Þjóðviljinn - 04.03.1987, Síða 12

Þjóðviljinn - 04.03.1987, Síða 12
Ítalía Stjómaikreppa Craxi biðst lausnarfyrir sig og ráðuneyti sitt. Kosningar í vor? Bettino Craxi, forsætisráð- herra Ítalíu, gekk í gær á fund Cossiga, forseta landsins, og baðst lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt. Almennt hafði verið búist við þessum tíðindum úr ítölskum stjórnmálum um nokkra hríð og hafði Craxi látið að því liggja oft- ar en einu sinni að undanförnu að hann myndi stíga þetta skref. Ástæða þessa er mikil sundr- ung og óeining í ríkisstjórninni sem er samsteypustjórn fimm flokka. Einkum virðast kristilegir demókratar, undir forystu Gui- lios Andreottis, og liðsmenn for- sætisráðherrans sjálfs, ráðherrar Sósíalistaflokksins, hafa eldað grátt silfur saman. Stjórnin fór með völd í þrjú og hálft ár samfellt og hafði gengið á ýmsu. Síðastliðið sumar var hún hætt komin en eftir óvissu og ringulreið um mánaðarskeið var henni borgið með samkomulagi um að við hálfnað kjörtímabilið' viki Craxi fyrir forsætisráðherra- efni Kristilega demókrataflokks- ins. Nú kemur tvennt til greina. Annað er hið ólíklega, að Andre- otti takist að reisa nýja stjórn úr rústum stjórnar Craxis ef Cossiga veitir honum umboð til stjórn- armyndunar á næstu dögum. Hinn möguleikinn er sá sem flest- ir telja til muna líklegri, að efnt verði til þingkosninga í vor og við taki enn eitt tímabil óstöðugleika og stjórnarkreppu í ítalskri pó- litík. -ks. Bettino Craxi.til vinstri, og Guilio Andreotti. Ósam- lyndi þeirra sprengdi stjórnina. Cossiga forseti. Stjórnarkreppa og ringulreið fram- undan? Dýralíf Alþjóðavinnumálastofnunin Grænfriðungar til vamar mörgæsum Stjómin í Bonn krafin skýr- inga á atvinnuofsóknum Vestur-þýsk stjórnvöld í Bonn sökuð um pólitískar ofsóknir Grænfriðungar hafa gert út þrjátíu manna leiðangur sem ætlað er að trufla og koma í veg fyrir að lögð verði flug- braut á Suðurheimskauts- landinu, þvert í gegnum fugla- ver þar sem mörgæsir, kjóar og svölur hafa búið saman í sátt og samlyndi frá ómunatíð. Leiðangursmenn hafa þegar tekið til starfa, búið um sig á framkvæmdasvæðinu og veifa I þar alla daga borðum og kröfu- spjöldum með áletrunum um að fransmennirnir (ætíð eru það fransmenn!) láti þegar staðar numið við náttúruspjöllin. Grænfriðungar hafa einsett sér að fá Suðurheimskautslandið friðað fyrir átroðningi og fram- kvæmdabrölti fýrirtækja og ein- staklinga svo villt dýr eigi sér þar griðland framvegis sem hingaðtil. -ks. Aiþjóðavinnumálastofnunin í Genf hefur veitt vesturþýsk- um stjórnvöldum frest í þrjá mánuði til að setja saman svar við tvöhundruð og fjórtán síðna langri skýrslu stofnun- arinnar um atvinnuofsóknir á hendur kommúnistum. Allar götur frá árinu 1979 hafa stjórvöld rekið eða neitað að ráða í opinbera þjónustu mörg hundruð félaga Kommúnista- flokks Vestur-Pýskalands. Hafa þau skákað í skjóli laga sem kveða á um að óheimilt sé að ráða fólk sem ekki aðhyllist stjórn- arskrána í störf hjá því opinbera. Framkvæmdanefnd stofnunar- innar, sem í eiga sæti fimmtíu og sex einstaklingar, tók ákvörðun um veitingu frestsins í fyrradag eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að ráðslag Bonn- stjórnarinnar bryti í bága við samþykkt stofnunarinnar um vinnumál. Sögðu nefndarmenn að einu skynsamlegu tormerkin á því að kommúnistar gætu gegnt opin- beru starfi hjá sambandslýðveld- inu væru þau að þeir hefðu ekki sérmenntun til þess ellegar að það snerti beint öryggishagsmuni nkisins. -ks. <Q$S'ðLttUihcLtí( tílagskrá ke/rt [1.21.' 15 (stundvísle^a Kristín Ömaríd. Bergþöra Ingólfíd. Guoherqur Berass. Xjak Hífðar^. ^ ^uorúh Hölinfleirsd & féi sfxmmm.&féi. Ossur SK&rp,Xhgibjörq Sólrún, Runólfur Agústss i EddaPétursd.*+i(ynnir GrafíK . til kl. 02.00 íelag vuistrimanna-—I/ F.h. Innkaupanefndar sjúkrahúsa óskum vér eftir tilboðum í skurð- stofuhanska. Magn: ca. 680.000 pör. Útboðsgögn eru seld á skrif- stofu vorri fyrir kr. 300,- per sett. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 11.00 f.h. í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, sími 26844 Eiginkona mín, móðir og dóttir okkar Guðrún Sveinsdóttir Hraunhóli 7, Nesjahreppi andaðist á Kvennadeild Landspítalans mánudaginn 2. mars 1987. Kveðjuathöfnin fer fram frá Langholtskirkju fimmtu- daginn 5. mars nk. kl. 11.30 f.h. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Islands. Ásmundur Gislason og börn. Inga Valborg Einarsdóttir, Sveinn K. Sveinsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.