Þjóðviljinn - 24.12.1986, Qupperneq 5
CHEZN0U5
AMERICA!*
lOM
y'.NC
i!«Pre&>«
■
Cv-C ' ' í'
i^fámijsiiarfirr
Jólaskreytingar setja skemmtilegan svip á Korintustræti og jólaösin er búin að vera mikil í desember. Myndir - Sigursveinn.
Þar sem meistarar
spásseruðu um strœtin
Fréttir af mannlífi, tónlistinni, og jólaundirbúningi
Vinarbréffrá Sig-
ursveini Magnús-
syni
Hér hefur í haust verið
einmuna veðurblíða. T rén
tóku að fella laufin seint í
september og hafa sum hver
ekki að fullu lokið við það
ennþá. Það hefurverið
ríkjandi hæg suðvestan átt
með röku, hlýju lofti. Þessar
stillur eru þess valdandi að
mökkurinn sem grúfiryfir
borginni er þykkari en ella.
Félagsstarf hófst í október. ís-
lendingar hittast um það bil einu
sinni í mánuði og ræða málin yfir
kaffibolla. Stjórn féiagsins er ötul
að hjálpa okkur sem ókunn erum
að greiða úr hverskonar vand-
ræðum. Mikið þarfaþing er
hjálparsjóður námsmanna sem
kenndur er við íslandsvininn Dr.
Alfred Schubrig, þar geta náms-
menn fengið tímabundin lán ef
námslánum seinkar. Ekkja Dr.
Schubrig, Frau Cornelia Schu-
brig sem er ræðismaður fslands
bauð um daginn öllum fslending-
um til 1. des. fagnaðar af miklum
rausnarskap. Samkoman var í
litlu og notalegu veitingahúsi í 19.
hverfi og var auk fullveldisfagn-
aðar líka nokkurskonar litlujól.
Börnin þáðu gjafir frá gestgjafan-
um og kór fslendinga söng jóla-
lög.
Stórviðburðir
í tónlistinni
Frá því í haust hefur hver stór-
viðburðurinn rekið annan á tón-
listarsviðinu. Fflharmóníuhljóm-
sveitin, einhver sú elsta og virðu-
legasta í heimi heldur enn í allar
sínar föstu hefðir. Þær felast
meðal annars í notkun gamalla
hljóðfæra sem annarsstaðar
þykja úrelt, en einnig er kvenfólk
algjörlega útilokað frá þátttöku
og er það öllu umdeildara atriði.
Hvaða skoðanir sem menn nú
hafa á þessu, verður því ekki á
móti mælt að hljómsveit þessi er
hin mesta gersemi. í stóra salnum
í Musíkverein hljómar hún sem
æðri veröld. Fastur stjórnandi er
Claudio Abbado, en auk hans
hafa í haust stjórnað sem gestir
m.a. Leonard Bernstein, Wolf-
gang Savallisch og nú skömmu
fyrir jólin koma James Levine
sem gagnrýnendur fundu í sumar
allt til foráttu þegar hann stjórn-
aði á Salzborgarhátíðinni. Vínar-
búar kunnu aftur á móti vel að
meta þennan hressilega Amer-
íkumann sem blákalt velur önnur
tempó í Mozart en hér hafa tíðk-
ast. Auk þess að leika á tón-
leikum er Fflharmóníuhljóm-
sveitin óperuhljómsveit ríkisóp-
erunnar.
Óperan miðdepillinn
Óperan er miðdepill tónlistar-
lífsins. Sýningar eru á hverju
kvöldi og stór hluti óperubók-
menntanna í gangi í einu. í haust
var frumsýnd ný uppsetning á
Grímudansleiknum eftir Verdi.
Meðal annarra söngvara sem
sungið hafa í haust er hin síunga
Christa Ludwig í Elektru eftir
Strauss og nú brillera þau Jose
Carreras og Agnes Balza í Wert-
er eftir Massenet.
Samtímatónlist á ekki aðgang
inn í hefðbundnar tónleikaskrár
hér í Vínarborg. Hér eru tón-
skáld og samtök sem reyna að
halda uppi merki staðarins, sem
vettvangs nýrrar tónlistar, þó
engan veginn reynist það
auðvelt. Tónskáld þessi lifa í
skugga fyrirrennara sinna,
meistaranna sem hér spásseruðu
um stræti og eru hér svo nálægir.
Maður getur svo sem skilið að
Vínarbúar falli í þá freistni að lifa
á fornri frægð, en fyrir okkur
utanaðkomandi virkar það ank-
annalega að á hverjum stórtón-
leikum á fætur öðrum með úrvals
flytjendum skuli ekki sjást eitt
einasta samtímaverk. Líklega
hefur mönnum sem hafa köllun
til að troða nýjar slóðir aldrei ver-
ið vel tekið og er þá Vínarborg
síður en svo undantekningin.
Órói í
stjórnmálum
Á pólitíska sviðinu hefur sem<-
kunnugt er verið órólegt. Nýaf-'
I stöðnum kosningum fylgdi
óhemju auglýsingaflóð. Mikið
var um útifundi og mátti heyra
menn hnakkrífast á götum úti um
málefnin. Úrslit kosninganna eru
mörgum áhyggjuefni og er þar átt
við mikla fylgisaukningu FPÖ en
sá flokkur er gjarnan sagður arf-
taki Nasistaflokksins gamla. Nú
eru í gangi erfiðar stjórnarmynd-
unarviðræður og útséð um að
starfhæf stjórn komist á laggirnar
fyrir hátíðar.
Ferskvatnskarfi
í jólamatinn
Hér sem og annarsstaðar eru
kaupmenn fyrstir til að huga að
afmæli frelsarans. Yfir verslunar-
stræti eru hengd ljósbönd og
skreytingar. Niðri á Korintu-
stræti við Stefánskirkjuna er
mikil umferð fólks að kaupa gjaf-
ir. í jaðri götunnar standa blindir
menn og snúa lírukössum sínum
og tónlistarmenn blása i lúðra til
að skemmta vegfarendum og
þiggja smáaura fyrir. Hér fæst
íburðarmikið jólaskraut í búð-
um. Mest ber á munum unnum úr
Stjórn Islendingafólagsins í Vínarborg. Frá v. Haukur Páll Halldórsson, Áslaug V. Þórhallsdóttir formaður og Rannveig
Bragadóttir. Fjarverandi voru þau Herta Newman og Snorri Valsson. Myndin er tekin í 1. desember fagnaði fólagsins
Miðvlkudagur 24. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5