Þjóðviljinn - 27.02.1987, Page 1
Föstudagur 27. febrúar 1987 48. tölublað 52. örgangur
Alþingi
7 miljarða gúmmítékki
Kosningasýningaratriði ríkisstjórnarinnar greidd með 7 milljarða
gúmmítékka. Svavar Gestsson: Ríkisstjórnin er dauð
Til að geta gegnt skyldum sín-
um við lántakendur vantar
Húsnæðisstofnun minnst 2
milljarða króna. Halli ríkissjóðs
er 3 milljarðar og til að vegaáætl-
un, hafnaáætlun og væntanleg
þingsályktun um fæðingarorlof
standist á næsta ári, vantar 2
milljarða.
Á sama tíma og þetta er hverj-
um manni ljóst, þá rignir inn á
alþingi stjómarfrumvörpum sem
út af fyrir sig em mörg hver hin
þörfustu mál, en engin áform eru
uppi um ráðstafanir til að afla
tekna í ríkissjóð til að mæta út-
gjöldunum, sem þessi mál munu
hafa í för með sér“, sagði Svavar
Gestsson við Þjóðviljann í gær.
„Þetta er nokkuð langt gengið
hjá ríkisstjórninni sem þegar er
dauð, en á eftir að standa uppi í
tvo mánuði enn“. sagði Svavar
ennfremur.
Þegar litið er á „afrekaskrána"
þá ber hæst húsnæðislánakerfið
undir stjórn hins röggsama Alex-
anders Stefánssonar, en Húsnæð-
isstofnun höfðu um síðustu iia-
mót borist 4626 lánsumsóknir en í
áætlunum stofnunarinnar sjálfrar
hafði verið gert ráð fyrir 3800 um-
sóknum.
Stofnunin gerir ráð fyrir því að
15% umsækjenda uppfylli ekki
kröfur stofnunarinnar til lána og
þá eru eftir 3900 fullgildir um-
sækjendur sem eiga rétt á að
meðaltali 1,6 milljónum eða alls
rúmum 6,2 milljörðum.
Stofnunin hefur aðeins til ráð-
stöfunar 4,3 milljarða svo þar
vantar tæpa 2 milljarða.
Vegaáætlun til ársins 1990 var
afgreidd frá alþingi í fyrradag. Til
að hún standist vantar alls 4
milljarða og 180 milljónir, þar af
strax á næsta ári rúmlega 1,4
milljarða. í áætluninni segir orð-
rétt:„Ekki er tekin afstaða til
þess, með hvaða hætti það, sem á
vantar til að ná fjárhagslegum
markmiðum áætlunarinnar,
verður fjármagnað, en ljóst er að
það verður ekki nema að hluta
gert með hækkun markaðra
stofna Vegagerðarinnar“.
Stjórnarfrumvarp um fæðing-
arorlof liggur fyrir alþingi og
mun á næsta ári kosta ríkissjóð
250 milljónir og hafnaáætlun
sömuleiðis 250 milljónir þannig
að kosningavíxill stjórnarinnar er
upp á 7 milljarða og er greiddur
með innistæðulausum gúmmí-
tékka.
-sá.
Norðurlandaráð
íslendingar
hvergi óhultir
Frá fréttaritara Þjóðviljans í Helsinki,
Eiríki Hjálmarssyni:
Á sama tíma og Norðurlanda-
ráðsþingið fer fram hér í finnska
þinghúsinu í Helsinki halda
Grænfriðungar ráðstefnu um
umhverfismál einhvers staðar úti
í bæ. Ekki eru þó allir Grænfrið-
ungar þar því hér í þinghúsinu er
dönsk stúlka frá Greenpeace-
bladet í Kaupmannahöfn og er
hún ótrauð í að reka áróður sam-
tökunum til framdráttar.
Við íslendingarnir erum hvergi
í gervöllu húsinu óhultir fyrir
henni, þó er þinghúsið geysilega
stórt og kumbaldi mikill. Konan
svífur á menn og tyllir sér niður,
dregur upp upplýsingamöppu
eina mikla og otar að fólki.
Blaðamaður Þjóðviljans fann
þó einn stað í húsinu þar sem
friður fannst en það er gufubað
karla hér í kjallaranum.
-vd./E.Hj.
Nýr heimur!
Meðal efnis í fjórsíðna Heimi í
dag má nefna ítarlegar greinar
um gífurlega gegnd vöðusels í
norðurhöfum, um þjóðflutninga í
Indónesíu og um skuldabyrði
ríkja í rómönsku Ameríku.
Fósturskólinn
Vel boðið í fóstmmar
Bœjarstjórnir á landsbyggðinni senda 3. árs nemum Fósturskólans gylliboð um há laun og
ódýrt húsnœði komiþeir til starfa í vor eftir útskrift
Hluti af bæjarstjórn Siglufjarð-
ar kom í heimsókn í skólann
og hélt fund með okkur fyrir
skömmu og var með freistandi til-
boð um góð laun og ódýrt hús-
næði, sagði Helga Björkjóhanns-
dóttir 3.árs nemi í Fósturskólan-
um í samtali við Þjóðviljann.
„Allir 3.árs nemarnir fengu ný-
lega bréf frá dagvistarfulltrúa og
félagsmálafulltrúa ísafjarðar-
kaupstaðar, þar sem boðin er
atvinna og tekið fram að á vorin
losni oft íbúðir og allt sé reynt til
að fá þær fyrir fóstrur“ sagði
Helga.
„Auk þess bjóða ísfirðingar
okkur laun í 65.1aunaflokki
BSRB sem er nokkru hærra en
boðið er í Reykjavík.“
„Veggirnir hér eru þaktir af at-
vinnutilboðum á hverju vori,
bæði frá dagvistarheimilum á
höfuðborgarsvæðinu og aðilum
utan af landi sem eru að reyna að
krækja í nýútskrifuðu fóstrurnar"
sagði Margrét Gunnarsdóttir
kennari við Fósturskólann í sam-
tali við Þjóðviljann. „Það er eng-
inn skortur á atvinnutilboðunum
hér.“
-vd.
Sambandið
Kópaskinn til Grænlands
Notuð í skinnbuxur í þjóðhátíðabúninga
Við sendum þeim skinnin spítt-
uð og síðan fullvinna þeir þau
í sútunarverksmiðju og framleiða
úr þeim skinnbuxur sem þeir nota
við þjóðbúning sinn, - segir
Magnús Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Búvörudeildar
Sambandsins.
Fyrir nokkru voru send 500
kópaskinn af íslenska landseln-
um til Grænlands. Er þetta fyrsti;
útflutningur á kópaskinnum héð-
an um árabil. En sem kunnugt er
lagðist af allur útflutningur á
kópaskinnum vegna andstöðu
dýraverndunarmanna í Evrópu
og þekktust í þeirra hópi var
Birgitta Bardot hin franska.
Áður fyrr var góður markaður
fyrir kópaskinn á Englandi og á
meginlandi Evrópu. Voru þá
flutt út ca. 4-5 þúsund skinn ár-
lega.
- íslenski landselskópurinn er
ekki til á Grænlandi en aftur á
móti fullt af vöðusel, eins og
kunnugt er núna af fréttum.
Hvað úr þessum útflutningi verð-
ur veit ég ekki á þessari stundu.
Þetta er fyrst og fremst tilraun
sem tíminn verður að leiða í ljós
hvort veröur eitthvað meira úr en
þessi eina sending, - sagði Magn-
ús Friðgeirsson að lokum.
grh