Þjóðviljinn - 11.03.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 11.03.1987, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Argentína Passarella sektaður Passarella, fyrrum fyrirliði argentínska landsliðsins, sem leikur nú með Inter Milan var í gær sektaður um 130.000 krónur fyrir að sparka í boltastrák. Atvikið átti sér stað í leik Inter gegn Sampdoria. Passarella fannst einn boltastrákurinn eitthvað seinn að ná í boltann og sparkaði í hann, líklega til að flýta fyrir, og var sektaður fyrir vikið. Forráðamenn Inter segja að peningunum verði varið til að mennta boltastrákinn. -Ibe/Reuter Fyrirliftar liðanna þriggja með Alison-bikarinn, Björn Björnsson, ÍK, Helgi „Basli" Helgason, Augnabliki og Ólafur Björnsson, Breiðabliki. Kópavogur Alison- Bikarinn Alison-bikarinn, fyrsta inn- byrðis mót meistaraflokka knatt- spyrnuflokka knattspyrnufélag- anna í Kópavogi, hefst laugardag- inn 14. mars á Vallargerðisvellin- um með leik ÍK og Augnabliks kl. 13. Laugardaginn 21. mars leika á sama stað og tíma Breiðablik og Augnablik og laugardaginn 28. mars mætast Breiðablik og ÍK. Þetta er fyrri umferð mótsins en sú síðari verður leikin í apríl. Saumastofan Alis í Kópavogi, sem framleiðir Alison sportfatn- að gefur verðlaun til keppninnar, farandbikar og eignabikar. 0 V-Þýskaland Dómgæsla í molum Reykjavík þann 6.3. ’87 af gefnu tilefni: Ég undirritaður sé mig knúinn til þess að rita nokkrar línur sem varða dómgæslu í handknattleik. í>að skal tekið fram að ég er enn svo reiður að ég má vart mæla þegar ég er spurður um þessi atvik, ekki bara eitt, heldur keðju af mistökum dómara í kappleik milli tveggja 1. deildarliða í hand- knattleik. Ég vil þó í upphafi óska liðs- mönnum og þjálfara Breiðabliks til hamingju með sigurinn, hann hefur verið þeim kærkominn. Breiðablik er það lið, sem mest hefur komið á óvart í deildinni í vetur og þar er á ferð efnilegt og ekki síst vel agað lið. Geir Hallsteinsson er sennilega sá þjálfari sem stendur upp úr hvað þjálfun og ögun snertir í íslenskum handknatt- leik í dag. Það er gaman að fylgjast með honum í leikj um því hann er ekki aðeins með ögun á liði sínu heldur ekki síst sjálfsaga. Hann jafnt og þétt hvetur menn sína til dáða, leggur fyrir þá kerfi, breytir og bætir eftir gangi Íeiksins. Pá sést það ekki oft að hann láti skap sitt hlaupa með sig í gönur þrátt fyrir hreint ranga dóma. Hann ef til vill fórnar höndum. Nú þetta var eiginlega ekki erindi mitt, en þó varð ég að geta þess svo það komi glögglega fram að ég er ekki með hnútukast að liði Geirs. Erindi mitt var fyrst og fremst það að spyrja og þá óska eftir svörum við því hvers vegna dómarar sem ekki valda verki sínu eru settir til dóm- gæslu hjá liðum í 1. deild. Því langar mig til að setja upp spurningalista á eftirfarandi hátt: 1. Er ekki nein krafa sett fram um úthald og þrek dómara? 2. Er ekki gerð krafa til þeirra um að þeir hafi kynnt sér leikreglur? 3. Pá, hvenær á að dæma leiktöf eða leikleysu? Þessar spurningar vöknuðu hjá mér í þessum leik, þar sem a.m.k. annar dómaranna var að mínu eigin mati ekki í úthaldi til þess að hlaupa svona fram og aftur í 60 mín. þrátt fyrir leikhlé. Það meðal annars verð- ur til þess að hann fer að missa tök á leiknum. Hann, þ.e. dómarinn, verð- ur þreyttur og um leið viðkvæmari fyrir athugasemdum leikmanna, og því fljótari en ella að áminna menn oft að ósekju, og því eina ráðið að grípa til gula spjaldsins. Þá kom það fyrir í þessum leik, sem er sennilega mjög sjaldgæft, að á annað liðið eru dæmd ef ég man rétt 11 víti, en aðeins þrjú á hitt liðið. Flest af vítunum voru dæmd eftir að búið var að „vippa“ boltanum úr hendi sóknarmanns, án þess að um nokkra líkamssnertingu hafi verið að ræða. Varðandi leiktöf- ina eða leikleysuna þá kom það fyrir í þessum lcik að boltinn var eins og svo oft er gert látinn ganga tvisvar fram og aftur framan við vörn andstæðing- anna, rétt á meðan sóknarmennirnir voru að staðsetja sig til keyrslu á kerf- um, en þá allt í einu var dæmd leiktöf eða leikleysa, ég veit ekki hvort var. Þetta gerðist ekki í eitt skipti heldur tvisvar, en bæði áður og eftir fengu bæði liðin að spila boltanum ógnunar- lítið eða ekkert fram og aftur dágóða stund. Ekkert dæmt. Þarna dæma dómararnir að mínu viti ósann- færandi vægast sagt. Þó keyrði fyrst um þverbak þegar dæmt var víti á Breiðablik og einn Framarinn tók sér stöðu til að taka vítakastið, en hávaðinn og flautið í áhorfendum slíkt að ekki heyrðist mannsins mál í húsinu. Þarna var allt til reiðu, og jöfnunarmark fyrir okkur í augsýn og nægur tími eftir. Nei, þá allt í einu enn eitt undravert atvik, annar dómarinn dæmir vítakastið af sem leiktöf leikmanns Fram. Mér er spurn, lið sem er einu marki undir og því er dæmt vítakast, er nokkur heil brú í því að ætla leikmanni þess að vera að tefja leikinn með því að taka ekki vítakastið? Nei og aftur nei. Þarna gat dómarinn með tilliti til há- vaðans sagt sér það sjálfur að eitthvað var að, og hefði þá átt að ganga til leikmannsins og gefa honum merki um að taka kastið. Dómarinn kvaðst hafa flautað tvisvar en til hans heyrðist ekki fyrir hávaða. Þrátt fyrir það að í lögunum kveði svo á að ef greinilega sé verið að tefja leikinn með því að leika ekki boltanum í til- viki sem þessu, þá hlýtur að gilda um það einhver tími sem líða verður þar til leiktöf er dæmd. Ég held að þessi fádæma reynsla hljóti að vekja menn til umhugsunar um það hverslags menn eru settir til dómgæslu hjá keppnisliðum ekki bara í 1. deild heldur og einnig í neðri deildunum. Það er ömurlegt til þess að vita að sh'kir menn sem þessir tveir dómarar skuli geta eyðilagt heilan leik fyrir mönnum, sent hafa lagt á sig ómælt erfiði og tíma í æfingar og þrekþjálfun, uppbyggingu á kerfum og keyrslu þeirra. Það getur ekki ver- ið sanngjarnt gagnvart þessum leik- mönnum að bjóða upp á slíkt fádæmi sem þessir dómarar tiltekins leiks gerðu sig seka um. Ég held að það hljóti að vera krafa allra leikmanna og þjálfara að eftir allt það erfiði sem þeir leggja á sig verði þeim séð fyrir nokkuð þokkalegum dómurum. Ég hef aldrei, ekki í einni einustu íþrótta- grein sem ég hef séð og fylgst með eða tekið þátt í, orðið vitni að slíkum hamförum mistaka og vitleysa hjá dómurum. Ég vil taka það skýrt fram að þetta á ekki við nema þetta eina dómarapar eins og það er kallað. Öðrum dómur- um færi ég þakkir fyrir þeirra þátt og erfiði ekki síður en leikmönnum. Þá vil ég að lokum lýsa aðdáun minni á áhorfendum og stuðnings- mönnum Breiðabliks, sem allan tím- ann hvöttu menn sína til dáða með hrópum og köllum. Maður skilur nú hvernig það er að sækja íslendinga heim þegar allt er vitlaust í Höllinni. Breiðablik, þið eigið frábæra stuðn- ingsmenn! Virðingarfyllst, Hörður Jóhannesson, aðst.maöur hjá meistaraflokki Fram í handknattleik. Handbolti Valur í vandræðum Sigruðu Gróttu með einu marki Grótta var ekki langt frá sigri gegn Val í bikarkeppninni í gær. Grótta var yfir lengst af en klaufaskapur á lokaminútunum gerði vonir þeirra að engu og Valsmenn sigruðu 31-32. Grótta náði forystunni snemma í leiknum og voru yfir lengst af í fyrri hálfleik, en Vals- menn voru yfir í leikhlé, 15-17. Grótta jafnaði snemma í síðari hálfleik og náði forystunni. Um miðjan síðari hálfleik var staðan 22-19, en þá fór að síga á ógæfu- hliðina hjá Gróttu. Valsmenn náðu að jafna, 27-27 og þegar 3 mínútur voru til leiksloka var staðan 30-30. En Valsmenn voru sterkari á endasprettinum og sig- ruðu 32-31. Liverpool sigraði Arsenal, 1-0 á útivelli, í ensku deildakeppninni og er þarmeð komið með 6 stiga forskot í deildinni. Það var Ian Rush sem skoraði sigurmark Liverpool á 20. mín- útu, hans fyrsta mark í fimm leikjum. Þetta var fyrsta tap Arsenal á heimavelli í vetur og Leikmenn Gróttu komu mjög á óvart. Sigtryggur Albertsson stóð sig mjög vel, varði 12 skot. Halldór Ingólfsson og Þór Sig- urgeirsson áttu góðan leik fyrir Gróttu. Valsmenn léku þokkalega, vörnin sterk, en full mikið af mis- tökum í sókninni. Júlíus Jónas- son átti góðan leik í sókninni og Geir Sveinsson í vörninni. Mörk Gróttu: Halldór Ingólfsson 11, Da- víð B. Gíslason 6, Þór Sigurgeirsson 6, Björn Björnsson 5, Kristján Gunnlaugsson 2 og Klemens Árnason 1. Mörk Vals: Júlíus Jónasson 9, Jakob Sigurðsson 9, Valdimar Grímsson 7, Stef- án Halldórsson 4, Theodór Guðfinnsson 2 og Geir Sveinsson 1. þeir hafa aðeins fengið tvö stig í síðustu fimm leikjum og mögu- leikar þeirra á meistaratitlinum fara minnkandi. Staða Liverpool er hinsvegar sterk, sex stiga for- skot á Everton. Þá var einn leikur í 2. deild, Portsmouth og Leeds gerðu jafn- tefli 1-1. -Ibe/Reuter Berthold til Verona Vestur-Þýski landsliðsmaðurinn, Thomas Berthold er á leið til ítalska félagsins Verona. Berthold, sem leikið hefur með Einntracht Frankfurt, mun fara til ít- alíu í apríl ár og skrifa undir samning- inn. Áætlað kaupverð er um 2.4 milj- ónir marka, eða unt 50 miljónir ís- lenskra króna. -Ibe/Reuter Holland Kort gegn skrílnum Mikið hefur verið um óeirðir á knattspyrnuleikjum í Hollandi að undanförnu. Liðin í 1. deild hafa því ákveðið að taka upp sérstök meðlimakort til að koma í veg fyrir skrílslæti. Þessi kort verða ekki notuð í öllum leikjum, heldur aðeins þeim sem þykja sérstaklega áhættusamir. Tvö lið hafa eink- um verið þekkt fyrir slæma áhorf- endur, Feyenoord og Den Haag verða kortin líklega notuð á öllum leikjum þeirra. Ekki fá allir kort og þeir sem haga sér illa eiga það á hættu að missa kortið. Með þessu vonast knattspyrnuyfirvöld í Hollandi til að geta útrýmt skrílslátum á knattspy rnuleikj um. -Ibe/Reuter -ós/lbe England Sex stiga forskot Liverpool óstöðvandi íslandsmeistarar Breiðabliks í knattspyrnu, 2. flokki kvenna. Aftari röð fr.v: Ómar Arason þjálfari, Gréta Blængs- dóttir, Jóna Haraldsdóttir, Inga Ólafsdóttir, Þórhildur Helgadóttir, Oddur Grímsson liðstjóri. Fremri röð fr.v: Bryndís Eysteinsdóttir, Katrín Óskarsdóttir, Kristrún Daðadóttir, Sigrún Óttarsdóttir, Bylgja Jónsdóttir og Jónann a Helgadóttir. Miðvikudagur 11. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.