Þjóðviljinn - 04.03.1987, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Qupperneq 2
-SPURNINGIN—1 Telur þú aö til verk- falls kennara komi? (Spurt í Fjölbrauta- skólanum við Ár- múla) Ásgeir Sveinsson: Já, ég tel þaö og flestir nem- endur eru mjög uggandi. Ég fylgist grannt með þessari deilu og vona að hún leysist. Eydís Eyjólfsdóttir: Ég held það, en vona að ekki verði af því, þó í aðra röndina sé alltaf gaman að fá frí. Það er mikið talað um þessa deilu hér í skólanum. Jón Ragnar Jónsson: Já, því miður. Ég lenti í síðasta verkfalli og námið raskaðist töluvert við það. Katrín Harðardóttir: Ég tel miklar líkur á að svo verði og líst engan veginn á. Ég fylgist með viðræðunum eins og aðrir nemendur og óttast að verkfall myndi bitna illa á náminu. Einar Jón Másson: Já, ég óttast það og er mjög óá- nægður. Ef verkfallið dregst á langinn er einsýnt um að nám fellur niður á þessari önn. Mér finnst ekkert athugavert við kröfur kennara en þetta á eftir að koma niður á okkur nem- endum. FRETTIR Alþýðubandalagið Menntakerfið krufið Opin námsstefna á vegum Alþýðubandalagsins um uppeldis- og menntamál. KristínÁ. Ólafsdóttir: Mikill ótti vegna flótta kennara og fóstra úr störfum Aþessarri námsstefnu ætlum við að leita svara við stórum spurningum um innihald uppeld- is og menntunar, sagði Kristín A. Ólafsdóttir varaformaður Al- þýðubandalagsins í samtali við Þjóðviljann, en Alþýðubandalag- ið gengst fyrir opinni námsstefnu þann 14.mars næstkomandi um uppeldi og menntun. Að sögn Kristínar hefur lengi staðið til að halda slíka náms- stefnu. „Hugmyndin kom til vegna þess ótta sem hefur ríkt og ríkir enn um það hrikalega ástand sem skapast við flótta kennara og fóstra úr störfum," sagði Kristín. „Enn frekara tilefni er útkoma OECD-skýrslunnar um menntun á íslandi, hin svokallaða svarta skýrsla. Við ætlum þó ekki að standa í þröngri kjaraumræðu heldur reyna að fara undir yfir- borðið og spyrja stórra spurninga um það til dæmis til hvers menntun er og um viðhorf fólks til hennar. Til þess að svara þessum spurn- ingum höfum við fengið fagfólk úr uppeldis- og kennarastéttinni til að halda fyrirlestra. Meðal annarra mun Páll Skúlason heimspekingur fjalla um menntun og stjórnmál, Húgó Þórisson sálfræðingur og Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra munu fjalla um uppeldis-og menntunarhlutverk skóla og dag- vistarheimila og Þorsteinn Vil- hjálmsson dósent ætlar að fjalla um spurninguna: Til hvers er menntun? Síðan munu 4 nemar úr menntaskólum og háskólanum reyna að svara því hvers þeir vænta af skólanum. Að því loknu munu þau Gyða Jóhannesdóttir skólastjóri Fósturskólans og Sig- urjón Mýrdal, æfingastjóri Kennaraháskóla íslands fjalla um fóstru- og kennaramenntun og reyna að svara því hvernig hún þyrfti að vera með tilliti til þess sem hefur komið fram hjá fyrri fyrirlesurum. í lokin mun Gerður G. Óskars- dóttir æfingastjóri í uppeldis- og kennslufræðum við Háskóla ís- lands stjórna pallborðsum- ræðum.“ Námsstefnan, sem er öllum opin, mun fara fram að Hverfis- götu 105 og væntanlegir þátttak- endur geta skráð sig í síma 17 500. -vd. Baldur Jónsson: Oft beðnir um rétta stafsetningu orða sem fólk er í vafa um. íslensk málstöð Leysir úr vandanum Baldur Jónssonforstöðumaður: Nýyrðasmíð-skýringar áorðum og hugtökum - Til þjónustu fyrir alla sem þess óska Það er alltaf nóg að gera hjá okkur. Við reynum að að- stoða og leysa úr öllum þeim mál- um sem inn til okkar koma. Það er ekki bara að semja nýyrði heldur allt sem lýtur að íslenskri tungu. Skýringar orða og hug- taka og einnig erum við beðnir um rétta stafsetningu orða sem fólk er í vafa um, - segir Baldur Jónsson, forstöðumaður Is- ienskrar málstöðvar. íslensk málstöð tók til starfa 1. janúar 1985. Hlutverk hennar er m.a. að vera til leiðbeiningar og ráðgjafar um íslenskt mál, eins- konar framkvæmdastofnun ís- lenskrar málnefndar. Málstöðin er rekin sameigin- lega af íslenskri málnefnd og Há- skóla íslands og er öllum til þjón- ustu sem til hennar vilja leita. Hefur hún m.a. unnið að útgáfu Tölvuorðasafns í samvinnu við Skýrslutæknafélag íslands og orðaskrár úr uppeldis- og sálar- fræði í samvinnu við Kennarahá- skóla íslands. Þá er í smíðum hjá málstöðinni orðasafn í hagfræði og læknisfræðilegt orðasafn sem orðanefnd læknafélaganna stendur að. Einnig sinnir hún öllum beiðnum sem hún getur í gerð ný- yrða. Gott dæmi um það er ný- yrðið fiða. Það kom til vegna vandræða hjá kanínubændum sem áttu ekki í fórum sínum neitt orð um það sem venjulegast kall- að er hár eða ull á kanínum en er hvorki hár né ull. Datt þá Baldrip Jónssyni, í hug orðið fiða sem merkir létta og lítilfjörlega flík eða þvíumlíkt. Hefur þetta ný- yrði mælst vel fyrir og hefur þegar sést á prenti m.a. hér á Þjóðvilj- anum ekki alls fyrir löngu. íslensk málstöð er til húsa að Aragötu 9 þar sem hún hefur til umráða 5 herbergi. Fastir starfs- menn hennar eru 3 en þessa stundina eru lausráðnir starfs- menn 4 en sá fjöldi er breytilegur. Vinstri menn Baráttuhátíð á Borginni Félag vinstri manna í Háskól- anum heldur baráttuhátíð á Hótel Borg annað kvöld þar sem fjöl- margir listamenn og aðrir góðir gestir koma fram. Hátíðin er lið- ur í kosningabaráttunni fyrir stú- dentaráðskosningarnar síðar í mánuðinum. Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni annað kvöld eru skáldin: Bergþóra Ingólfsdóttir, ísak Harðarson, Kristín Ómars- dóttir og Guðbergur Bergsson sem lesa úr verkum sínum. Guð- rún Hólmgeirsdóttir og félagar flytja vísnasöng og Sif Ragnhild- ardóttir syngur. Þá flytja þau Ingibjörn Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéð- insson hvatningarorð og ræðu kvöldsins flytur Runólfur Ág- ústsson sem skipar efsta sæti á lista Vinstri manna. Hljómsveitin Grafík leikur síðan fyrir dansi til kl. 02.00. -*g- Bílslysin Nöfn hinna látnu Mennirnir sem létust í bflslys- inu við Tíðaskarð í Kjós sl. laug- ardag hétu Jónas Eðwald Jónas- son, 25 ára húsasmíðanemi, Köldukinn 29 Hafnarfirði, og Gísli Andrésson bóndi að Hálsi í Kjós. Hann var á sjötugasta aldursári. Jónas lætur eftir sig konu og tvær ungar dætur og Gísli lætur eftir sig konu og 9 uppkomin börn. Ungi maðurinn sem lést í bíl- slysi við ísafjörð sl. föstudag hét Þór Alexandersson 21 árs gamall. Hann lætur eftir sig konu og eitt barn. r Þeirsegja að nýja flugstöðin sé dýrasta músarholaí gjörvöllum heiminum. Úr því sem komið er höfum við ekkinemaeittráð 2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.