Þjóðviljinn - 11.03.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Miðvikudagur 11. mars 1987 58. tðlublað 52. árgangur
Kennarar
Gengur hægt
en gengur pó
✓
Kristján Thorlacius formaður HIK:
Menn erufarnir að tala um launin
„Ég er ekki búinn að missa alla
von um að það takist að semja án
þess að til verkfalls þurfí að koma
16.mars“ sagði Kristján Thorlac-
ius formaður HÍK í samtali við
Þjóðviljann í gær þegar vinnu-
hópur félagsins og ríkisins gekk til
fundar í Arnarhvoli.
Vinnuhópur þessi, sem skipað-
ur er tveimur fulltrúum frá hvor-
um aðila, hefur setið linnulítið á
fundum síðan í síðustu viku.
„Við erum ennþá að ræða
breytt form á vinnutímanum en
svo eru menn einnig farnir að tala
um launin. Þetta gengur ósköp
hægt en gengur þó“ sagði Krist-
ján. „Krafan um 45.500 króna
lágmarkslaun er stóra málið en
það skiptir auðvitað miklu máli
til hve langs tíma verður samið.
Ég tel að ríkið hafi fullan hug á að
semja við okkur til tveggja ára,
en það hefur ekki verið ákveðið.“
Kristján sagði að enn hefðu
fulltrúar ríkisins ekki komið með
nein tilboð í launamálum.
Samninganefndir ríkisins og
HÍK munu hittast í dag og má þá
búast við því að málin skýrist
eitthvað.
-vd.
Á fundi í Arnarhvoli í gær: Gísli Ólafur
Pétursson stjórnarmaður í HlK, Krist-
ján Thorlacius formaður HÍK og Ind-
riði Þorláksson formaður samninga-
nefndar ríkisins. (Mynd: Sig).
Bókamarkaðurinn
Kommúnista-
ávaipið uppselt
Halldór Guðmundsson útgáfustjóri M & M:
Klassíkin selst best. Hugum að endurútgáfu
Það voru síðustu 105 eintökin
sem fóru af Kommúnistaá-
varpinu á Bókamarkaðinum
þannig að við verðum að fara að
huga að endurútgáfu þessarar
ágætu bókar þeirra Marx og Eng-
els, sagði Halldór Guðmundsson
útgáfustjóri Máls og Menningar í
samtali við Þjóðviljann.
„Betri gerðin af kommúnista-
áróðri var mjög vinsæl á markað-
inum, en við seldum ekki mikið
áf sögu Kommúnistaflokksins og
Ráðstjórnarríkjanna en það var
mikil eftirspurn eftir Kommún-
istaávarpinu“ sagði Halldór.
„Það er sennilega eins með kom-
mpnismann og bókmenntirnar,
klassíkin selst best.“
Halldór sagði að Mál og menn-
ing hefði selt allt að fjórum sinn-
um meira nú en á síðasta bóka-
markaði.
-vd.
Launajafnrétti
Vægi dagvinnu verði aukiö
Húsavík
Félag
ASÍog BSRB á ráðstefnu um jafnréttið og verkalýðshreyfinguna.
Lára V. Júlíusdóttir: Rætt um leiðir til að koma í veg fyrir launamisrétti
að fóru fram miklar og fjöru-
gar umræður um
jafnréttismálin og verkalýðsh-
reyfinguna á þessarri ráðstefnu
og við mótuðum þarna okkar inn-
legg í þá umræðu sem nú fer fram
innan jafnréttisnefndar NFS
sagði Lára V. Júlíusdóttir lög-
fræðingur ASI í samtali við Þjóð-
viljann, en hún var ein 50 fulltrúa
sem komu til ráðstefnu ASÍ og
BSRB um launamisrétti kynj-
anna í Borgarnesi um helgina.
„Á vegum NFS, sem eru
heildarsamtök verkalýðsh-
reyfinganna á Norðurlöndum, er
starfandi jafnréttisnefnd og ti-
lefni ráðstefnunnar var að þessi
nefnd hefur ákveðið að endur-
skoða fjölskyldustefnu samtak-
anna“ sagði Lára.
„Á ráðstefnunni komu meðal
annars fram nýjustu tölur frá
Þjóðhagsstofnun um launamis-
rétti milli kynjanna og jafnframt
það sem vitað var, að það er mest
utan dagvinnutíma. Það kemur
til af því að karlarnir vinna meiri
yfirvinnu og fá þess utan alls kon-
ar aukasporslur.
Helsta svarið við þessu er að
auka vægi dagvinnutekna og
einnig var rætt um hvort rétt væri
að selja atvinnurekendum yfir-
vinnu á svo dýru verði að þeir
neituðu að kaupa hana. Þá voru
einnig háværar raddir uppi um að
selja yfirvinnuna á svo lágu verði
að fólk fengist ekki til að vinna
hana. Menn greinir á um leiðir en
það er eftir leggja þetta allt fyrir
stjórnir samtakanna“ sagði Lára
að síðustu.
-vd.
um útvarp
Átta aðilar á Húsavík hafa
stofnað hlutafélag um rekstur út-
varpsstöðvar þar í bæ og hyggjast
hefja útscndingar eftir u.þ.b. tvo
mánuði.
Jóhannes Sigmundsson, sem er
einn áttmenninganna, sagði þetta
vera allt á undirbúningsstigi enn-
þá, þeir væru að vinna í tækja-
kaupum og slíku en það liti vel út
með fyrirgreiðslur bæði í sam-
bandi við tæki og húsnæði.
Utvarpssendingar verða bara á
Húsavík, dagskráin á léttum nót-
um og fréttir frá Húsavík og ná-
grenni. Til að byrja með verður
aðeins útvarpað í 2-3 tíma á dag
en stefnt er að því að útvarpa all-
an sólarhringinn um helgar þegar
frá líður.
„Þetta verður einungis áhuga-
mannaútvarp" sagði Jóhannes,
„við ætlum að reyna að fjár-
ntagna kostnað með auglýsingum
en dagskrárgerð verður unnin af
sjálfboðaliðum. Þetta er svolítið
hæpið fyrirtæki fjárhagslega, en
við ætlum að taka sjensinn. -ing
Akranes
Deilt um útboðsmál
Bœjarstjórn ákvað ígær að hafna tilboði Trésmiðju Guðmundar Magnússonar í
B-álmu Grundaskóla. Guðmundur átti lægsta tilboð
Bæjarstjórn Akraness ákvað á
fundi í gær að ganga til samninga
við Trésmiðjuna Fjölni um tilboð
trésmiðjunnar í innréttingar í B-
álmu Grundaskóla. Trésmiðja
Guðmundar Magnússonar átti
lægsta tilboð í verkið, en bæjar-
yfirvöld treystu sér hins vegar
ekki til þess að taka því tilboði,
vegna reynslu af fyrri viðskiptum
við fyrirtækið og er þar vísað til
bygginga sjálfseignaríbúða við
Dvalarheimilið Höfða og kaup
verkamannabústaða i fjölbýlis-
húsi sem Trésmiðja Guðmundar
byggði.
Trésmiðja Guðmundar bauð
16,8 milljónir króna í verkið í
Grundaskóla, Fjölnirbauð ásamt
Tréverki 17,8 milljónir.
-gg