi
að færustu sérfræðingar verði
fengnir til þess að fara yfir nýfall-
inn dóm hæstaréttar meðal ann-
ars m.t.t. þess að kanna hvort
hann stenst eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar. Að fram fari
opinber rannsókn í málinu,“
sagði Svavar að lokum.
—K.Ól.
og er víst að hún á eftir að stytta
honum stundir.
Gunnar Jónsson, sem er tólf
ára, fær hinsvegar að skreppa
heim yfir jólin en þarf að mæta
aftur strax eftir jól. Hann var að
hlusta á dúndrandi popptónlist úr
kasettutæki, sem hann keypti í
Portúgal sl. sumar. Sagðist hann
vilja plötuna FM 867 í jólagjöf en
frá okkur fékk hann hinsvegar
bókina Saman í hring.
Prófessor Víkingur H. Arnórs-
son, yfirlæknir Barnaspítala
Hringsins, sagði að ef nokkur
kostur væri, þá fengju börnin að
fara heim yfir jólin. Þrátt fyrir
það er starfsfólk öll jólin á Barna-
spítalanum, sem og á nýbura-
deildinni.
Barnaspítalinn hefur átt í
vandræðum með að manna
deildir sína hjúkrunarfólki og er
það fyrst og fremst vegna lakra
kjara hjúkrunarfólks. Yfir jólin
er það hinsvegar ekkert vanda-
mál, enda mun minni starfsemi
en ella.
Þjóðviljinn óskar öllum sem
starfs síns, heilsu eða einhvers
annars verða fjarverandi heimili
sínu yfir hátíðirnar, gleðilegra
jóla. -Sáf
Kindakjöt
Egyptar
hugleiða
ærkjötskaup
Að tilhlutan Markaðsnefndar
landbúnaðarins hefur Búvöru-
deild Sambandsins undanfarið
staðið í viðræðum við Egypta um
kaup á íslensku ærkjöti en það er
kjöt af gömlum kindum. Ekki
hefur enn verið gengið frá samn-
ingum en skilaverð á kíló verður
rúmlega 20 krónur.
Að sögn Magnúsar Friðgeirs-
sonar framkvædmastjóra Bú-
vörudeildar Sambandsins, er hér
um kjöt að ræða sem að Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins hef-
ur keypt af bændum til fækkunar
á bústofni, en það eru alls um
1000 tonn. Að auki bætast við um
300 tonn af dilkakjöti sem
kaupandinn hefur óskað eftir,
verði samningum náð, en það
kjöt mun að mestu vera af stóru
og feitu lambakjöti.
Aðspurður um hvort að í pakk-
anum leyndist kjöt af riðuveiku
fé sagði Magnús að niðurskurð-
arféð væri að einhverju leyti frá
riðuveikisvæðunum, en að það fé
fengi í ölum tilfellum dýralæknis-
skoðun.
Að sögn Páls A. Pálssonar yfir-
dýralæknis að Keldum verður
engum meint af því að borða kjöt
af riðuveiku fé. _ k.ÓI.
DDT
Stormur frá
Sigurlaugu
Með storminn ífangið heitir ný-
útkomin bók eftir Sigurlaugu
Bjarnadóttur kennara og fyrrver-
andi þingmann og er þar lýst póli-
tískum afskiptum höfundar og
einkum sérframboði Sjálfstæðis-
manna á T-listanum í Vestfjarð-
arkjördæmi við síðustu þing-
kosningar. Fjölvi getur út.
Sigurlaug skýrir frá viðskiptum
sínum við Matthías Bjarnason,
Þorvald Garðar Kristjánsson og
Einar Guðfinnsson, efstu menn á
D-listanum, og fjallar um við-
brögð flokksforystunar syðra
sem undir stjórn Geirs Hall-
grímssonar sem vann gegn fram-
boði Sigurlaugar og félaga.
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur
og Lyfjafræðingafélags íslands
verður í Domus Medica sunnudaginn 28. des-
ember kl. 15-18.
Jólasveinarnir
Vinningstölur 20. desember, 1986.
2-5-8-19-27.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Laus kennarastaða.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus til umsóknar kennara-
staða í stærðfræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 8. janú-
ar næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.
Heildarupphæð vinninga
kr. 6.294.859,
skiptist þannig:
1. vinningur kr. 4.045.944.- fyrir allar tölur réttar skiptist
að þessu sinni milli 7 vinningshafa, sem hver um sig
hlýtur kr. 577.992,-
2. vinningur var kr. 674.922.-
591 þátttakandi var með fjórar tölur réttar og fær hver
maður um sig kr. 1142.—
3. vinningur, fyrir þrjár tölur réttar, var kr. 1.573.933.— og
skiptist á milli 11.489 manna, þannig að 137 krónur koma
í hlut hvers og eins.
GLCÐB-EG jóc
Upplýsingasími: 685111