Þjóðviljinn - 24.02.1987, Side 8
Alþingi
Veröur Þjóðhagsstofnun lögö niöur?
Eyjólfur Konráð: Stofnunin óþörf Svavar Gestsson: Tillaga Eyjólfs Konráðs og félaga upphaflegafrá okkur komin.
Jón Baldvin Hannibalsson: Ætti að leggja niður Seðlabankann ef Jóhannes Nordal fœri í framboð?
Líkur á að tillaga Eykons verði samþykkt með stuðningi íhalds, Framsóknar og Alþýðubandalags
Þingsályktunartillaga Eyjólfs
Konráðs Jónssonar og félaga um
að stefna skuli að því að leggja
niður Þjóðhagsstofnun hefur
vakið talsverða athygli. Hún er
óvenju stutt, aðeins ein og hálf
lína og greinargerðin með henni
einnig stutt.
Eyjólfur sagði þegar hann
mælti fyrir tillögunni í fyrri viku
að einfalda þyrfti mjög stjórn
efnahagsmála. Stofnunin væri
ónauðsynleg þar sem fjöldi
manna í fjölmörgum stofnunum
væri þegar að bjástra við það
sama og stofnunin fengist við.
Þetta bras allt hefði því miður
ekki leitt til neins og þarna væru
hagfræðingar að dunda sér við að
reikna kreppur yfir landslýð.
Vitnaði Eyjólfur til ummæla
sem höfð voru um Þjóðhags-
stofnun á spástefnu Stjórnun-
arfélags íslands fyrir nokkru á þá
leið að spár stofnunarinnar hefðu
yfirleitt verið svo ónákvæmar að
ekki einu sinni mætti treysta því
að þær væru vitlausar.
Mjög líklegt er talið að tillaga
Eyjólfs Konráðs verði samþykkt
á alþingi enda talið að hún eigi
vísan stuðning flestra í þingflokki
Sjálfstæðismanna, Framsóknar-
manna og Alþýðubandalags, en
Alþýðuflokksmenn leggist gegn
henni.
En hvað tekur við að stofnun-
inni liðinni? Er starfsemi hennar
óþörf eða hvað?
Þjóðviljinn kannaði lauslega
málið. -sá
Bolli Pór Bollason
Mætti vera óháðari
stjómvöldum
Bolli: Mœttifœra ráðgjöfina í sérstakt efnahagsráðu-
neyti. Tillaga Eykons leiddi til dýrari rekstrar
„Ef nokkuð væri þá ætti að
gera stofnunina óháðari
stjórnvöldum. Henni hefur helst
verið legið á hálsi fyrir að vera
málpípa stjórnvalda, en vel mætti
hugsa sér að létta af henni póli-
tískri ráðgjöf, sem að mestu hefur
hvílt á herðum forstjórans, og fá
hana í hendur sérstöku efna-
hagsráðuneyti,“ segir Bolli Þór
Bollason.
Aðspurður um hver yrðu afdrif
þeirrar starfsemi sem fram fer í
Þjóðhagsstofnun, ef tillaga
Eyjólfs Konráðs Jónssonar, þar
sem lagt er til að stofnunin verði
Tillaga
Eykons
vanhugsuð
Ekki hœgt að leggja
stofnunina niður án þess
að eitthvaðkomi ístaðinn
Hagfræðingur, sem Þjóðvilj-
inn ræddi við, sagði að tiilaga
Eyjólfs Konráðs og félaga væri
greinilega vanhugsuð og hugsan-
lega til þess eins ætluð að stríða
Jóni Sigurðssyni og krötum. Ekki
væri unnt að leggja stofnunina
niður nema að eitthvað kæmi í
staðinn.
Annað mál væri að hugmyndir
hefðu verið uppi lengi um
breytingar í stjórnkerfinu hvað
varðar efnahagsmál og draga
þyrfti skýrari línur milli hinna
ýmsu stofnana sem fara með
efnahagsmál. Skýrar línur þyrftu
að vera milli stofnana sem annast
söfnun og úrvinnslu upplýsinga
annars vegar og hins vegar milli
þeirra stofnana sem annast stefn-
uráðgjöf og spádóma.
lögð niður, sagði Bolli að núna
ynnu sérfræðingar stofnunarinn-
ar jöfnum höndum við að gera
þjóðhagsspá og þjóðhagsreikn-
inga og þekking þeirra og vinnu-
afl nýttist vel. Ætti að aðgreina
þessa tvo þætti, td með því að
flytja annan þeirra tii Hagsto-
funnar, þá yrði það einfaldlega
dýrara, því til að mynda þyrfti að
bæta við mannskap á Hagsto-
funni. Þar sem engin knýjandi
fagleg þörf væri á breytingum af
þessu tagi, þá væri ástæðulaust að
leggja í þann kostnað og fyrir-
höfn sem óhjákvæmilega fylgdi.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Alþýðubandalagið
Nýjar tíllögur
Þjóðhagsstofnun lögð niður. Hagstofan efld
verulega. Efnahagsráð stofnað og endurnýjað
afhverri ríicisstjórn. Þingið hafisérstaka efna-
hagsstofnun til ráðgjafar þingmönnum og
öðrum
lnnan Alþýðubandalagsins
hafa þessi mál verið rædd mikið
og telja menn þar að Þjóðhags-
stofnun skuli lögð niður og starf-
semi hennar skipt niður á eftir-
farandi hátt:
Komið verði á fót sérstöku
efnahagsráði, sem veiti ríkis-
stjórnum á hverjum tíma sér-
fræðilega ráðgjöf í efna-
hagsmálum og verði ráðið endur-
nýjað með hverri ríkisstjórn.
Þá skal Hagstofan efld veru-
lega og verði hún meginvettvang-
ur upplýsingaöflunar um efna-
hagsstarfsemina og þjóðhags-
reíkningar og atvinnuvega-
skýrslugerð, sem nú eru á hendi
Þjóðhagsstofnunar fluttir til
hennar og hún endurskipulögð
með tilliti til þessa. Mikilvægt er
að Hagstofan stundi enga stefn-
uráðgjöf í efnahagsmáium og
verði hún að njóta ótvíræðs
trausts allra þeirra sem nota
þurfa sér upplýsingar hennar.
Komið verði á fót efnahags-
stofnun á vegum alþingis, sem
veiti þinginu og þingmönnum
ráðgjöf f efnahagsmálum og birti
opinberlega greinargerðir og
verði jafnframt aðilum vinnu-
markaðarins til aðstoðar sé þess
beiðst.
Þá telur Efnahags- og atvinnu-
málanefnd Alþýðubandalagsins
að þegar efnahagsráð ríkis-
stjórna, endurskipulögð Hag-
stofa og efnahagsstofnun alþingis
hafa að fullu tekið yfir starfsemi
Þjóðhagsstofnunar verði hún
lögð niður.
Svavar Gestsson
Stofnunin lögð niður
JBH
SvavarGestsson:
Stofnað verði
sérstakt efna-
hagsráð sem veiti
ríkisstjórnum á
hverjum tíma
efnahagsráðgjöf.
Ráðiðverði endur-
nýjað með hverri
nýrri ríkisstjórn.
Svavar: Verkefni Þjóðhagsstofnunarfœrð annað.
Nýtt efnahagsráð sjái um ráðgjöfhanda ríkisstjórn-
inni
„Það hefur verið á stefnuskrá
Alþýðubandalagsins að einfalda
stjórn efnahagsmála og færa
hluta þeirra verkefna sem Þjóð-
hagsstofnun hefur haft með hönd-
um til Hagstofunnar en önnur
verkefni hennar verði lögð undir
alþingi og stofnunin síðan lögð
niður.
Þá verði stofnað Efnahagsráð
sem annist efnahagsráðgjöf við
ríkisstjórnir í stað Þjóðhagsstofn-
unar og Seðlabanka eins og nú er.
Þessi þingsályktunartillaga
Eyjólfs Konráðs og félaga er upp-
haflega frá okkur komin efnis-
lega og við styðjum hana auðvit-
að áfram þó þeir íhaldsmenn hafi
slegið eign sinni á hana,“ sagði
Svavar Gestsson í samtali við
Þjóðviljann.
Skens gegn Jóni Sig.
Jón Baldvin: Eykon sá eini sem eitthvað meinar með baráttu
gegn kerfinu. Hinir eru kerfiskallar
Jón Baldvin Hannibalsson; eindregið gegn því að stofnunin verði aflögð. Til-
lögunni beint gegn Jóni Sigurðssyni. Ætti að leggja niður Seðlabankann með
Geir, manni og mús, ef Jóhannes Nordal færi í framboð?
Jón Baldvin Hannibalsson
mælti gegn tillögu Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar. Um málið sagði
Jón meðal annars þetta:
„Þessi tillaga er skens sem
beint er gegn Jóni Sigurðssyni. Ef
tillögumenn hefðu meint
eitthvað með því að þeir væru að
draga úr mannahaldi og koma
veg fyrir margverknað o.s.frv. þá
hefðu þeir litið á allar þær ríkis-
stofnanir sem nú fást við hag-
sýslumál og eru u.þ.b. 20 með á
þriðja hundrað starfsmenn.
Hagræðingu og sparnaði í
þessu kerfi verður ekki fyrir kom-
ið nema litið sé á þessar stofnanir
í heild og verkaskipting ákveðin
upp á nýtt.
Það mætti til gamans spyrja: Ef
Jóhannes Nordal stæði upp úr há-
sæti sínu og byði sig fram í pólitík
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, mætti
þá treysta því að kerfiskallar
Sjálfstæðisflokksins flyttu tillögu
um að nú væri kjörið tækifæri til
að leggja niður Seðlabankann
með Geir Hallgrímssyni, manni
og mús og létu þannig í ljós traust
sitt á Jóhannesi, nefnilega að
stofnunin Seðlabanki og hagdeild
hans væri óstarfhæf þegar Jó-
hannes væri farinn?
Sannleikurinn er sá að Eyjólf-
ur Konráð er einfari í Sjálfstæðis-
flokknum og eini maðurinn í
þingliði hans sem meinar
eitthvað með því þegar hann talar
um andstöðu við kerfið.
Það er ólíklegt að orðið hafi
sinnaskipti hjá kerfiskörlum,
bankaráðsmönnum og varð-
hundum landbúnaðarkerfis sem
allt í einu flytja þessa tillögu með
honum.
Hlutverk Hagstofunnar er að
safna saman upplýsingum og
vinna úr þeim og hingað til hafa
menn viljað líta á hana sem alger-
lega hlutlausa stofnun. Þjóð-
hagsstofnun hefur hins vegar í
reynd verið ráðuneyti og unnið
fyrir ríkisstjórnir og heyrt undir
forsætisráðherra og hefur verið
gagnrýnd fyrir það.
Ef stofnunin verður lögð niður
verða ráðuneytin hvert um sig að
koma sér upp hagdeildum, þann-
ig að tillagan mun ekki auka
sparnað í stjórnkerfinu heldur
þvert á móti auka á tvíverknað og
ringulreið og verulega fleiri menn
ynnu þau verk sem stofnunin
vinnur nú. -sá.
Þrlðjudagur 24. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13