Þjóðviljinn - 24.12.1986, Page 18
JÓLAVEISLA BÍÓANNA
Valgeir Ólafsson, en hann leikur
Elías af stakri prýði.
verið gert að rnnrasðuefni. Það er
sögumaðurinn einn sem hefur orðið í
myndinni og vinnst tvennt með því:
krakkamir sem myndin er ætluö
(fyrst og fremst forskólastigið) ættu að
eiga auðvelt með að fylgjast með. Og
í annan stað er allt vafetur í lágmarki
við að koma myndinni af einu tung-
umál yfir á annað; bara þýða texta
sögumanns, fá upplesara og búið.
Að öllu samanlögðu finnst mér,
miðaldra kallinum, héma vera á ferð-
inni ágætismynd, og tilbreyting að sjá
fólk leggja metnað í dagskrá fyrir
krakka. En auðvitað er ég engjnn
dómari í þessu máli; úrskurðinn kveð-
ur bamadómstóllinn upp á sunnudag-
inn kemur þegar þessi mynd verður
sýnd í sjónvarpinu, og síðar krakkar á
„hinum Norðurlöndunum" og ef til
vffl víðar um heim þegar fram í sækir.
HS.
Dularfullir
glæpir og
mishýrar
furðuvemr
A thyglis verðustu
jólamyndirnar: Nafn
rósarinnar, Vitaskipið og
Völundarhúsið - að
ógleymdum
geimverunum ógurlegu
uppí Breiðholti
Morðæði í munkaklaustri á
fjórtándu öld, draumlyndur
slagsmálahundur í Las Vegas,
hugljúft vélmenni með kærleika á
stefnuskránni, harðvítug átök
skipshafnar við illvíga glæpa-
menn, barátta góðs og ilis í furðu-
heimi dverga og skrimsla, mann-
ýgur api reynir að gera útaf við
hárlausa frændur sína, elskulegir
lögfræðingar í vondum málum og
einar óhugnanlegustu skepnur
kvikmyndasögunnar að hrella
framtíðarfólk á fjarlæg á fjar-
lægri plánetu. Það er góð hug-
mynd að fara í bíó þessi branda-
jól.
Myndin sem allir fara á þessi
jólin er auðvitað Nafn rósarinn-
ar í Háskólabíó. Flestir kannast
við samnefnda bók eftir ítalann
Umberto Eco, sem Thor Vil-
hjálmssonar þýddi afbragðsvel
fyrir tveimur árum, - myndin er
eins trú bókinni og hægt er og
hinn dularfulli miðaldaheimur
munkaklaustursins dreginn upp á
sannfærandi hátt. Hafi einhverj-
um einhverntíma fundist misjöfn
lykt af Sean Connery útaf James
Bond-myndunum breytist á hon-
um kviicmyndanefið eftir Vil-
hjálmshlutverkið, og aðrir leikar-
ar standa sig engu síður. Lesend-
ur metsölubókarinnar verða
auðvitað að setja sig í þær stell-1
ingar að verða fyrir óhjákvæmi-
legum vonbrigðum, „sú leið sem
ég vel er aðeins ein af mörgum
Sara (Jennifer Connelly úr Leone-myndinni Einu sinni í Ameríku) og Varði
dvergur í jólamynd Stjörnubíós, Völundarhúsinu. Þar leikur líka Davíð Bowie og
samdi nokkur lög inní myndina.
mögulegum,“ segir leikstjórinn,
Frakkinn Jean-Jacques Annaus,
sá sem meðal annars bjó til þá
ágætu frummannamynd Leitina
að eldinum. Afbragðsskemmtun,
- og ef til vill enn betri fyrir þá
sem eiga eftir að kasta sér til
sunds í ritbrunn Umbertos.
Hér skal ekki síður mælt með
jólamyndinni í Bíóhúsinu (Nýja
bíó), Vitaskipinu eftir Pólverj-
ann Jerzy Skolomowski. Hún er
byggð á sögu eftir þýska skáldið
Siegfried Lenz, um glæpamenn
sem ryðjast um borð í kyrrstætt
vitaskip, og um samband föður
og sonar, - verulega vel gerð
mynd, öðrum þræðinum mögnuð
spennumynd, hinum listræn upp-
lifun og tilefni ýmisskonar hug-
leiðingar. Leikarasafnið er stór-
gott, valinn maður í hverju rúmi,
og sérstaklega í tveimur helstu
hlutverkum: Robert Duvall frá-
bær sem ófyrirleitinn gáfna-
krimmi, Brandauer þéttur fyrir í
hlutverki hins ábyrga skipstjóra
og föður. Allt endar þetta auðvit-
að meö ósköpum. Hiklaus með-
mæli.
Það eru fleiri ágætar spennu-
myndir í gangi. Franska myndin
Lögreglumafturinn í Regnbog-
anum er einnar messu virði:
franska súperstjarnan Depardieu
og hin ágæta Sophie Marceau í
mynd um vonlausa glæpamenn,
Vilhjálmur/Sean Connery í Nafni rós-
arinnar, jólastórmynd Háskólabíós.
vonlausar löggur og vonlausar
ástir, - eftir einn af betri leik-
stjórum Frakka, Maurice Pialat.
Burt Reynolds kemur ánægju-
lega á óvart í jólamynd T ónabíós,
sem uppá ensku heitir Heat,
stendur í feiknarlegum slagsmál-
um en á sér fleiri tóna í leikhljóð-
færinu. Jake Speed fetar í fót-
spor Indiana Jones og tekst það
þokkalega í B-sal Stjörnubíós, og
unglingar lenda í vondu glæpa-
hyski í svikalausri spennu A ystu
nöf í sama bíói. Og gleymum
ekki síungum Guðföður Copp-
ola og De Niro í Regnboganum.
Þeir sem hafa gaman af að láta
fara verulega illa með taugarnar í
Jane (Elisabeth Shue) lætur vel að illvígum apa (Hlekknum) í jólamynd Regn-
bogans, Link.
sér mega heldur ekki missa af
Aliens í Bíóhöllinni, sem auk þess
að kalla fram ósjálfráð öskur og
kippi í þaulvönustu hryllingsað-
dáendum er hin prýðilegasta
kvikmynd í öllu tilliti, eftir sama
gaurinn og gerði Terminator með
Schwarzenegger. Aliens gefur
forvera sínum, Alien (án enskra
fleirtöluessins) ekkert eftir.
Geimskrímslin í Aliens eru
ekki einu furðuverurnar á hvíta
tjaldinu í Reykjavík. Georg Luc-
as og félagar smíða okkur mikla
furðuveröld í Vötundarhúsinu í
Stjörnubíó: lítil stelpa lendir
ásamt dvergum álfum og tröllum
í útistöðum við sígilt illmenni
leikið af rokkaranum David
Bowie, sem sjálfur tekur lagið
nokkrum sinnum, mynd fyrir
börn og fullorðna og ekki síst
óskilgreindan aldurshóp þar á
milli. Ráðagóði róbottinn í Bíó-
höllinni er aftur einna helst fyrir
yngsta liðið: krúttlegt vélmenni
gæðist lífi og verður allra
hugljúfi, rétt einsog frændi hans
ET sem er snúinn aftur í Laugar-
ásbíó, þar er líka í heimsókn
önnur geimvera, önd sem fyrir
misskilning flækist til jarðar og
lendir þar í miklum aðlögunar-
vanda, - Hetjan Hávarður. Og
enn eitt kvikindið er svo apinn
Link (Hlekkur) í Regnboganum,
ágæt spennuskemmtun útfrá sí-
gildu þema um lærisvein galdra-
mannsins; í þetta sinn er vísinda-
maðurinn að leika sér að alltof
greindum apa sem sér lítinn til-
gang í herradómi manna í henni
veslu og grípur til útrýmingar-
ráða.
Á að vera gaman í bíó? Já,
auðvitað, en það er ekki alltaf
mest gaman að gamanmyndun-
um. það má hlæja sæmilega að
sumum uppátækjum í Létt-
lyndum löggum í Bíóhöllinni og
einhverjar brosviprur kreistast
fram öðru hvoru í bandarísku
dellumyndinni Samtaka nú í
Regnboga, um japansk-banda-
rískt samstarf í bílaiðnaði. í bíó-
húsum höfuðborgarinnar hljóm-
ar einna einlægastur hlátur og
mannlegastur sennilega í Laugar-
ásbíó undir samleik þeirra Re-
dfords, Winger og Hannah í
Lagarefum, sem auðvitað er svo
alls engin „gaman“-mynd, heldur
um glæpi og ástir.
Borgarljós Chaplins. endur-
sýnd í Regnboga, eru á hinum-
viðkvæmu mörkum gráts og
hlátra og best að hafa með sér
vasaklútinn til vonar og vara.
Líst ykkur enn ekkert á bíóúr-
valið? Fariði þá bara í Bíóhöllina
og tékkið á Bob Hoskins og fé-
lögum hans misjöfnum í Mónu
Lísu, breskri úrvalsmynd sem
engan svíkur. Allir í bíó! - m
Elias og örninn
Ný, íslensk sjónvarpsmynd fyrir litla krakka á öllum aldri.
f fyuadag var forsýning á ným, ís-
lenskri, tuttugu mínútna langri kvik-
mynd. Hún nefnist „Elías og öminn",
og er gerð eftir sögu Guðnjnar Helgu
Sederholm. Höfundur tökuhandrits
er Viðar Vikingsson og leiksyóri og
sögumaður Þórhallur Sigurðsson.
Kvikmyndatöku hafði Sigurður Jak-
obsson með höndum. Framleiðandi
myndarinnar er ísfilm hf., en sjón-
varpið bauð út verkið, og er það ný-
lunda þar á bæ. Fyrirhugað er að
bjóða út fleiri verk í framtíðinni og er
þess vasnst að þetta fyrirkomulag
verði til að auka pbreytni í dagskrár-
gerð.
Það má segja að árið sem nú er á
síðasta snúningi, 1986, sé undirlagt
jregar þessi mynd um Elías og ömirui
er annars vegar. í ársbytjun efiidi
sjónvarpið til hugmyndasamkeppni
og var þátttakendum gert að skila
fyrir níunda febrúar. Guðrún Helga
Sederholm var hlutskörpust í þessari
samkeppni. Síðan tekur við samning
handrits og önnur undirbúnings-
vinna, en myndin var tekin seinnip-
artinn í ágúst og fram í september.
Smiðshöggið á verkið var svo rekið
núna í desember og verður myndin
sýnd í sjónvarpinu milli jóla og nýjárs.
28. desember klukkan 18.00, nák-
væmlega til tekið.
Myndin lýsir Elíasi, hreyfihömlu-
ðum dreng, sem fær ekki notið alls
hins sama og skólafélagamir sökum
fötlunar sinnar; hann er tímavörður
þegar hinir krakkamir fara í fótbolta;
við fylgjumst með honum haltra upp
stiga þegar bekkurinn fer í fyrsta sinn
á Náttúrugripasafn, og mega þeir vel
hirða sneið sem eiga. Meðal safhgripa
sér Elías konung fuglanna uppstopp-
aðan í glerbúri og kennir í bijósti um
hann. Þegar heim er komið skoðar
hann fuglabókina af miklum áhuga
og sýnir pabba sínum myndir af öm-
um. Pabbinn kveikir og fær þá ágætu
hugmynd að kaupa öm í líki flug-
dreka. Elías hefflast af flugdrekanum
sínum og er öllum stundum úti að láta
hann fljúga.
Elías verður svo fyrir því óhappi að
missa takið á eminum góða í einum
flugdrekaleiðangrinum, og vindurinn
feykir honum burt. Elías er óhugg-
andi, en mamma hans róar hann með
því að segja að þau skuli öll þijú fara
að leita amarins þegar pabbinn kem-
ur heim. Við tekur rúntur vítt og
breitt um bæinn, uns Elfas kemur
auga á öminn sinn. Hann hafði flækst
í sjónvarpsloftnetinu á háhýsi einu.
Fólkið í húsinu tekur dauflega í
eitthvert prfl upp á þaki, og segir að
það þurfi húsfund til að taka ákvörð-
un um svo mikilvægt mál. Elías fer
heim við svo búið með foreldrum sín-
um, þótt honum lítist ekki meira en
svo á að skilja öminn eftir uppi á
húsþaki yfir nótt. Hann nær í heimili-
skfkinii og kemur auga á félaga sinn.
Elíasi verður rórra við þessa sýn en
dýrðin stendur ekki lengi; alltíeinu
birtast tvær löggur í kfldnum hans og
em á leið upp á þak. Elías heldur að
þeir ætli að stinga eminum í fengelsi,
en veit að vonum ekki að öminn haföi
átt sér leik (eða óleik) á borði; hann
haföi truflað sjónvaipsútsendingar
svo mjög í húsinu að ekki var hor-
fandi á heimilisimbana og því höföu
íbúamir kvatt tfl lögregiu.
Fjölskyldan aftur af stað, en geðffl-
ur gamall kall í húsinu er þá búinn að
henda eminum í ruslið eftir björgun-
arleiðangur lögreglunnar. Pabbinn
fiskar lemstraðan öminn upp úr ösku-
tunnu og lofar að hjálpa Elíasi að gera
við hann. Elías sofnar svo með flug-
drekann undir sæng um kvöldið.
Mér finnst þetta falleg mynd um
Elías og öminn hans. Hlý og notaleg
en aldrei væmin og er það mikil
guðsblessun. Það er margt bráðlunk-
ið sem fyrir augu ber; til dæmis skotið
þeg;ir lögregluþjónamir tveir koma
labbandi inn í myndflötinn með
smástigabút á milli sín og ætla að fara
að ná í flugdreka upp á þak á háhýsi.
En þá eiga þeir náttúrlega bara síð-
asta hjallann eftir eins og maður sér
strax í framhaldinu. Eins þegar Elías
er nýbúinn að eignast flugdrekann; þá
koma tveir kunningjar hans aðvífandi
með loftriffil og ætla að skjóta öminn í
bríaríi. Sá síðastnefiidi gerir sér hins
vegar lítið fyrir og steypir sér yfir til-
ræðismennina! Eða þegar Elías missir
takið á eminum og hendir sér í grasið
og fer að gráta; ef sá sem hér krotar
væri eins og þremur áratugum yngri
heföi hann eflaust farið að grenja líka.
Eins er óborganlegt skotið úr háhýs-
inu þegar sjónvarpið klikkar amar-
kvöldið góða; sú uppákoma er vægast
sagt óvinsæl, enda laganna verðir til
kvaddir með hraði að fjarlægja skað-
valdinn.
Þessi mynd er hluti af norrænu
samstarfeverkefni. Hvert Norð-
urlandanna leggur til mynd sem síðan
verða sýndar á víxl í þessum löndum.
Verkefrii þetta kallast á skandíha-
vísku En God Historie for de Smá, og
er það sannmæli að minnsta kosti um
það framlag fslands sem hér hefur
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. desember 1986