Þjóðviljinn - 25.02.1987, Side 16
Aðalsími
681333
völdsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
\
iO
. SAMVINNUBANKI
' ÍSLANDS HF.
Mlðvikudagur 25. febrúar 1987 4ó. tölublað 52. árgangur
Fiskvinnsla
Erlent fjármagn í vinnsluna
Sóphanías Cecilsson: Afleiðingþess offors sem ríkt hefur ífiskveiðistefnu undanfarið
Að undanförnu hafa erlendir
aðilar fjárfest í íslenskum
fiskvinnslufyrirtækjum. í nýjasta
tölublaði Fiskifrétta er greint frá
því að skoskt og belgískt fyrirtæki
hafi keypt sig inní sitthvort fyrir-
tækið á Suðurnesjum, Ice-Scott
Ltd. í Garði og íslenskan gæða-
fisk hf. í Njarðvíkum.
„Þetta er hálfgert neyðarúr-
ræði hjá fiskvinnslustöðvum á
Suðurnesjum til þess að fá til sín
fisk og til að geta sýslað eitthvað í
fiski áfram. Þeir á Suðurnesjum
hafa selt skipin sín og gleymdu
því að um leið og þeir misstu
skipin misstu þeir aflakvótana.
Þær fiskvinnslustöðvar sem verst
eru staddar reyna því að bjóða
erlendu fjármagni til samstarfs í
þeirri von að þannig geti þær boð-
ið hærra verð en aðrir og náð til
sín afla til vinnslu. Það sem gerir
þetta að verkum er sú fiskveiði-
stefna sem hér hefur verið rekin
með offorsi að undanförnu og
kemur fram í mislagðri skiptingu
fiskkvótans miili landshluta og
báta“ sagði Sóphanías Cecilsson í
Grundarfirði og formaður Sam-
bands fiskvinnslustöðvanna.
Sóphanías sagðist ekki telja að
innreið erlends fjármagns í fisk-
vinnsluna leiddi til hærra fisk-
verðs. „Þrátt fyrir einhverja
hækkun á fiskverði til að byrja
með, bjóða þeir fiskinn niður,
sbr. það að þeir voru farnir að
kaupa tindabykkjuna á 12 kr. kfl-
óið, en mér er sagt að hún sé
komin niður í átta kr. núna“ sagði
Sóphanías Cecilsson.
RK.
Jöklarannsóknafélagið
Bræðslubor
á Vatnajökli
Jöklarannsóknarmenn prófa í vor nýjan bor. Katla
kortlögð ísumar
r
Imaí eða júní verður gerð til-
raun til að bora gegnum íshellu
Vatnajökuls með nýjum bræðslu-
bor sem enn er í smíðum á vegum
Raunvísindastofnunar há-
skólans.
Að sögn Sveinbjörns Björns-
Sambandið
Tuttugu
sagt upp
Torginu í Austurstræti
lokað í mars
„Menn eru ekkert að reka
verslun sem hefur ekki gengið
nógu vel“ sagði Gunnar Kjart-
ansson forstöðumaður fata-
deildar Sambandsins í samtali við
Þjóðviljann, en stjórn Sambands-
ins hefur tekið þá ákvörðun að
loka versluninni Torginu 20.mars
næstkomandi og hefur 20 starfs-
mönnum verið sagt upp vegna
þess.
„Verslunin hefur ekki skilað
arði undanfarin ár og stjórnin á-
kvað í september 1985 að taka
reksturinn til endurskoðunar
með það fyrir augum að athuga
hvort rétt væri að hætta honum
þegar leigusamningur um húsn-
æðið rynni út og sú varð niður-
staðan" sagði Gunnar.
Að sögn Gunnars hefur öllu
starfsfólkinu í Torginu verið boð-
ið störf hjá Domus og á fleiri
stöðum og hafa flestir fengið
vinnu nú þegar.
Verslunin Penninn mun taka
húsnæðið á leigu og opna verslun
í Austurstræti í maí.
„Það eru auðvitað allir ákaf-
lega sárir yfir því að þetta skuli
verða að enda svona en við því er
ekkert að gera þegar svona á-
kvörðun er tekin“ sagði Sigurður
Hannesson verslunarstjóri
Torgsins í samtaii við blaðið.
-vd.
sonar formanns Jöklarannsókna-
félagsins verður leiðangurinn á
jökulinn óvenju fjölmennur, um
3o manns.
Nýr skáli verður dreginn af snjó-
bflum upp á Grímsfjall á sleða-
meiðum og komið fyrir við hlið
eldri skála, og auk árlegra mæl-
inga í Grímsvötnum verður reynt
að gera nákvæmt kort af yfirborði
og botni Grímsvatna með íssjár-
og endurkastsmælingum.
Leiðangursmenn hyggjast
mæla hreyfingar íshellunnar og
jarðskjálfta við Grímsvötn, og
gera tilraun til að bora í gegnum
íshelluna með bræðslubornum.
Að sögn Sveinbjörns tengist
bortilraunin skjálftarannsóknum
á Mýrdalsjökli sem Ólafur Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur
hyggst stjórna í sumar, og á að
kortleggja berggrunninn undir
jöklinum meðal annars til að
finna rætur Kötlu. Til þess þarf
að framkalla skjálfta með spreng-
ingum í borholunum.
„Sumir telja að Katla safni
vatni í langan tíma og þannig
verði til stöðuvatn sem hún
hleypir frá sér við gos“ sagði
Sveinbjörn. „Hinn möguleikinn
er sá að Katla bræði vatnið þegar
í upphafi goss en til þess að átta
okkur á þessu verður að kanna
landslagið undir jöklinum með ís-
sjármælingum.
-vd.
Það var mikil spenna og eftirvænting hjá krökkunum á Tjarnarborg þegar tröllskessan ógurlega er að reyna að ná
stráknum Smjörbita handa stelpunni sinni að borða.
Skessa eltir Smjörbita
Brúðuleikhúsið sýnir nýtt verk eftir Hallveigu Thorlacius
Einu sinni var lítill strákur
sem hét Smjörbiti... -
Þannig byrjar nýtt verk eftir
Hallveigu Thorlacius sem
Brúðleikhúsið sýnir um þess-
ar mundir undir nafninu
Sögu-svuntan.
Efnið er sótt í sögu sem
Hallveig nam af ömmu sinni í
bernsku. Fjallar það um
strákinn Smjörbita sem býr
ásamt ömmu sinni, hundinum
Gullintanna og fleirum dýrum
í Litla koti undir j ökli. En stór
og mikil tröllskessa er á höttu-
num eftir Smjörbita því hún er
að leita að feitum strák handa
stelpunni sinni að borða.
Verður mikill hamagangur í
öskjunni í þeim eltingarleik
en Smjörbiti bjargast á sak-
leysi sínu og með dyggri hjálp
áhorfenda sem eru ósparir á
að veita honum aðstoð til að
sleppa undan skessunni. Fleiri
koma til sögunnar s.s. álfur
sem býr í jöklinum, púki í
hvernum o.fl.
Búningar, texti, leikmynd
og raddir eru verk Hallveigar
en leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir.
Sýningar eru tvisvar á dag á
barnaheimilum og leikskólum
borgarinnar og ráðgert er að
sýna verkið út um land. grh
ísafjarðarhöfn
Sími skemmdur sjö sinnum
Þessi neyðarsími á að vera ör-
yggistæki þannig að þetta er
vandræðaástand“ sagði Sturla
Halldórsson hafnarvörður á ísa-
firði í samtali við Þjóðviljann, en
neyðarsíminn í Hafnarhúsinu
hefur verið eyðilagður alls sjö
sinnum síðustu tvö ár.
Almenningssalerni á sama stað
hafa einnig orðið fyrir barðinu á
skemmdarvörgum, þau hafa ver-
ið brotin og brömluð hvað eftir
annað, eldur borinn að þeim og
hurðir brotnar. „Við höfum grip-
ið til þess að loka þessarri að-
stöðu eftir böll um helgar og ætl-
um að setja allt upp úr áli næst“
sagði Sturla.
„Við höfum sótt um það hjá
Pósti og síma að það verður sett-
ur upp glersímaklefi á bersvæði
við höfnina og síminn verði í
beinu sambandi við lögreglu, en
því hefur verið hafnað vegna pen-
ingaleysis."
-vd.