Þjóðviljinn - 27.02.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
681348
Heigarsími
681663
þjómnuiN
Föstudagur 27. febrúar 1987 48. tölublað 52. árgangur
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Dagvistun
Stofnað til stéttskiptingar
Sjálfstœðismenn ístjórn dagvista ákváðu að veita vilyrðifyrir styrkveitingu til reksturs einkadagvistarheimila.
KristínÁ. Ólafsdóttir: Verðlagning sett í hendur eigendum. Afgerandi stefnubreyting
Þessir einstaklingar gætu sett
upp hvaða gjald sem væri og
við vitum að það er talsvert af
fólki sem getur borgað háar fjár-
hæðir fyrir dagvistun barna
sinna. Með þessu er verið að
styrkja barnaheimili fyrir efnað
forréttindafólk og búa til mjög á-
kveðna stéttaskiptingu gagnvart
börnum" sagði Kristín A. Ólafs-
dóttir fulltrúi Abl. í stjórn dag-
vista en hún greiddi ein atkvæði í
stjórninni gegn beiðni tveggja
einstaklinga í Reykjavík um vil-
yrði fyrir styrk frá borginni til
reksturs einkadagvistarheimila.
Sjálfstæðismenn voru fylgjandi
slíkri styrkveitingu en Framsókn-
Norðurlandaráð
Hægrimenn
hissa á Sverri
Ólga meðal
Sjálfstæðismanna
vegna yfirlýsingar
Sverris
Hermannssonar
Frá fréttaritara Þjóöviljans í Helsinki,
Eiríki Hjálmarssyni:
Nokkur ólga hefur gert vart við
sig meðal Sjálfstæðismanna í ís-
lensku sendinefndinni eftir yfir-
lýsingar Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra við fjöl-
miðla um að hann hyggðist leggja
það til við íslensku ríkisstjórnina
að íslendingar drægju sig út úr
Tele-X áætluninni.
Hægri flokkarnir voru ekki fyrr
búnir að leggja til að stækka
skyldi áætlunina en íslenski
menntamálaráðherrann gaf út
þessa yfirlýsingu. Erlendu hægri-
mennirnir hafa brugðist við henni
með mikilli hissu og ónefndur
Sjálfstæðismaður í íslensku
sendinefndinni sagði að þetta
væri ekki góð kynning á því
hvernig íslensk pólitík væri.
-vd./E.Hj.
Háskólinn
4 nýir
heiðursdoktorar
Á háskólahátíð nk. laugardag
verður fjórum fræðimönnum á
sviði íslenskra fræða veitt
heiðursdoktorsnafnbót við
heimspekideild Háskóla Islands.
Þessir fræðimenn eru: Her-
mann Pálsson, prófessor við Há-
skólann í Edinborg, Oskar Band-
le, prófessor við háskólann í Zúr-
ich, Peter Foote, prófessor emer-
itus frá University College í
Lx>ndon og Theodore Anderson,
prófessor við Stanford-háskóla í
Kaliforníu.
-Ig.
armenn sátu hjá. Kristín lagði
fram bókun um málið og segir þar
m.a.:„Með styrkveitingu borgar-
innar til einkadagvistarheimilis
einsog hér um ræðir væri stigið
afgerandi skref til stefnu-
breytingar. Þar með rynni fé úr
borgarsjóði til heimila sem væri í
sjálfsvald sett að verðleggja þjón-
ustu sína. Eigendur geta einir
ákveðið gjöldin burtséð frá öðr-
um hagsmunaaðilum einsog for-
eldrum."
Hörður Svavarsson, fulltrúi
foreldra í stjórn dagvista, bókaði reglum að styrkurinn yrði notað-
þá skoðun sína að með þessu máli ur til að greiða niður pláss til for-
væri komið upp tilefni til að gangshópa.
endurskoða reglur Reykjavíkur- Til stóð að fjalla um málið á
borgar um rekstur og styrki til borgarráðsfundi á þriðjudag en
einkadagvistarheimila þar sem að beiðni minnihiutans var um-
ekki væri tryggt með núverandi ræðu frestað í viku. -vd.
Það er einna líkast því að þarna sé unnið að námagreftri í iðrum jarðar við
frumstæðar aðstæður, en það fær auðvitað ekki staðist. Starfsmennirnir á
myndinni eru í óða önn að hreinsa innan úr ofninum í upphafi ofnstoppsins.
Mynd gg.
Sementsverksmiðjan
Fá kaupauka í ofnsloppi
Framleiðsla í Sementsverksmiðjunni liggur niðri í tvo mánuði.
Lengsta ofnstopp tilþessa. Skipt um eitt ofnbeltanna
Allir starfsmenn Scments-
verksmiðjunnar fá greiddan 17%
kaupauka á meðan á ofnstoppi
stendur, og jafngildir sú greiðsla
nokkurn veginn framleiðslubón-
us sem greiddur er að jafnaði.
Slíkur kaupauki hefur ekki áður
verið greiddur í ofnstoppi.
Öll framleiðsla hefur legið
niðri í verksmiðjunni síðan ofn-
inn var stöðvaður um miðjan
þennan mánuð. Að sögn Gísla
Einarssonar verkstjóra í verk-
smiðjunni er búist við að ofn-
stoppið standi fram í miðjan aprfl
eða alls í tvo mánuði, en venju-
lega hefur ofninn verið stöðvaður
aðeins í um þrjár vikur hverju
sinni.
Nú verður skipt um eitt ofn-
beltanna og liggur framleiðsla
lengur niðri af þeim sökum. Þetta
er í fyrsta skipti sem skipt er um
ofnbelti í verksmiðjunni. Verkið
er mjög umfangsmikið, enda
ekki um nein barnaleikföng að
ræða. Rjúfa verður þak ofnhúss-
ins og leita fulltingis 90 tonna
krana til þess að koma stykkinu á
sinn stað.
Eins og fyrr segir fá allir starfs-
menn verksmiðjunnar greiddan
17% kaupauka þar til fram-
leiðslan hefst að nýju, en ákveðn-
ir hópar munu njóta álags-
greiðslna samkvæmt sérstöku
samkomulagi. “88
Námsmenn
Tillögur krala óhugnanlegar
Kristinn Einarsson hjá BÍSN: Við munum berjastmeð oddi ogegg
gegn tillögum Alþýðu- og Sjálfstœðisflokks.
Vvið höfnum því alfarið að
vextir verði reiknaðir af
námslánum. Það er algjört
grundvallaratriði hjá okkur. Við
vísum á bug öllum hugmyndum í
þá veru. Stefna Aiþýðuflokksins í
málefnum lánasjóðsins opinber-
aði sig á fundinum í Háskólabíói
og nú vitum við hvar við höfum
hann. Stefna hans er í megin-
atriðum hin sama og Sjálfstæðis-
flokksins sem öll námsmanna-
samtök hafa mótmælt. Ef hægri
stjórn kemst til valda eftir kosn-
ingarnar í vor verða öll náms-
mannasamtökin komin í starthol-
urnar í haust til að stemma stigu
við þeim óhugnaði sem felst í til-
lögum Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks í málefnum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna, segir
Kristinn Einarsson hjá Bandalagi
íslenskra sérskólanema.
- Það er ljóst að Alþýðuflokk-
ur og Sjálfstæðisflokkur eru sam-
mála í meginatriðum um stefn-
una í málefnum lánasjóðsins. Það
er mjög líklegt að tillögur þeirra
renni í gegn ef þessir flokkar
mynda stjórn eftir næstu kosning-
ar. Því er nauðsynlegt fyrir stúd-
enta að fylkja sér um lista vinstri
manna í næstu stúdentakosning-
um sem verða um miðjan mars
n.k. Því öflugir vinstri menn í Há-
skóla íslands er það afl sem getur
veitt hægri stjórn mest aðhald og
staðið vörð um hagsmuni stúd-
enta, - sagði Runólfur Ágústsson
efsti maður á lista Félags vinstri
manna í Háskóla íslands í samtali
við Þjóðviljann í gær. 8rh.