Þjóðviljinn - 12.03.1987, Qupperneq 1
Fimmtudagur 12. mars 1987 59. tölublað 52. órgangur
i
Elliðaár
Olíugeymana burt!
Samþykkt í borgarráði um úttekt á olíutönkum. Akvörðun frestað um öryggisráðstafanir við
olíutanka við Elliðaár. Sigurjón Pétursson: Grípa þarftil varúðarráðstafana.
Ásgeir Ingólfsson: Tankarnir verða að fara. Lífríki Elliðaánna í hættu
Skaðinn væri óbætaniegur, ef
til þess kæmi að geymarnir
gæfu sig. Olían myndi leka beint í
ána og það þyrfti ekki frekari
vitnanna við um afleiðingarnar
fyrir iífríki árinnar, sagði Ásgeir
Ingólfsson um það grandvara-
leysi sem ríkir gagnvart staðsetn-
ingu olíutanka Landsvirkjunar
yið austurbakka Elliðaánna. En
Ásgeir er trúlega manna fróða-
stur um EUiðaárnar og höfundur
samnefndrar bókar.
í kjölfar óhappsins í Grundar-
firði á dögunum, er olíutankur
gaf sig, hafa augu manna opnast
fyrir því að víðar er pottur brot-
inn í þessum efnum. Borgarráð
hefur nú samþykkt tillögu Sigurj-
óns Péturssonar um að féla borg-
arverkfræðingi að gera úttekt á
ásigkomulagi olíutanka í borg-
inni, sem lokið yrði innan tveggja
mánaða. Jafnframt gerði tillagan
ráð fyrir að Landsvirkjun yrði
gert að koma við fullnægjandi ör-
yggi við tanka sína við Elliðaám-
ar, en ákvörðun var frestað til
næsta fundar.
„Þótt menn hafi frestað á-
kvarðanatöku um málið, hef ég
ekki ástæðu til að trúa öðru en
allir séu henni sammála. Þarna
þarf að koma einhverjum vörn-
um við,“ sagði Sigurjón Péturs-
son.
Ásgeir Ingólfsson sagði í sam-
tali við blaðið að þetta væri hið
þarfasta mál. „Ég hef lengi óttast
afleiðingar þess að þarna henti
óhapp. Menn hafa orðið varir við
olíubrák þarna uppfrá. Það virð-
ist því sem olía hafi smitað frá
tönkunum eða leiðslum þeim
tengdum. Annars get ég ekki séð
að hægt sé að koma við við-
eigandi öryggisráðstöfunum við
tankana. Þeir standa framarlega
á bakkanum og það helst enginn
jarðvegur þarna sem gæti tekið
við olíunni, ef leki yrði. Olían
færi því í ána þótt þarna kæmi
einhver varnargarður. Að mínu
áliti er eina raunhæfa leiðin að
flytja tankana frá ánni, áður en
við þurfum að horfa uppá óbæt-
anlegt slys,“ sagði Ásgeir.
-RK
.oernmM T V*
Olíutankar Landsvirkjunar á eystri bakka Elliðaánna. Enginn varnargaður er umhverfis tankana til að taka við olíunni ef
slys bæri að höndum. Olían ætti greiða leið útí ána. Mynd-E.ÓI.
Kennarar
Tilboðið
alltof
lágt
Gunnlaugur
Ástgeirsson, fulltrúi í
samninganefnd HIK:
Tillaga umfasta viðveru
inni í tilboðinu en
launatilboðið oflágt.
Verkfall raunhœfur
möguleiki
„Við semjum ekki upp á þetta
tilboð, það er alveg klárt, og
menn þurfa að fara að gera ráð
fyrir verkfalli sem raunhæfum
möguleika,“ sagði Gunnlaugur
Ástgeirsson, einn fulltrúa HÍK í
samningancfnd kennara, í sam-
tali við Þjóðviljann að loknum
fundi í gær þar sem samninga-
nefnd rfldsins iagði fram sitt
fyrsta tilboð til kennara í yfir-
standandi kjaradeilu.
„Tilboðið felur í sér ýmsar til-
færslur og hækkanir á móti því,“
sagði Gunnlaugur, en hann
kvaðst ekki tilbúinn að nefna
neinar tölur, þar sem stjórn HÍK
ætti eftir að fara betur yfir málin.
„Eitt af því sem er inni í þessu
er tillagan um fasta viðveru,
lækkun á heimavinnu og lækkun
á yfirvinnugreiðslum sem yrðu
færðar inn í fastakaupið. í fljótu
bragði virðist mér að það sem
þeir eru tilbúnir að borga fyrir
fasta viðveru sé alltof lítið og mér
sýnist hvorki verkfallshótunin né
nýgerð samþykkt landsfundar
Sjálfstæðisflokksins um bætt kjör
kennara hafa haft nokkur áhrif á
gerð þessara tilboða,“ sagði
Gunnlaugur.
Stjórnarfundur var haldinn hjá
HÍK í gær og verður haldið áfram
í dag. Búast má við að kennarar
svari tilboðinu á næsta samninga-
fundi sem haldinn verður kl.
17.00 í dag.
Líklegt er að HÍK boði til al-
menns félagsfundar á föstudag
eða laugardag.
-vd.
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Matthías dregur lappimar
Rœtt um aðfresta utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna vegna tregðu íslenskra
stjórnvalda varðandi kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Byggingarmenn
Samningar
að takast?
Samningafundur byggingar-
manna og meistara stóð enn um
miðnætti þegar Þjóðviljinn fór í
prentun og var búist við funda-
höldum fram eftir nóttu.
Nokkur skriður komst á við-
ræður deiluaðila í gær eftir að
vinnuveitendur lögðu fram tilboð
um launahækkun sem byggingar-
menn telja mögulegan grundvöll
frekari viðræðna.
Verkfall trésmiða í Reykjavík
og byggingarmanna á Suðurnesj-
um, Suðurlandi og í Hafnarfirði
hófst á miðnætti í fyrrinótt og hef-
ur það verið vel virt af félags-
mönnum. Sjá bls. 2.
Matthías Á. Mathiesen utan-
ríkisráðherra ítrekaði við
umræður um utanríkismál á Al-
þingi í gær andstöðu sína og ríkis-
stjórnarinnar við þátttöku Is-
lands í kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndum. Stolten-
berg, nýskipaður utanrfldsráð-
herra Noregs, hefur lagt til að
fundi utanrfldsráðherra Norður-
landa, sem halda á í Reykjavík
25. mars n.k. verði frestað, ef
vera kynni að tregða utanríkis-
ráðherra íslands til að taka þátt í
þessu samstarfl væri vegna vænt-
anlegra þingkosninga hérlendis.
Á fundi utanríkisráðherrana er
ráðgert að ganga frá skipan emb-
ættismannanefndar til undirbún-
ings að kjarnorkuvopnalausum
Norðurlöndum. Heimildir Þjóð-
viljans herma að Danir og Norð-
menn séu tilbúnir að víkka skil-
greiningu hins kjarnorkuvopna-
lausa svæðis þannig að vinnu-
rammi embættismannanefndar-
innar verði ekki bundinn ákveðn-
um landfræðilegum mörkum,
mætti það verða til þess að
auðvelda íslenskum
stjórnvöldum að skipa í nefn-
dina, en jafnframt gera þeim erf-
iðara fyrir með að hafna sam-
starfi við hinar Norðurlanda-
þjóðirnar í þessu merka máli.
Miklar umræður urðu um þessi
mál á Alþingi í gær og gærkvöld
og gagnrýndu Hjörleifur Gutt-
ormsson, Páll Pétursson og Guð-
rún Agnarsdóttir harðlega
þjónkun utanríkisráðherra við
það sem Guðrún nefndi kjallar-
autanríkisstefnu Hvíta hússins og
Páll sagðist vona að yfir næstu
utanríkisráðherraskýrslu sem
fjallað yrði um á Alþingi yrði
þjóðleg reisn.
-sá./-m.