Þjóðviljinn - 27.02.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.02.1987, Blaðsíða 4
LEHDARI Guð býr í garðslöngunni Þegar tveir mánuöir eru eftir til kosninga er Ijóst aö hið eina sem ríkisstjórnarflokkarnir finna til að egna fyrir hæstvirta kjósendur er blessaö góðæriö. Þjóöin hefur aldrei haft það eins gott og núna, segja málgögn stjórnarflokkanna, og búa til Guö almáttugan úr ríkisstjórninni. Samkvæmt mannvitsbrekkum fyrrnefndra blaða er það nefnilega ríkisstjórninni aö þakka aö sjórinn er hlýrri en áður og átan meiri, og þarmeð aflabrögö landsmanna. Það er ráðherrum lýðveldisins að þakka að rækju- afli Norðmanna hefurbrugðistogdregiðúrbotnfisk- afla Kanadamanna, með þeim afleiðingum að verð á sjávarafurðum okkar hefur stórhækkað. Sömuleiþis ber að þakka innvirðulega hæstvirtri ríkisstjórn íslands hríðlækkandi heimsmarkaðsverð á olíu að ógleymdum einkar heppilegum vaxtalækk- unum á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum. Þannig eru spekingar Morgunblaðsins og Tímans bersýnilega þeirrar trúar, að ýmislegt sem áður fyrri var skrifað á reikning þeirra himnafeðga eða annarr- ar forsjónar skuli nú fært til bókar í kreditdálkum blessaðrar ríkisstjórnarinnar. Henni, og engum öðr- um, ber að þakka einstaka árgæsku til lands og sjávar. Guð býr í garðslöngunni amma, söng Megas. En samkvæmt daglegu rauli fyrrnefndra málgagna er hann bersýnilega fluttur þaðan og virðist nú hafa samastað í stjórnarráði Islands. Svo mikil virðist nefnilega trú þessara málgagna á ofurmætti ríkis- stjórnarinnar. Auðvitað er staðreyndin sú, að ríkisstjórn íslands á ekki snefil af góðærinu sem hefur steypst yfir þjóð- ina einsog mannað í eyðimörkinni forðum. Og það tjóar lítt fyrir málefnasnauð málgögn ríkisstjórnarinn- ar að halda öðru fram. Nú liggur nefnilega fyrir eins- konar opinbert vottorð óvilhallra sérfræðinga um hið gagnstæða. I nýútkominni þjóðhagsspá er nefnilega hvað eftir annað bent á þá staðreynd, að góðærið stafi fyrst og fremst af mjög hagstæðum ytri skilyrðum. Ekki minnst á ríkisstjórnina. Dæmi: Um hinn mikla hagvöxt á síðasta ári segir í texta Þjóðhagsstofnunar, að hann megi „að veru- legu leyti rekja til sjávarvöruframleiðslu og hag- stæðrar þróunar í utanríkisverslun". Ekki minnst á að ríkisstjórnin eigi þar hlut að máli! Viðskiptakjör gagnvart erlendum þjóðum voru einkar hagstæð á síðasta ári, en sérfræðingár Þjóð- hagsstofnunar láta ríkisstjórnar íslands að litlu getið í því sambandi. „Hagstæð þróun viðskiptakjara und- anfarin misseri skýrist einkum af þrennu", segir í yfirliti stofnunarinnar. „Mikilli lækkun olíuverðs, hækkun fiskverðs erlendis og vaxtalækkun á al- þjóðalánamarkaði“. En ekki af aðgerðum ríkisstjórn- arinnar. Allt bendir því til að guð búi enn í garðslöngunni, og sé fráleitt fluttur í stjórnarráðið einsog mannvitsbrekkur Morgunblaðsins og Tímans halda bersýnilega. Ríkisstjórnin þreytist þó ekki á að klifa á því daginn út og inn, að henni beri að þakka góðærið. Málgögn hennar þreytast sömuleiðis ekki á að tönnlast á því saman. T rúfestan sem drýpur úr pennum leiðarahöf- undanna er raunar slík, að lesendur yrðu' sennilega lítt hissa á að lesa þar staðhæfingar um að í hjáverk- um taki ráðherrar lýðveldisins að sér að breyta vatni í vín. Góðærið skal vera þeim að þakka, hvað sem hver segir. Að dýrlingum skulu þeir verða í augum kjós- enda, og skipta þá staðreyndir litlu. í Gerska Ævintýrinu segir Halldór Laxness frá Tóbólskí erkibiskup, sem um miðbik átjándu aldar kristnaði Síberíu með þúsund kútum af vodka. Með fullum rökum var sannað að sá góði maður hefði verið fylliraftur, lygari og yfirleitt hinn svæsnasti frekjumaður. Hann var eigi að síður tekinn í tölu dýrlinga tveimur árum fyrir byltingu. Nú ætla semsagt málgögn ríkisstjórnarinnar að leika sama leikinn tveimur mánuðum fyrir kosningar með ráðherra íslenska lýðveldisins. Hefur þó advoc- atus diaboli í gervi sérfræðinga Þjóðhagsstofnunar fullsannað með gildum vottorðum að efnahagsbat- inn sé þeim í litlu að þakka. En látum Tóbolskí erkibiskup ganga aftur í gervi íslensku ríkisstjórnarinnar. Guð býr nú samt í garðs- löngunni, og góðærið verður aldrei ríkisstjórninni að þakka. -ÖS KUPPT OG SKORHE) Jevtushenko og Robert Kennedy: Þá skrúfaði hann frá sturtunni og sagði mér... Viðbrögð við Gorbatsjov Eins og ráð má fyrir gera skiptir það miklu máli um fram- gang þeirra umbóta sem Mikhail Gorbatsjov hefur fitjað upp á í Sovétríkjunum, hvernig við- brögð breytingarnar vekja upp á Vesturlöndum. Ekki síst vegna þess að ef hann á að ná árangri á sviði efnahags- mála þarf hann að ná samkomu- lagi við Bandaríkin og Nató um takmarkanir á vígbúnaði og niðurskurð á því sviði. Yfirleitt taka menn vel undir það sem Gorbatsjov hefur gert - til dæmis vill kanslari Vestur- Þýskalands, Kohl sem fyrir skemmstu olli nokkru hneyksli með einkennilegum samanburði á Gorbatsjov og áróðursstjóra Hitlers, Göbbels, gjarna að menn taki Gorbatsjov á orðinu núna og noti tækifærið til að bæta sambúð austurs og vesturs. En víða og ekki síst í Banda- ríkjunum er reynt að gera sem minnst úr þeim breytingum sem sovéski flokksritarinn hefur af stað hrundið. Margir eru þeir sem ekki vilja missa þann spón úr sínum aski sem vígbúnaðarkapp- hlaupið er. Og það er nokkur hefð fyrir því hjá þeim í Washing- ton að líta svo á, að ef vígbúnað- arkapphlaupið væri ekki í gangi þá þyrfti að finna það upp. Með öðrum orðum: Litið er á vígbúnaðarkapphlaupið sem að- ferð til að halda Sovétmönnum niðri efnahagslega, vegna þess, að þar eð framleiðni í sovéskum iðnaði er mun minni en í banda- rískum verður svipuð hergagn- aframleiðsla miklu þyngri baggi á sovésku þjóðarbúi en á banda- rísku. Reyndar er margt furðulegt í kýrhaus samskipta stórveldanna fyrr og síðar. Eina sögu undarlega má til dæmis finna í grein sem sovéska ljóðskáldið Jevtushenko skrifaði nýlega fyrir Time. Að hvísla að leyni- lögreglunni Hann segir þar frá því að árið 1966 kom hann til Bandaríkjanna - Jevtushenko var um það leyti eftirsóttur upplesari ljóða og þótti allólíkur öðrum sovéskum menningarsendimönnum. Þetta var um það leyti sem í Moskvu fóru fram réttarhöld yfir þeim Andrei Sínjavskí og Júlí Daníel, sem höfðu sent handrit úr landi og birt undir dulnefni á Vestur- löndum sögur, sem þá og síðar voru dæmdar andsovéskar. Fengu þeir allþunga fangelsis- dóma og þótti þetta mál hið versta og sýna að sú „hláka“ sem fylgdi Khrúsjovstímanum væri endanlega úr sögunni. Þegar ég var í New York, segir Jevtushenko, bauð Robert Kennedy öldungardeildarþing- maður - bróðir Johns heitins Kennedy forseta og seinna fram- bjóðandi til forsetaembættis, en féll einnig fyrir hendi morðingja - mér heim til sín á Manhattan. Mér til undrunar bauð hann mér að ganga inn í baðherbergi með sér, þar skrúfaði hann frá sturt- unni og sagði mér lágri röddu: „Þú mœttir gjarna koma því til stjórnar þinnar, að það voru okk- ar njósnarar sem létu ykkar menn fá nöfn þeirra Sinjavskís og Daní- els. “ Ég var, segir Jevtushenko, afar hissa og spurði hvernig í ósköp- unum stæði á þessu. Robert Kennedy brosti að barnaskap mínum og sagði: „Okkar menn vildu notfœra sér stöðuna og þið gleyptuð við agn- inu. Vegna Víetnamstríðsins hef- ur staða okkar versnað bœði heimafyrir og á alþjóðavettvangi. Við þurftum að fá andsvar í áróðri sem dygði. “ Jevtushenko segist ekki hafa gert þetta atvik opinbert fyrr en nú og reyndar geti hann ekki sagt alla söguna enn í dag. ■ ■ 011 fantabrögð Sé þessi saga sönn tekur hún vitaskuld ekki burt ábyrgð Sovét- manna af réttarhöldunum yfir Sínjavskí og Daníel. En hún minnir þá um leið á það, að í því áróðursstríði sem stundum fer ansi langt með að verða „heitt“ stríð, er einatt beitt lymskulegum og svívirðilegum brögðum, sem eru óralangt frá umhyggju fyrir - í þessu dæmi - málfrelsi í Sovét- ríkjunum og velferð þeirra sem fyrir því berjast. Þetta er rétt að hafa í huga núna þegar skoðuð eru þau um- mæli bandarískra áhrifamanna sem tortryggnastir eru enn í garð Gorbatsjovs. Þeir eru að því leyti í sama báti og ýmislegt þæginda- gráðugt forréttindalið í flokki Gorbatsjovs sjálfs: Þeir vilja ekki að honum takist það sem hann hefur nú byrjað á. Þess er nefnilega krafist af gamla genginu sovéska að það fari að hugsa sín mál upp á nýtt, jafnvel gera eitthvað annað en hagræða tölum svo allt sýnist vera í góðu Iagi í hinum besta heimi allra heima. Og það er náttúrlega ekkert þægilegt að verða fyrir slíku ónæði. Eins er það með suma hauka í Washington: Hafi þeir ekki sína gömlu sovétmenn á hreinu, þá vakna upp nýjar spurningar og sumar næsta óþægilegar. Gáum að þessu. ÁB þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rltstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphódinsson. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkaleatur: Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlltsteiknarar: Sævar Guðbjömsson, GarðarSigvaldason. Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofuatjóri: Jóhannes Harðarson. Skrif8tofa: Guðrún Guðvarðardóttir, GuðbergurÞorvaldsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýslngar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðlr: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjórl: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð:55 kr. Askriftarverö á mónuðl: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. febrúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.