Þjóðviljinn - 11.03.1987, Side 12
HEIMURINN
Bretland
Verkamannaflokkur
enn í vanda
Kosningaósigur í Greenwich vekur upp nýjar deilur
miðju- og vinstrimanna. Callaghan gegn einhliða
kjarnorkuafvopnun
Ósigur frambjóðanda Verka-
mannaflokksins fyrir fulltrúa
miðjubandalags frjálslyndra
og jafnaðarmanna í Greenwich
á dögunum hefur hleypt nýju
lífi í umræðuna gamalkunnu
um róttæka umbyltingarstefnu
öndvert hægfara umbóta-
hyggju, hinn gullna meðalveg
þessara viðhorfa og hvað falli í
kram breskra atkvæða og
hvað ekki.
Allar götur frá árinu 1945 hafði
þessi útborg Lundúna verið
traust vígi Verkamannaflokksins
og kosningar nánast formsatriði.
Pví er ekki að furða þótt forystu-
mönnum flokksins hafi slegið
fyrir brjóst er úrslit lágu fyrir, því
talið er fullvíst að Thatcher for-
sætisráðherra rjúfi þing og efni til
kosninga á hausti komanda. Eru
niðurstöðurnar úr Greenwich að-
eins forsmekkur þess sem koma
skal? Á hvern eða hverja er hægt
að skella skuldinni af þessum sára
ósigri?
Miðjumenn tvínóna ekki við
þessa spurningu heldur svara um-
búðalaust: „Vinstrivilla" fram-
bjóðandans, Deirdre Wood,
AUGLYSING
um framlagningu
kjörskrár
í Hafnarfirði
Kjörskrá fyrir Hafnarfjörð vegna alþingiskosn-
inga, sem fram eiga að fara 25. apríl 1987, liggur
frammi almenningi til sýnis á.bæjarskrifstofunni
að Strandgötu 6, hafnarfirði alla virka daga nema
laugardaga, frá 13. mars til 6. apríl n.k., kl. 9.30-
15.30.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu haf borist skrif-
stofu minni eigi síðar en 6. apríl n.k.
Hafnarfirði, 10.
Bæjarstjóri
mars 1987
Lausar stöður
Við félagvísindadeild Háskóla Islands eru lausar til umsóknar eftir-
taldar stöður:
1. Lektorsstaða í stjórnmálafræði. Umsækjandi skal vera hæfur til
að annast kennslu í undirstöðugreinum í stjórnmálafræði og
kennslu og rannsóknir á a.m.k. einu af eftirfarandi sviðum ís-
lenskra stjórnmála: 1. Ákvarðanaferli og stofnanaþróun innan
stjórnkerfisins. 2. Hegðun og viðhorf kjósenda. 3. Samanburð-
arstjórnmál.
2. Dósentsstaða í aðferðafræði. Umsækjandi skal hafa aflað sér
víðtækrar menntunar og reynslu í rannsóknaraðferðum félags-
vísinda og tölfræði. Kennslan verður á sviði aðferðafræði, töl-
fræði og tölvunotkunar.
3. Lektorsstaða í bókasafns- og upplýsingafræði. Æskilegar sér-
greinar eru einkum skráning og flokkun. Staða þessi er tíma-
bundin og er gert ráð fyrir að ráðið verði í hana til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 6. apr-
íl n.k.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1987
James Callaghan, fyrrum forsætis-
ráðherra og formaður Verkamanna-
flokksins. Hallast á sveif með íhaldinu
í afvopnunarmálum.
fældi fjölda guðhræddra og
grandvarra kjósenda frá Verka-
mannaflokknum yfir til miðju-
bandalagsins. Meðal þess sem
henni er legið á hálsi fyrir er and-
staða við NATO, samúð með
málstað IRA (ekki baráttuað-
ferðum) og að hún hafi tekið upp
hanskann fyrir samtök homma og
lesbía. Hið síðasttalda þykir ó-
skaplegur ljóður á ráði frambjóð-
enda nú á tímum ofsahræðslu við
útbreyðslu eyðni samfara van-
þekkingu á eðli sjúkdómsins.
í bréfi sem „lekið“ hefur til
fjölmiðla hellir ritari Neils Kinn-
ocks flokksformanns, Patricia
Hewitt að nafni, sér yfir þá er hún
nefnir „vinstrivillinga“ og eink-
um stjórn þeirra á ýmsum borg-
arhlutum Lundúna þar sem full-
trúar Verkamannaflokksins eru í
meirihluta.
„...málefni homma og lesbía
fæla frá flokknum fjölda kjós-
enda úr röðum lífeyrisþega og
óttinn við allskonar öfga og háa
skatta er einnig mjög áberandi á
höfuðborgarsvæðinu. “
Óvíst þykir hvort bréf þetta sé
runnið undan rifjum Kinnocks
sjálfs og víst er að birting þess
setur hann í klípu því nú má búast
við að erjur og vígaferli and-
stæðra fylkinga Verkamanna-
flokksins magnist um allan helm-
ing nú á kosningaári, deilur sem
hann hefur kostað kapps um að
setja niður allt frá því hann var
kjörinn til að veita flokknum for-
ystu.
Verkamannaflokkurinn hefur
verið í stjórnarandstöðu í átta ár.
Sigri hann ekki í komandi kosn-
ingum má búst við að dagar Kinn-
ocks sem formanns séu á enda.
Hann hefur reynt að sætta hópa
er bárust á banaspjót innan
flokksins en virðist ekki hafa haft
nægilegt erindi sem erfiði.
Auk deilna um kosninga-
stefnuskrár er nú í gangi umræða
um hugmyndafræði Verka-
mannaflokksins, í tímariti vin-
strisinnaðra menntamanna, New
Statesman, þar sem saumað er að
valdakjarnanum fyrir að hafa
láðst að skapa flokknum hug-
myndafræðilega sérstöðu líkt og
hægri menn hafi gert með frjáls-
hyggjunni og því hafi hann ekkert
fram að færa utan gömlu frasana.
Ofan á öll þessi vandkvæði
Neils Kinnocks bætist síðan
upphlaup James Callaghans á
þingi þar sem hann hélt því fram
að útí hött væri að Bretar lýstu
yfir einhliða kjarnorkuafvopnun.
Allar hugmyndir um eyðingu
kjarnaflauga ætti að leggja fyrir
samninganefndirnar í Genf og
engar ákvarðanir ætti að taka fyrr
en útséð væri um það hvað Sovét-
menn hygðust taka sér fyrir hend-
ur.
Þessi ummæli brjóta í bága við
yfirlýsta stefnu Verkamanna-
flokksins um einhliða kjarnorku-
afvopnun og eru vatn á myllu
íhaldsflokksins sem er sama sinn-
is. Það er ekki undarlegt þótt
flokksfélagar Margrétar Thatc-
hers hafi fagnað ákaflega er Call-
aghan lauk máli sínu því næsta
víst þykir að afvopnunar- og
varnarmál verði efst á baugi í
kosningunum. Hinsvegar drúpti
Neil Kinnock höfði í þungum
þönkum.
-ks.
Ferjuslysið
Miklar
skaðabóta-
kröfur
Talsmenn Lloyds-trygg-
ingafyrirtækisins búast við að
skaðabótakröfur vegna ferju-
slyssins í Ermasundi á föstu-
daginn muni verða hærri en 30
milljónir sterlingspunda sem
eru tæplega 1,9 milljarðar ís-
lenskir.
Búist er við að heildarkröfur
frá farþegum, ættingjum látinna
og eigendum farms verði ekki
kunnar fyrren eftir nokkrar vik-
ur. Þá er ekki ljóst hversu illa
skipið er farið. Björgunarmenn
undirbjuggu í gær tilraunir til að
koma skipinu á réttan kjöl, en
það er vandaverk þarsem því er
hætt við að velta af sandbakkan-
um sem það liggur á nú. Enn eru
um 80 lík innanborðs.
Belgar hafa hafið yfirheyrslur
vegna slyssins og segja
rannsóknarmenn að ef í ljós kem-
ur að um vanrækslu áhafnar hafi
verið að ræða eigi skipstjórinn,
sem enn liggur á sjúkrahúsi, yfir
höfði sér ákæru um manndráp af
gáleysi. Sé hönnunargalli orsök
slyssins verður eigendunum,
Townsend Thoresen, stefnt fyrir
sömu sakir.
Bresk stjórnvöld rannsaka
einnig slysorsakir, og einnig ætlar
skipafélagið að standa fyrir sjálf-
stæðri rannsókn.
-in
Vestur-Þýskaland
Græningjar
gegn eyðni-
fordomum
Fulltrúar hreyfingar Græn-
ingja á sambandsþinginu í
Bonn sökuðu hægri menn í
gær um að skapa múgæsingu
vegna eyðnihættunnar og efna
til ofsókna á hendur einstak-
lingum úr svonefndum
áhættuhópum, svo sem
hommum, fíkniefnaneytend-
um, gleðikonum og útlending-
um.
Þeir segjast vera algerlega and-
vígir því að skylda fólk úr þessum
hópum í eyðnipróf eða að halda
sérstaka skrá yfir menn sem smit-
ast hafa og ganga með veiruna í
holdi sér. Slíkt auki eingöngu fé-
lagsleg vandamál þessara ein-
staklinga, sem ekki sé á bætandi,
en hefti ekki útbreiðslu sjúk-
dómsins.
Græningjar telja sambands-
stjórnina í Bonn líklega til að feta í
fótspor skoðanabræðra sinna í
Bæjaralandi en þeir hafa fært í
lög að neyða megi fólk úr áhættu-
hópunum í eyðnipróf og enn-
fremur alla þá er sækja um störf
hjá því opinbera.
Græningjar segja ekkert koma
að góðum notum í baráttunni
gegn vágestinum utan skýr og vel
skipulögð uppfræðsla og
menntun. ^
Dýravernd
Froskafríður á Indlandi
Indverska stjórnin hefur lagt
blátt bann við útflutningi á
froskalærum sem um langt
árabil hafa verið flutt í stórum
stíl á markaði í Evrópu, átker-
um og sælvöglum til magafyll-
is.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að froskar eru mikil þarfa-
þing á Indlandi því þeir éta jafn-
gildi þyngdar sinnar af allskonar
hvimleiðum pöddum og flugum á
degi hverjum, smitberum hinum
verstu.
Um það bil hundrað tuttugu og
fimm þúsundum þessara vinalegu
dýra er komið fyrir kattarnef ár-
lega svo hugsjónamenn um kýlda
vömb fái uppfyllingu óska sinna
og pestir eigi greiða leið um
byggð ból á Indlandi. Því var það
orðið vel tímabært að slá skjald-
borg um froskanna nytsama líf.
-ks.
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. mars 1987