Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Blaðsíða 5
Svona notum við smokkinn: • Smokkimi skal nota fra upphafi samfara • l>cgar gctnaðarlimurinn cr orðinn stinnur cr smokknum rúllað varlcga upp á. Mundu að hann situr hctur a þurrum lim cn rokum og því minni lixtta á að hann rcnni af. Auk þcss hcfur það truttandi áhrif að :;ctja smokkinn á i miðjum kliðum. • Þctta ætti að vcra cðlilcgur þáttur i samforunum og gctur jafnvcl orðið skcmnttilcgur hluti af forlciknum. • Uftir sáðfall minnkar gctnaðarlimurinn og til að koma i vcg f\ rir að smokkurinn rcnni af. cr nauðsynlcgt að halda þctt við hringinn cfst, þcgar limurinn cr drcginn út. • Nota skal nýjan smokk við hvcrjar samfarir. • Mundu að í þcssu scm öðru cr það æfingin scm skapar mcistarann! (iANCil VKKl'R VHI.I Úr bæklingi Landlæknisembættisins. HÆTTULAUST KYNLÍF GAGNKVÆM SJÁLFSFRÓUN. KOSSAR Á HÚÐINA OG ÞURRIR KOSSAR LÍKAMSNUDD, ATLOT OG FAÐMLÖG. VÆGIR SADÓMASÓKISTÍSKIR LEIKIR HJÁLPARTÆKI ÁSTARLÍFSINS (SÉ PEIM EKKI DEILT MEÐ ÖÐRUM). ERÓTÍSK MYNDBÖND OG KLÁMBLÖÐ. SENNILEGA HÆTTULAUST SAMFARIR MEÐ VERJUM Lítil hætta er þessu samfara ef verjan rifnar ekki. Nauðsynlegt er að nota rétt krem. Nota skal krem með vatnseiginleikum. Krem með olíueiginleikum, eins og vaselín, geta sett göt á verjuna. Áhættan minnkar enn frekar ef limurinn er tekinn út áður en kemur að sáðláti. VOTIR KOSSAR Vitað er að HlV-veiran hefur fundist t munnvatni, en líkurnar á að smit berist með þessum hætti eru hverfandi. Aftur á móti aukast líkurnar á smiti ef sár eru í munni eða á tungu. Ef annar hvor er með hálsbólgu eykur það hættuna á smiti. AÐ SJÚGA LIM - ÁÐUR EN KEMUR AÐ SÁÐLÁTI Þetta er á mörkum þess að vera „sennilega hættulaust" og „hættulegt kynlíf". Þar sem ekki er vitað hvort veiran sem veldur eyðni er í smurningsvökva sem myndast við kynertingu, er þó nokkur hætta þessu samfara. Ef sár eru í munni (og það er algengt) eða á lim eykst hættan til muna. Úr bæklingi Samtakanna 78. Smokkurinn, — vopn í veirubaráttunni Eyðni og alnæmi. - Sjúk- dómur sem á síöustu árum hefur stungið upp kollinum og engin lækning hefur fundist við. Banvænn sjúkdómur sem varla er einu sinni hægt að kalia sjúkdóm í sjálfu sér því veiran hefur þá verkun að opna öðrum sjúkdómum leið inn í líkamann sem síðan draga fólk til dauða. Sjúkdóms þessa varð fyrst vart í Afríku árið 1981. Heimurinn er sleginn ótta, lyf eru engin til, smit berst milli manna við þá frumþörf mannsins að auka kyn sitt. Umræða og að- gerðir Hérlendis sem erlendis hefur sprottið upp mikil umræða um sjúkdóm þennan, hvernig megi verjast honum og hefta út- breiðslu hans. Hérlendis er það í höndum heilbrigðisyfirvalda og landlæknis að hafa umsjón með slíkum aðgerðum og hafa þau brugðist við vanda þessum með aðgerðum allar götur síðan 1983 að fyrsti fundur um þennan sjúk- dóm með þeim og Samtökunum 78 var haldinn hér. Á næstu árum voru sérfræðing- ar sendir utan, á alþjóðaþing um eyðni, bæklingar um sjúkdóminn gefnir út, skimun hafin á Borgar- spítalanum, m.a. á blóði úr blóð- gjöfum, upplýsingaþjónustu í síma komið á, auglýsingum og kynningum komið til fjölmiðla og fræðsluefni gefið út og sent í skóla. Smokkaherferðin Nú er landlæknisembættið að fara af stað með mikla herferð um notkun smokka til að verjast eyðni. Herferð þessari er að sjálf- sögðu ætlað að ná til allra, en þó einkum til þess aldurshóps sem mest á í húfi, þ.e. unglinga á kyn- þroskaaldri sem enn eru ekki komin í fast samband við annan einstakling, og sem enn eru að þreifa fyrir sér í kynferðismálum og leit að lífsförunaut. Smokkurinn hefur fengið nýtt gildi og hlutverk - hann er bæði getnaðarvörn og smitvörn. Lögð er áhersla á að fólk noti smokka við kynmök og þó einkum við skyndikynni. Gefin hafa verið út þrjú plaköt þar sem ýmsir þekktir einstak- lingar auglýsa notkun smokksins og bregða á leik með hann. Plak- öt þessi eru skemmtileg að skoða enda er ætlun þeirra að vekja áhuga fólks á smokkum og losa um feimni þá sem enn kann að ríkja í sambandi við notkun þeirra. Að sögn landlæknis hefur fólk tekið umræðunni um smokka sem vörn gegn eyðni mjög vel, verið opið fyrir þessu og skilið nauðsynina. Helst sagði landlæknir það vera eldra fólk sem ekki vildi tala um þetta eða liti á smokkakumræðuna sem óþarfa dónaskap. f áróðursherferð landlæknis er lögð áhersla á nauðsyn þess að hafa smokkinn alltaf við höndina því allur er varinn góður og ekki þykir raunhæft að ætla að fólk hætti hjásofelsi af ótta við eyðni- sm,t‘ Smokkar á bensínstöðvum Nokkur söluaukning á smokk- um er þegar farin að koma í ljós og farið er að selja smokka á fleiri stöðum nú en áður var. Nú er t.d. hægt að kaupa smokka á bcnsín- stöðvum og í mörgum búðun'. og sjoppum. Aftur á móti ðast veitinga- og skemmtist; eig- endur fremur hikandi ac etja upp smokkasjálfsala vegn,. ótta við að þeir verði skemmdai. örg- um strax að bráð. Ekki má samt gleyma þvi i allri smokkaumræðunni að smokkur- inn og áróður fyrir notkun hans er ekki nema hluti af forvarnar- starfi landlæknis og heilbrigðisyf- irvalda. Hvers konar upplýsing- amiðlun um sjúkdóminn, smit- leiðir hans og hegðun eru stór þáttur í herferðinni, ásamt stöð- ugum rannsóknum og bættri að- stöðu fyrir þær. -Ing. Mlðvikudagur 4. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.