Þjóðviljinn - 11.03.1987, Qupperneq 13
Irland
Haughey slapp naumlega
Traustsyfirlýsing samþykkt með atkvœði þingforseta. Oháður
vinstriþingmaður hótar andstöðu gegnfélagslegum niðurskurði
Charles Haughey varð í gær
forsætisráðherra írska lýð-
veldlsins í þriðja sinn eftir að
stjórn Fianna Fail-flokks hans
vann atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu á þingi með
eins atkvæðis meirihluta.
Mikil spenna ríkti á þinginu í
Dyflinni í gær þarsem óljóst var
hvernig þingmaðurinn Terry
Gregory mundi greiða atkvæði.
Hefði hann beitt sér gegn stjórn-
inni væri hún fallin, 83-82, en
Gregory kaus að sitja hjá, og skar
því atkvæði þingforseta úr.
Fianna Fail-flokkinn vantaði
þrjú þingsæti á hreinan meiri-
hluta í kosningunum í febrúar, og
þurfti Haughey formaður hans
því að reiða sig á stuðning
óháðra, sem eru fjórir á þinginu.
Einn þeirra er stuðningsmaður
stjórnarinnar, annar andstæðing-
ur hennar, sá þriðji var kjörinn
þingforseti, og slíkir bjarga sitj-
andi stjórn samkvæmt hefð.
Sá fjórði er svo vinstrimaður-
inn Gregory. Hann studdi stjórn
Haugheys árið 1982 gegn miklum
fjárveitingum til kjördæmis síns,
fátæks verkalýðshverfis í Dublin,
en Haughey neitaði nú öllum
samningum við óháða og sagði að
fengi hann ekki meirihluta yrði
boðað til nýrra kosninga. Greg-
ory ákvað að sitja hjá á þinginu í
gær, en sagði janframt að hann
mundi endurskoða þá afstöðu
sína til stjórnarinnar ef hún ætl-
aði sér félagslegan niðurskurð.
Charles Haughey hefur tvisvar
áður orðið forsætisráðherra í
Eire, 1972 og 1982, sat tæpt hálft
annað ár fyrra sinnið og rúmt
hálft ár hið síðara. Fróðir menn
um írsk stjórnmál telja vafasamt
að hann nái að sitja nú út fimm
ára kjörtímabil, og þykir stjórn
hans of veik til að mæta geigvæn-
legum efnahagsvanda í landinu
svo gagn sé að. -m
Charles Haughey formaður Fianna
Fail, - forsætisráðherra íra í þriðja
sinn.
Genf
Viðræður
hefjast
á ný
Bjartsýni ríkjandi
Hvíta húsið
Babbitt í framboð
Vill helmingsniðurskurð á kjarnavopnum
Bruce Babbit frá Arizona, - róttækur
tónn í afvopnunarmálum.
Bruce Babbitt, fyrrverandi
ríkisstjóri í Arizona, lýsti í gær
formlega yfir að hann sæktist
eftir útnefningu demókrata til
forsetaframboðs í kosningun-
um í nóvember á næsta ári.
Babbitt er annar demókratinn
sem gefur formlega framboðsyf-
irlýsingu. Richard Gephardt reið
á vaðið fyrir hálfum mánuði, og
búist er við að skjótlega bætist í
hópinn Gary Hart, Jesse Jack-
son, Joseph Biden frá Delaware
og ríkisstjórinn í Massachusetts,
Michael Dukakis.
Babbitt valdi sér fyrsta próf-
kjörsfylkið, New Hampshire, til
yfirlýsingarinnar, og sagðist berj-
ast undir slagorðunum: Ameríka
til forystu. Hann leggur áherslu á
gjörbreytingar í efnahagsmálum,
og leggur þar á meðal til að starfs-
menn fyrirtækja taki þátt í gróða
og tapi.
Babbitt gagnrýndi Reagan
forseta mjög fyrir íransmálin, og
sagði að aldrei ætti að láta neitt í
skiptum fyrir gísla. Hann hvatti
til helmingsniðurskurðar kjarn-
orkuvopna og gagnkvæmra
samninga um hlé á áformum í
stjörnustríðsstíl.
Babbitt hefur ekki notið um-
talsverðs fylgis í skoðanakönnun-
um hingaðtil, og hefur Gary Hart
borið höfuð og herðar yfir aðra
demókrata.
El Salvador
Viðræður undirnefndanna
sem fjalla um meðaldrægar
flaugar hófust aftur í Genf í
gær, og virðist bjartsýni báðu-
megin um úrslit.
Max Kampelman aðalsamn-
ingamaður Bandaríkjanna í Genf
hefur þó sagt að hann búist ekki
við samningum fyrren að ári, en
áður var haft eftir hinum sovéska
kollega hans Júrí Vorontsof að
búast mætti við undirritun í
sumar.
Viðræður undirnefndanna eiga
að halda áfram meðan formlegt
hlé stendur yfir í afvopnunarvið-
ræðunum í Genf, en þær hefjast
aftur 23. apríl, skömmu eftir fund
utanríkisráðherranna Shultz og
Shevardnadze í Moskvu.
-m
Pyntingar regla, dómsmeðferð undantekning
Skýrsla bandarískra lögfrœðinga dregur upp dökka mynd afástandi mannréttinda-
mála í El Salvador. Utanríkisráðuneytið ber blak afyfirvöldum landsins
Mannréttindanefnd banda-
rískra lögfræðinga hefur sent
frá sér svarta skýrslu um
ástand mannréttindamála í El
Salvador.
Þar kemur fram að pyntingar
eru daglegt brauð fyrir þá ógæfu-
sömu einstaklinga sem lenda í
klóm öryggislögreglunnar og að
níutíu prósent af yfir eitt þúsund
pólitískum föngum fengju aldrei
réttað í málum sínum.
Nánast öllum konum er hand-
teknar væru af leyniþjónustu-
mönnum væri nauðgað og að
margvíslegum aðferðum væri
beitt til að niðurlægja og kvelja
fólk sem oft væri handtekið af
smávægilegasta tilefni, stundum
þyrfti ekki nema vægan grun um
frjálslynd viðhorf.
Barsmíðar, líflátshótanir,
svelti og raflost væru eftirlætisað-
ferðir böðla sem reyna að sneiða
hjá því að of miklir áverkar sjáist
á fórnarlambinu.
Þótt enn megi ganga fram á
sundur skotin lík manna við veg-
arbrún í landinu, handaverk ör-
yggislögreglunnar, þá hefur dreg-
ið stórlega úr pólitískum morðum
undanfarin ár, hermir skýrslan.
Skýrsluhöfundar fullyrða að
umbætur í dómskerfi landsins séu
til lítils þegar liðsforingjar jafnt
sem óbreyttir kvalarar úr röðum
öryggislögreglunnar væru hafmr
yfir lög og rétt og þyrftu aldrei að
sæta ábyrgð gerða sinna.
Ennfremur beindu lögfræðing-
arnir spjótum sínum að löndum
sínum sem taka að sér þjálfun ör-
yggissveitanna og hersins og
sögðu margt í þeirri kennslu orka
tvímælis svo ekki væri kveðið
sterkar að orði.
í síðasta mánuði lét utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna fara frá
sér skýrslu um sama efni en í
henni kveður við allt annan tón.
Þar er það fullyrt fullum hálsi að
framferði hers öryggissveita
breytist stöðugt til batnaðar.
Að vísu væru einhverjir að
kveinka sér undan pyntingum en
þar sem ekki sæust neinir áverkar
á mönnum væri ekkert hægt að
staðhæfa um sannleiksgildi orða
þeirra! Ekki væri vitað um nein
dæmi þess að menn væru píndir
og kvaldir í fangelsum og að böðl-
ar dauðasveitanna væru orðnir
friðsamir og mættu ekki vamm
sitt vita!
Það væri grátlegt til þess að vita
ef bandarískum almenningi gæf-
ist ekki kostur á að bera þetta
makalausa plagg Reaganstjórn-
arinnar saman við skýrslu
mannréttindanefndar lögfræð-
inganna.
-ks.
AUGLÝSENDUR
'M V
Fermingargjafahandbók
Þjóðviljans kemur út
i flmmta ainn 26. mars n.k.
Þeir augiýsendur,
sem áhuga hafa á að auglýsa
í handbóklnni,
eru vlnsamlegast beðnir um
að hafa samband við
auglýsingadeild Þjóðviljans,
Rannveigu,
í síma 681333 fyrir 23. mars
í síðasta lagi.
Vestur-Pýskaland
Ný ríkis-
stjórn
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði í gær að stjórn-
armyndunarviðræður kristilegu
flokkanna og Frjálslynda flokks-
ins væru til lykta leiddar og myndi
hann kynna ráðherralistann
næstkomandi fimmtudag.
Sérfræðingar gera ekki ráð
fyrir að miklar breytingar hafi
verið gerðar á ríkisstjórninni og
að sömu menn muni gegna þýð-
ingarmestu embættunum. -ks.