Þjóðviljinn - 04.03.1987, Qupperneq 15
IÞROTTIR
Valur Ingimundarson átti mjög góðan leik í gær, skoraði 42 stig.
Miðvikudagur 4. mars 1987 ÞJÖÐVILJINN - SlÐA 15
Körfubolti
Valur sá um Þórsara
Var á leiðinni til Fram
Skoski landsliðsmaðurinn Ian Wallace ætlaði að leika
með Fram í sumar, en hœtti við á síðustu stundu
er í sérflokki, varði mikið af
skotum og tók flest fráköstin. Þá
hitti hann nokkuð vel í sókninni.
Þeir Eiríkur Sigurðsson og
Ólafur Adolfsson áttu einnig
góðan leik.
Hann verður þungur róðurinn
hjá Þórsurum í síðari umferðinni,
enda ekki hlaupið að því að sigra
Njarðvíkinga á þeirra heimavelli.
Stig Þórs: ívar Webster 32,
Eiríkur Sigurðsson 15, Björn
Sveinsson 12, Ólafur Adolfsson
12, Hólmar Astvaldsson 8, Guð-
mundur Björnsson 8, Konráð
Óskarsson 5 og Jóhann Sigurðs-
son 2.
Stig Njarðvíkur: Valur Ingi-
mundarson 42, ísak Tómasson
21, Jóhannes Kristbjörnsson 17,
Kristinn Einarsson 14, Helgi
Rafnsson 11, Árni Lárusson 8,
Hafsteinn Hilmarsson 3, Hreiðar
Hreiðarsson 2 og Einar Valgeirs-
son 2.
-KH/lbe
Knattspyrna
lan Wallace, var á leiðinni til Fram.
Það munaði ekki mikla að Ian
Wallece, fyrrum leikmaður Nott-
ingham Forest og skoskur lands-
liðsmaður hefði komið hingað og
leikið með Fram í sumar.
Framarar voru búnir að ræða
við Wallace og hann hafði lýst
yfir áhuga á að koma hingað og
leika næsta sumar. En daginn
áður en hann ætlaði að koma til
að líta á aðstæður fékk hann til-
boð úr gagnstæðri átt, frá Ástral-
íu sem hann tók og því verður
ekkert úr komu hans.
„Já, það er rétt, hann var á
leiðinni til okkar,“ sagði Halldór
B. Jónsson formaður knattspyrn-
udeildar Fram í viðtali við Þjóð-
viljann í gær. „Það munaði
reyndar ekki nema nokkrum
klukkustundum. Hann ætlaði að
koma hingað og líta á aðstæður,
en um nóttina fékk hann tilboð
frá Ástralíu sem hann gat ekki
hafnað og kemur því ekki.“
„Wallace hefur leikið á Spáni í
vetur og honum fannst tilvalið að
koma til íslands og leika hér í
sumar. Hann hefði þá leikið með
okkur fram yfir Evrópukeppn-
ina, en síðan ætlaði hann til Skot-
lands eða Englands og leika þar
næsta keppnistímabil.“
„Það var kunningi okkar í
Skotlandi sem ræddi við hann og
þetta var hentugt fyrir báða aðila.
Við höfum misst tvo menn sem
skoruðu samtals 29 mörk í fyrra,
þá Guðmund Torfason og Guð-
mund Steinsson og það er gott
fyrir okkur að fá nýtt blóð,“ sagði
Halldór.
Ian Wallace hóf feril sinn með
Dumbarton í Skotlandi, þaðan
fór hann til Coventry, þaðan til
Nottingham Forest. Hann lék svo
með franska félaginu Brest og
síðasta ár lék hann á Spáni. Hann
hefur leikið þrjá landsleiki fyrir
Skotland.
-Ibe
Valur Ingimundarson fór á
kostum þegar Njarðvík sigraði
Þór á Akureyri, 94-120 í fyrri leik
liðana í undanúrslitum bikar-
keppninnar í körfubolta. Valur
skoraði 42 stig og var maðurinn á
bakvið sigur Njarðvíkinga.
Þórsararnir byrjuðu vel og
leiddu framan af. En um miðjan
fyrri hálfleik náðu Njarðvíkingar
Körfubolti
Sigur gegn Skotum
forystunni. Á þeim tíma var vörn
þeirra mjög sterk og Þórsurum
gengið illa að komast í gegn. í
hálfleik var staðan 50-65, Njarð-
víkingum í vil.
Njarðvíkingar byrjuðu af
krafti í síðari hálfleik og náðu
snemma 20 stiga forskoti, 66-86.
Og mestur varð munurinn 28 stig.
74-102. Þórsarar náðu aðeins að
klóra í bakkann í lokin og
minnkuðu muninn í fjórtan stig.
Njarðvíkingar voru svo sterkari á
lokamínútunum og sigruðu ör-
ugglega, 94-120 og eru nánast ör-
uggir í úrslitaleikinn.
Leikurinn var mjög skemmti-
legur og hraður þó að Njarðvík-
ingar hafi verið mun betri. Hittni
var mjög góð og Valur Ingimund-
arson fór á kostum, skoraði 6
þriggja stiga körfur.
Það var greinilegt að Njarðvík-
ingar vanmátu ekki andstæðinga
sína. Vörn þeirra var sterk og
gerðu þeir mikið að því að stela
boltanum af Þórsurum og fengu
þannig mikið af hraðaupphlaup-
um. í sókninni var Valur í miklu
stuði, hitti nánast í hverju skoti
og þeir Jóhannes Kristbjörnsson
og ísak Tómasson voru mjög
leiknir með boltann.
Hjá Þórsurum var ívar Webst-
íslenska Unglingalandsliðið U-
19 í körfuknatleik sigraði Skot-
land í síðari leik liðana í keppnis-
ferð í Skotlandi.
ísland tapaði fyrri leiknum
naumlega 70-74, en sigraði glæsi-
lega í síðari leiknum, 113-94.
Skotar höfðu forystuna framan
af en um miðjan fyrri hálfleik
skiptu íslendingar yfir í 1-3-1
pressuvörn og tókst það mjög
vel. Þannig tókst þeim að vinna
upp forskotið og í hálfleik voru
þeir yfir 59-38.
Þessi vörn hafði þó þann fylg-
ikvilla að henni fylgdu býsna
margar villur og þegar líða tók á
síðari hálfleikinn fóru stærstu
mennirnir að tínast útaf, en ís-
lendingar léku af skynsemi síð-
ustu mínúturnar og uppskáru
góðan sigur 113-94.
Stigahæstir íslendinga voru
Eyjólfur Sverrisson, Tindastól 25
stig, Bárður Eyþórsson Val 18
stig, Ragnar Jónsson Val 16 stig,
Júlíus Friðriksson ÍBK 13 og
Friðrik Rúnarsson UMFN 12
stig.
Islenska liðið vakti athygli fyrir
mikla baráttugleði, en þess má
geta að í liðið vantaði tvo sterka
menn, Ólaf Gottskálksson ÍBK
og Magnús Guðfinnson sem er
við nám í Bandaríkjunum.
Það gekk þó ekki jafn vel hjá
kvennaliðinu. Þær töpuðu fyrri
leiknum 35-85 og þeim síðari 54-
83.
Stigahæstar í síðari leiknum
voru þar Anna Sveinsdóttir 22
stig og Björg Hafsteinsdóttir 16
stig.
Þessir leikir eru þáttur í undir-
búningi fyrir Norðurlandamót
unglinga í Noregi í byrjun mai.
Þess má til gamans geta að
ástæðan fyrir því að Ólafur Gott-
skálksson getur ekki æft með ung-
lingalandsliðinu er sú að hann
kemur til með að leika með KA í
knattspyrnu í sumar. Ólafur er
líkt og félagi hans hjá Keflavík,
Þorsteinn Bjarnason, markvörð-
ur á sumrin. -Ibe
Knattspyrna
Heimþrá
Þórður Marelsson, sem lék
með Fram síðásta keppnistímabil
hefur ákveðið að fara aftur heim
til Víkings.
Ragnar Rögnvaldsson sem lék
með Víkingum er einnig á
leiðinni heim, til Breiðabliks.
Hann kemur því til með að leika
með bróðir sínum Rögnvaldi
næsta keppnistímabil.
Þá hafa Framarar fengið mark-
mann, Ólaf Ólafs sem lék með
Þrótti. -Jbc
HM 1994
Sjö þjóðir
sóttu um
Sjö þjóðir hafa óskað eftir að fá
að halda Heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu 1994.
Það voru Brasilía, Alsír, Chile,
Marokkó, Suður-Kórea, Benin
og Bandaríkin sem sóttu um.
I reglum FIFA segir að ekki
megi halda tvær keppnir í röð í
sömu heimsálfunni, en næsta
keppni verður haldin í Ítalíu
1990. Það voru því aðeins þjóðir
utan Evrópu sem máttu sækja
um.
Það verður í júní á næsta ári
sem FIFA tekur lokaákvörðun
hvar keppnin skuli haldin
-Ibe/Reuter
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
29. leikvika
Charlton-West Ham......................
Chelsea-Arsenal.............................2
Coventry-Sheffield Wed.................
Liverpool-Luton........................
Manch.Utd-Manch.City........................x
Newcastle-Aston Villa..................
Norwich-Wibledon............................x
Tottenham-Q.P.R.............................1
Birmingham-Sunderland..................
Brighton-Derby.........................
Stoke-lpswich..........................
W.B.A.-Portsmouth...........................x
í síðustu viku voru 5 með tólf rétta og fékk hver 138.795 kr. Með 11
rétta voru 90 og fengu 3.304 kr.
•o 'O 2$ 25 Ía -Sf
A 5 os 03
1 X 2 X 2 2 2
2 2 1 2 X 1 2
1 1 2 X 1 1 1
.1 1 1 1 1 1 1
. X X 1 1 1 1 X
1 2 1 X 1 X 1
X 1 1 1 1 X 1
.1 1 1 1 1 1 1
1 1 X 1 1 1 1
.2 2 2 2 2 X 2
.1 1 1 1 2 2 X
X X X 1 2 2 2
England
Ipswich í
4. sæti
Ipswich komst í fjórða sæti í 2.
deildinni ensku með sigri gegn
W.B.A. í gær.
Þá Sigraði Barnsley Shrews-
bury 2-1, Huddersfield og Birm-
ingham gerðu jafntefli 2-2 og
Hull vann Sunderland 1-0.
-Ibe/Reuter.